Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skortur áíbúðum, eðaóuppfyllt
íbúðaþörf eins og
það heitir í
skýrslu átakshóps
forsætisráðherra
um húsnæðismál,
er nú á bilinu 5.000-8.000
íbúðir. Þetta er töluvert hjá
ekki fjölmennari þjóð og sýnir
að illa hefur verið haldið á
málum á liðnum árum. Vand-
inn einskorðast ekki við
höfuðborgarsvæðið eða
Reykjavík, en stærsta skýr-
ingin á vandanum er þó höfuð-
borgin og þau umfangsmiklu
skipulagsmistök sem
borgaryfirvöld hafa staðið
fyrir árum saman. Þetta sést
meðal annars ágætlega á því
að í skýrslunni segir að mikil
uppbygging sé fyrirhuguð á
næstu árum, en hún dugi þó
ekki til og vandinn verði að
óbreyttu um 2000 íbúða skort-
ur eftir þrjú ár.
Ekki er þetta síður augljóst
af því sem sagt um þær íbúðir
sem eru í byggingu, en þær
eru sagðar munu síður henta
þeim sem hafa lágar tekjur og
eiga litlar eignir. Bent er á að
stór hluti lítilla íbúða sem ver-
ið sé að byggja sé í hverfum
þar sem fermetraverð sé hvað
hæst og að á öðrum svæðum
sé mest byggt af stórum íbúð-
um. Ekkert virðist því hugsað
fyrir því að þeir sem minni ráð
hafa geti keypt sér íbúðir.
Þetta er mikill áfellisdómur
yfir þeirri þéttingarstefnu
sem rekin hefur verið í
Reykjavík og ömurlegt að sú
stefna skuli nú hafa orðið til
þess að ýta undir átök á
vinnumarkaði með því að
framkalla skort á húsnæði á
viðráðanlegu verði fyrir alla,
eins og ætti að vera sjálfsögð
stefna þeirra sem stýra skipu-
lagsmálum höfuðborgarinnar.
En framhjá því varð ekki
litið að þessi staða var komin
upp og varð til þess að verka-
lýðshreyfingin gerði kröfur
um að samhliða kjarasamn-
ingum yrðu gerðar umbætur í
húsnæðismálum. Viðbrögðin
sem fram hafa komið hafa ver-
ið jákvæð, sem er fagnaðar-
efni og gefur vonir um að
styttist í lyktir þeirra kjara-
samninga sem nú standa yfir
og hefði þurft að ljúka fyrir
allnokkru.
Formaður Eflingar segir
tillögurnar samræmast kröf-
um félagsins mjög vel. „Það er
frábært,“ segir hún, og bætir
við: „Síðan á auðvitað eftir að
kostnaðarmeta þetta, og finna
út hvað þetta þýðir raunveru-
lega.“ Þetta er jákvæð nálgun
og verður vonandi líka til þess
að formaðurinn fellst á að
kostnaðarmeta
launakröfur fé-
lagsins, en óskum
um það hefur ekki
verið tekið fagn-
andi.
Formaður VR
segir að ef takist
að framkvæma þessar hug-
myndir eða bróðurpartinn af
þeim þá verði það „risastórt
skref í átt að lausn kjaradeil-
unnar“. Formaður Starfs-
greinasambandsins tekur
svipaða afstöðu og segir til-
lögurnar „að mörgu leyti mjög
jákvæðar“.
Hinum megin borðsins hafa
viðbrögðin einnig verið já-
kvæð og framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins fagn-
aði því að tillögurnar væru
komnar fram og taldi þær gott
innlegg í yfirstandandi kjara-
viðræður.
Miklu skiptir um fram-
haldið að unnið verði vel úr til-
lögunum og áhersla lögð á það
sem mestu skiptir til fram-
tíðar, auk þess að leysa þann
bráðavanda sem borgaryfir-
völd hafa búið til.
Í tillögunum er margt
ágætt sem getur stuðlað að
því að lækka íbúðaverð til
framtíðar og að allir geti eign-
ast þak yfir höfuðið, sem er
það sem flestir óska sér, eins
og sjá má í könnun sem Íbúða-
lánasjóður lét gera í fyrra á
meðal þeirra sem eru á leigu-
markaði. Aðeins 8% þeirra
vildu í raun vera á leigumark-
aði, aðrir voru í leiguhúsnæði
af nauðsyn. Full ástæða er til
að vinna að því að gera fólki
kleift að komast í eigin hús-
næði og þó að tillögurnar séu
um margt jákvæðar og ým-
islegt í þeim, til að mynda um
einföldun regluverks, sem
væri mjög til bóta, mættu þær
endurspegla óskir almennings
um eigið húsnæði betur.
Þá kemur á óvart, og verður
að líta á sem nokkurn útúrdúr
í tillögupakkanum, að þar sé
fjallað um samgöngumál.
Vissulega má finna tengingar
á milli samgangna og íbúða-
húsnæðis, en hið sama á svo
sem við um leikskóla, skóla,
verslanakjarna og svo mætti
áfram telja. Að koma svokall-
aðri borgarlínu núverandi
borgaryfirvalda inn í þessar
tillögur, þegar hugmyndir um
hana eru liður í þeim skipu-
lagsvanda sem kallaði á skip-
an átakshópsins, verða að telj-
ast mistök.
Framhjá slíkum útúrdúrum
og mistökum má þó líta og
aðalatriðið er að tillögurnar
stuðli að auknu framboði á
íbúðarhúsnæði á viðráðanlegu
verði og liðki þannig fyrir far-
sælum kjarasamningum.
Vandinn á hús-
næðismarkaðnum er
heimatilbúinn en
jákvætt er að unnið
sé að lausn}
Tillögum vel tekið
Þ
essa dagana er svokölluð „10 ára
áskorun“ vinsæl á samfélags-
miðlum. Hún snýst um að birta
myndir af sér frá því í dag og fyrir
áratug síðan. Fólk virðist skilj-
anlega almennt vilja sýna fram á að ásýndin sé
hreint ekki verri en fyrir 10 árum síðan, jafnvel
bara betri ef eitthvað er. Það er skiljanlegt því
öll viljum við jú trúa því að við nýtum í það
minnsta eitthvað af tímanum í að verða örlítið
betri.
Ef Ísland tæki nú þátt í 10 ára áskoruninni
með öllum hinum sæjum við kannski ekki mik-
inn mun í fljótu bragði, ekki úr lofti a.m.k. Til-
finningin er helst sú að myndin frá deginum í
dag sýndi meiri rigningu og rok óháð árstíðum.
En myndirnar allar eru auðvitað ekki nema birt-
ing á allri þeirri miklu sjálfsvinnu sem við höfum
ástundað. Ef grannt er skoðað sjást miklar breytingar.
Fyrir 10 árum var Ísland að reyna að standa af sér storm
með lítið annað en íslenska bjartsýni og æðruleysi að vopni.
Eitt af því fáa sem þjóðin var sammála um að gleðjast yfir
voru landsliðsdrengirnir í handboltanum, sem gerðu sitt til
að bæta ástandið með því að færa til landsins eðalmálma.
Það er rólegra um að litast á Austurvelli nú en þá. Þjóðin
ætti að geta verið sammála um að Ísland kemur nokkuð vel
út úr áskoruninni umræddu, við höfum styrkst, efnast, ver-
ið skynsöm og dugleg, sett okkur alls kyns markmið, staðið
við mörg þeirra og meira að segja grennst.
Það er ekki þar með sagt að Ísland sé alfarið útskrifað úr
líkamsræktinni frekar en nokkur annar. Svo
eru sumir ósáttir við myndina sem tekin er í
dag. Stundaróánægja dagsins þýðir samt ekki
endilega að aðferðafræði sjálfsvinnunnar sé
ómöguleg. Þess vegna er tíu ára áskorunin svo
gagnleg. Hún setur hluti í samhengi og getur
sagt okkur hvort aðferðirnar sem við notum séu
árangursríkar. Slíkur samanburður getur vísað
okkur veginn um það hvort við viljum beygja al-
farið út af sporinu eða halda okkur á sömu
braut. Þetta á jafnt á við um mataræði og
hreyfingu en líka efnahagsstefnu og kjarabar-
áttu.
Einn af nýju landsliðsdrengjunum okkar,
Teitur Örn Einarsson, er einn þeirra fjölmörgu
sem tóku þátt í 10 ára áskoruninni. Það er ekki
bara af því ég er svo montin að hann sé frændi
minn að mér finnst hans áskorun ein sú allra
besta. Á báðum myndunum eru hann og franska hand-
boltahetjan Nikola Karabatic; á þeirri fyrri stendur hann
lítill snáði með stjörnur í augum við hlið hetjunnar sem
hann nær upp í mitti og svo er hin 10 árum síðar þar sem
hann sjálfur etur kappi við hetjuna frá forðum daga á vell-
inum á heimsmeistaramóti í handbolta. Kannski snýst
nefnilega heila málið ekki um það hvar við vorum fyrir tíu
árum, eða það sem angrar okkur í dag, heldur hvert við get-
um farið ef við höldum rétt á spöðunum og hvar við viljum
vera eftir tíu ár. hildurs@althingi.is
Hildur
Sverrisdóttir
Pistill
Tíu ára áskorun Íslands
Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Landbúnaðarráðherra hefurboðað að í næsta mánuðiverði lagt fram frumvarpum breytingar á lögum
um dýrasjúkdóma til að heimila inn-
flutning á hráu, ófrosnu kjöti. Sam-
hliða er unnið að viðbótarvörnum
vegna tiltekinna sýkinga, svo sem
salmonellu í kjúklingakjöti og vegna
kampýlóbakter, sýklalyfjaónæmis
og fleiri vandamála sem fylgt geta
auknum innflutningi.
Þegar íslenska ríkið innleiddi mat-
vælalöggjöf Evrópusambandsins
ákváðu stjórnvöld að opna ekki fyrir
innflutning á fersku kjöti og var vís-
að til heilbrigðis dýra og manna hér
á landi. Var það gert með því að í
reglugerð var nýtt heimild í lögum
um dýrasjúkdóma og varnir gegn
þeim til að krefjast þess að kjöt
þyrfti að vera í frosti í ákveðinn tíma
áður en það fengist tollafgreitt.
Samtök verslunar og þjónustu
vöruðu við þessu frá upphafi og hafa
barist gegn þessu fyrirkomulagi og
einnig Félag atvinnurekenda.
EFTA-dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu í nóvember 2017 að
bann við innflutningi fersks kjöts og
fleiri afurða frá ríkjum innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins stangaðist
á við ákvæði EES-samningsins, væri
í raun brot á honum. Fyrirtækið
Ferskar afurðir lét reyna á lögin og
flutti inn ófryst kjöt sem Matvæla-
stofnun gerði upptækt. Fyrirtækið
fór í skaðabótamál gegn ríkinu og
niðurstaða Hæstaréttar var sú sama
í nóvember sl. og hjá EFTA-
dómstólnum nokkrum mánuðum
áður.
Fram kemur í skriflegu svari
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
Jóns Steindórs Valdimarssonar,
þingmanns Viðreisnar, að kostnaður
ríkisins vegna þessarar sendingar,
þar á meðal skaðabóta, var 11 millj-
ónir kr. Málareksturinn fyrir EFTA-
dómstólnum kostaði 36 milljónir.
Þótt rúmt ár sé liðið síðan dómur
EFTA-dómstólsins féll hefur regl-
unum ekki verið breytt. Í þing-
málaskrá boðar ráðherrann að í
febrúar verði frumvarp lagt fram.
Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að
jafnhliða breytingum á lögum þurfi
að vinna að aðgerðum til að koma í
veg fyrir að breytt fyrirkomulag inn-
flutnings leiði af sér áhættu gagn-
vart heilsu manna og dýra. Það hafa
ráðuneytið og Matvælastofnun verið
að gera.
Tryggingar vegna salmonellu
Nú hefur Eftirlitsstofnun EFTA
heimilað stjórnvöldum hér að krefj-
ast svokallaðra viðbótartrygginga
vegna salmonellu í kjúklingakjöti,
eggjum og kalkúnakjöti, á sama hátt
og verið hafa í gildi í Svíþjóð, Noregi
og Finnlandi. Það þýðir að innflytj-
endur þurfa að framvísa sérstökum
vottorðum um rannsóknir sem stað-
festa að afurðin sé laus við salmon-
ellu, áður en hún er flutt til landsins.
Grundvöllur þessa eru strangar
reglur um varnir gegn salmonellu
hér á landi og tiltölulega fá tilvik.
Þarf að leiða kröfu um þessar við-
bótartryggingar í lög.
Í svari ráðherra við fyrirspurn
Jóns Steindórs kemur jafnframt
fram að unnið hafi verið að aðgerð-
um til að takmarka hættu vegna
kampýlóbakter, sýklalyfjaónæmis
og fleiri vandamála. Við þá vinnu
hefur verið leitað til erlendra sér-
fræðinga á sviði matvælaöryggis. Þá
hafi fulltrúar stjórnvalda fundað
með fulltrúum framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins og Eftirlits-
stofnunar EFTA um dóm EFTA-
dómstólsins og áhrif hans hér á
landi.
Hugað að vörnum
vegna kjötinnflutnings
Reuters
Framleiðsla Kjúklingar eru ræktaðir um allan heim, við mismunandi að-
stæður. Íslandi er heimilt að auka kröfur til innflutnings frá EES-ríkjum.
„Verið er að setja þrýsting á
stjórnvöld að bregðast við
dómnum með fullnægjandi
hætti. Það er engin áhætta fólg-
in í því fyrir fyrirtækin að flytja
inn ferskt kjöt. Það leiðir sjálf-
krafa til skaðabótaábyrgðar fyr-
ir ríkið,“ segir Andrés Magnús-
son, framkvæmdastjóri SVÞ.
Matvælastofnun hefur hafn-
að einni umsókn um innflutning
á fersku, lífrænt framleiddu
nautakjöti, frá því dómur
Hæstaréttar féll. Ríkislögmaður
hafði engin andmæli uppi gegn
stefnu viðkomandi fyrirtækis.
Önnur sending er á leiðinni og
er væntanleg eftir helgi. Andrés
segir borðleggjandi að hún fái
sömu afgreiðslu. „Mér finnst
ákveðnir stjórnmálamenn tala
með léttvægum hætti um þessa
dómsniðurstöðu. Það hlýtur að
vera alvarlegt fyrir stjórnvöld
að vera dæmd fyrir brot á al-
þjóðasamningum.“
Flytja inn
ferskt kjöt
ÞRÝSTINGUR FYRIRTÆKJA