Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hin tuttugu og eins ársgamla Katelyn Ohashisetti veraldarvefinn áhliðina fyrr í þessum
mánuði þegar gólfæfingar hennar
fyrir UCLA-háskólann í Kaliforníu
fóru sem eldur í sinu um samfélags-
miðla. Framkvæmdi hún öflugar og
óhefðbundnar gólfæfingar af ein-
skærri gleði. Dansaði hún milli
stökka við þekkt popplög frá lista-
mönnum eins og Michael Jackson,
Tinu Turner og Earth, Wind & Fire.
Í augum áhugamanns var
þarna afrekskona í fimleikum að
sýna listir sínar af ánægju og öryggi
en gleði Ohashi í íþróttinni hefur
hins vegar ekki alltaf verið svona
mikil.
Ohashi var um tíma ein efnileg-
asta fimleikakona heims en hefur á
síðustu árum barist fyrir því að
finna sig í íþróttinni aftur. Ítrekuð
álagsmeiðsli og andlegt álag braut
sjálfsmynd hennar sem leiddi til
þess að hún sagði skilið við keppni á
afreksstigi árið 2015.
„Ég var um tíma á toppi ver-
aldar með von um að komast á Ól-
ympíuleikana. Ég var ósigrandi.
Þangað til ég var það ekki,“ rifjar
Ohashi upp í viðtali við The Players
Tribune í ágúst í fyrra. Á þeim tíma
varð hún mjög meðvituð um líkama
sinn og hvernig hún leit út. Rifjar
hún upp að hana langaði einu sinni
að geta fengið sér skyndibita og liðið
vel daginn eftir. Hún vildi ekki stöð-
ugt æfa sig eftir kvöldmat bara til
að líða nógu vel til að geta sofnað.
„Mér var sagt að það væri neyð-
arlegt hversu stór ég væri orðin.
Mér var líkt við fugl sem gat ekki
flogið. Ég heyrði þetta allt áður en
ég meiddist, sumt var sagt við mig
þegar ég var grönn. Þannig að hvað
myndi fólk halda um mig þegar ég
var orðin […] stór?“ segir hún, en
Ohashi þyngdist í kjölfar meiðsla.
„Ég var niðurbrotin,“ bætir hún við
og segist hafa hatað sjálfa sig. Í
fyrra byrjaði Ohashi að birta dag-
bókarfærslur sínar frá keppnisár-
unum á bloggsíðu sinni, Behind the
Madness, eða á bak við geðveikina.
Þar birti hún dagbókarfærslu frá
desember 2011, þegar hún var 14
ára:
„Að æfa á kvöldin er orðið lýj-
andi. Mig langar óstjórnlega mikið í
mat þegar ég fæ tækifæri til að
borða, þannig að ég er að prófa nýja
lausn. Ég veit að lotugræðgi er ekki
heilbrigð en það gæti verið það eina
sem getur bjargað mér. Ég er orðin
þreytt á að borða bara grænmeti, ég
er orðin þreytt á hlaupum og virkri
skilyrðingu í hvert skipti sem ég
„lít“ út fyrir að vera aðeins þyngri.
Þetta er fimmti mánudagurinn í röð
sem mér hefur verið sparkað út [úr
æfingasalnum] því ég var of þung.
Ég held að ég sé komin með þrá-
hyggju fyrir því að vigta sjálfa mig
því ég get ekki byrjað æfingu án
þess að stíga á vigtina og ég get ekki
farið heim af æfingu án þess að vita
að ég hafi lést. Ég græt mig í svefn
flest kvöld núna og þar sem ég hef
engan hjá mér til að tala við, hef ég
lært að skrifin eru minn eini flótti.“
Skuggahlið uppeldisfélagsins
Ohashi, sem er fædd 1997, hóf
afreksferil sinn hjá fimleikaþjálf-
aranum Al Fong í Great American
Gymnastics Express (GAGE) fim-
leikafélaginu í Missouri. Hún var 12
ára gömul þegar hún keppti á fyrsta
unglingalandsmótinu sínu í Banda-
ríkjunum. Hún lenti í sjöunda sæti í
fjölþraut en vann gull fyrir gólfæf-
ingar og silfur fyrir slá. Fimleika-
félagið GAGE undir stjórn Al Fong
á ekki fagra sögu, þá sérstaklega á
níunda og tíunda áratug síðustu ald-
ar.
Árið 1988 hryggbrotnaði Jul-
issa Gomez, iðkandi í GAGE, í upp-
hitun fyrir stökk á móti í Japan. Að
sögn sjónarvotta átti hún í erf-
iðleikum með að framkvæma stökk-
ið mörgum mánuðum fyrir mótið. Í
bókinni Little Girls in Pretty Boxes:
The making and breaking of elite
gymnasts and figure skaters, eftir
Joan Ryan íþróttablaðamann The
San Francisco Chronicle, er haft
eftir Chelle Stack, liðsfélaga Gomez,
að það hafi verið augljóst að það var
ekki öruggt fyrir hana að fram-
kvæma stökkið. Mistök á spítal-
anum í Japan leiddu til þess að
Gomez var tekin úr öndunarvélinni
sem hún var tengd við um stund,
sem olli alvarlegum heilaskemmdum
þannig að Gomez var í dái. Fjöl-
skylda hennar sá um hana í þrjú ár
en hún lést síðan árið 1991 í Hou-
Liukin. Þar átti hún eftir að ná at-
hygli sem fimleikakona á heims-
mælikvarða.
Ohashi var of ung til að keppa á
Ólympíuleikunum í London 2012 en
árið eftir átti hún besta ár fimleika-
ferilsins. Hún sigraði í fjölþraut á
American Cup, sem er eitt stærsta
mótið í heimsbikarmótaröðinni í
fimleikum, með 59.199 stig. Þekkt-
asta fimleikakona heims um þessar
mundir, Simone Biles, þurfti að lúta
í lægra haldi og endaði í öðru sæti
með 57.666 stig. Álagsmeiðsli voru
hins vegar byrjuð að hrjá Ohashi
fyrir mótið. Mánuð eftir sigurinn á
American Cup þurfti hún að fara í
aðgerð á öxl sem hélt henni frá
keppni það sem eftir lifði árs. Óvissa
ríkti um hvort hún myndi keppa
aftur. Árið 2014 meiddist hún í baki
og þurfti að fara í aðra aðgerð. Árið
2015 sagði hún skilið við fimleika á
afreksstigi og skráði sig í háskóla-
fimleika.
Lífsgleði frekar en árangur
„Fimleikar voru sjálfsmyndin
mín, þeir voru lífið mitt. Ég hataði
sjálfa mig,“ segir Ohashi í fyrr-
nefndu viðtali um endalok keppn-
isferilsins. „Ég þurfti að finna Val
[Valorie Kondos Field, fim-
leikaþjálfari í UCLA] og fá ný
markmið, nýja slóð til að fylgja til að
finna aftur gleði og ást á íþróttinni á
ný. Ég lít svo mikið upp til þjálfara
míns,“ bætir hún við.
„Móðir mín var ekki sérstak-
lega ánægð þegar ég hætti í afreks-
fimleikum og vildi fara í háskólafim-
leika. Val spurði hana einu sinni af
hverju hún skipti um skoðun um há-
skólafimleika og þá sagði hún „ég sé
hversu hamingjusöm dóttir mín er“.
Það var það eina sem ég þurfti til að
líða eins og manneskju aftur.“
Ohashi segir fimleika geta verið
erfiða íþrótt.
„Þegar öllu er á botninn hvolft
átti þetta að vera braut mín í lífinu.
Ég hef ekki verið svona hamingju-
söm í langan tíma. Ég fann gleðina
mína, röddina, sjálfa mig og ástina
fyrir íþróttinni. Þetta snýst ekki um
útkomuna, þetta snýst ekki um mig
standandi á verðlaunapalli með
verðlaun, heldur að ég geti gengið
út brosandi og verið ánægð með
sjálfa mig. Það skiptir mestu máli.“
Í kjölfar fyrrnefndra gólfæf-
inga hennar fyrir UCLA tók The
New York Times viðtal við Ohashi,
þar sem hún sagði um æfingarnar:
„Það sem þú sérð er hvernig mér
líður.“
Hún segist vera heilbrigð og vel
á sig komin núna. „Það koma alltaf
dagar þar sem líkami minn er betri
en aðra daga. Það eru enn einhver
vandamál en vel viðráðanleg.
Endurhæfingin er eilíf, vinur minn,“
segir Ohashi við The New York
Times.
Það er því rétt að hvetja þá les-
endur sem ekki hafa séð gólfæfingar
Ohashi til að horfa á þær. Sjá
ósvikna gleðina sem skín af andlit-
inu á þessari mögnuðu fimleika-
konu, sem hefur fengið ástríðuna
fyrir íþróttinni á ný.
Fuglinn sem flaug að nýju
Katelyn Ohashi vakti heimsathygli fyrir gólfæfingar
sínar á dögunum, rúmum þremur árum eftir að hún
hætti keppni í afreksfimleikum, þá á hátindi ferilsins.
Ljósmynd/WikimediaCommons/Davebogs
Einbeitt Ohashi að hefja gólfæfingar sínar í janúar á þessu ári fyrir UCLA.
ston, þremur mánuðum áður en hún
varð 19 ára. Atvikið opnaði fyrir
gagnrýni á þann þrýsting sem var
settur á iðkendur félagsins.
Aðeins þremur árum seinna var
fimleikafélagið GAGE aftur á allra
vörum þegar hin 22 ára gamla
Christy Heinrich, ein af vonar-
stjörnum GAGE, lést. Heinrich
þjáðist af anorexíu sem dró hana að
lokum til dauða, en andlát hennar
skók fimleikaheiminn. Fullyrt var
að ýtt hefði verið undir anorexíu
með ummælum og hegðun þjálfara
og dómara. Í örvæntingarfullri til-
raun til að ná betri árangri reyndi
hún að létta sig sem leiddi til óheil-
brigðra matarvenja, sem síðar urðu
að anorexíu. Andlát hennar leiddi af
sér víðtækar breytingar í fim-
leikaþjálfun í Bandaríkjunum ásamt
mikilli fjölmiðlaumfjöllun um lík-
amsímyndir í fimleikum.
Margir myndu segja að þessir
atburðir væru hluti af fortíðinni,
enda hefur margt breyst síðan þá,
en saga Ohashi sýnir að þessi
skuggahlið fimleikanna vestanhafs
er enn til staðar að einhverju leyti.
Fallið er hæst af toppnum
Eftir frábæran árangur á ung-
lingamótum árið 2009 yfirgaf Ohashi
GAGE fimleikafélagið til þess að
þess að fara að æfa í hinu heims-
fræga World Olympic Gymnastics
Academy (WOGA) sem er m.a. stýrt
af ólympíumeistaranum Valeri
Á flugi á ný Ohashi flýgur í fyrstu stökkseríuna sína fyrir tvöfalt heljar-
stökk með beinum líkama. Hún fékk 10 í einkunn fyrir æfingar sínar.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Á tilboði í janúar!
d line baðherbergissett, hönnunar-
vara eftir danska arkitektinn og
iðnhönnuðinn KnudHolscher.
Í settinu er: 1wc rúlluhaldari,
1 aukarúlluhaldari, 1 wcbursti
meðupphengi og2 snagar.
Tilboðsverð í janúar: 31.677 kr.
Fullt verð: 39.596 kr.
Sendumumallt land.
20%
baðherbergissett
afsláttur í janúar