Morgunblaðið - 24.01.2019, Blaðsíða 51
Sögur um mikilvægi
umhyggjunnar
Í sögu Tove Jansson um ósýni-
lega barnið fær Múmínfjölskyldan
gest í heimsókn, hana Ninný litlu.
Ninný varð ósýnileg þar sem hún
var svo hrædd við fyrrverandi um-
sjónaraðila sinn sem kom mjög illa
fram við hana. Hún þorir ekki að
tala, leika sér eða hlæja. Einu
hljóðin sem koma frá henni eru í
bjöllu á hálsinum á henni.
Múmínfjölskyldan býður stúlk-
unni inn á heimilið sitt og hugsar
vel um hana þannig að Ninný fer
smám saman að fá sjálfstraustið til
baka og verða meira og meira sýni-
leg. Fljótlega sjá þau litlar tær
birtast í stiganum og svo í kjölfarið
fótleggina. Dagarnir líða og enn
eru þau ekki farin að sjá andlit
hennar.
Múmínsnáðinn forvitni og hugul-
sami reynir allt sem hann getur til
að hjálpa Ninný. Hann hvetur hana
áfram og reynir að kenna henni
alla leiki sem hann kann. Smám
saman fer litla andlitið hennar að
birtast þegar hún fær hugrekki til
að tjá tilfinningar sínar.
Myndefnið í sögunni um Múmín-
snáðann fjallar um Marsbúa sem er
týndur. Múmínfjölskyldan heyrir
viðvörun í útvarpinu um fljúgandi
fyrirbæri sem nálgast jörðina og
skyndilega lendir það í eldhúsgarði
Múmínmömmu. Múmínsnáðinn
ákveður að fela Marsbúann sem
leitað er að, en meira að segja lög-
reglan er farin að leita að honum. Í
sögunni tala Marsbúinn og Múmín-
snáðinsaman í gegnum einhvers
konar galdrakassa.
Ein evra af hverjum seldum
bolla til Barnaheilla
Framleiðandi Múmínborðbún-
aðarins, Arabia, hefur ákveðið að
ein evra af hverjum seldum Ninný-
eða Múmínsnáða-bolla sem seldur
verður árið 2019 muni renna til
starfsemi Save the Children-
samtakanna á Íslandi, Finnlandi,
Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Herferðinni er ætlað að styðja við
réttindi og velferð barna.
Ninny er ein af þeim Múmín-
persónum sem mest hefur verið
óskað eftir að fái sína vörulínu.
Sagan um barnið sem hefur verið
misþyrmt á enn jafn vel við og er
enn jafn áhrifamikil og þegar hún
var skrifuð. Það er sérstök ástæða
fyrir því að Ninný-línan var sett á
markað í ár, en samningur
Sameinuðu þjóðanna um rétt-
indi barna verður 30 ára á
árinu.
Báðar línurnar innihalda
krús, skál og disk, en ein
evra af hverjum seldum
Ninný- eða Múmínsnáðabolla
hér á landi árið 2019 mun renna til
Barnaheilla á Íslandi.
Ninny verður hluti af
Múmín borðbúnaðarlínunni
4. mars næstkomandi kemur á markað ný lína af Múmínborðbúnaði sem myndskreyttur er með
sögunni um ósýnilega barnið Ninný annars vegar og Múmínsnáðanum hins vegar. Ninny kemur
fram í smásögunni Ósýnilega barnið, sem er hluti af sögusafninu Sögur úr Múmíndal eftir Tove
Jansson og var fyrst gefið út árið 1962. Myndefnið af Múmínsnáðanum er úr myndasögu sem
kallast Múmínsnáðinn og Marsbúarnir og er frá árinu 1957.
Vel heppnuð viðbót
Nýjasta viðbótin við
Múmínstellið er sér-
lega vel heppnuð.
Þögul fegurð
Ninný litla
hefur loksins
fengið sitt
pláss.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Uppskriftin dugar í 18 litlar krukkur
eða færri stærri ílát.
Botn
1 pk. Lu Bastogne Duo kex mulið
20 g brætt smjör
Skyrkaka
Ísey skyr með vanillubragði (stór dós)
500 ml rjómi
200 g hvítt súkkulaði
Fræ úr einni vanillustöng
Karamellubráð
20 stk. stórar og mjúkar rjómakara-
mellur (t.d. frá Karamel Kompagniet)
5 msk. rjómi
Karamellukurl
Blandið saman kexi og smjöri og
setjið góða teskeið í botninn á hverri
krukku (meira ef notuð eru stærri
ílát).
Bræðið súkkulaðið og leyfið því að
kólna aðeins.
Þeytið rjóma og leggið til hliðar.
Þeytið skyrið og skafið úr vanillu-
stönginni út í og blandið vel.
Blandið því næst bræddu súkku-
laðinu saman við og að lokum rjóm-
anum með sleikju þar til vel blandað.
Skiptið á milli ílátanna.
Bræðið karamellur og rjóma sam-
an við meðalháan hita þar til kara-
mellurnar eru uppleystar. Leyfið að
kólna örlítið en hellið þó yfir skyr-
kökurnar áður en blandan verður of
þykk.
Skreytið með karamellukurli.
Morgunblaðið/Berglind Hreiðarsdóttir
Snjallt í veisluna Smáréttir sem
þessir eru vinsælir í veislum og þá
ekki síst fermingarveislum sem
margir eru byrjaðir að undirbúa.
Vanillu skyr-
kökur með
karamellubráð
Matur
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU