Morgunblaðið - 24.01.2019, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
ánægður með það hvernig þetta verk
varð til.
„Hugmyndin kom áreynslulaust
og þegar ég fór að útfæra hana þá
fór ég að sjá allskyns ljóðræn lög í
verkinu. Þessi stúdía á málverki sem
ég hef verið með er hér og svo var ég
alltaf að hugsa um vestræna menn-
ingu og hvíti sloppurinn er bæði mik-
ið tákn framfaratrúar og einhvers
sem breytist ekki. Enda er hann eini
búningurinn sem kom til greina í
þessu verki. Hvíti sloppurinn er líka
tákn heiðríkju og manni finnst allir
vera góðir sem fara í svona búning,“
segir hann og hlær. Heiðríkjan á líka
vel við um lýsinguna í verkinu en í
því er stöðug dagsbirta í 24 tíma, alla
daga vikunnar. Þá eru leikararnir
augsýnilega með ólíkan bakgrunn.
Ragnar segir það endurspegla veru-
leika stofunarinnar sem á verkið.
„Fólkið sem kemur til með að læra
í þessu háskólaumhverfi og er í
læknanámi er alls staðar að úr heim-
inum. Og fyrir verk í Danmörku er
líka mjög mikilvægt að leikararnir
séu ólíkir … Ég vann að hreyfingum
og leikaravali með Margréti Bjarna-
dóttur [danshöfundi] og það að finna
fólk af allskonar uppruna hér á Ís-
landi var svolítið mál. Við erum ótrú-
lega einsleitt samfélag, en þetta varð
eins og tilraun um nýtt Ísland. Þarna
vorum við komin saman með fólki
alls staðar að sem vill búa hérna,
sumir voru hælisleitendur, aðrir í
námi; maður var á Íslandi með nýj-
um Íslendingum og það var rosalega
skemmtilegt og fallega jákvæð orka.
Þetta var í raun ágætis tilraunaverk-
efni um það hvað fjölmenning er frá-
bær. Það eru ekki mörg svona fjöl-
menningarleg verkefni gerð hér – og
þetta var ekki gert á neinum pólit-
ískum forsendum heldur fagur-
fræðilegum.“
Að mæta, flissa og skála
Þetta var í þriðja skipti sem Ragn-
ar tekur þátt í samkeppni um lista-
verk erlendis. Honum finnst það
skemmtilegt og það hefur líka geng-
ið vel. Hann dregur fram símann og
sýnir mynd af sigurverki í sam-
keppni um útilistaverk við nýju flug-
stöðina í Bergen í Noregi. Þegar
gestir koma út úr flugstöðinni blasir
við á bergvegg andspænis þeim eitt
orð og spurningarmerki: Bergen?
Einfalt og í raun drepfyndið verk.
Hann tók líka þátt í samkeppni um
verk við væntanlegt Munch-safn í
Noregi en þá vann Tracey Emin.
– Síðsta áratuginn hefur verið
mikið flug á þér, mörg verk orðið til
og sýningar víða. Heldur það áfram?
„Jú, ekki kvarta ég. Allt í einu er
þetta farinn að vera einhvers konar
veruleiki. Ég er farinn að fatta að ég
er „bara 43 ára gamall listamaður“,“
segir hann með leikrænum hætti.
„Mig langar að segja já við öllum
sýningarboðum því þetta er allt svo
skemmtilegt en maður verður líka að
ala upp börnin sín og horfa á sólar-
lagið og vera til.“
Núorðið eru nánast alltaf ein-
hverjar sýningar á verkum Ragnars
erlendis, til að mynda nú í listasafn-
inu í Phoenix og í Broad-safninu í
Los Angeles. Hann segist ekki þurfa
að fylgja þeim öllum eftir. Ef um
eldri verk er að ræða sér til að
mynda tæknilegur aðstoðarmaður
Ragnars um uppsetninguna „og ég
þarf ekki að gera neitt annað en
mæta, flissa og skála. Ef ég nenni
ekki að koma að flissa og skála þá
bara sleppi ég því. Núorðið get ég
bara skýlt mér bak við blessuð börn-
in, segi að ég komist ekki vegna
dætranna!“ Hann skellihlær.
„Svo hjálpar auðvitað hvað við
Ingibjörg [Sigurjónsdóttir, eigin-
kona Ragnars] vinnum rosalega
mikið og vel saman. Við ferðumst
saman og ræðum hugmyndir og svo
við Lilja [Gunnarsdóttir, aðstoðar-
kona hans] líka, þetta er allt svo
skemmtilegt!“
Og Ragnar er sívinnandi. „Ég var
nú í morgun að ljúka við enn eitt
málverkið af músunni minni, honum
Bjarna bömmer. Ég er alltaf að mála
hann, það er svo gaman. Og ég gerði
líka nýtt vídeóverk sem ég get ekki
að svo stöddu sagt frá …“
-Er ekki erfitt eftir að gera svona
kostnaðarsamt og viðamikið verk að
skella aftur í eitt lítið málverk?
„Nei nei. Það er bara gaman. Ég
er mjög meðvitaður um að þrátt fyr-
ir ,materíalískan árangur í þessari
list‘“ – hér bregður Ragnar fyrir sig
rödd sem minnir á Halldór Laxness
– „þá má maður ekki sem listamaður
verða eins og kapítalistinn; að allt
þurfi að verða stærra og dýrara. Ég
á marga vini í þessum listabransa
erlendis sem eru orðnir geggjaðar
listaverksmiðjur, tveir að vinna í
móttökunni þegar maður kemur í
stúdíóið. En ég er mjög gamaldags!
Ég er heillaður af þessari bóhema-
pælingu og af þeirri tilfinningu að
geta gert það sem mér sýnist.“
Verði ekki „sellout“
-Þú óttast ekkert að markaðsöflin
vilji, vegna eftirspurnar eftir verk-
unum, festa þig í einhverju fari?
„Ég er svo heppinn að vinna með
galleríunum i8 hér og LuhringAug-
ustine í New York. Þau vinna náið
saman og eru í raun með sérstakt
módel um mína list; ef LuhringAug-
ustine selur verk þá fær i8 hlut, og
gagnkvæmt. Þrýstingurinn frá gall-
eríunum er frekar í þá átt að þau
vari mig við því að verða ekki „sell-
out“! Galleríin og Ingibjörg halda
mér á jörðinni. Ég er bara athyglis-
sjúkur maður sem vildi verða popp-
stjarna.“ Hann flissar.
– Hvernig gengur þér að endur-
nýja þig og finna nýjar leiðir?
„Ég er svo heppinn að vera alinn
upp í þessari íslensku myndlistar-
senu og er alltaf að gera verk eins og
ég gerði þau fyrst, í samtali við sen-
una. Maður verður bara að gera eitt-
hvað töff! Að vera sífellt að endur-
nýja sig og reyna að koma sjálfum
sér og öðrum á óvart. Eftir að ég
gerði það megahitt sem verkið
Visitors varð, verk sem fólk hefur
grenjað víða yfir, þá fór ég í hina átt-
ina, fór til Ísraels að mála á Vestur-
bakkanum og næsta sýning varð erf-
ið og flókin. Svo gerði ég Scenes
From Western Culture, sem er allt
öðruvísi vídeóverk. Eftir að fara út í
svona mikinn kærleika varð ég að
hella mér út í níhilisma. Ferillinn er
bara kompósisjón eins og allt annað í
listinni. Það er bara spurning um
hvaða setning komi á eftir setning-
unni á undan. Ef þær eru allar
sykursætar þá gengur kompósisjón-
in einfaldlega ekki upp.“
Sunnudagur Úr sunnudagsverkinu, sem er 24 tíma langt eins og hin sex.
Ljósmynd/Halldór Örn Óskarsson
Upptökur Fjögur myndbandsverkanna voru tekin samtímis upp í myndveri RVK Studios í Gufunesi og síðan þrjú
hin seinni, einnig samtímis. 32 unnu verkin með Ragnari og 34 aðalleikarar voru í þeim, auk 32 sem léku eitthvað.
» Það eru ekki mörgsvona fjölmenningar-
leg verkefni gerð hér –
og þetta var ekki gert á
neinum pólitískum for-
sendum heldur fagur-
fræðilegum.
Mánudagur Myndramminn breytist ekki en fólk í sloppum kemur og fer.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Fös 15/2 kl. 20:00 201. s
Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Lau 16/2 kl. 20:00 202. s
Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Sýningum lýkur í mars.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s
Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 Lokas.
Sýningum lýkur 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s
Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s
Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Þri 5/2 kl. 20:00 aukas. Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Sun 27/1 kl. 20:00 7. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Fim 7/2 kl. 20:00 9. s
Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Fös 15/2 kl. 20:00 10. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s
Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Fös 22/2 kl. 19:30 Auka
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 31/1 kl. 18:00 Frums Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka
Fös 1/2 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Sun 27/1 kl. 19:30 Lokas.
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00
Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30
Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Fim 14/2 kl. 19:30
Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30
Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Fös 15/2 kl. 22:00
Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 19:30
Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00 Sun 17/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200