Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10,1 kg
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Dagana 28. janúar til 3. febrúar
næstkomandi klukkan 13-17.30
hyggst Reykjavíkurborg bjóða upp
á íbúasamráð þar sem fjallað verð-
ur um varanlegar göngugötur.
„Allir sem eru áhugasamir um
málefnið fá tækifæri til að koma á
framfæri hugmyndum sínum um
það hvernig göngugötur eiga að
vera, hvaða líf megi skapa á þeim
og hverju þurfi að huga að við
hönnun og útfærslur göngugatna,“
segir í frétt á heimasíðu Reykja-
víkurborgar.
Sérstakir rýnifundir fyrir hags-
munaaðila eru svo fyrirhugaðir tvö
kvöld vikunnar, 28. og 29. janúar,
frá klukkan 18.30-20.00.
Samráðsfundirnir verða haldnir í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Samráð við íbúa
um göngugötur
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sementsflutningaskipið Skeiðfaxi
verður úrelt. Er undirbúningur haf-
inn að niðurrifi skipsins, samkvæmt-
upplýsingum Gunnars H. Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra
Sementsverksmiðjunnar, eiganda
skipsins.
Í fyrrahaust auglýsti Sements-
verksmiðjan Skeiðfaxa til sölu, en
skipið hefur um margra ára skeið
staðið haffærislaust í slipp á Akra-
nesi. Ekki bárust aðgengileg tilboð
að sögn Gunnars og því var ljóst að
skipið myndi fara í brotajárn. Ekki
reyndist mikill markaður fyrir svona
sérhæft skip.
Skeiðfaxi AK var smíðaður árið
1977 hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi. Skipið er stál-
skip, 415 brúttótonn og hannað til
flutninga á ósekkjuðu sementi.
Flutti ósekkjað sement
Sementsverksmiðja ríkisins lét
smíða Skeiðfaxa. Skipið flutti laust
sement frá Akranesi að Ártúnshöfða
í Reykjavík, þar sem því var dælt í
sementstankana miklu sem þar eru.
Ein ferð frá Akranesi til Reykja-
víkur og aftur til baka með lestun og
losun tók venjulega um 10 klukku-
stundir, en skipið lestar rúm 400
tonn í ferð.
Þá fór Skeiðfaxi stundum til Ísa-
fjarðar og Akureyrar en það voru
einu staðirnir á landsbyggðinni sem
gátu tekið við sementi í lausu.
Fjórir voru í áhöfn en tveimur var
bætt við þegar siglt á Ísafjörð eða
Akureyri.
Sjómannablaðið Víkingur birti árið
2001 viðtal við Ingimar Magnússon
skipstjóra og Einar Einarsson stýri-
mann á Skeiðfaxa. Þar kom fram að
það ár var skipið búið að flytja tvær
milljónir tonna af sementi frá árinu
1977 og sigla 314.917 mílur.
Þetta samsvaraði því að skipið
hefði siglt fjórtán og hálfan hring
umhverfis jörðina. Ekki liggja fyrir
upplýsingar um hve mikið magn
skipið hafði flutt alls, þegar rekstri
þess var hætt.
Sem dæmi um mikilvægi Skeið-
faxa má nefna að árið 2000 var met-
sala hjá Sementsversksmiðjunni á
Akranesi, 140 þúsund tonn og af því
voru 110 þúsund tonn flutt með
Skeiðfaxa.
Í kjölfar bankahrunsins varð gríð-
arlegur samdráttur í sementssölu.
Árið 2010 nam sementssalan rétt
tæpum 40 þúsund tonnum og var árið
það söluminnsta hjá verksmiðjunni
frá upphafi. Ákveðið var að leggja
Skeiðfaxa, a.m.k tímabundið.
Árið 2013 var Skeiðfaxi tekinn upp
í slipp á Akranesi og hefur hann verið
þar síðan.
Sementsverksmiðjan var reist á
Akranesi á árunum 1956-1958 og tók
til starfa síðla árs 1958. Ríkið seldi
einkaaðilum verksmiðjuna árið 2004.
Framleiðslu var hætt í febrúar-
mánuði 2012 og nú hafa verksmiðju-
húsin verið rifin.
Sementsverksmiðjan ehf. starfar
enn og flytur inn sement frá Noregi.
Hún rekur 16.000 tonna sements-
birgðastöð á Akranesi og 4.000 tonna
birgðastöð á Akureyri.
Hlutverki sementsflutn-
ingaskipsins Skeiðfaxa lokið
Undirbúningur hafinn að niðurrifi skipsins Engin aðgengileg tilboð bárust
Ljósmynd/Guðmundur Árnason
Á siglingu Skeiðfaxi siglir inn Viðeyjarsundið með sementsfarm sem skipið landaði í tankana á Ártúnshöfða.
Morgunblaðið/RAX
Ártúnshöfði Sementinu var dælt úr
Skeiðfaxa í sementstankana stóru.
Söluauglýsingin Skipið hefur verið
í slippnum á Akranesi síðan 2013.
„Eru íþróttir
leikvangur of-
beldis? – vinnum
gegn því“ er yfir-
skrift ráðstefnu
sem fer fram í
Háskólanum í
Reykjavík mið-
vikudaginn 30.
janúar nk. kl.
10.30-17.30. Ráðstefnan er hluti af
dagskrá Reykjavíkurleikanna.
Erlendir og íslenskir fyrirlesarar
munu deila reynslu sinni, sögum og
fræðum. Bakgrunnur fyrirlesara er
mjög fjölbreyttur allt frá fræði-
mönnum, sem hafa rannsakað mál-
efnið um árabil, til forsvarsmanna í
íþróttahreyfingunni sem vinna að
forvörnum og fræðslu og þolenda
af báðum kynjum sem segja sína
sögu. Einnig verður boðið upp á
þrjár vinnustofur 31. janúar í
íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Eru íþróttir leik-
vangur ofbeldis?
Allt um sjávarútveg