Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Villt þú losna við fitu á erfiðum svæðum? Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Láttu fagfólkið á Húðfegrun sjá um þína húð á nýju ári! Byltingarkennd húðmeðferð sem byggð er á nýjustu tækni á sviði náttúrulegrar fitueyðingar án skurðaðgerðar. 3 Eyðir fitu á erfiðum svæðum 3 Sársaukalausmeðferð 3 Byggð á nýjustu tækni til að eyða fitu 3Öruggog áhrifaríkmeðferð JANÚA R TILBOÐ 15% AFSLÁTTU R Fitueyðing –ultrasound meðferð VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fyrir rúmu ári var kynnt í Kaup- mannahöfn að Ragnar Kjartansson myndlistarmaður hefði borið sigur úr býtum í samkeppni um verk í ný- byggingu heilbrigðisvísindasviðs Kaupmannahafnarháskóla, Mærsk- turninn sem gefinn er af A.P. Möller-sjóði Mærsk-skipafélagsins. Verk Ragnars nefnist Figures in Landscape. Það er marglaga vídeó- verk sem listamaðurinn hefur unnið að ásamt samstarfsfólki síðasta ár og verður það vígt í byggingunni á þriðjudaginn í næstu viku. Tveimur dögum síðar, á fimmtudag eftir viku, 31. janúar, gefst Íslendingum kostur á að upplifa þetta athyglis- verða verk þegar sýning Ragnars á því verður opnuð í i8 galleríi við Tryggvagötu. Um er að ræða sjö sólarhrings- löng myndbandsverk sem voru tek- in upp í kvikmyndaveri RVK Stud- ios; byggðar voru þar leikmyndir og fyrst tekin upp fjögur verk sam- tímis á fjórum dögum og síðan þrjú samtímis á jafn löngum tíma. Verk- in sýna ólíkar náttúrusenur og um þær fer fólk í hvítum sloppum, klætt eins og vísindamennirnir sem kenna og vinna að rannsóknum í Mærsk- turninum. Þegar verkið verður vígt á þriðjudaginn hefst sýning á þriðjudagsverkinu og síðan rúllar hvert vídeóverkið af öðru, sólar- hringur í senn, sem varanleg inn- setning á skjá framan við stærsta fyrirlestrasal byggingarinnar, eins og um lágmynd sé að ræða. Þá búa fleiri notkunarmöguleikar í verkinu. Það liggur í tölvugrunni byggingar- innar og mun verða hægt að láta það ganga á upplýsingaskjám, eins og í lyftum, kennslustofum og á göngum hússins – mögulega líka sem skjá- mynd á tölvum, og í raun er það eins konar klukka. Figures in Landscape verður sýnt í sams konar vikulangri út- færslu í glugga i8 gallerís og sam- tímis verður hver og einn vikudagur sýndur á skjám þar inni í galleríinu. Hver dagur eins og málverk „Mér fannst það geggjuð pæling að gera spítalalist,“ segir Ragnar um samkeppnina um verkið í Mærsk- turninum og viðamikið verkið. „Mér finnst spítalalist, og list í opinberu rými, vera oft svo falleg og melan- kólísk. Ég fór strax að hugsa um verk Diegos Rivera og sovéskar framfaraveggmyndir og út frá því mótaðist þetta vídeóverk. Svo kemur maður sjálfur og nútíminn alltaf ein- hvern veginn inn í þetta sem írónískt tvist.“ Framkvæmdin á verkefninu var afar umfangsmikil. „Já, þetta eru sjö vídeó, eitt fyrir hvern dag vikunnar, og þau eru öll 24 klukkutímar. Við tökurnar vorum við fyrst með fjögur sett í gangi og svo þrjú sett í seinni lotunni. Þetta var GEGGJUÐ pródúsjón! Mér finnst alltaf gaman að ballerínufyrirbærinu, þegar það er brjáluð fyrirhöfn fyrir eitthvað sem lítur mjög einfalt út. Þarna er bara fólk sem labbar fram og til baka á skjánum …“ Samkvæmt upplýsingum frá sam- starfsfólki Ragnars unnu 32 að gerð verksins fyrir utan leikarana sem voru í tökum í tvær vikur en þeir voru 34. 32 til komu að leik í ein- hverri mynd en þar á meðal var hluti þeirra sem unnu að verkinu. Þá eru ótaldir þeir sem koma að uppsetn- ingunni í Danmörku með einum eða öðrum hætti. Ragnar segir vinnsluna á Figures in Landscape hafa tekið nær eitt ár. Fyrst var það hönnun leikmyndar- innar, þá tóku við tveir mánuðir í leikmyndasmíði og málun. „Það var fullt af fólki í þessu. Ég var með nokkuð skýra skissu fyrir vinnuna með hópi sem við köllum „austurrísku málarana“,“ segir Ragnar og brosir. „Það eru vinir mínir sem komu fyrst að vinnunni að Heimsljósi með mér. Þá voru þau lærlingar en eru orðin svo góð að nú sendi ég þeim skissur og þau gerðu hugmyndir upp úr þeim. Í samstarfi finnst mér mikilvægt að virkja sköpunarkraft allra.“ – Hvernig tilfinning er það að vinna samkeppni sem þessa og geta farið í framleiðslu svo viðamikils verks? „Það er alveg galið! Það var djarft hjá Kaupmannahafnarháskóla að biðja hreinlega um vídeóverk. Fjár- hagsáætlunin fyrir framleiðslu var ekkert mjög há en tekið fram að listamanninum væri frjálst að gera fleiri eintök af verkinu. Í tillögu minni sagði ég að miðað við tilgreinda upphæð gæti ég gert verk fyrir einn sólarhring, sólar- hringsklukku, en bætti við að það yrði ógeðslega gaman að gera heila viku, svo það væri alltaf breyting frá einum degi til annars. Það væri draumurinn. Og þá fór Kaupmanna- hafnarháskóli á fullt í að finna aukið fjármagn til að ég gæti gert verkið með þeim hætti, sem var alveg frá- bært.“ Eins og fyrr var sagt gengur verkið viku eftir viku í einum skjá í byggingunni. Þá verður hægt að kalla það upp í lyftum, á upplýsinga- skjám og í fyrirlestrasölum hvar sem er í byggingunni. „Það má þannig hafa verkið í bakgrunninum en mér finnst slíkt svo áhugavert í menningu okkar, sjónrænt dót sem er bara þarna …“ Ragnar brosir. „Þegar verkið fór að mótast fannst mér hver sólarhringur fyrir sig verða eins og málverk. Og mér fannst þetta áhugaverð málverka- sería. Þá kom sú hugmynd að gaman væri að gera þessa sýningu hér í i8 á verkunum sem þessum málverkum, auk þess sem því verður varpað í vikulangri lykkju út um gluggann.“ Epíkin í hversdeginum – Lagðirðu strax upp með að hafa nýtt landslag á hverjum degi? „Já, hugmyndin var nýr dagur – nýtt landslag. Mér finnst svo áhuga- vert hvernig við komum alltaf epísku landslagi að í hversdeginum. Ég man að í gamla daga þegar maður beið á læknastofunni voru þar myndir af Klettafjöllunum. Og í dag er alltaf epískt landslag á öllum tölvuskjánum þar sem fólk situr í sínum hversdags- leika. Mér finnst þessi blanda af epík og algjörum hversdagsleika mjög spennandi. Svo var ég undir áhrifum af sögu sem vinkona mín sagði mér fyrir mörgum árum. Hún var um ein- hverjar vinkonur sem höfðu farið til að horfa á vaktaskiptin á Landspítal- anum því það væri svo fallegt þegar allt þetta fólk í hvítum sloppum mættist þar. Ég hef aldrei séð þetta sjálfur en sagan er svo falleg að það er auðvelt að sjá þetta fyrir sér. Þegar maður er gestur á spítala eða vísindastofnun sér maður alltaf fólk í þessum hvítu fötum sem tákna hreinleika og framfarir. Og maður sér þau aldrei vera að gera það sem þau fást við, þau eru bara á ferð á milli staða. Það er einskonar stöð- ugur stofugangur í Figures in Lands- cape. Þessi hugmynd um læknasloppana og landslagið vísar líka í fegurð og tilgangsleysi allra hluta,“ bætir Ragnar spekingslega við. Talið berst að tímaþættinum í verkinu en það mun ganga eins og nákvæm klukka, sólarhring eftir sól- arhring. Ragnar segir að fólk sem vinnur í byggingunni í Kaupmanna- höfn geti farið að taka eftir því að á miðvikudögum setjist kona alltaf á sama steininn á sama tíma. Upp- haflegt vinnuheiti verksins var ein- mitt „Timepiece“. Tilraun um nýtt Ísland Í þessu nýjasta verki Ragnars má sjá birtast marga þá þætti sem hafa einkennt rómuð verk hans síðustu ár, svo sem málaðar sviðsmyndir, út- haldsgjörninginn og náttúrurómantík með sögulegum vísunum og ákveð- inni íróníu. Ragnar kveðst vera Geggjuð pæling að gera spítalalist  Nýtt vídeóverk eftir Ragnar Kjartansson verður vígt í Mærsk-turni Kaupmannahafnarháskóla í næstu viku  Sýnt í i8 galleríi í kjölfarið  Hefur tekið ár í vinnslu og fleiri tugir manna unnið að því Morgunblaðið/Einar Falur Ragnar „Ég er mjög meðvitaður um að þrátt fyrir „materíalískan árangur í þessari list“ þá má maður ekki sem listamaður verða eins og kapítalistinn; að allt þurfi að verða stærra og dýrara.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.