Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
Fjölskyldufyrirtæki
frá 1953
Þú kemur með
fjórar flíkur en
greiðir fyrir þrjár
(ódýrasta flíkin frítt)
4 3fyrir
Einn af þáttastjórnendum Ísland
vaknar, Ásgeir Páll, er menntaður
atvinnusöngvari og hann hefur
haft nokkrar áhyggjur af söng-
sjálfsmynd þeirra Kristínar Sifjar
og JAX. „Þau hafa bæði tvö
greinilegt yndi af því að syngja,
taka hressilega undir í lögunum í
þættinum, en tala mikið um að
það sé eins gott að enginn heyri
til þeirra,“ segir Ásgeir, sem telur
til mikils unnið að hjálpa þeim upp
úr þessum ógöngum.
„Ég æfi mig stundum heima á
kvöldin og syng fyrir Maríu.
Henni finnst þetta mjög skemmti-
legt og hlær mikið,“ segir Jón Ax-
el og bætir við að hann hafi í upp-
hafi búist við annars konar
viðbrögðum frá eiginkonu sinni.
„Hún sagði mér um daginn að ef
ég hefði sungið fyrir hana í til-
hugalífinu værum við líklega ekki
hjón í dag,“ segir JAX og það er
ekki frá því að greina megi örlitla
biturð í röddinni.
Af einskærri væntumþykju hef-
ur Ásgeir undanfarið fengið fjóra
mismunandi söngkennara til að
hjálpa vinum sínum með misgóð-
um árangri. Þórunn Erna Clausen
og Arna Rún Ómarsdóttir söng-
kennarar náðu ágætis árangri í að
hjálpa Kristínu Sif að syngja eins
og Janis Joplin. „Þarna fann ég
loksins mína hillu í söng,“ sagði
Kristín Sif stolt af frammistöðu
sinni og bætti við að hún vissi
ekki hvort hún hefði metnað til að
leggja út í atvinnumennsku í fag-
inu. Þær Þórunn og Arna reyndu
þá að hjálpa JAX að syngja eins
og Joe Cocker, en slíkur söngur
virtist ekki eiga við gamla diskó-
tekarann.
Eftir að hafa lagt höfuðið í
bleyti fékk Ásgeir Páll söngkon-
una þekktu Margréti Eir og ten-
órinn Egil Árna Pálsson til að
hjálpa JAX og eftir langt samtal
voru allir sammála um að sá still
sem myndi henta JAX væri óp-
erusöngur. „Ég er alvarlega að
íhuga að setjast á skólabekk og
leggja óperuna fyrir mig, en vildi
samt óska þess að ég væri bara
með þetta. Það er svo blöðrulegt
að vera byrjandi,“ sagði JAX kím-
inn. „Bumban á Ásgeiri er miklu
blöðrulegri,“ svaraði Kristín Sif og
þremenningarnir og vinirnir val-
hoppuðu í kjölfarið inn í hljóðver
K100. Það var komið að næstu
innkomu þar sem rætt var um
mikilvægi Póstnúmeranefndar.
islandvaknar@k100.is
Geta allir lært að syngja?
Innlifun JAX syngur Hamraborgina
eftir Sigvalda Kaldalóns.
Söngtímar í útvarpi
Tilraun var gerð í Ísland
vaknar til að þjálfa tvo af
þáttastjórnendum í
söng. Útkoman varð sú
að Kristín Sif getur
sungið eins og Janis
Joplin og JAX ætti að
geta orðið arftaki Krist-
jáns Jóhannssonar.
Lögin í myndinni eru eftir hljóm-
sveitina ELO eða Electric Light
Orchestra og náðu nokkur þeirra inn
á vinsældalista út um allan heim á
níunda áratugnum. Lagið Magic var
lengi vinsælt og náði það á toppinn í
Bretlandi og víðar en einnig varð tit-
illagið Xanadu vinsælt sem og lögin
All over the World, I’m Alive og
Suddenly, sem Olivia flutti með Cliff
Richard.
Með aðalhlutverk í sýningunni
fara þau Kolbrún María Másdóttir
og Mímir Bjarki Pálmason og í vik-
unni mættu þau í síðdegisþátt K100.
Þau fara með hlutverk Cleo og
Sunny úr myndinni, en nöfn þeirra
eru Kría og Svenni á íslensku. Heið-
ar Sumarliðason þýddi verkið, Mar-
grét Eir er söngstjóri sýningar-
innar, Unnur Elísabet Gunnars-
dóttir er leikstjóri og nýtur liðsinnis
Þóreyjar Birgisdóttur, en báðar
semja þær dansana.
Sjö sýningar fram undan
Söngleikurinn fjallar um ungan
listamann, Svenna, sem er frekar
týndur í lífinu en þegar andagiftar-
gyðjan Kría kemur inn í líf hans
breytist allt. Hún fyllir hann inn-
blæstri og fær hann til að opna rúllu-
skautadiskó. Hlutirnir flækjast svo
þegar tilfinningar vakna á milli
Svenna og Kríu.
Kolbrún María og Mímir segja
stíft æfingatímabil að baki og nú sé
allt að verða klárt. Mikill spenningur
er í hópnum, sem þau segja sam-
heldinn. Boðið verður upp á sjö sýn-
ingar í febrúar og mars og fara þær
fram í Háskólabíói.
Xanadu settur upp
Hópurinn Á myndinni er hluti nemendanefndarinnar, Ragnheiður Torfadóttir, Thelma Ragnarsdóttir, Katrín
Magnúsdóttir, ásamt aðalleikurum sýningarinnar þeim Mími Bjarka Pálmasyni og Kolbrúnu Maríu Másdóttur.
Hress Kolbrún María Másdóttir og
Mímir Bjarki Pálmason sem fara
með aðalhlutverkin í Xanadu, þá í
hlutverki Kríu og Svenna.
Sýningar Nemendafélagsins í Verslunarskóla Íslands vekja gjarnan mikla
athygli og má segja að þær séu ákveðin skrautfjöður í félagslífi skólans. Í ár
bjóða þau upp á söngleikinn Xanadu, sem er byggður á samnefndri kvikmynd
sem frumsýnd var árið 1980. Þar fer Olivia Newton-John með aðalhlutverkið.