Morgunblaðið - 05.01.2019, Side 52
afsláttur af
öllum vörum
Kvennakórinn Embla heldur tón-
leika í Hömrum í Hofi á Akureyri á
morgun kl. 17. Á dagskrá er verkið
Adiemus eftir velska tónskáldið
Karl Jenkins en í því er heimstónlist
blandað saman við klassík og djass.
Auk kórsins flytja verkið þau Helga
Kvam á píanó, Helen Teitsson á
flautur, Halldór G. Hauksson, Hauk-
ur Pálmason og Ingvi Rafn Ingva-
son á slagverk og Pétur Ingólfsson
á kontrabassa. Einsöngvarar eru úr
röðum kórfélaga og stjórnandi er
Roar Kvam.
Embla flytur Adiemus
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég er bara gríðarlega ánægð, mið-
að við svona stuttan undirbúning.
Fyrst ég er komin á fullt í þetta aft-
ur þá er það hluti af því að stefna
alltaf á landsliðssæti,“ segir Bryn-
dís Lára Hrafnkelsdóttir knatt-
spyrnumarkvörður sem er komin í
íslenska landsliðshópinn, ári eftir
að hún ákvað að taka sér eins árs
frí frá fótbolta. »1
Hluti af þessu að
stefna á landsliðssæti
Tónlistarsjóður Rótarýhreyfingar-
innar á Íslandi stendur fyrir ár-
legum tónleikum í Norðurljósasal
Hörpu á morgun kl. 17 en á þeim
verða einnig veitt verðlaun úr
Tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi.
Garðar Cortes flytur ávarp og
flytjendur tónlistarinnar verða
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
messósópran og
Helga Bryndís
Magnúsdóttir pí-
anóleikari, auk
verðlaunahafa
sjóðsins í ár,
Geirþrúðar Önnu
Guðmundsdóttur
sellóleikara og
Óskars Magn-
ússonar
gítarleikara.
Tónleikar og afhending
verðlauna Rótarý
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þrettándagleði Kringlukrárinnar í
Reykjavík verður í kvöld og fer nú
fram í 25. sinn. Hljómsveitin Gull-
kistan leikur fyrir dansi og söngvar-
inn Ingólfur Þórarinsson verður sér-
stakur heiðursgestur en hátíðin
stendur yfir frá klukkan 23 til klukk-
an tvö eftir miðnætti og verður ekki
endurtekin.
Í Gullkistunni eru tónlistarmenn-
irnir Gunnar Þórðarson, Jón Ólafs-
son, Ásgeir Óskarsson og Óttar Felix
Hauksson. „Við erum svona til spari,
komum fram á nokkrum bæjar-
hátíðum á hverju ári, höfum spilað á
skötuveislu suður í Garði og verðum
nú á þrettándagleðinni á Kringlu-
kránni sem Gullkistan í áttunda
sinn,“ segir Óttar Felix, sem heldur
utan um bandið og sér um að allt
gangi snurðulaust fyrir sig.
„Það var kátt hérna um laugar-
dagskvöldið á Gili, það kvað við öll
sveitin af dansi og spili“ er byrjunin á
Laugardagskvöldi Magnúsar Ás-
geirssonar. Á árum áður fór fólk
gjarnan á ball um helgar en dans-
leikjum hefur fækkað til muna á höf-
uðborgarsvæðinu eftir að bjórinn var
leyfður fyrir um 30 árum. Krár tóku
við af hefðbundnum skemmtistöðum
eins og til dæmis Röðli, Þórskaffi,
Ljósmynd/Jóhann Ísberg
Gullkistan Frá vinstri: Óttar Felix Hauksson, Ásgeir Óskarsson, Gunnar Þórðarson og Jón Ólafsson.
Dans og spil í hávegum
Þrettándagleði Kringlukrárinnar haldin í 25. sinn
hefur auðvitað samið skemmtileg og
létt lög, fallegar ballöður og fleira.“
Yfirleitt hafa þeir boðið upp á sér-
stakan heiðursgest. Í þeim hópi hafa
til dæmis verið Björgvin Halldórs-
son, Magnús Kjartansson, Stefán
Hilmarsson og Eiríkur Hauksson. Sá
síðastnefndi sló í gegn með laginu
Gaggó Vest 1985 og söng það í fyrsta
sinn með höfundinum Gunnari Þórð-
arsyni í fyrra. Í kvöld stígur Ingó
Veðurguð á svið með bandinu.
„Hann er yngri en við, líflegur og
skemmtilegur, góður söngvari, sem
kann fjöldann af lögum,“ segir Óttar
Felix.
Venjulega hefur ballinu lokið
klukkan þrjú eftir miðnætti en nú
lýkur því klukkan tvö eins og gjarnan
var á laugardagsböllum í gamla
daga. „Margir hafa kvartað undan
því að þurfa að dansa til klukkan þrjú
og við ákváðum því að
lokalagið yrði búið
klukkan tvö,“ segir
Óttar Felix. „Við
teljum það til mikilla
bóta. Þá þarf fólk
ekki að vaka eins
lengi.“
Glaumbæ, Klúbbnum og Sigtúni.
Böllin í Súlnasalnum á Hótel Sögu
nutu mikilla vinsælda og einstaka
sinnum eru þar haldnir dansleikir, en
annars er fátt um fína drætti.
Kringlukráin hefur samt lagt dans-
hefðinni lið og árleg þrettándagleði
hefur notið mikilla vinsælda.
„Fólk á öllum aldri sækir þessa
skemmtun,“ segir Óttar Felix.
„Ákveðinn kjarni mætir alltaf en
annars er þetta góður og breiður
hópur.“
Pops gaf tóninn
Fyrstu árin sá hljómsveitin Pops
um að leika fyrir dansi á þrettánda-
gleði Kringlukrárinnar. „Við spil-
uðum fram að sviplegu fráfalli Péturs
Kristjánssonar söngvara,“ segir Ótt-
ar Felix. „Rúnar heitinn Júlíusson
söng og spilaði með okkur 2005,
Magnús Kjartansson og Gunnar
Þórðarson bættust síðan í hópinn en
þegar Magnús flutti austur fyrir fjall
og Birgir Hrafnsson hætti varð Gull-
kistan til 2011. Við fjórmenningarnir
höfum haldið hópinn síðan.“
Gullkistan er með þétta
dagskrá í farteskinu. Óttar
Felix segir að þeir leggi
áherslu á að spila erlend lög
frá sjötta, sjöunda og áttunda
áratug liðinnar aldar auk
helstu laga Gunnars. „Hann Ingó Veðurguð