Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 47
UMRÆÐAN 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Meirihluti manna sér
nú loks í gegnum
blekkingarvef þeirra
íhalds- og sérhags-
munaafla sem halda því
fram að krónan sé fín –
að hún hafi komið okk-
ur út úr hruninu – þó að
þeir viti fullvel að það
var krónan sem kom
okkur í það.
Nýjasta dæmið um
vandræðin sem krónan veldur er
hörð tilvistarbarátta WOW en þegar
það blessaða félag fór í sitt fyrsta
flug, í maí 2012, fékk það 162 krónur
fyrir evru – ef seldir voru farmiðar
fyrir 1.000 evrur, fengu WOW-menn
162.000 krónur – en í júní í fyrra var
svo komið að WOW fékk ekki nema
110.000 krónur fyrir 1.000 evra far-
miðana.
Í nýlegri skoðanakönnun kom í ljós
að skýr meirihluti Íslendinga, 56%,
er hlynntur upptöku evru en smám
saman skilja æ fleiri hvílíkt svikatól
krónan er.
Eftir hrun krónunnar 2008 og þær
hörmungar sem það olli samþykkti
Alþingi 2009 að við skyldum sækja
um aðild að ESB, bæði til að við gæt-
um fengið evruna og eins farið að
hafa áhrif í Evrópu en í gegnum
EES-samninginn og Schengen-
samkomulagið erum við 80-90% í
ESB en án evru og nokkurra áhrifa.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur hóf samninga við ESB sum-
arið 2010. En til allrar ógæfu náðu
íhalds- og popúlistaöfl landsins meiri-
hluta aftur 2013 undir
stjórn Sigmundar Dav-
íðs og hans manna.
Einn þeirra var Gunnar
Bragi sem nokkuð hef-
ur verið í fréttum, þó
ekki beint fyrir mikla
eða góða dómgreind en
Sigmundur Davíð gerði
hann að utanríkis-
ráðherra. Góður leikur
það!
Þessi – nú í síðasta
ljósi nokkuð vafasami
mannskapur – reyndi
að fá Alþingi til að samþykkja að
ESB-aðildarumsóknin skyldi dregin
til baka en ekki var meirihluti fyrir
því á Alþingi. Ritaði þá téður Gunnar
Bragi bréf til forsvarsmanna ESB
hinn 12. marz 2015 – eitthvert það
loðnasta og óljósasta bréf sem undir-
ritaður hefur séð – og átti tilgangur
þess að vera að slíta aðildarvið-
ræðum.
En hvernig máttu þessir menn
gera slíkt gegn vilja Alþingis!? Var
þar líka á ferð dómgreindarskortur?
Líklegt er að enginn formlegur eða
lagalegur grundvöllur hafi verið eða
sé fyrir þessum furðuskrifum.
Það er undarlegt að ekkert skuli
hafa gerzt í ESB- og evrumálum síð-
an þá. Sérstaklega með tilliti til þess
að meirihluti landsmanna vill evruna.
Ég vildi því reyna að kanna málið á
réttum stöðum.
Íhaldsmenn tala oft um skrif-
stofubáknið í Brussel og búrókratana
þar. Á þetta bákn allt að vera ómögu-
legt og standa kolfast. Þetta, eins og
margt annað hjá popúlistunum,
reyndist rangt. Seint í október hafði
ég samband við sendiherra ESB á Ís-
landi, frjálslegan og vingjarnlegan
mann, og kom hann á fundi með
fulltrúum fjögra deilda ESB –
þriggja á efnahags- og evrusviði og
eins á stækkunarsviði – fyrir mig.
Hitti ég þetta ágæta fólk í höfuð-
stöðvum ESB 20. nóvember sl.
Ekki kom þetta fólk úr sendi-
sveinaliði ESB og er mér til efs að
aðrar alþjóðlegar valdastofnanir
hefðu sýnt slíkan sveigjanleika og
slíka velvild gagnvart einstaklingi en
auðvitað beindist hún fyrst og fremst
að Íslandi og Íslendingum.
Evrumál í Svartfjallalandi, Kó-
sóvó, Vatíkaninu, Mónakó, Andorra
og San Marínó voru rædd í þaula og
kom í ljós að þessi sex ríki höfðu
fengið evruna á sögulegum grunni:
Svartfjallaland og Kósóvó höfðu haft
þýzka markið fyrir, Vatíkanið hafði
líru og smáríkin hin franska frank-
ann. Ríkin sex fengu því evruna, þeg-
ar Þýzkaland, Ítalía og Frakkland
tóku upp evruna.
Engin leið að upptöku evru á Ís-
landi án fullrar aðildar fannst því við
fyrstu sýn. Ég spurði því um styztu
leið í evru ef Íslendingar myndu
ljúka inngönguviðræðum. Kom þá
svar og leið sem ég hafði ekki áttað
mig á: Eftir inngöngu myndi taka
þrjú ár að fá evru en eftir eitt ár
mætti tengja krónuna við evru með
ERM2-mekanismanum sem myndi
tryggja gengi krónunnar á þann hátt
að hún gæti ekki sveiflast nema um
2,25%.
Þetta er einmitt sú leið sem Danir
fóru en danska króna nýtur með
ERM2-mekanismanum fulls styrks
evru og njóta Danir lágvaxta evr-
unnar án þess að hafa tekið hana upp.
Margir telja að innganga í ESB og
upptaka evru sé alltof langt ferli. 5-10
ár. Mitt mat er ef þeir sem nú vilja
evru, meirihluti landsmanna, eru
reiðubúnir til að taka skrefið til fulls
með fullri inngöngu úr 80-90% í
100%, þá gæti krónan verið komin
með styrk evru, í gegnum ERM2 á
þremur árum frá framhaldi aðildar-
viðræðna.
Full innganga þýddi að semja yrði
um landbúnaðarmál og sjávarútvegs-
mál. Malta, sem var í svipuðum spor-
um og við – var mjög háð fiskveiðum
sínum – hélt fullum yfirráðum yfir
fiskveiðilögsögu sinni við inngöngu
og ESB tók tillit til sérstöðu landbún-
aðar í Finnlandi og Svíþjóð, vegna
„norrænnar legu“, við inngöngu
þeirra. Má reikna með sama
sveigjanleika fyrir okkur.
Og, ef af inngöngu yrði, fengjum
við okkar eigin kommissar í Brussel
og sex þingmenn á Evrópuþingið; við
gætum loks látið rödd okkar heyrast
í Evrópu, á réttan hátt og á réttum
stöðum.
Eftir Ole Anton
Bieltvedt »Ef meirihluti lands-
manna er reiðubú-
inn að taka skrefið til
fulls, úr 80-90% í 100%,
gæti krónan verið kom-
in með styrk evru á
þremur árum.
Ole Anton Bieltvedt
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.
Popúlistar á Íslandi og
búrókratar í Brussel
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™
Fréttir dynja á okkur allan liðlangan
daginn og við höfum ekki undan að
melta og vinsa það bitastæða úr.
Meginland Evrópu verður oft út-
undan og við fregnum oft lítið til
þessara nágranna okkar sem eru þó
þær þjóðir sem við erum skyldastir
og eigum mest samleið með.
Hins vegar fréttum við stundum
furðulegustu hluti um lönd sem við
þekkjum lítið til. Sem dæmi má
nefna Austur-Kongó þar sem for-
setakosningar fóru fram fyrir stuttu.
Við fylgdumst með þegar kosning-
unum var frestað. Síðan þegar dag-
setning var ákveðin og nöfn helstu
frambjóðenda. Þá kom dagurinn og
kjörstaðir voru opnaðir. Síðan var
þeim lokað um kvöldið og úrslitanna
beðið.
Sérfræðingar komu með sitt álit
og frambjóðanda Kabila var spáð
sigri og Ramazani kom sterkur inn.
Svo fór þó að Tshiskedi var með
pálmann í höndum tveim. Þá var
mörgum létt, þó að illar tungur
segðu að þetta væri möndl og þeir
ætluðu að stjórna saman gamli Ka-
bila og hann Tshiskedi.
Þá vitum við það.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma
569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Efst á baugi Hvað er að gerast í
Kongó?
Langt seilst