Morgunblaðið - 02.02.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Veður víða um heim 1.2., kl. 18.00
Reykjavík -7 léttskýjað
Hólar í Dýrafirði -10 skýjað
Akureyri -7 snjókoma
Egilsstaðir -7 skýjað
Vatnsskarðshólar -4 heiðskírt
Nuuk 0 alskýjað
Þórshöfn 0 léttskýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 alskýjað
Stokkhólmur -1 snjókoma
Helsinki -4 skýjað
Lúxemborg 2 þoka
Brussel 4 þoka
Dublin 3 léttskýjað
Glasgow 2 léttskýjað
London 1 rigning
París 6 rigning
Amsterdam 1 rigning
Hamborg 0 þoka
Berlín 2 skýjað
Vín 3 þoka
Moskva -4 þoka
Algarve 12 skúrir
Madríd 5 rigning
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 14 heiðskírt
Winnipeg -16 snjókoma
Montreal -16 léttskýjað
New York -9 léttskýjað
Chicago -11 snjókoma
Orlando 20 rigning
2. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:06 17:18
ÍSAFJÖRÐUR 10:27 17:07
SIGLUFJÖRÐUR 10:10 16:49
DJÚPIVOGUR 9:39 16:43
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag Austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og
snjókoma á köflum. Hægari vindur og úrkomulaust á
Norðurlandi. Vægt frost sunnanlands, en allt að 14
stiga frost í innsveitum norðanlands.
Breytileg átt 3-10 m/s og léttskýjað, en stöku él norðaustanlands og einnig með suðurströndinni
seinnipartinn. Frost víða 5 til 15 stig, en kaldara á stöku stað.
Stærsta ferðakaupstefna sem haldin er hér á landi, Ice-
landair Mid-Atlantic, var haldin í 27. skiptið í gær. Á
kaupstefnunni eru kaupendur og seljendur ferðaþjón-
ustu beggja vegna Atlantshafsins tengdir við íslenska
ferðaþjónustuaðila, þar voru um 240 sölubásar og voru
haldnir yfir 5.000 fundir í tengslum við hana.
Meðal þeirra sem sóttu ráðstefnuna heim voru Þór-
dís Kolbrún R. Gylfadóttir, atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðherra, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður
borgarráðs, og þáðu þær appelsínusafa af Michael
Marzano frá Flórída sem var einn gesta kaupstefn-
unnar.
100 íslensk fyrirtæki kynntu starfsemi sína á ráðstefnunni Icelandair Mid-Atlantic
Morgunblaðið/Eggert
Þórdís og Þórdís þáðu safa frá Flórída
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
„Kominn er á viðræðuvettvangur
milli aðila vinnumarkaðarins og
stjórnvalda til þess að ræða af meiri
alvöru við stjórnvöld um þau mikil-
vægu mál sem við teljum að þurfi til
lausnar á kjarasamningum, sem er
ánægjulegt. Það gefur tilefni til bjart-
sýni á að við náum einhverri nið-
urstöðu, hver sem hún verður,“ segir
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Skýrist á allra næstu vikum
Þetta er markvissari vettvangur en
á stóru samráðsfundunum sem haldnir
hafa verið með þátttöku mjög margra
að mati Ragnars og hann bendir á að á
vettvangi ASÍ hafi menn náð saman
um sífellt fleiri mál á borð við skatta-
mál, húsnæðismál, aðgerðir gegn
brotastarfsemi á vinnumarkaði o.s.frv.
sem síðan verða rædd við stjórnvöld.
Ástæða sé því til að ætla að á allra
næstu vikum komi í ljós hvort menn
sjá til sólar eða ekki í yfirstandandi
kjaradeilu. Ekki megi þó gefa þessu
allt of langan tíma. ,,Við höfum verið
gríðarlega lausnamiðuð og ef við för-
um að skynja það hjá viðsemjendum
okkar er ástæða til bjartsýni, með öll-
um fyrirvörum þó.“
Farið var yfir fjölmörg mál á sátta-
fundi verkalýðsfélaganna fjögurra
sem vísuðu kjaradeilunni til ríkis-
sáttasemjara og SA í gær, sem undir-
nefndir hafa vísað inn á borð samn-
inganefndanna. Ragnar Þór segir að
fundirnir hafi gengið almennt vel í vik-
unni hvað þetta varðar. Í næstu viku
munu einstakir viðræðuhópar funda
um afmörkuð mál, formlegur sátta-
fundur með SA er síðan boðaður á
miðvikudaginn þar sem næstu skref
verða ákveðin.
Rætt um fésektir ef
kjarasamningar eru brotnir
Haft var eftir Sólveigu Önnu Jóns-
dóttur, formanni Eflingar, á mbl.is í
gær að á sáttafundinum í gær hefðu
meðal annars komið fram kröfur stétt-
arfélaganna um að komið yrði á fé-
sektum ef brot yrðu á kjarasamn-
ingum. Fésektir vegna brota á
kjarasamningi myndu stemma stigu
við vaxandi vandamáli. „Það snýr sér-
staklega að okkar erlendu félags-
mönnum þar sem verið er að svíkja þá
um umsamdar greiðslur,“ sagði
Sólveig Anna Jónsdóttir við mbl.is.
omfr@mbl.is
Meiri alvara er
í viðræðunum
við stjórnvöld
Sáttafundir hafa gengið vel í vikunni
Kristján H. Johannessen
Helgi Bjarnason
„Þetta frumvarp og það sem ráðherra
er að gera er að mínu mati virðing-
arvert. En varðandi Bændablaðið þá
uppfyllir það ekki sett skilyrði eins og
þau eru sett fram í dag,“ segir Hörður
Kristjánsson, ritstjóri Bændablaðs-
ins.
Vísar hann í máli sínu til draga að
frumvarpi um breytingar á fjölmiðla-
lögum sem kynntar voru á blaða-
mannafundi í fyrradag. Fela þær í sér
heimildir til að veita styrki í formi end-
urgreiðslu á hluta ritstjórnarkostnað-
ar einkarekinna fjölmiðla og getur
hlutfall endurgreiðslu að hámarki orð-
ið 25% af kostnaði, þó ekki hærra en 50
milljónir króna til hvers fjölmiðils.
Hjálmar Jónsson, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, segir frumvarp-
ið vera „ágætis byrjun“ en að sú fjár-
hæð sem renna mun til fjöl-
miðla hefði mátt vera hærri.
„Það er stóra málið, það
þarf auðvitað miklu meira. En
mjór er mikils vísir og vonandi
munu menn styrkja þetta lýð-
ræðiskerfi,“ segir hann.
Stolt af tillögunum
Stjórnarformaður Árvak-
urs og fleiri talsmenn stærri
fjölmiðlafyrirtækja sem eru í
samkeppni við RÚV hafa gagnrýnt
reglur um úthlutun styrkja, meðal
annars þak á stuðning við einstök fyr-
irtæki, og þau fái því hlutfallslega lág-
ar endurgreiðslur ritstjórnarkostnað-
ar.
„Við fögnum því að fólk hafi skoð-
anir á frumvarpsdrögunum. Það fer
nú í samráðsgátt stjórnvalda og ég
hvet hlutaðeigandi til að koma þar
með athugasemdir sínar. Að mínu
mati eru 50 milljónir há fjárhæð.
Þetta er löngu tímabær aðgerð en ég
lít einnig á þessar tillögur sem lið í
stærri vegferð,“ segir Lilja Dögg Al-
freðsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, þegar gagnrýnin er
borin undir hana. Hún segir að hægt
verði að gera athugasemdir við frum-
varpsdrögin til 15. febrúar og tekið
verið tillit til málefnalegrar gagnrýni.
„Ég er stolt af þeim tillögum sem
þegar eru komnar fram. Þar
kemur fram vilji til að efla
fjölmiðla. Hlutverk mitt sem
mennta- og menningarmála-
ráðherra er að vera í sókn
fyrir íslenskt mál. Tillögurn-
ar eru jákvætt skref í því efni
en við þurfum að taka fleiri,“
segir Lilja.
Verið er að undirbúa til-
lögur að aðgerðum til að
styrkja stöðu einkarekinna
fjölmiðla á auglýsingamarkaði, gagn-
vart Ríkisútvarpinu. Lilja segir mik-
ilvægt að vanda tillögurnar því að-
gerðir stjórnvalda megi ekki verða til
þess að tekjur af íslenska auglýsinga-
markaðnum fari til erlendra stórfyr-
irtækja, eins og dæmi séu um í öðrum
löndum.
Skilyrði endurgreiðslu eru alls 11
talsins samkvæmt frumvarpsdrögun-
um. Að sögn Harðar uppfyllir
Bændablaðið öll sett skilyrði nema
það sem snýr að útgáfu blaðsins, það
kemur út aðra hverja viku og nær því
ekki lágmarkinu sem er 48 útgáfu-
dagar.
Útgáfudögum ekki fjölgað
„Mér finnst eðlilegt miðað við stöðu
blaðsins á landsvísu að hafa okkur
með í pottinum, enda töluverður
rekstur í kringum blaðið okkar sem
er að auki þokkalega stórt. Annars
uppfyllum við alla aðra þætti, þetta er
eina boxið sem við tikkum ekki í,“ seg-
ir Hörður og bætir við að hann vonist
til þess að stjórnvöld endurskoði það
skilyrði.
Spurður hvort Bændablaðið muni
aðlaga sig settum skilyrðum og fjölga
útgáfudögum svarar Hörður:
„Nei, við munum ekki fjölga út-
gáfudögum til þess eins að sækjast
eftir einhverjum ríkisstyrkjum.“
„Það þarf auðvitað miklu meira“
Mjór er mikils vísir, segir formaður BÍ Ritstjóri Bændablaðsins segir fjölmiðil sinn falla á einu
skilyrði og fær hann því ekki styrk Ráðherra segir að tekið verði tillit til málefnalegrar gagnrýni
Hörður
Kristjánsson
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Hjálmar
Jónsson