Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 63
DÆGRADVÖL 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Útsalan
í fullum gangi
30-60%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
Undirföt • Sundföt
Náttföt • Sloppar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki er allt gull sem glóir og hin
sönnu auðæfi eru ekki fólgin í gulli eða gim-
steinum. Taktu upp hanskann fyrir þá sem
geta ekki varið sig.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt ekki að snúa upp á þig þótt þér
falli ekki öll þau ráð sem vinir þínir gefa þér.
Hugsaðu málið vel áður en þú lætur það eft-
ir þér að eyða peningum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einbeittu þér að því að efla styrk
fólks frekar en að einblína á veikleikana.
Félagslíf þitt stendur í blóma. Freistaðu
gæfunnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekkert er dýrmætara en heilsan svo
þú skalt varast að ofbjóða líkamanum. Þú
ert kraftmikil/l, jákvæð/ur og bjartsýn/n
sem aldrei fyrr.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur gott auga fyrir smáatriðum í
dag. Hvernig þú hagar máli þínu ræður úr-
slitum um hvort vel tekst til eða ekki í
samningaviðræðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvæntar fréttir tengdar börnum
gleðja í dag. Einhver sem þú gast áður leitað
til er farinn - en maður kemur í manns stað.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að nota daginn til að velta
langtímamarkmiðum þínum fyrir þér.
Stefndu óhikað að settu marki. Þú færð boð
í brúðkaup síðar á árinu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Notaðu daginn til dagdrauma,
notaðu ímyndunaraflið og slakaðu á. Þú hef-
ur áhyggjur af peningamálum, en þau munu
reddast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt margt kalli á skaltu fyrst og
fremst beina athygli þinni að þeim sem
næst þér standa. Sköpunargleðin er ríkjandi
hjá þér og þú vinnur léttilega langt fram á
kvöld.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Svörin láta á sér standa þegar þú
leitar þeirra. Gerðu upp við þig hvað má
missa sín í sambandinu og hvað er þess
virði að halda í.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er mikil orka í loftinu sem þú
þarft að reyna að nýta á jákvæðan hátt.
Skráðu þig á námskeið, lestu framandi bæk-
ur og tímarit og gefðu þér tíma til að hlusta
á ólík sjónarmið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samræður við fjölskylduna veita þér
gleði. Vertu ekki aðeins vandlát/ur á það
sem þú lætur ofan í þig heldur líka þá sem
þú umgengst.
Limruskáldið Ragnar Ingi Aðal-steinsson varð 75 ára á dög-
unum. Ólafur Stefánsson orti á Leir
„Einskonar afmælisvísu“:
Frá jörð fyrir austan, á Jökuldal,
jákvætt allt vitum um þennan hal:
Er fremstur að ríma,
oss fær til að kíma,
og syngja hátt „frjálst er í fjallasal“.
Eftir hádegi á mánudag orti Pétur
Stefánsson:
Ærið margt hér augað gleður,
sem ýmsum vekur hugarró.
Hér er fallegt vetrarveður
þó veröldin sé full af snjó.
Undir kl. sex um kvöldið lýsti Ing-
ólfur Ómar veðrinu þannig:
Nú er veður bjart og blítt,
brosir himinn víður.
Frónið skartar fannahvítt,
faðminn sólin býður.
Og undir miðnætti skrifaði Björn
Ingólfsson í Leirinn „Morgunúð“:
Hávellukór
er að kyrja sinn söng
út á sjónum
vers eftir vers
með sömu
tindrandi tónum
nóttin að víkja
nýfallin mjöll
yfir mónum
frostið er mjúkt
myrkrið er bjart
í snjónum.
Ólafur Stefánsson gat ekki orða
bundist en sagði: „Ég segi bara eins
og þeir orðfimustu á fésbókinni,
–Flottur, nei annars, Frábær
morgunstemning!“
Þessi vísa Ármanns Þorgríms-
sonar um fréttir úr Seðlabankanum
er í senn skemmtileg og tvíræð
kannski:
Bankinn á merkilegt málverkasafn,
mörg eru af hálfberum kellingum
einnig af stjórnendum, nefni ekkert nafn,
í nútíma hávaxta stellingum.
Og á Boðnarmiði yrkir Hall-
mundur Kristinsson:
Eflaust má áreiti heita
olíumáluð nekt,
og líkast til best að beita
bankana stjórnvaldssekt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hávellukór í fallegu
vetrarveðri
HR. LOPI VAR ALLTAF OF UPPTEKINN –
SEM VAR EKKI EIGINLEIKI SEM HÆFÐI
GÓÐU GÆLUDÝRI.
„ÉG ER BÚINN AÐ PÓSTLEGGJA ÞETTA
TVISVAR EN ÞAÐ ER ALLTAF ENDURSENT.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá að þú átt þrjú
börn.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI VAR AÐ
GRAFA HOLU
OG HÚN ER LÍKA
MJÖG FLOTT EKKI SATT,
JÓN? SMÁ
HJÁLP …
HRÓLFUR, ÞAÐ ER ÓLÖGLEGT AÐ RÁÐAST Á
AÐRA NEMA AÐ ÞEIR HAFI ÓGNAÐ ÞÉR FYRST!
HERTOGINN ER AÐ STEFNA ÞÉR!
HEYRÐU! MÉR
VAR ÓGNAÐ!
HANN NUDDAÐI MÉR UPP ÚR ÞVÍ HVAÐ HANN
LIFIR HÁTT!!
Hreingerningaræði mun víst hafabrostið á eftir að Netflix ákvað
að taka til sýningar þætti þar sem
hin japanska Marie Kondo tekur
heimili í gegn. Lykilreglan hjá
Kondo er að hlutirnir sem maður á
eigi að veita manni gleði. Hún er til
dæmis ekki mjög hrifin af bókum
og leggur til að maður haldi á bók-
unum sem maður á, hverri á eftir
annarri, og spyrji „veitir þessi bók
mér gleði?“ Ef svarið er nei, þá eru
bækurnar kannski best komnar
annars staðar. Víkverji tekur fram
að þetta á ekki við um bankabækur.
x x x
Sama gildir um öll föt sem maðurá. Veita þau þér gleði? Víkverji
er ekki viss um að þessi aðferð
muni virka of vel fyrir hann, því ef
hann færi í gegnum fötin sín með
þetta hugarfar yrði hann líklega
allsnakinn fyrr frekar en síðar.
Raunar gildir það sama um flest
allt sem Víkverji hefur sankað að
sér í lífinu, þannig að kannski er
vandamálið frekar Víkverja megin
en að hreingerningakerfið sé í
ólagi.
x x x
Og hver veit? Kannski væri Vík-verji bara sáttastur ef hann
myndi henda öllu og búa í tunnu
líkt og Díógenes forðum. Eru samt
einhverjar tunnur á lausu? Hver
eru fasteignagjöldin af tunnum?
Standast menn í tunnum greiðslu-
mat?
x x x
Hinn parturinn af speki MarieKondo snýr svo að því hvað
eigi að gera við dótið sem sleppur í
gegnum nálarauga gleðinnar. Hún
brýtur til dæmis saman flestallar
flíkur á mjög hagkvæman og
snyrtilegan máta. Svo hagkvæman
og snyrtilegan að fataskápur Vík-
verja var allt í einu orðinn allt of
stór fyrir fatamagnið sem fylgir
honum. Sem aftur fyllir Víkverja
heitri þrá um að fylla í það pláss,
en það verður víst ekki gert nema
með því að kaupa fleiri föt, sem
Víkverji getur svo brotið saman.
En var ekki hugmyndin að draga
úr draslinu sem fylgir manni? vik-
verji@mbl.is
Víkverji
En ég segi yður er á mig hlýðið: Elskið
óvini yðar, gerið þeim gott sem hata
yður …
(Lúk: 6.27)