Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forystumenn SA Halldór Benjamín
Þorbergsson og Eyjólfur Árni
Rafnsson mæta til fundar í gær.
Reikna má með að í næstu viku komist
meiri skriður á kjaraviðræður Sam-
taka atvinnulífsins og verkalýðsfélag-
anna fjögurra sem vísuðu yfirstand-
andi deilu til Ríkissáttasemjara.
Ákveðið var á sáttafundi í gær að fast-
setja þrjá fundi í næstu viku; á mánu-
dag, miðvikudag og föstudag. Fulltrú-
ar SA og VR, Eflingar, Verkalýðs-
félags Akraness og Verkalýðsfélags
Grindavíkur funduðu í um klukku-
stund í gær og sagðist Halldór Benja-
mín Þorbergsson, framkvæmdastjóri
SA, eftir fundinn reikna með að næsta
vika gæti reynst drjúg. Þar yrði reynt
að þoka ýmsum málum áfram og svo
tækju menn stöðuna í lok vikunnar.
SA átti einnig samningafundi með
samninganefnd Starfsgreina-
sambandsins í gær og verður þeim
viðræðum haldið áfram í dag og á
morgun. Þá munu SA einnig funda
með iðnaðarmannafélögunum á föstu-
daginn og Landssambandi íslenskra
verslunarmanna. omfr@mbl.is
Næsta vika
gæti reynst
drjúg
Stíf fundahöld
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
ENNMEIRI
VERÐ-
LÆKKUN Á
ÚTSÖLU-
VÖRUM
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Enginn fjöldaflótti úr VR
Formaður VR segir FLM varla stéttarfélag KVH sé farþegi í kjaraviðræðum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vísar því á
bug að margir félagsmenn VR hafi undanfarið
gengið í önnur stéttarfélög vegna óánægju með
málflutning verkalýðshreyfingarinnar.
Tilefnið er viðtöl í Morgunblaðinu við Gunnar
Pál Pálsson, formann Félags lykilmanna (FLM),
og Birgi Guðjónsson, formann Kjarafélags við-
skipta og hagfræðinga (BHM-félag). Segjast þeir
hafa skráð fv. félaga í VR að undanförnu.
„Þeir eru að vekja athygli á sínum félagsskap og
eru að auglýsa grimmt, sérstaklega Félag lykil-
manna. Það er með áberandi auglýsingar á Face-
book. Þessi afstaða kemur mér ekki á óvart.
Tölurnar okkar hjá VR segja hins vegar allt aðra
sögu. Félagsmönnum VR hefur enda stöðugt
fjölgað síðustu ár. Þeir voru um 30 þúsund í árslok
2014 en rúmlega 35.500 um síðustu áramót.“
Áður titringur fyrir kjarasamninga
Ragnar Þór rifjar upp að í aðdraganda kjara-
samninga hafi jafnan verið titringur í kringum
stéttarfélögin, til dæmis þegar VR kaus um að
fara í allsherjarverkfall 2015. Þá hafi birst fréttir
um mikinn flótta frá félaginu. Það hafi mjög verið
orðum aukið. Samþykkt hafi verið að fara í alls-
herjarverkfall en félagsmönnum fjölgaði um 2,5%.
Hann segir að gera þurfi greinarmun á félögum,
vart sé hægt að flokka FLM sem stéttarfélag.
„Réttara er að tala um tryggingafélag. Það inn-
heimtir örlítið iðgjald til að fá sjúkrasjóðsfram-
lagið, sem er síðan áframselt til Sjóvár. Umsækj-
endur þurfa að veita aðgang að upplýsingum um
heilsufar til að verða samþykktir. Það á ekki við
um stéttarfélögin. Þótt FLM séu komið með einn
kjarasamning get ég ekki séð að hægt sé að flokka
það sem stéttarfélag,“ segir Ragnar Þór.
Það sé sameiginlegt með FLM og KVH að bæði
félög séu farþegar í kjaraviðræðum. Þau eigni sér
bráð sem af öðrum sé felld í baráttunni.
„Ef fólk vill ekki taka þátt í að baka brauðið og
berjast fyrir betri lífskjörum, ekki aðeins fyrir sig
sjálft heldur líka afkomendur okkar, og hefur ekki
meiri stéttarvitund en þetta, og telur hag sínum
betur borgið í að láta aðra draga vagninn, þá er
það afstaða út af fyrir sig. Það þarf einhver að taka
að sér að draga vagninn fyrir verkalýðshreyfing-
una, stíga fram og berjast fyrir betri lífskjörum og
réttlátara samfélagi. Það er allra hagur. Ég hef
ekki séð KVH í forystu við að bæta kjör þessara
hópa. Forysta KVH hefur verið meiri farþegi en
hitt í baráttunni fyrir bættum kjörum fólks. “
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Sjálfstæðismenn munu bera upp til-
lögu í borgarráði í dag um að
Reykjavíkurborg semji við ríkið um
Keldnalandið og hefjist tafarlaust
handa við skipulagningu svæðisins.
Segir í tillögunni að lagt verði upp
með að nægt rými verði fyrir stofn-
anir og fyrirtæki, svo sem framtíðar-
uppbyggingu sjúkrahúss, og að enn
fremur verði áhersla á að skipu-
leggja hagstætt húsnæði, sem sár-
lega vanti í borginni.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, segir flokkinn hafa
áður talað fyrir því að Keldnalandið
yrði nýtt, meðal annars í kosninga-
baráttunni. „Við sögðum þá að það
gæti verið lausn fyrir stofnanir eins
og til dæmis framtíðarsjúkrahús og
aðrar slíkar, sem gæti aftur létt á
umferðarþunganum,“ segir Eyþór
og bendir á að tvennt hafi komið upp
í umræðunni nýlega sem geri tillög-
una sérstaklega tímabæra nú.
„Annars vegar kemur þessi átaks-
hópur um aðgerðir í húsnæðismálum
sem bendir sérstaklega á Keldna-
landið og segir að leggja eigi sér-
staka áherslu á það, og svo er þessi
könnun meðal lækna, þar sem kom í
ljós að 60% lækna vildu staðarvals-
greiningu fyrir nýtt sjúkrahús.“
Tillagan geti því slegið tvær ef
ekki þrjár flugur í einu höggi. „Þetta
er bæði lausn í húsnæðismálum og
aðstöðu framtíðarsjúkrahúss og
þess vegna er ekki eftir neinu að
bíða,“ segir Eyþór að lokum.
Vilja að borgin semji við
ríkið um Keldnalandið
Tillaga sjálfstæðismanna lögð fram í borgarráði í dag
Morgunblaðið/Ómar
Keldnaholt Sjálfstæðismenn vilja
hefja uppbyggingu í Keldnalandi.
Ég fékk póst,“ segir Karl Gauti
Hjaltason þingmaður, um tölvupóst
sem honum barst frá Helgu Völu
Helgadóttur, þingmanni Samfylk-
ingarinnar og nefndarmanni í um-
hverfis- og samgöngunefnd, meðan á
fundi nefndarinnar stóð 1. júní sl.
„Fórum á Klaustur,“ var yfirskrift
tölvupóstsins.
Karl Gauti segir þetta sýna að það
sé ekki einsdæmi að þingmenn fái
sér bjór á vinnutíma. Þrjár þingkon-
ur stjórnarandstöðunnar viku af
fundi rúmum tveimur tímum áður en
fundi var slitið. Skömmu síðar sendi
einn þremenninganna, Helga Vala,
póst þar sem stendur m.a. að það sé
lokkandi sól í garðinum og bjór á
krana. Nánar á mbl.is.
„Fórum á
Klaustur“
Gangandi vegfarandi í Skerjafirði varð að víkja
úr vegi í gær þegar snjóruðningstæki átti þar
leið um. Í leiðinni var stígurinn sandborinn, allt
fyrir öryggi vegfarenda. Stjórnendur snjóruðn-
ingstækja á höfuðborgarsvæðinu hafa haft í
nægu að snúast eftir snjókomu síðustu daga.
Vissara að verða ekki á vegi vinnuvélanna
Morgunblaðið/Eggert
Snjóruðningstæki í önnum við að hreinsa götur og göngustíga