Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Þegar frost er á fróni Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi 100% Merino ullarnærföt Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það voru tímamót á Íslandi árið 2018 þegar ávísanir ávanabindandi lyfja drógust saman um 6,1% miðað við árið 2017,“ segir Ólafur B. Einars- son, verkefnisstjóri lyfjamála hjá Embætti landlæknis. Ólafur segir að af ávanabindandi lyfjum muni mest um ávísanir ópíóíða sem drógust saman um 13,6% á árinu. Þessi minnkun hafi komið fram um mitt ár 2018 og greinilegt að vakning hafi átt sér stað meðal lækna um að koma í veg fyrir óhóflega ávís- un og líkur á misnotkun. Ólafur segir að af öðrum lyfjum megi nefna að ávísanir metýlfenídats hafi dregist saman um 4,2% en ávísanir þessara lyfja hafi vaxið hratt á Íslandi á hverju ári fram til 2017. Skýringin á lækkun sé að hluta til sú að önnur örvandi lyf komu á markað 2018 og hafa einhverjir sjúklingar fengið þau í stað metýlfenídats. „Við sjáum að staðan í ávísunum hefur batnað á margan hátt en fyrir árið 2018 voru færri einstaklingar sem fengu ávísað háum skömmtum ávanabindandi lyfja heldur en fyrir 2008. Læknar hafa nú betri aðgang að upplýsingum ásamt því að unnið hefur verið markvisst að því að draga úr ávísunum ávanabindandi lyfja hér á landi,“ segir Ólafur sem telur Ís- land eiga langt í land með að standa jafnfætis nágrannaþjóðunum. Í frétt Morgunblaðsins í gær var sagt að 14% fækkun hefði verið á ávísunum fíkni- og ávanalyfja milli 2017 og 2018 en það er ekki rétt eins og fram kem- ur hér að ofan. Notkun rítalíns minnkar  Ávísunum á metýlfenídats-lyf hefir minnkað um 4,2% milli 2017 og 2018  Ný örvandi lyf skýra að hluta til minnkunina 19,5 21,5 13,0 Ávísanir helstu tauga- og geðlyfja 2008-2018 200 150 100 50 0 2008 2012 2016 2017 2018 Lyfjaflokkur 2008 2012 2016 2017 2018 Breyting 2017-2018 Þunglyndislyf 90,8 107,7 141,3 150,7 158,6 5,2% Svefnlyf og róandi lyf 65,7 71,0 69,9 69,8 69,4 -0,5% Metýlfenídat (rítalín o.fl .) 11,1 17,6 29,8 33,4 32,0 -4,2% Flogaveikilyf 14,8 17,6 20,9 21,8 22,0 0,9% Ópíóíðar 21,6 23,1 25,4 24,8 21,5 -13,6% Róandi og kv íðastillandi lyf 22,8 21,8 21,1 20,8 19,5 -6,0% Geðrofslyf 9,8 11,6 12,5 12,7 13,0 2,2% Ávísaðir dagskammtar (DDD) / 1.000 íbúa á dag H ei m ild : E m bæ tt i l an dl æ kn is Þunglyndislyf Svefnlyf og róandi lyf Metýlfenídat DDD/1.000 íbúa á dag 2018 158,669,4 32,0 22,0 DDD/1.000 íbúa á dag Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bókanir sveitarstjórnarmanna í Reykhólahreppi varðandi leiðarval Vestfjarðavegar sýna að þeir telja að Vegagerðin hafi í raun tekið skipu- lagsvaldið af sveitarfélaginu. „Við höfum ekki tekið neitt vald af sveitarstjórn. Hún þarf eins og aðrir að horfast í augu við þá kosti sem eru í boði,“ sagði Bergþóra Þorkelsdótt- ir, forstjóri Vegagerðarinnar. Hún sagði að stofnunin hefði miðlað fyr- irliggjandi upplýsingum um leiðar- valið til sveitarstjórnar og almenn- ings á Reykhólum 9. janúar sl. „Við leggjum til Þ-H leiðina vegna þess að hún er styst, öruggust og ódýrust,“ sagði Bergþóra. „Þ-H leið- in kemur eins út úr umhverfismati og hinar leiðirnar að undantekinni jarðgangaleið. Svokölluð R leið hef- ur ekki farið í umhverfismat. Þegar ákveðið var hvað færi í umhverfis- mat þótti sýnt að R leiðin yrði mjög dýr og var gert samkomulag við þá- verandi sveitarstjórn um að fara ekki þá leið. Peningarnir sem ætlaðir eru í þetta verkefni duga ekki fyrir A3 leið, sem er unnin útgáfa af R leiðinni, og kostar fjórum milljörðum meira en Þ-H leiðin.“ Bergþóra sagði að Þ-H leiðin væri raunhæfur kostur miðað við það fjár- magn sem veita ætti í verkefnið og því væri hún lögð til. Vildu menn ekki una því þyrfti að breyta for- sendum, sem aðallega væru fjár- hagslegar. Bókuðu á víxl Sveitarstjórn Reykhólahrepps mætti til fundar á þriðjudaginn var og var leiðarvalið á dagskrá. Árný Huld Haraldsdóttir varaoddviti kynnti tillögu um að sveitarstjórnin samþykkti að Reykhólahreppur aug- lýsti áður fram komna breytingu á aðalskipulagi sem fól í sér Þ-H leið um Teigsskóg. Ingimar Ingimarsson oddviti gerði tillögu um að haldin yrði íbúakosning um legu Vest- fjarðavegar í gegnum Reykhóla- hrepp. Hún var felld með þremur at- kvæðum gegn einu. Einn sat hjá. Tillaga Árnýjar var samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Í bókunum Árnýjar kom fram að hún teldi sig ekki hafa haft raun- verulegt val um hvaða leið yrði farin. „Raunverulegt skipulagsvald hef- ur Vegagerð ríkisins tekið af sveitar- stjórn Reykhólahrepps.“ Þá bókaði Árný að á fundi sem hún sat með Vegagerðinni og samgönguráðherra hefði mátt skilja að búið hefði verið að ákveða skipulagið fyrir sveitar- stjórnina. „Á fundinum var farið yfir það að ein leið væri í boði og yrði hún ekki farin yrði engin leið farin og fjármagnið yrði flutt í önnur verk- efni.“ Þá hefði Vegagerðin sagt að aðrar leiðir yrðu ekki í boði fyrr en Þ-H leiðin væri fullreynd og þær mætti skoða ef hún yrði dæmd ófær að lögum. „Ég sé því ekkert annað í stöðunni en að fylgja vali Vega- gerðarinnar um leið Þ-H um Vest- fjarðaveg (60),“ bókaði Árný. Jóhanna Ösp Einarsdóttir og Embla Dögg B. Jóhannsdóttir, sem studdu tillögu Árnýjar, gerðu einnig bókun þar sem sagði m.a.: „Sveitar- félaginu hafa verið settar fjárhags- legar skorður við leiðarval í þessu ferli og lítum við svo á að það hafi ekki raunverulegt val um leið, heldur sé það að samþykkja leið sem stjórn- völd leggja til.“ Ingimar oddviti lýsti í bókun von- brigðum sínum yfir leiðarvali meiri- hlutans. „Ljóst er að hótanir, kúgun og áburður Vegagerðarinnar, ná- grannasveitarfélaga og fjórðungs- sambandsins hafa borið tilætlaðan árangur,“ sagði m.a. í bókun hans. Auk þess sagði hann að nú ætti „að gera Reykhólahrepp að tilraunastöð fyrir umhverfisofbeldi Vegagerðar- innar með stuðningi samgönguráð- herra í þeim eina tilgangi að athuga hversu langt þeir kæmust.“ Deila hart á Vegagerðina  Sveitarstjórnarmenn í Reykhólahreppi segja Vegagerðina hafa tekið sér skipulagsvald  Forstjóri Vegagerðarinnar segir að sveitarstjórnin þurfi að horfast í augu við þá kosti sem séu í boði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Teigsskógur Vegurinn að Gröf liggur í gegnum þéttan birkiskóg og kjarr. Deilt hefur verið um lagningu Vesturlandsvegar í gegnum skóginn. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fertugan karlmann í 10 mán- aða fangelsi fyrir að aka bíl ítrekað undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn hefur oft áður fengið refsingu fyrir samskonar umferðarlagabrot og einnig fyrir að aka bíl eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Fram kemur í dómnum að lög- regla stöðvaði för mannsins átta sinnum sinnum á tímabilinu frá nóvember 2017 til september á síð- asta ári og reyndist hann í sex skipti vera undir áhrifum fíkniefna. Í eitt skiptið fundust einnig kókaín, am- fetamín, e-tafla og kannabis í bíl mannsins. Dómurinn féllst á kröfur lögreglunnar um að þessi efni yrðu gerð upptæk. Maðurinn hefur undanfarin þrjú ár fimm sinnum gengist undir sektarrefsingar fyrir vörslu fíkni- efna og fyrir að aka ýmist undir áhrifum ávana- og fíkniefna og/eða sviptur ökurétti. Þá var hann dæmd- ur í fjögurra mánaða fangelsi í nóvember 2017 fyrir slík brot. Í dómnum segir, að maðurinn hafi skýlaust játað brot sín og sé sekt hans talin sönnuð. Morgunblaðið/Þorkell Dómhús Héraðsdómur Reykjavíkur er til húsa við Lækjartorg. 10 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnaakstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.