Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 40

Morgunblaðið - 24.01.2019, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019 icewear.is BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Þegar Boeing vann að þróun nýjustu kynslóðar 737-farþegaflugvélanna uppgötvaðist að hönnunin hafði til- hneigingu til að valda því að flug- menn misstu stjórn á flugvélinni. Úr því var bætt með tölvuknúnum ör- yggisbúnaði en nú beinist athyglin að honum í rannsókninni á mann- skæðri brotlendingu þotu flugfélags- ins Lion Air undan ströndum Indónesíu í haust. Verði bráðabirgðaniðurstöður um orsakir brotlendingar Boeing 737 Max 8 þotunnar 29. október sl. stað- festar getur hér verið á ferðinni dæmi um óhapp þar sem sjálfvirkni í stjórnklefanum, sem átti að auka á öryggi flugvélar og farþega, hafi snúist upp í andhverfu sína. Allt virð- ist sem öryggisbúnaðurinn hafi rugl- að flugmennina í ríminu og þannig óviljandi átt sinn þátt í slysinu. Um langt árabil hafa flugvéla- framleiðendur bætt við sjálfvirkum búnaði í stjórnklefa flugvéla til að auðvelda flugmönnum störfin. Þessi búnaður hefur jafnvel getað tekið fram fyrir hendur flugmanna yrðu þeim á mistök. Árangurinn er sá, að vegna tækninnar eru stórslys í flugi sjaldgæfari en áður. Flugslys sem rakin verða til sjálf- virkninnar eru hins vegar vaxandi hluti þeirra fáu slysa sem halda áfram að eiga sér stað, samkvæmt rannsóknum stjórnvalda og flug- slysaskýrslum. Sjálfvirkni til bóta „Engum dylst, að sjálfvirknin hef- ur verið feiknalega mikið lán fyrir at- vinnuflugið og öryggi þess,“ segir Steve Wallace, sem um skeið var yfirmaður slysarannsókna banda- rísku flugmálastjórnarinnar (FAA). „Á sama tíma hefur slysum þó fjölg- að þar sem sjálfvirknin hefur verið talin orsakaþáttur.“ Í skýrslu FAA frá árinu 2013 frömdu flugmenn aðgerðamistök í rúmlega 60% samtals 26 flugslysa á fyrsta áratug aldarinnar eftir að sjálfvirk kerfi höfðu fyrirvaralaust slökkt á sér eða hegðað sér öðruvísi en vænta mátti. Til að mynda frömdu flugmenn Airbus SE A330 þotu Air France, flugs 447, skyndilegar og harkalegar óútskýrðar aðgerðir er þeir misstu vald á henni yfir Atlantshafi í októ- ber 2009. Átti það sér stað í fram- haldi af því að hraðamælar hættu að virka sem skyldi, eftir að sjálfvirk ör- yggiskerfi sem vernda áttu þotuna aftengdu þá. Fórust allir sem um borð voru, 228 manns, en þotan var á leið frá Rio de Janeiro til Parísar. Samgönguöryggisstofnun Banda- ríkjanna (NTSB) komst að þeirri niðurstöðu að flugmenn Boeing 777- 200ER farþegaþotu Asiana Airlines sem rakst á sjóvarnargarð í San Francisco í lendingu árið 2013 hefðu ekki áttað sig á að þeir höfðu að hluta til rofið sjálfvirka hraðastýringu flugvélarinnar, meðal annars vegna samskiptaskorts. Brotlenti þotan á flugbrautarendanum og biðu þrír bana í óhappinu. Að sögn samgönguöryggisnefndar Indónesíu glímdu flugmenn Lion Air þotunnar, flugs 610, við fjölda kerfis- bilana í stjórnklefanum næstu mín- úturnar eftir flugtak árla dags í Jak- arta. Með fangið fullt af viðfangs- efnum báðu þeir um heimild til að koma aftur inn til lendingar. Komust þeir ekki alla leið því þotan steyptist áður í Jövuhaf á mikilli ferð, að sögn rannsakenda slyssins. Allir sem um borð voru, 189 manns, fórust með flugvélinni. Flugriti varpar ljósi á orsakir Gögn úr flugrita sýna að kveikt hafði verið á nýjum öryggisbúnaði Boeing 737 Max 8 þotunnar, sem á frummálinu heitir „Maneuvering Characteristics Augmentation System“ (MCAS). Flöktandi skynj- ari hafði gefið til kynna, að hætt var við ofrisi þotunnar og knúið MCAS- kerfið til að bæta úr því. Sendi það flugvélina aftur og aftur í dýfu. Við því brugðust flugmennirnir jafnan með því að grípa inn í stýringu og reisa trjónuna aftur handvirkt. Smelltu þeir á rofa sem slökkti um stundarsakir á MCAS. Endurtók að- gerðahringurinn sig vel á þriðja tug skipta, að því er fram kom á flugrit- anum. Í síðustu dýfunni skall flug- vélin í sjónum. Á sama tíma og þessi barátta átti sér stað urðu truflanir á eðlilegri starfsemi annarra stjórnkerfa þot- unnar eða að viðvaranir um bilanir glumdu. Mest kvað að ærandi há- vaða frá stýrispinna vinstra megin í stjórnklefanum sem hristist í gríð og erg til aðvörunar um að ofris væri í nánd og þar með aukin hætta á að vængirnir misstu lyftikraft. Pinninn hristandi starfaði óeðlilega vegna falskra boða frá skynjaranum. Flugslys eiga sér sjaldnast eina einstaka orsök og bráðabirgðagögn úr rannsókn slyssins benda til að fjöldi samverkandi þátta hafi komið við sögu og stuðlað að hinu dauða- dæmda ferðalagi Lion Air þotunnar. Þó viðhald og þjálfun flugmanna geti verið stærri þáttur í slysi þá er óvænt hegðun sjálfvirknibúnaðar að setja slysið í algengan flokk. Maðurinn gegn flugvélinni Flugvélaframleiðendur hafa aukið sjálfvirknibúnað í farþegaþotum til að auðvelda flugmönnum að komast hjá mistökum. Búnaður þessi verður stöðugt háþróaðri og fullkomnari. Í tilviki Airbus hafa flugtölvur haft tilsjón með aðgerðum flugmanna á öllum þotumódelum frá því seint á níunda áratugnum. Þær leyfa þeim ekki brattar dýfur eða beygjur sem þær meta óöruggar. Afstaða Boeing hefur hins vegar að veita flugmönn- unum meira svigrúm, en í nýrri mód- elum eru þó komnar tölvukeyrðar takmarkanir. Og, eins og hjá Airbus, eru þotur bandaríska flugvélarisans búnar háþróuðum sjálfstýringum og kerfum sem meðal annars ákvarða hraða í aðflugi og lendingu. Hinn nýi búnaður 737 Max þotu- fjölskyldunnar var þróaður til að uppræta eina helstu orsök mann- skæðra slysa í farþegaflugi. Með því að beina trjónunni niður á við undir vissum kringumstæðum dregur MCAS-hugbúnaðurinn úr líkum á of- risi flugvélarinnar og stjórnleysi hennar. Slys við slíkar aðstæður kostuðu 1.131 manns lífið á árunum 2008 til 2017. Er það langfjölmenn- asti slysaflokkurinn, samkvæmt gögnum Boeing. Þótt hún hafi ekki reynst algjör- lega fullkomin eru sjálfvirkninni þakkaðar miklar framfarir í flug- öryggi undanfarna áratugi. „Fullt af sérfræðingum hefur haldið því fram, að það sé ekki sterka hlið mann- skepnunnar að fylgjast með starf- semi véla,“ segir Roger Cox, fyrrver- andi fulltrúi hjá NTSB, en hann er sérfróður um aðgerðir flugmanna í stjórnklefanum. „Hið þveröfuga er vænlegra til árangurs. Vélar eru skrambi góðar í að fylgjast með hegðan mannskepnunnar,“ sagði hann við Bloomberg-fréttastofuna. Lítið einfalt tæki sem varar við árekstri í lofti hefur til að mynda reynst nánast pottþétt. Flóknari kerfi sem aðstoða flugmenn en út- heimta eftirlit af þeirra hálfu hafa aftur á móti í nokkrum tilfellum ruglað flugáhafnir í ríminu og leitt til slysa. Segir Cox mikilvægt að halda því til haga, að flugmenn geti átt þátt í vandræðum sem tengjast sjálf- virkninni. „Oft er það svo, að það sem við köllum villu í sjálfvirkninni er í raun færnivilla eða athyglisvilla, ekki grundvallarannmarki á sjálf- virknibúnaðinum,“ bætir hann við. Færninni hrakar Einmitt það á við um flugmenn Lion Air þotunnar. Þeir fylgdu ekki verklagsreglum fyrir neyðarástand sem hefðu getað rofið MCAS-kerfið úr sambandi og gert þeim með því kleift að handstýra þotunni til lend- ingar, að sögn aðila er unnið hafa að rannsókn slyssins. Næstu nótt á undan kom sambærilegt ástand upp í þotunni en sú áhöfn leysti vandann og lenti með eðlilegum hætti eftir að hafa slökkt á MCAS. Hvorki var skipt um né gert við áfallshorns- mæla þotunnar eftir þetta flug og því hefur verið deilt um flughæfi hennar fyrir ferðina örlagaríku. Stephen Casner rannsóknarsál- fræðingur bandarísku geimferða- stofnunarinnar (NASA) komst að þeirri niðurstöðu í rannsókn árið 2014, að færni flugmanna til að stýra þotum sjálfir hafi dalað með vaxandi sjálfvirkni í stjórnklefanum. Er það einmitt ein ástæðan fyrir því að slys eins og hvarf þotu Lion Air eiga sér stað; rýrnun á færni flugmanns til að handfljúga þotu. Á sama tíma og grundvallar- starfsemi eins og að fylgjast með mælitækjum og stýra þotu hand- virkt skerðist ekki í nútímaflugi komu í ljós við rannsóknina „mörg og alvarleg vandamál“ tengd leið- sögubúnaði og því að flugmenn átt- uðu sig ekki á bilunum í tækjakerf- um. Handbók flugmanna ábótavant Komist var að svipuðum niður- stöðum í annarri rannsókn árið 2013 sem Casner stóð að ásamt fleirum. Kjarni hennar var að flugið væri orð- ið svo öruggt, að flugmenn upplifðu afar sjaldan eða aldrei neyðarástand. Það þóttu góðar fréttir en þýddi þó að flugáhafnir væru ekki eins vel undirbúnar undir neyðartilvik. Lagt var til að flugfélögin þróuðu raun- verulegri og flóknari prófanir við þjálfun flugmanna til að auka á færni þeirra til að stjórna vél með slökkt á sjálfvirkninni í stjórnklefanum. „Þar sem nýgræðingar eru settir út af sporinu, slegnir út af laginu, komið á óvart þegar vandamál blossa upp við nýstárlega aðstæður leysa þraut- reyndir þau léttilega,“ sögðu skýrsluhöfundar. Sérfræðingur um flugmál, Alvin Lie, sagði við blaðið Jakarta Post, að gengið hefði verið út frá því hjá Boeing, að flaggskip fyrirtækisins, 737 Max 8 þotan, hefði verið með sama öryggisbúnað og eldri vélar. „Í Max-vélunum eru nýir eiginleikar og nýjar útfærslur en það kemur þó ekki fram í þjálfunarhandbók flug- manna. Því voru flugmenn ekki með- vitaðir um þennan nýja búnað eða hvernig bregðast skyldi við bilunum í honum.“ Úr þessu bætti Boeing í framhaldi af slysinu og breytti bæði handbók flugmanna og viðhalds- handbók þotunnar. Óviljandi afleiðingar sjálfvirkni  Talið að tölvuknúinn öryggisbúnaður í stjórnklefa hafi átt þátt í því að farþegaflugvél steyptist í hafið við Indónesíu á síðasta ári  Slysum fjölgar þar sem sjálfvirkni er talin vera orsakaþáttur Sjálfvirkni Flugmenn Boeing 737 MAX þotu Lion Air voru með fangið fullt af bilunum er þotan steyptist í Jövuhaf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.