Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 60
60 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 ABBA síld á borðið um þorrann Afmælisdagurinn verður einfaldur og góður. Vinna og venjulegtstúss og svo koma dæturnar hingað heim í mat,“ segir Hall-fríður María Pálsdóttir sem er 63ja ára í dag. Halla, eins og hún er jafnan kölluð, starfar sem hómópati og við höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. „Ég slasaðist alvarlega í bílslysi fyrir þrjátíu árum og endurhæfingin tók langan tíma. Sjúkraþjálfun gerði mér gott en áframhaldandi verkir plöguðu mig svo frekari meðferðar var þörf. Ég leitaði því til græðara í höfuðbeina- og spjaldhryggjar- meðferð og fékk þá loksins bót minna meina. Ég man enn daginn og stundina þegar ég losnaði við þrálátan höfuðverkinn. Allt þetta vakti áhuga minn á óhefðbundnum lækningnum sem ég nam og hef starfað lengi við – og í dag er ég með aðstöðu hér heima við Grettisgötuna í Reykjavík.“ Halla er Skagfirðingur, uppalin á bænum Utanverðunesi í Hegra- nesi. „Taugin norður er sterk. Með systkinum mínum og frændfólki eigum við jörðina Hróarsdal og förum þangað oft. Hvergi er Mæli- fellshnjúkur eins fallegur að sjá og þaðan,“ segir Halla sem hefur ferðast víða meðal annars á óvenjulega staði eins og Grænland. „Mér finnst Grænland stórkostlegt, því þar liggur einhver galdur í loftinu sem er mikið aðdráttarafl. Ferðirnar til þessa nágrannalands eru orðnar nokkrar. Við Árni Þórður Jónsson maðurinn minn fórum til Kangerlussuaq á vesturströndinni fyrir tveimur árum og þar létum við gifta okkur eftir 29 ára sambúð. Fyrir mér er Grænland því gald- ur og staður hamingjunnar.“ Ferðalangur Halla hér stödd í Narsaq á Grænlandi síðasta haust. Grænland er galdur Hallfríður María Pálsdóttir er 63ja ára í dag H ilmir Snær Guðnason fæddist 24. janúar 1969 í Reykjavík Hann gekk í Vestur- bæjarskóla, Haga- skóla og Menntaskólann í Reykja- vík og varð stúdent 1989. Hann lauk námi við Leiklistarskóla Íslands ár- ið 1994. Hilmir hefur farið með fjölmörg veigamikil hlutverk í Þjóðleikhús- inu, Borgarleikhúsinu og í kvik- myndum, auk þess sem hann hefur leikstýrt fjölda sýninga. Hilmir lék nýlega í Þjóðleikhús- inu í Efa, Slá í gegn, Horft frá brúnni, Eldrauninni, Fyrirheitna landinu, Macbeth, Með fulla vasa af grjóti, Listaverkinu, Heimsljósi og Dagleiðinni löngu. Hann hefur einnig meðal annars Hilmir Snær Guðnason leikari – 50 ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Tveir stórleikarar Stefán Karl Stefánsson heitinn og Hilmir Snær í Með fulla vasa af grjóti árið 2000, en sýningin var þrisvar sinnum sett upp, í annað sinnið árið 2012 og síðan árið 2017. Margverðlaunaður og vinsæll leikari Morgunblaðið Ófeigur Verðlaunahafinn Hilmir tekur á móti Grímunni 2016, en hann var valinn leikari ársins í aðalhlutverki fyrir Hver er hræddur við Virginíu Woolf? Hveragerði Hanna Thor- borg Helgadóttir fæddist 1. júní 2018 kl. 4.09. Hún vó 3.920 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Ida Thorborg og Helgi Sigurðs- son. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.