Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 22

Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Hálsmen 10.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 8.900,- Hálsmen 9.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Hringur 8.900,- Eyrnalokkar 5.500,- Eyrnalokkar 5.500,- FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Orkusalan, dótturfélag RARIK, vinnur að rannsóknum vegna áforma um Tungudalsvirkjun í Fljótum í Skagafirði en Orkustofn- un (OS) gaf út rannsóknarleyfi á síðasta ári. Áformin hafa mætt and- stöðu meðal Fljótamanna, sem minnast þess þegar nánast heilli sveit í Stífludal var sökkt vegna Skeiðsfossvirkjunar fyrir rúmum 70 árum. Til varð miðlunarlón sem fékk heitið Stífluvatn. Óttast heima- menn að unnin verði óafturkræf spjöll á náttúrunni. Tungudalur liggur að Stífluvatni og hyggst Orkusalan kanna fýsi- leika þess að virkja Tungudalsá. Efst í þeim dal er Tungudalsvatn og fallhæðin þaðan niður í Stífluvatn er um 280 metrar. Gerir Orkusalan ráð fyrir miðlunarstíflu við útfall Tungudalsvatns og niðurgrafinni þrýstipípu að stöðvarhúsi nærri bæjarstæði Tungu, en þar eru nú sumarhús. Áætluð stærð Tungu- dalsvirkjunar yrði 1-2 MW og reikn- að er með tengingu að Skeiðsfoss- virkjun með jarðstreng. Fundur fyrirhugaður í Fljótum Orkusalan fékk rannsóknarleyfi til fjögurra ára, en að sögn Magn- úsar Kristjánssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, eru mælingar þegar hafnar. Ekki liggur fyrir hve- nær rannsóknum muni ljúka en Magnús segir kynningarfund fyrir- hugaðan í Fljótum á næstunni, þar sem greina á íbúum svæðisins nánar frá áformum fyrirtækisins. Samkvæmt umsókn Orkusöl- unnar til OS er ætlunin að ráðast í landmælingar, jarðfræðiathuganir, rennslismælingar og umhverfis- athuganir. Skoða á gróðurfar, lífríki Tungudalsár og Tungudalsvatns, fugla, smádýr og fornleifar. „Bent er á samlegðaráhrif Tungu- dalsvirkjunar með Skeiðsfoss- virkjun, sem er núverandi virkjun Orkusölunnar eftir að RARIK stofnaði fyrirtækið. Miðlun í Tungu- dalsvatni hefur góð áhrif á rekstur Skeiðsfossvirkjunar, tiltölulega stutt er að tengja virkjun við kerfið í Skeiðsfossvirkjun og hægt að sam- nýta mannafla við umsjón með virkjunum á rekstrartíma,“ segir m.a. í umsókn Orkusölunnar en reiknað er með að starfsmenn Skeiðsfossvirkjunar annist rekstur Tungudalsvirkjunar og ekki þurfi að bæta við mannskap. Orkustofnun veitti rannsóknar- leyfið, sem fyrr segir, að fenginni umsögn frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun og Hafrann- sóknastofnun. Í leyfisveitingunni leggur Orkustofnun áherslu á góða umgengni um landið, þar sem koma þurfi við stórvirkum vélum, að þess verði gætt að ganga vandlega frá öllum gryfjum og rannsóknarholum og öðru raski, þannig að sýnilegt rask verði sem minnst. Áhrif á lífríki verði rannsökuð Í umsögn Hafrannsóknastofnunar er bent á að í Stífluvatni sé bleikja en vatnshæðarbreytingar vegna Skeiðsfossvirkjunar hafi komið nið- ur á stofninum. Á seinni árum hafi sjóbleikju fækkað í íslenskum ám og því sé vert að ígrunda vel hver lík- leg áhrif verði á ár með sjógengna bleikjustofna. Telur stofnunin mikil- vægt að áhrif á lífríki í Stífluvatni verði rannsökuð og metin ítarlega fyrir framkvæmdir Orkusölunnar. Orkustofnun tekur fram að rann- sóknarleyfið feli ekki í sér heimild til nýtingar á auðlind né fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi eða virkjunarleyfi, komi til mögulegrar nýtingar á auðlindinni. Að lokinni rannsókn mun Orkustofnun fá öll gögn í hendur varðandi Tungudals- virkjun. Leggur OS áherslu á mikilvægi samráðs við landeigendur, og eftir atvikum Umhverfisstofnun, ef leggja þarf vegslóða og vegna svæða þar sem rannsóknir fela í sér umtalsvert jarðrask. Einnig að tekið verði tillit til umhverfissjónarmiða eftir fremsta megni þannig að sjón- rænum áhrifum af rannsóknum verði haldið í lágmarki. „Óbætanlegt tjón“ Birgir Gunnarsson, forstjóri Reykjalundar, ritaði grein sem birt- ist nýverið í Morgunblaðinu þar sem hann lýsir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum virkjunarfram- kvæmdum, en Birgir á ættir sínar að rekja til Fljóta og ólst upp á Siglufirði. Bendir Birgir á að Tungudals- virkjun muni ekki leiða til neinnar atvinnusköpunar í Fljótum. Þá gagnrýnir hann Orkustofnun fyrir að hafa ekki haft samband við aðra landeigendur en ríkið, sem á eyði- jörðina Tungu. Þannig var ekkert Fljótamenn óttast óafturkræf  Mælingar hafnar í Fljótum vegna Tungudalsvirkjunar  Yrði tengd við Skeiðsfossvirkjun með jarðstreng Lá gh ei ði Kortagrunnur: openstreetmap.org F L Ó K A D A L U R T U N G U - D A L U R F L J Ó T Deplar Tunga Lundur Knappsstaðir Ketilás M iklavatn Haganes- vík Stífluvatn Tungu- dals- vatn Fl jó ta á Fyrirhuguð Tungudalsvirkjun í Fljótum Skeiðsfossvirkjun Stífl uvatn er miðlunarlón sem varð til 1945 vegna Skeiðsfossvirkjunar. Sjö jarðir fóru undir vatn. Tungudalsvirkjun ■ Áætluð stærð um 1 til 2 MW ■ Fallhæð um 270-280 m frá Tungudalsvatni að Stífl uvatni ■ Tenging með jarðstreng að Skeiðsfossvirkjun Stífl a Stöðvarhús Aðrennslispípa Siglufjörður Hofsós Tungudals- virkjun Ljósmynd/Björn Z. Ásgrímsson Fljótin Tungudalur er innarlega í Austari-Fljótum og liggur að Stífluvatni. Orkusalan hefur áform um að nýta fall- hæðina í dalnum og virkja ána. Stöðvarhús kæmi við eyðibýlið Tungu og jarðstrengur þaðan að Skeiðsfossvirkjun. Magnús Kristjánsson hjá Orkusöl- unni segir fyrirtækið þurfa að auka eigin raforkuframleiðslu, það framleiði aðeins 25% af því rafmagni sem það selji og afgangurinn komi frá öðrum orkufyrirtækjum. „Það liggur beinast við að styrkja þá starfsemi sem við er- um með á hverjum stað,“ segir Magnús, en Orkusalan er með fimm virkjanir í rekstri á sínum snærum, sem RARIK var áður með. Auk Skeiðsfossvirkjunar eru það Rjúkandavirkjun, Smyrla- bjargaárvirkjun, Grímsárvirkjun og Lagarfossvirkjun. Þá er Orku- salan með Hólmsárvirkjun í undir- búningi í samstarfi við Lands- virkjun. Orkusalan hefur fengið sex rannsóknarleyfi frá Orkustofnun vegna áforma um virkjanir sem gætu orðið frá 2-10 MW að stærð. Auk Tungudalsvirkjunar eru það Gilsárvirkjun á Héraði, Bessa- staðaárvirkjun í Fljótsdal, virkjun fallvatns frá Ódáðavötnum niður í Suðurdal Skriðdals á Fljótsdals- héraði, virkjun Köldukvíslar á Austur-Héraði og virkjun Kaldár og Ásdalsár í Jökulsárhlíð en það leyfi fékkst núna í ársbyrjun. Með alls sex rannsóknarleyfi ORKUSALAN VILL AUKA EIGIN ORKUFRAMLEIÐSLU Morgunblaðið/RAX Virkjanir Lagarfossvirkjun á Fljóts- dalshéraði er rekin af Orkusölunni. Áform um Tungudalsvirkjun í Fljótum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.