Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 16

Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 16
Svefn er öllum nauðsynlegur. Ísvefni hvílist líkaminn ogendurnýjar sig. Taugakerfið endurnærist og skorti fólk svefn skerðist andleg geta þess. Í svefni framleiðir líkaminn til dæmis vaxtarhormón sem meðal annars stýra vexti barna og unglinga og hraðar endurnýjun fruma líkamans hjá þeim sem eldri eru. Það má því segja að góður nætursvefn stuðli að hægari öldrun. Það að börn og ung- menni fá ekki nægan svefn er mikið áhyggjuefni. Þörfin er einstaklingsbundin Að sofa ekki nóg hefur marg- vísleg áhrif á heilsuna. Fyrir utan það augljósa að vera þreyttur og eiga erfitt með að sinna daglegum störfum hafa margir sjúkdómar verið tengdir skertum svefni. Þeirra á meðal eru sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómar, hár blóðþrýstingur, Alzheimersjúkdómur og þunglyndi. Þeim sem þreyttir eru er einnig hættara en öðrum við að lenda í slysum. Svefnþörf manna er einstaklings- bundin. Það hvort fólk vaknar út- hvílt að morgni er besti mælikvarð- inn á það hvort það hefur sofið nóg. Taflan hér að neðan sýnir hvað mælt er með miklum svefni eftir aldri. Gefðu þér tíma til að sofa Fyrir marga er of stuttur svefn það sem veldur þreytu og vanlíðan yfir daginn. Þá þarf ef til vill að skoða svefnmynstrið og gefa sér tíma til að hvílast. Óreglulegur svefn er ekki eins endurnærandi og góður reglulegur nætursvefn. Það er mikill heilsufarsávinningur fólg- inn í því að gefa sér þann tíma sem þarf til að sofa. Einföld ráð sem stuðla að bættum svefni  Rétt er að leita til heilsugæsl- unnar ef svefntruflanir eru lang- vinnar eða leiða til verulegrar dagsyfju og þreytu. Hér að neðan eru nokkur einföld ráð sem geta komið að góðum notum við að bæta svefninn.  Mikilvægast er að fara á fætur á sama tíma á hverjum morgni.  Forðastu að leggja þig á daginn og farðu í háttinn á sama tíma öll kvöld.  Ef þú getur ekki sofnað, farðu Margrét Héðinsdóttir og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir hjúkrunarfræðingar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fram úr og gerðu eitthvað ann- að, til dæmis lestu í góðri bók, hlustaðu á rólega tónlist. Leggðu þig aftur þegar þig syfj- ar á ný.  Dagleg líkamleg áreynsla leiðir til dýpri svefns, en óreglulegar æfingar einkum seint á kvöldin hafa engin eða slæm áhrif á svefninn nóttina eftir.  Rólegheit að kveldi auðvelda þér að sofna. Forðastu mikla lík- amlega áreynslu og hugar- æsingu. Betra er að hafa daufa lýsingu í kringum sig á kvöldin.  Kaffi truflar svefn og rétt er að neyta þess í hófi og aldrei eftir kvöldmat. Sama máli gegnir um aðra drykki sem innihalda kof- fein, til dæmis te, gosdrykki og orkudrykki.  Forðast ber neyslu áfengra drykkja. Alkóhól truflar svefn.  Létt máltíð fyrir svefninn hjálpar mörgum að sofna, til dæmis flóuð mjólk og brauðsneið.  Birtan af tölvu- eða sjónvarps- skjá getur truflað undirbúning svefnsins. Því er best að nota ekki þessi tæki síðasta klukku- tímann fyrir svefn.  Heitt bað stuttu fyrir háttinn get- ur auðveldað sumum að sofna.  Hafðu hitastig í svefnherberginu hæfilega svalt. Sofðu við opinn glugga og hafðu dimmt í her- berginu meðan þú sefur. Athug- aðu að rúmið þitt sé þægilegt. Forðastu að horfa á sjónvarpið úr rúminu. Reyndu að draga úr há- vaða í kringum þig. Inni á heilsuvera.is má finna ítar- legra efni um svefn, svefnvanda- mál og hvíld. Svefn „Sofðu litla barnið mitt og láttu vel þig dreyma. / Þá líður hugur þinn um undraheima,“ er sungið í lagi. Heilsuráð Líkaminn hvílist og taugar endurnærast Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðsins Áætluð svefnþörf Aldur klukkustundir 65 ára og eldri 7-8 18-65 ára 7-9 14-17 ára 8-10 6-13 ára 9-11 3-5 ára 10-13 1-2 ára 11-14 4-11 mánaða 12-15 0-3 mánaða 14-17 Z Z 16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 KJARAKAUP 5.490.000 kr. Skoda Kodiaq Ambition 1.4 TSI DSG / 4x4 / Dráttarbeisli Fullt verð: 5.950.000 kr. 460.000 kr. Afsláttur KJARAKAUP 4.490.000 kr. Mitsubishi Outlander PHEV Invite / 4x4 / Rafm./Bensín / Sjálfskiptur Fullt verð: 4.690.000 kr. 200.000 kr. Afsláttur Skoðaðu úrvalið af bílum á www.hekla.is/kjarakaup. Fullt verð er verð hvers bíls með aukabúnaði. Aukabúnaður á myndum gæti verið annar en í auglýstum verðdæmum. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is 2 ára þjónustu- skoðun fylgir með! Dráttarbeisli fylgir með! KJARAKAUP Byrjaðu árið á nýjum bíl! Nú færð þú frábær kjör á nýjum bílum hjá HEKLU. Nýttu þér QR kóðann og smelltu þér beint á bílinn. Þú getur líka séð úrvalið og valið þann sem þér líst best á, í sýningarsal okkar á netinu www.hekla.is/kjarakaup Smelltu þér beint á bílinn. Smelltu þér beint á bílinn. Í YFIRRÉTTI ( E. HIGH COURT OF JUSTICE) FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLAR (E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS) ENGLANDS OGWALES FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL (E. COMPANIES COURT) VARÐANDI MARKEL INTERNATIONAL INSURANCE COMPANY LIMITED - og - VARÐANDI MARKEL INSURANCE SOCIETAS EUROPAEA - og - VARÐANDI LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI FRÁ ÁRINU 2000 (E. THE FINANCIAL SERVICES ANDMARKETS ACT 2000) Hérmeð tilkynnist að hinn 17. desember 2018 lögðuMarkel International Insurance Company Limited („framseljandi“) ogMarkel Insurance Societas Europaea („framsalshafi“) fram beiðni skv. 107. gr. breskra laga um ármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial Services andMarkets Act 2000) („lögin“) hjá yfirréttinum High Court of Justice, fyrirtækja- og eignadómstólum (e. Business and Property Courts) Englands ogWales, fyrirtækjadómstólnum (e. Companies Court (ChD)) í London, um úrskurð: (1) samkvæmt 111. gr. laganna, sem heimilar áætlun („áætlunin“) um framsal til framsalshafa á: (a) öllum vátryggingum (að undanskildum endurtryggingum) sem hafa verið veittar og/eða yfirteknar af eða fyrir hönd framseljanda gegnum útibú hans í Þýskalandi, Hollandi og á Spáni; (b) tilteknum almennum vátryggingum (að undanskildum endurtryggingum) sem hafa verið veittar og/eða yfirteknar af eða fyrir hönd framseljanda gegnum útbú hans á Írlandi, aðeins að því marki sem slíkar vátryggingar varða í heild eða að hluta áhættu sem er staðsett innan Evrópska efnahagssvæðisins („EES-ríki“) (öðru en Bretlandi); og (c) tilteknum almennum vátryggingum (að undanskildum endurtryggingum) sem hafa verið veittar og/eða yfirteknar af eða fyrir hönd framseljanda á grundvelli þjónustufrelsis eða með öðrum hætti gegnum höfuðstöðvar hans í Bretlandi, aðeins að því marki sem slíkar vátryggingar varða í heild eða að hluta áhættu sem er staðsett í EES-ríki (öðru en Bretlandi); og (2) semmælir fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í lögunum. Eintak af skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem var samin í samræmi við 109. gr. laganna af óháðum sérfræðingi, („skýrslan um áætlunina“), yfirlýsing sem greinir frá skilmálum áætlunarinnar og hefur að geyma samantekt á skýrslunni um áætlunina og áætlunarskjalið eru fáanleg endurgjaldslaust með því að hafa samband við framsalshafann og framseljandann gegnum neðangreind símanúmer eða heimilisföng. Þessi skjöl og önnur tengd skjöl, þ.á.m. sýnishorn af samskiptum við vátryggingartaka, eru einnig fáanleg á vefsíðunni www.markelinternational.com/brexit. Þessi vefsíða verður uppfærð ef einhverjar mikilvægar breytingar verða á fyrirhuguðu framsali. Vakni spurningar í tengslum við fyrirhugaða áætlun skal beina þeim til framseljandans og framsalshafans annaðhvort símleiðis gegnum neðangreind gjaldfrjáls símanúmer eða skriflega gegnum neðangreind póst- og netföng: Símanúmer: (1) Þýskaland – +49 89 89 08 316 – 50 (opið 09:00-17:00 á virkum dögum); (2) Holland – +31 10 798 1000 (opið 08:30-17:00 á virkum dögum); (3) Spánn – +34 91 788 6150 (opið 09:00-18:00 á mánudögum-fimmtudögum og 09:00-15:00 á föstudögum); og (4) Bretland og Írland – +44 345 351 2600 (opið 08:00-18:00 á virkum dögum). Almennir frídagar eru undanskildir ofangreindumafgreiðslutíma. Þeir sem hringja utan ofangreinds tíma geta skilið eftir skilaboð og beðið um að hringt sé í þá. Póstföng: (1) Þýskaland – Markel Insurance, Sophienstrasse 26, 80333 München; (2) Holland – Markel,Westerlaan 18, 3016 CK Rotterdam; (3) Spánn –Markel Insurance, Plaza Pablo Ruiz Picasso, No 1 Planta 35, Edificio Torre Picasso, 28020 Madrid; og (4) Bretland og Írland – Markel, 20 Fenchurch Street, London, EC3M 3AZ. Netföng: (1) Þýskaland – brexit@markel.de; (2) Holland – brexitnetherlands@markelintl.com; (3) Spánn –Markel.Espana@markelintl.es; og (4) Bretland og Írland – brexit@markelintl.com Ef þú ertmeð vátryggingu hjá framseljandanumog/eða framsalshafanum, vinsamlegast tilgreindu þá tryggingarnúmerið í öllum samskiptum. Þetta númer er að finna í vátryggingarskjölunum og tengdum bréfaskiptum. Beiðnin verður tekin fyrir íHigh Court of Justice of England andWales, 7 Rolls Building, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, Bretlandi, hinn 28. mars 2019. Hverjum þeim sem telur að framkvæmd áætlunarinnar myndi hafa neikvæð áhrif á sig eða hyggst hreyfa andmælum við henni er heimilt að vera viðstaddur dómþingið í eigin persónu eða gegnum fyrirsvarsmann. Þess er farið á leit að hver sá sem hyggst gera það tilkynni það til framseljandans eða framsalshafans gegnum ofangreint heimilisfang, skriflega og svo fljótt sem auðið er, helst fyrir 21. mars 2019, og tilgreini eðli andmæla sinna. Þetta mun gera framseljandanum og framsalshafanum kleift að tilkynna hvers kyns breytingar í tengslum við dómþingið og, þegar unnt er, ráða bót á vandamálum sem tilkynnt er um fyrir dómþingið. Hver sá sem andmælir áætluninni, eða telur að hann kunni að verða fyrir neikvæðum áhrifum af henni, en hyggst ekki mæta á dómþingið, getur komið sjónarmiðum sínumumáætlunina á framfærimeð skriflegri tilkynningu þar að lútandi til framseljandans og framsalshafans gegnum ofangreint heimilisfang eða með því að hringja í ofangreind símanúmer, í hverju tilviki eins fljótt og auðið er og helst fyrir 21. mars 2019. Framseljandinn og framsalshafinnmunu gera breska ármálaeftirlitinu (e. Financial Conduct Authority og Prudential Regulation Authority) viðvart um öll andmæli sem berast fyrir dómþingið, óháð því hvort aðilinn sem hreyfir andmælunum hyggst vera viðstaddur það. 24. janúar 2019 Norton Rose Fulbright LLP, 3 More London Riverside, London, SE1 2AQ, Bretlandi Lögmenn framseljanda og framsalshafa. Minjastofnun hefur gert tillögu að friðlýsingu alls búsetulandslags Þjórsárdals, jafnhliða því sem óskað hefur verið eftir að Gjáin og fleiri náttúruminjar í dalnum verði frið- lýstar. Gangi áform Minjastofnunar eftir verður Þjórsárdalur fyrsta svæð- ið sem fær heildstæða friðlýsingu, en slíkur stimpill hefur til þessa fremur gilt um staka staði. Í rökstuðningi Minjastofnunar kemur fram að Þjórsárdalur hafi sér- stöðu vegna þeirra fornu minja sem varðveist hafa í dalnum. Þegar eru friðlýstar rústir alls 22ja bæja sem fóru í eyði á ýmsum tímum, meðal annars vegna Heklugosa. Afdrifarík- ast þar var gosið árið 1104. Á svæðinu sem Minjastofnun legg- ur til að verði skilgreint búsetulands- lag er leitast við að tengja saman leifar eftir járnvinnslu, kumlasvæði, sel, beitarhús, réttir, garðlög, leiðir og vörður. „Allt er þetta vitnisburður um bú- skaparhætti í Þjórsárdal á fyrri öld- um og fá fornleifarnar þannig meira vægi sem hluti heildar en sem stakar minjar slitnar úr samhengi við um- hverfi sitt,“ segir í rökstuðningi Minjastofnunar. Þar er tiltekið að dal- urinn sé í raun einstaka minjaheild, lítt snortin af síðari tíma fram- kvæmdum. Þá hafi Þjórsárdalur ótví- rætt rannsóknargildi fyrir fræðimenn sem hafi gert fjölmargrar fornleifa- rannsóknir allt frá miðri 19. öld. sbs@mbl.is Minjastofnun vill heildstæða friðlýsingu Þjórsárdals Rústir 22ja bæja eru í dalnum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjórsárdalur Stöng þar sem skáli stendur yfir rústum bæjarrústa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.