Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri
Félags eldri borgara (FEB), setur
spurningarmerki við tillögur átaks-
hóps um aukið framboð á íbúðum. Þá
nánar tiltekið um hvort þær muni
breyta miklu fyrir húsnæðisvanda
eldra fólks. Samhliða vinnu átaks-
hóps stjórnvalda hafi ráðherra
þrengt að framlögum til húsnæðis
eldri borgara.
„Það er nokkuð sérstakt, svo ekki
sé meira sagt, að á sama tíma og
nefndin er að vinna að tillögunum
skuli ráðherra málaflokksins setja
fram reglugerð í desember þar sem
ákveðinn hópur er sérstaklega tekinn
fram fyrir við úthlutun stofnstyrkja,“
segir Gísli um stöðuna.
„Miðað við loforð ríkisstjórna
undanfarin ár um aðgerðir til að
bæta hag eldri borgara þar sem fjár-
magn hefur ekki fylgt þá ber ég ekki
mikið traust til tillagna þar sem fjár-
magn fylgir ekki,“ segir Gísli.
Hann tekur þó fram að margar af
40 tillögum átakshópsins séu fagn-
aðarefni. T.d. áhersla á óhagnaðar-
drifin leigufélög. Brýnt sé að lækka
fjármagnskostnað.
Mun takmarka framlögin
Sverrir Hermann Pálmarsson,
ráðgjafi FEB í húsnæðismálum,
tekur undir að breytingin á reglu-
gerðinni geti reynst afdrifarík.
Breytingin muni þannig takmarka
framlög til uppbyggingar húsnæðis
fyrir eldri borgara og námsmenn.
Það kunni aftur að hægja á uppbygg-
ingu húsnæðis fyrir þessa hópa. Nán-
ar tiltekið vísar Sverrir Hermann til
reglugerðar um stofnframlög ríkis og
sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignar-
stofnanir og almennar íbúðir, númer
555/2016.
Umrædd breyting var samþykkt 5.
desember sl. Með henni kemur við-
bót við eftirfarandi málsgrein: „Við
afgreiðslu umsókna skal Íbúðalána-
sjóður miða við að a.m.k. fjórðungur
þess fjármagns sem er til úthlutunar
hverju sinni renni til byggingar eða
kaupa á íbúðarhúsnæði á vegum
sveitarfélaga. Þó má víkja frá ákvæð-
um málsgreinar þessarar ef hlutfall
umsókna um slíkar íbúðir er lægra.“
Viðbótin er svohljóðandi: „Þá
skulu a.m.k. tveir þriðju hlutar fjár-
magnsins renna til íbúða sem ætl-
aðar eru tekju- og eignalágum
leigjendum á vinnumarkaði.“
Stofnframlögin eiga að stuðla að
auknu framboði á hagkvæmu hús-
næði fyrir ýmsa hópa. Sverrir Her-
mann telur þessa viðbót takmarka
aðgang eldri borgara, fatlaðra, ör-
yrkja og allra sem ekki eru á vinnu-
markaði að þessum sameiginlegu
sjóðum. Það bitni aftur á félögum á
borð við FEB, Brynju og Félags-
stofnun stúdenta.
„Samkvæmt reglugerðinni voru
25% af sjóðnum eyrnamerkt sveitar-
félögunum en félög allra þessara
hópa gátu sótt um afganginn. Með
breytingunni 5. desember hefur ráð-
herrann breytt reglugerðinni á þann
veg að nú renna 2/3 hlutar fjár-
magnsins til íbúða sem ætlaðar eru
tekju- og eignalágum og leigjendum
á vinnumarkaði. Ellilífeyrisþegar, ör-
yrkjar, fatlaðir og til dæmis Kvenna-
athvarfið eiga þá aðeins rétt á að
sækja um sem svarar 25% pottsins.
Félög á borð við Leigufélag aldraðra
hverra skjólstæðingar eru ekki á
vinnumarkaði geta aðeins vænst 25%
af heildarpottinum í sinn hlut,“ segir
hann.
Dugar ekki til
Sverrir rifjar upp að í fyrra hafi
milljarði verið úthlutað til stofn-
framlaga og svo 700 milljónum til við-
bótar með aukafjárlögum. Með ofan-
greindum breytingum þýði það að
fjórðungur, eða 425 milljónir af 1.700,
muni renna til verkefna fyrir fólk
sem ekki er á vinnumarkaði. Það sé
hvergi nógu mikið. Til að setja 425
milljónir í samhengi er stofn-
framlagsumsókn vegna fyrir-
hugaðrar uppbyggingar FEB við
Stýrimannaskólann um 300 milljónir.
Þar eiga að rísa 52 íbúðir.
Loks sé sú krafa í lögunum íþyngj-
andi að leggja beri 2% af fasteigna-
mati til hliðar fyrir viðhaldssjóð.
„Við erum með vilyrði fyrir lóð við
Stýrimannaskólann. Fasteignamatið
er þar töluvert hærra en byggingar-
kostnaður sem aftur þýðir að 2%
krafan leiðir til þess að leigan verður
hærri en 25% af tekjum þeirra sem
falla undir hámarkstekjuviðmið
reglugerðar. Leigan verður því um
30 þúsund krónum hærri á mánuði
en ella í tilviki Leigufélags aldraðra
og verður hátt í 30% af tekju-
viðmiðum reglugerðar.
Við höfum kvartað undan þessu við
ráðherrann [Ásmund Einar Daða-
son, félags- og jafnréttismála-
ráðherra] og bent á að réttara sé að
miða við byggingarkostnað en fast-
eignamatið. Þessu getur verið öfugt
farið á landsbyggðinni. Fasteigna-
matið getur þar verið helmingi lægra
en byggingarkostnaður. Þá verður
framlagið ekki nóg í viðhaldssjóðinn.
Þetta er galli á kerfinu sem hefur
áhrif á leiguverðið hjá þessum fé-
lögum.“
Skerðir framlög til eldri borgara
Framkvæmdastjóri Félags eldri borgara (FEB) gagnrýnir breytingu á reglugerð um stofnframlög
Minna fé sé eyrnamerkt húsnæðismálum eldra fólks Margar tillögur átakshóps séu þó til bóta
Morgunblaðið/Eggert
Hlíðarendi Tillögur átakshóps eiga að stuðla að fjölgun íbúða. Horft er til tekjulægri hópa í þjóðfélaginu.
Björn Arnar Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Brynju – Hússjóðs
ÖBÍ, segir tillögur ríkisstjórnarinnar
í húsnæðismálum geta bætt úr hús-
næðisskorti öryrkja ef „það verður
einhver vilji til aðgerða varðandi
lækkun vaxta og stofnframlög“.
„Það hefur verið mjög lítill áhugi
hjá sveitarfélögunum á að koma
með stofnframlög. Kerfið hefur ver-
ið þungt í vöfum,“ segir Björn Arnar.
Hann segir aðspurður að svo virð-
ist sem hver bendi á annan varðandi stofnframlögin.
„Sveitarfélögin telja að það sé ekkert vandamál hjá sér.
Á höfuðborgarsvæðinu hefur t.d. lítið komið frá Garða-
bæ, Kópavogi og Hafnarfirði varðandi stofnframlög.“
Björn Arnar segir það eiga eftir að skýrast hvernig
sveitarfélögin muni koma að þessum málum.
„Ég hef talið að þetta ætti að vera mat óháðs aðila og
að sveitarfélögin væru þá skyldug til að koma með stofn-
framlag ef talin er þörf á félagslegu leiguhúsnæði í við-
komandi sveitarfélagi,“ segir Björn Arnar. Hann segir að-
spurður að breyting á reglugerð um stofnframlög styrki
ekki stöðu öryrkja í þessu efni.
„Við sóttum um í lok október og þeir eru enn að fara
yfir umsóknir hjá Íbúðalánasjóði. Það hefur ekki verið
opnað fyrir umsóknir aftur. Þetta er auðvitað mjög þung-
lamalegt krefi. Manni hefur fundist stór hluti af þessum
stofnframlögum hafa farið til ASÍ,“ segir hann.
Áfram verði slæmt ástand í húsnæðismálum öryrkja.
„Við erum ekki að fá nema 1,75% af öllum stofn-
framlögum. Höfum fengið 25 stofnframlög af þessum
1.425 sem hefur verið úthlutað frá 2017.“
Meðal verkefna Brynju er bygging 42 íbúða á I-reit á
Kirkjusandi. Brynja mun selja 15 íbúðanna á almennum
markaði. Stefna félagsins er að kaupa íbúðir í almennum
fjölbýlishúsum til að stuðla að fjölbreytileika. Björn segir
að með meiri stofnframlögum myndi félagið kaupa fleiri
íbúðir en í fyrra hafi engar íbúðir verið keyptar þar sem
engin stofnframlög voru veitt af ríki og sveitarfélögum.
Brynja hefur hætt að skrá nöfn á biðlista vegna lítilla
fjármuna. Um 600 manns bíða nú á listanum.
Öryrkjar þurfa tryggingu fyrir framlögum
BRYNJA GAT EKKI KEYPT NEINA ÍBÚÐ Í FYRRA VEGNA FJÁRSKORTS
Björn Arnar
Magnússon
Rebekka
Sigurðar-
dóttir, upp-
lýsinga-
fulltrúi
Félags-
stofnunar
stúdenta
(FS), segir
FS lítast vel
á tillögur
átakshóps-
ins um fjölgun íbúða.
„Við teljum þær vel unnar og
taka á mörgum þáttum í þessu
mikla hagsmunamáli tekju-
lægstu hópa samfélagsins, þ. á
m. stúdenta. Við bindum vonir
við að þær leiði af sér að fram-
boð á smáu og hagkvæmu hús-
næði aukist. Hvað varðar
Félagsstofnun stúdenta höfum
við yfir að ráða öflugu og sjálf-
bæru húsnæðislíkani, sem hef-
ur reynst vel, og gætum fjár-
magnað frekari uppbyggingu
utan stofnstyrkjakerfisins.
Þar er gríðarleg umfram-
eftirspurn eftir fjármagni. Vonir
okkar stóðu til að fram kæmi
tillaga um annan valkost lang-
tímafjármögnunar á félagslegu
húsnæði, sem við höfum í tals-
verðan tíma vakið athygli á að
þyrfti að vera til staðar. Ein til-
laga átakshópsins er að lækka
fjarmagnskostnað til óhagnað-
ardrifinna félaga. Við eigum eft-
ir að sjá hvernig útfærslan verð-
ur á því.“ segir hún. Gríðarleg
umframeftirspurn sé eftir íbúð-
um á stúdentagörðum.
Tryggja þarf
fjármögnun
FS FAGNAR TILLÖGUM
Rebekka
Sigurðardóttir
k
15-50% afsláttur
af gæðavörum ORMSSON
janúar
dagar
l
S
FYRIR HEImIlIN Í laNDINU
ry sugur
kaup!ágmúla 8
ÍmI 530 28
a
Pottar og pö
30%
afsláttur
15%
afsláttur
örbylgjuofnar
Netvers
20%
fsláttur
Gerið góðLOK
Adag
ar