Morgunblaðið - 02.02.2019, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Ferðaþjónustu-
fyrirtæki á Selfossi
Um er ræða öflugt fyrirtæki sem býður gistingu í smáhýsum tengt
stóru tjaldsvæði og vagnasvæði með þjónustuhúsnæði. Lóðar-
leigusamningur og byggingarréttur að fleiri húsum fylgir. Stöðug-
ur rekstur með bókanir fram í tímann. Veltan er um 100 mkr. og
ebitda um 24 mkr. Mörg tækifæri til að auka nýtingu og sölu.
Mjög spennandi tækifæri á öflugu markaðssvæði í ferðaþjónustu.
Ráðgjafar / eigendur
Haukur Þór Hauksson, Rekstrarhagfræðingur, MBA
Gsm. 8939855
Thomas Möller, Hagverkfræðingur, MBA
Gsm. 8939370
Lögmaður Rositu YuFan Zhang, eig-
anda Sjanghæ-veitingastaðanna,
hefur sent Ríkisútvarpinu formlega
stefnu þar sem farið er fram á sex
milljónir í miskabætur, 1,2 milljónir í
bætur vegna birtingar og að ýmis
ummæli verði dæmd dauð og ómerk.
Er það vegna umfjöllunar frétta-
stofu RÚV um veitingastaðinn
Sjanghæ á Akureyri 2017.
Sævar Þór Jónsson, lögmaður
Rositu, staðfesti þetta í samtali við
mbl.is.
Í fyrstu frétt RÚV af málinu 30.
ágúst 2017 sem Sunna Valgerð-
ardóttir fréttamaður flutti sagði
meðal annars: „Eigandi veitinga-
staðar á Akureyri er grunaður um
vinnumansal. Grunur leikur á að
starfsfólkið fái greiddar þrjátíu þús-
und krónur á mánuði í laun og borði
matarafganga af veitingastaðnum.“
Ummælin eru meðal þeirra sem
stefnandi gerir ósk um að verði
dæmd dauð og ómerk. Stéttarfélagið
Efling-Iðja staðfesti eftir athugun að
þessar fullyrðingar fréttamannsins
væru ekki á rökum reistar og að
kjör starfsmanna Sjanghæ stæðust
kjarasamninga.
Vill sex milljónir
í bætur frá RÚV
Hópur barna þáði boð um að taka
þátt í slímnámskeiði í Bíó Paradís í
gærkvöldi í tengslum við sýningu
„slímugustu myndar allra tíma“,
Men in Black. Strákarnir sýndu af-
raksturinn stoltir áður en myndin
hófst.
Börnin náðu góðum árangri í
slímgerðinni og fóru þau heim með
slím í mismunandi litum og af ýms-
um gerðum. Þau hafa greinilega
æft sig heima því æðið fer eins og
eldur í sinu um heimili landsmanna
við misjafna ánægju foreldranna.
Hægt er að kaupa leikslím í
verslunum en miklu skemmtilegra
er að gera það heima í eldhúsi,
undir eftirliti foreldra! Efnin geta
verið mismunandi. Maísenamjöl,
vatn og matarlitur er einföld upp-
skrift en fjölmörg önnur grunnefni
henta. Svo má skreyta með glimm-
er. Í gærkvöldi virtist linsuvökvi
vera vinsæll til að bleyta upp í
slími. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börn kom-
ust á slím-
námskeið
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég hef ekki heyrt um heitavatns-
skort hér,“ segir Snorri H. Jóhann-
esson, bóndi og veitingamaður á
Augastöðum í Hálsasveit í Borgar-
firði, þegar hann er spurður hvernig
frostið fari í bændur og ferðafólk.
Hann vísar til umræðunnar á höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurlandi. Segir
að frostið hafi ekki verið svo mikið þar
um slóðir að það hafi haft áhrif á
menn eða skepnur.
Heitavatnsnotkun á höfuðborgar-
svæðinu jókst aftur í gær, eftir að hún
fór minnkandi í fyrradag. Veitur gera
ráð fyrir að heitavatnsrennslið nái
nýju hámarki um helgina. Enn er því
starfað eftir viðbragðsáætlun og fólk
beðið að fara vel með heita vatnið.
Gæti þurft að loka
Léttskýjað verður að mestu á land-
inu í dag og frost víða 5 til 15 stig en
kaldara á stöku stað, samkvæmt spá
Veðurstofu Íslands. Á höfuðborgar-
svæðinu er spáð 10-15 stiga frosti.
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Veitna sem reka hita-
veituna, segir ekki útilokað að skerða
þurfi afhendingu heits vatns til stórnot-
enda í dag eða um helgina. Það ráðist af
þróuninni í nótt og á morgun. Skerðing-
arnar myndu einkum bitna á sundlaug-
unum. Hitaveitur á Suðurlandi sem
Veitur reka hafa þegar lokað sundlaug-
unum á Hvolsvelli, Hellu og Lauga-
landi í Holtum og útisundlauginni í Þor-
lákshöfn. Þá hafa Selfossveitur skert
afhendingu til Sundhallar Selfoss þann-
ig að útisundlaugin og útisvæðið verður
lokað fram á sunnudag.
Gott að hafa snjó og kulda
„Það er yndislegt vetrarveður. Ég
er mikill vetrarmaður, þoli ekki hlák-
ur að vetrinum, finnst gott að hafa
snjó og kulda,“ segir Hlini Gíslason,
bóndi í Svartárkoti í Bárðardal. Þar er
oft mesta frost á landinu. Hlini segir
að frostið hafi ekki verið mikið að und-
anförnu, mest hafi það farið í 23 gráð-
ur eina nóttina.
Snorri á Augastöðum rekur veit-
ingastað við Hraunfossa. Hann segir
að margir hafi verið á ferðinni í desem-
ber en fáir í janúar. Hann segir að
kuldinn hafi engin áhrif á ferðafólkið.
Flestir séu búnir að kaupa sér Cinta-
mani eða 66°N fatnað áður en þeir aki
úr Reykjavík og séu á mannbroddum.
Heitavatnsnotkun eykst enn í kulda
Spáð er allt að 15 stiga frosti í dag og sums staðar meira Útisundlaugar eru lokaðar víða á Suður-
landi vegna mikillar notkunar á heitu vatni Kuldinn bítur ekki á bændur, skepnur eða ferðafólk
Morgunblaðið/Eggert
Augnakonfekt Grýlukerti við Ráðhús Reykjavíkur taka á sig ýmsar myndir í frostinu og vetrarbirtunni.
Sérstakir varaforsetar Alþingis
vegna Klausturmálsins ákváðu á
fundi í Alþingi í gærmorgun að und-
irbúa erindi til siðanefndar Alþingis
um gildissvið siðareglnanna. Það
segir Steinunn Þóra Árnadóttir,
þingmaður VG, sem kosin var til
þessa hlutverks ásamt Haraldi
Benediktssyni, þingmanni Sjálf-
stæðisflokksins.
Spurð hvort þetta sé undanfari
þess að vísa máli sexmenninganna af
Klausturbar til siðanefndarinnar
segir Steinunn Þóra aðeins að
ákvörðunin í gærmorgun sé það
fyrsta sem þau geri og hún sé eina
ákvörðunin sem tekin hafi verið.
Hún segir mikilvægt að þegar nið-
urstaða siðanefndar liggur fyrir
verði hún gerð opinber.
Aðeins með Klausturmál
Sérstakir varaforsetar voru
kjörnir úr hópi þeirra þingmanna
sem ekki höfðu tjáð sig um ummæli
þingmannanna sem ræddu saman á
Klausturbar á dögunum en hluti
þeirra var tekinn upp og birtur í fjöl-
miðlum. Forseti Alþingis og varafor-
setar lýstu sig vanhæfa til frekari
umfjöllunar um málið vegna yfirlýs-
inga þeirra og ummæla um málið.
Þegar sérstöku varaforsetarnir voru
kjörnir var rætt um að meginverk-
efni þeirra væri að koma málinu til
siðanefndar.
Sérstöku varaforsetarnir fengu
gögn málsins fljótlega í hendur og
hafa verið að kynna sér þau.
Mál Ágústs Ólafs Ágústssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar, sem
siðanefnd flokksins áminnti fyrir að
áreita konu sl. sumar, er ekki hjá
sérstökum varaforsetum en ein-
staklingur óskaði eftir því við for-
sætisnefnd að því yrði vísað til siða-
nefndar. Þeir fjalla heldur ekki um
mál tveggja þingmanna Pírata sem
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, telur að kunni
að hafa gerst brotlegir við siðareglur
með opinberum ummælum um Ás-
mund.
helgi@mbl.is
Undirbúa erindi til siðanefnd-
ar um gildissvið siðareglna
Sérstakir varaforsetar í Klausturmálinu teknir til starfa