Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 58
58 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 ✝ GunnlaugEygló Sigfús- dóttir fæddist 28. júlí 1930. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Margrét Guðríður Eyjólfs- dóttir, f. 3.10. 1903, d. 31.3. 1996, og Sigfús Davíðsson, f. 13.2. 1903, d. 8.3. 1985. Börn Margrétar og Sigfúsar eru: Sigurður, f. 17.4. 1924, d. 2.11. 2016, Davíð, f. 11.11. 1936, Dóra, f. 20.5. 1938, Óli, f. 20.5. 1938, Pálmi, f. 1.12. 1945. Fóstursystkin Erla, f. 19.8. 1946, Sigmundur, f. 1.4. 1951, d. 26.1. 1993. Eiginmaður Eygló- ar var Halldór M. Þor- kelsson, f. 25.4. 1921, d. 1.6. 2008. Börn Eyglóar og Halldórs eru: Ragn- heiður, f. 6.1. 1960, maki Ásgeir Torfa- son, Halldóra, f. 4.10. 1967, maki Hafsteinn Hilmarsson. Barnabörnin eru: Halldór, Hilmar og Gunnlaugur Sveinn og barnabarnabarn Fanndís Harpa. Útförin fer fram frá Keflavík- urkirkju í dag, 24. janúar 2019, klukkan 13. Til elsku bestu ömmu. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, - augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann - lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum) Þínir ömmustrákar Halldór, Hilmar og Gunnlaugur Sveinn. Ef hugsað er til æviferils ís- lenskrar alþýðukonu sem spann- aði tæp 90 ár, þá vefst manni tunga um tönn. Eygló, sem minnst er hér, var í mínum huga sívinnandi sveita- kona, sem sjaldan eða aldrei féll verk úr hendi, enda var nú í sveit- inni forðum sjaldan spurt um fastan vinnutíma og frí þess á milli, enda enginn vökulög að vitna í þá. Þegar ég fyrst heyrði lagið og textann „Íslenska konan“ fannst mér það geta verið ort um konur eins og hana. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt var vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Við Eygló og Svala konan mín áttum oft samverustundir ein og sér. Ég sá um að alltaf væri ylur í húsinu með rétt stilltum ofn- krönum ásamt því að ljósaperur væru í lagi, en hún sá um ým- islegt er laut að saumaskap fyrir okkur, enda annáluð hannyrða- kona. Þá var oft farið um víðan völl í samræðum og ekki vorum við nú alltaf sammála um þjóð- málin, en það var aukaatriði, vin- áttan var aðalatriðið. Aldrei heyrði ég hana halla réttu máli eða hallmæla fólki yf- irleitt. Hún var maður sátta en ekki sundurlyndis, ekki síst með- al fjölskyldu sinnar og vina. Hún þerraði tárin, hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan sem allt á að þakka vor þjóð. Hún flutti ung að árum með manni sínum til Keflavíkur og þar bjuggu þau uns yfir lauk. Mér sýndist hún oftast standa í stafni og ákveða stefnuna, en hann stóð þéttur að baki hennar hvað sem á gekk. Aldrei heyrði ég að þeim yrði sundurorða: ætíð sem einn maður. Þau eignuðust tvær dætur sem báðar bera foreldrum sínum fag- urt vitni sem frábærar manneskj- ur á alla lund. Fátt var Eygló meira umhug- að um en barnabörnin og barna- barnabarnið, sem hún hlúði að og unni heitt. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan sem gefur þér allt sem hún á. Við hjónin áttum því láni að fagna að eiga Eygló og Dóra að góðum og traustum vinum frá fyrstu kynnum, eða frá því að Hafsteinn kynntist Dóru dóttur þeirra, og aldrei bar neinn skugga þar á. Og loks þegar móðirin lögð er í mold Þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Við hjónin þökkum Eygló sam- fylgdina. Far þú í friði – friður Guðs þig blessi. Hilmar Hafsteinsson og Svala Sveinsdóttir. Í dag kveð ég með söknuði og virðingu vinkonu mína, Eygló Sigfúsdóttur, sem hefur stutt mig á erfiðum stundum á síðustu tveimur árum, fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Margar minn- ingar koma upp í hugann, minnis- stæðust er ferðin okkar síðast- liðið sumar í Borgarfjörðinn til Ásu og Trausta og heimsókn mín í sumarbústaðinn til ykkar Röggu, þar sem þú sýndir mér stolt heimasveit þína. Þú ert mikið búin að tala um ferðirnar sem við ætluðum í á komandi sumri. Bæði ætluðum við aftur í Borgarfjörðinn og vest- ur að Álftá á Mýrum og svo varst þú búin að ákveða að ég kæmi til ykkar Röggu í sumarbústaðinn því nú hefði ég tíma til að stoppa nokkra daga þar sem ég væri hætt að vinna. Þegar ég kom til þín um hádeg- ið föstudaginn 11. janúar datt mér ekki í hug að þetta væri í síð- asta skiptið sem við fengjum okk- ur kaffibolla og spjölluðum saman. Þú varst búin að vera las- in en þú varst alltaf svo hörð af þér. Það síðasta sem þú sagðir við mig áður en við kvöddumst var að þegar þú værir orðin hress ætl- aðir þú að elda fyrir okkur góðan mat, já sko góðan mat. Það var mér mikið áfall að fá þær fréttir að þú værir farin frá okkur. Að lokum vil ég þakka þá vin- áttu og þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Röggu og Dóru og fjölskyldum þeirra og einnig systkinum Eyglóar, minn- ing um góða konu lifir áfram í hjörtum okkar. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Þín vinkona Sigurbjörg Fr. Gísladóttir (Sirrý). Með miklum söknuði kveð ég mína allra bestu vinkonu. Orð fá því ekki lýst hversu mikið ég sakna þín, elsku vinkona. Það var mín gæfa að hafa feng- ið að njóta þeirrar sérstöku vin- áttu sem við áttum. Þó svo að það hafi verið 41 ár á milli okkar þá töluðum við alltaf um að við vær- um jafn gamlar, því þú varst ung sál og ég gömul sál. Þú varst ekki bara vinkona min heldur varstu mér eins og önnur móðir. Sam- bandið okkar einkenndist af kær- leik, væntumþykju, jákvæðni og húmor. Þú gafst mér styrk þegar ég þurfti, hvort sem það var gleði eða sorg og hvattir mig áfram og sagðir, eins og við vorum vanar að segja við hvor aðra: „Það þýðir ekkert að kvarta, við breytum engu!“ Svo hlógum við eins og kjánar. Fyrir tíma okkar saman verð ég ævinlega þakklát, og þakklát fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Elsku Eygló mín, ég ætla að reyna eftir fremsta megni að halda uppi þínum góðu gildum, einlægni, ákveðni, eldmóði, sann- girni, atorkusemi og elju. Þú varst mér svo góð fyrirmynd og mun ég varðveita þessa vináttu okkar um ævi og aldur. Elsku Ragnheiður og Dóra, ég sendi ykkur og ykkar nánustu mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað) Guðmunda Sigurðardóttir. Gunnlaug Eygló Sigfúsdóttir ✝ Sigurður Eiðs-son fæddist í Hörgsholti í Mikla- holtshreppi 19. des- ember 1936. Hann lést á dvalarheim- ilinu Brákarhlíð í Borgarnesi 15. jan- úar 2019. Foreldrar hans voru Eiður Sigurðs- son, bóndi og odd- viti í Miklaholts- hreppi, f. 27. júní 1893, d. 28. nóvember 1963, og Anna Björns- dóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1903, d. 13. október 2000. Systkini Sigurðar voru: Guð- rún Hallfríður, f. 24. júlí 1924, d. 14. júlí 2014, Björn Andrés, f. 13. júlí 1925, d. 7. október 2011, Ingi- björg Stefanía, f. 5. ágúst 1927, Sigrún Ragnhildur, f. 13. sept- ember 1933, d. 14. júní 1972, og Sveinn Magnús, f. 28. janúar 1942, d. 19. júlí 2001. Eftirlifandi eiginkona Sigurð- ar er Jónasína Elísabet Halldórs- dóttir verkakona, f. 1. apríl 1946 í Borgarnesi. Sigurður og Jón- asína gengu í hjónaband ,f. 1969, gift Ólafi Friðriki Ólafssyni. Syn- ir þeirra eru Ólafur Bjarni, f. 2000, unnusta hans er Natalie Loh, f. 1999, og Einar Bragi, f. 2005, 2) Eiður, f. 1974, kvæntur Genalyn Dela Cruz Sigurðs- son, f. 1990. 3) Hall- dór Steinar, f. 1976, kvæntur Ingibjörgu Ósk Sigurðar- dóttur. Synir þeirra eru Sigurður Bjarmi, f. 2001, Tómas Orri, f. 2003, og Steinar Kári, f. 2010. Sigurður ólst upp í Hörgsholti í Miklaholtshreppi til 14 ára ald- urs og að Lækjarmótum til 24 ára aldurs. Þá flutti hann í Borgarnes, þar sem hann bjó til dauðadags. Sigurður var í far- skóla í sveitinni frá 9 ára til 13 ára aldurs og seinna einn vetur í íþróttaskólanum í Haukadal 1954-1955. Sigurður vann sem verkamaður alla sína tíð, lengst af hjá Vírneti hf. í Borgarnesi. Hann hafði mikinn áhuga á söng og tónlist og var í kirkjukórnum í Borgarnesi og kór Mýramanna. Útför Sigurðar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 24. janúar 2019, klukkan 14. Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells) Á kveðjustund koma upp allar góðu minningarnar um Sigga sem var mér traust og góð fyrirmynd í uppvexti mínum. Frá Kjartans- götunni á ég margar kærleiks- ríkar og góðar minningar um sam- veru okkar Jónu, Sigga, Gerðu, Eiðs og Halldórs. Mínar fyrstu minningar eru um okkur krakk- ana við leik og Siggi að syngja og jóðla fyrir okkur. Ófáar stundir sat hann í stofunni og prjónaði og spjallaði við okkur. Allar stund- irnar sem við höfum átt saman eru dýrmætar minningar. Nú hefur þú, kæri vinur, lagt upp í þína hinstu för. Elsku Siggi, minning þín lifir í hjörtum okkar. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið í þessu lífi. Elsku Jóna, Gerða, Eiður, Hall- dór og fjölskyldur, ég sendi ykkur samúðarkveðjur. Nú þögn er yfir þinni önd og þrotinn lífsins kraftur í samvistum á sæluströnd við sjáumst bráðum aftur. (Ingvar N. Pálsson) Hafrún Bylgja og Haukur Páll. Sigurður Eiðsson ✝ Þórhildur Jó-hannesdóttir fæddist að Þóris- stöðum, Svalbarðs- strönd, Suður- Þingeyjarsýslu, 11. júlí 1927. Hún lést á Hrafnistu, Reykja- vík, 13. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hannes Árnason og Nanna Valdimars- dóttir. Systkini voru Þór, Árni, Grímur og Hrafnhildur. Eiginmaður Þórhildar var Zophonias Áskelsson og eign- uðustu þau þrjú börn: Jóhannes Áskel, Árna og Nönnu Lovísu. Þórhildur lauk prófi sem vefn- aðarkennari við Húsmæðraskólann á Hallormsstað og starfaði sem vefn- aðarkennari á Blönduósi um nokk- urt skeið. Lengst- um starfaði Þór- hildur við versl- unarstörf og rak eigin verslun um árabil. Útför Þórhildar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 24. jan- úar 2019, klukkan 13. Undanfarnir dagar hafa verið dimmir og drungalegir, en dag- inn sem Þórhildur föðursystir mín kvaddi þetta jarðlíf birti upp, himinninn heiður og sólin skein. Þórhildur var fædd á Þóris- stöðum á Svalbarðsströnd. Hjón- in á Þórisstöðum, Nanna og Jó- hannes, eignuðust fimm börn. Föðursystir mín var í miðið. Mik- ill myndarskapur var á Þóris- staðaheimilinu og börnin ólust upp við að: „allt sem þú gerir, gerir þú vel.“ Hilda stundaði nám við Reykholtsskóla einn vetur, en fór síðan í Húsmæðraskóla Akur- eyrar. Eftir eins árs nám þótti hún hafa staðið sig svo vel að veturinn þar á eftir var henni boðið að vera aðstoðarkennari við skólann, sem hún þáði. Einn af nemendum hennar, sem mér er kunnug, ber Hildu vel söguna og segir að hún hafi verið frábær kennari. Eftir hvatningu kennara sinna fór Hilda í framhaldsnám við hús- mæðraskólann á Hallormsstað og sérhæfði sig í vefnaði. Í fram- haldinu réð hún sig sem handa- vinnu- og vefnaðarkennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Þar gripu örlögin inn í. Hún kynntist ungum manni á Blöndu- ósi og 17. júní 1953 voru Þórhild- ur og Zóphonías Áskelsson gefin saman í hjónaband á Þórisstöð- um. Hann stefndi á nám í smíðum og leiðin lá til Reykjavíkur. Það voru erfiðir tímar í þjóð- félaginu um þessar mundir, en með harðfylgi og dugnaði byggðu þau sér íbúð í Kópavogi og í fram- haldi af því einbýlishús í austur- bæ Kópavogs. Á þessum árum þegar ég stundaði nám við skólana á Laugarvatni og fyrstu árin mín í háskóla átti ég athvarf á heimili þeirra hjóna Þórhildar og Zóp- honíasar. Það var ómetanlegur stuðningur. Síðustu áratugina bjuggu Hilda og Zoffi í fallegri íbúð á 11. hæð við Árskóga í Reykjavík og undu sér þar vel. Zóphonías lést 2011, en undan- farin misseri hefur Hilda dvalið á Hrafnistu í Reykjavík. Ég vil þakka frænku minni fyrir stuðninginn, umhyggju, vin- áttu og hjálp um margra ára skeið og ég vona að leið hennar liggi nú inn í ljósið. Börnum hennar og öðrum ást- vinum sendum við Ragna inni- legar samúðarkveðjur. Árni V. Þórhildur Jóhannesdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR B. GRÖNDAL, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 15. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey Blessuð sé minning hennar. Kristrún Gröndal Jim Watkins Sigurlaug B. Gröndal Rafn Gíslason Steinunn Gröndal Bjarni Gröndal Nalini Dandunnage Kristinn Gestsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÚNDÍNA GÍSLADÓTTIR frá Hrísey, Boðaþingi 12, lést í faðmi fjölskyldu sinnar 7. janúar á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir sendum við starfsmönnum á Höfða fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Einnig viljum við senda heimilisfólkinu á Höfða þakkir fyrir góða viðkynningu. Gyða Jónsdóttir Þorgrímur Hallgrímsson Guðbjörg Jóna Jónsdóttir Eiríkur Bragason Sigrún Ísabella Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur stuðning, samúð og hlýju við andlát og útför elsku mömmu okkar, HULDU ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu í Reykjavík H2 fyrir góða umönnun. Ragnheiður Hall Steinunn Hall Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför STEINBJÖRNS BJÖRNSSONAR, Búðagerði 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Droplaugarstaða fyrir góða umönnun. Aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.