Morgunblaðið - 02.02.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Vor í Pétursborg
sp
ör
eh
f.
Vor 2
Pétursborg er án efa miðstöð menningar og lista og hafa
bókmenntir, tónlist og leiklist þaðan mikla þýðingu um
heim allan. Við skoðum m.a. virki heilags Péturs og Páls,
dómkirkju heilags Ísaks og Vetrarhöllina. Hér er því margt
sem gleður augað og margir hápunktar!
3. - 8. apríl
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 174.700 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við eigum von á 70 manna hópi á
þessu ári og er undirbúningsvinna á
lokametrunum. Endanleg dag-
setning liggur hins vegar ekki fyrir
en þetta skýrist vonandi allt saman á
næstu dögum,“ segir Stefán Vagn
Stefánsson, formaður flóttamanna-
ráðs, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar Stefán Vagn í máli sínu til
komu kvótaflóttamanna hingað til
lands, en hópurinn sem væntanlegur
er samanstendur af fjölskyldufólki
frá Sýrlandi og hinsegin fólki sem
hefst nú við í flóttamannabúðum í
Úganda í Afríku.
Aðspurður segir Stefán Vagn
fjölda kvótaflóttamanna á þessu ári
vera nokkuð meiri en verið hefur til
þessa.
„Þetta er örlítil fjölgun frá því sem
verið hefur en það er í samræmi við
ákvörðun ríkisstjórnar þess efnis að
fá fleiri kvótaflóttamenn hingað og
við vinnum bara eftir þeirri áætlun,“
segir hann og bætir við að fólkið
muni ýmist fara á höfuðborgarsvæð-
ið eða út á land.
Mikill áhugi hjá sveitarfélögum
„Það var á sínum tíma sent út er-
indi til sveitarfélaga þar sem óskað
var eftir afstöðu þeirra til þess að
taka á móti flóttamönnum og mjög
mörg sveitarfélög sýndu áhuga. Að
öllum líkindum fer þessi hópur að
hluta til á Hvammstanga, Blönduós
og til sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Stefán Vagn og bæt-
ir við að ekki sé þó búið að ákveða
þetta endanlega. „Áhuginn er til
staðar og það er mjög jákvætt.“
Þá segir Stefán Vagn reynslu okk-
ar af kvótaflóttamönnum ágæta.
„Heilt yfir hefur þetta gengið vel,
en auðvitað eru alltaf einhver tilfelli
sem koma upp,“ segir hann.
Búast má við 70 kvóta-
flóttamönnum hingað
Fjölskyldufólk
frá Sýrlandi og
hinsegin fólk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Keflavíkurflugvöllur Þessi hópur kvótaflóttamanna kom hingað til lands í
lok febrúar í fyrra, en um er að ræða fjölskyldufólk frá Írak.
Ragnar Þór Ing-
ólfsson gefur kost
á sér til áfram-
haldandi for-
mennsku í VR
þegar kosningar
fara fram í mars.
Hann segist telja
nær 100% öruggt
að fram komi
mótframboð og
kveðst hann fagna
því. ,,Ég er óhræddur við að setja
mín störf í dóm félagsmanna og það
er öllum formönnum stéttarfélaga
hollt að gera það með reglulegu
millibili. Félagsmenn móta áherslur
og þær leiðir sem þeir vilja að félag-
ið fari,“ segir hann og minnir á að
kosningafyrirkomulagið í VR sé
mjög lýðræðislegt, opið öllum og fé-
lagsmenn móti stefnuna með því að
kjósa þá sem þeir treysta til að leiða
baráttuna.
Kjörstjórn VR auglýsir þessa
dagana eftir einstaklingsframboðum
til formanns, stjórnar og listafram-
boðum í trúnaðarráð VR fyrir kjör-
tímabilið 2019-2021. Framboðs-
frestur rennur út 11. febrúar.
omfr@mbl.is
Fagnar mót-
framboði
Kosningar til for-
ystu í VR eru í mars
Ragnar Þór
Ingólfsson
Fuglum er gefið út í garðinn utan við húsið Ystu-Nöf í Borgarnesi og þang-
að sækja spörfuglarnir kornið sitt. Einnig slæðast þar stöku sinnum rán-
fuglar í leit að æti. Þessi smyrill náði sér í einn starra í garðinum og var það
barátta upp á líf og dauða. En smyrillinn með sinn bogna gogg og beittu
klær nýtti sér líka stærðarmuninn og hafði betur. Smyrillinn tætti síðan
fuglinn í sig og flaug svo á brott með leifarnar til að kroppa betur af bein-
unum í meira næði. Kuldinn að undanförnu hefur ekki gert smáfuglunum
lífið auðveldara og störrum þar á meðal, líkt og fram kom í blaðinu í gær.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Barátta upp á líf og dauða í Borgarnesi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Afar hægur gangur er á kjaraviðræð-
um Samtaka starfsmanna fjármála-
fyrirtækja (SSF) og Samtaka at-
vinnulífsins (SA) en samningar um
4.000 félagsmanna í bönkunum og
fleiri fjármálastofnunum runnu út um
áramótin.
Friðbert Traustason, formaður
SSF, segir kjaradeilu stéttarfélag-
anna fjögurra í ASÍ og SA, sem er til
sáttameðferðar í Karphúsinu, lita all-
ar aðrar kjaraviðræður á vinnumark-
aði án sýnilegs ár-
angurs skv.
fréttum. Þá gagn-
rýnir hann að-
komu ríkisstjórn-
arinnar og
yfirlýsingar ráð-
herra við upphaf
kjaraviðræðna,
sem menn hafi
ekki áður kynnst í
kjaraviðræðum á
síðari árum. Venjulega komi ríkið að
kjaramálunum á síðustu stigum við-
ræðna. ,,Ég man ekki eftir því allan
þann tíma sem ég hef verið í þessum
málum að ríkisstjórnin gefi í upphafi
kjarasamninga jafnvel sl. haust bein
loforð um að hún muni koma að við-
ræðunum og lausn kjaradeilna með
einhverjum verulegum hætti og menn
vita ekkert hvað er í þeim pakka,“
segir hann. Þetta eigi sinn þátt í því að
mikill hægagangur sé í viðræðum.
Í pistli á heimasíðu SSF segir að
ríkisstjórnin hafi tilkynnt að ríkið
muni koma með einhver útspil á
næstu dögum, sem gætu liðkað til við
gerð kjarasamninga, ,,en enginn veit
(nema ráðherrar) hvert það útspil
verður. Eina útspil ríkisstjórnar sem
heyrst hefur er að hækka skatta veru-
lega í formi veggjalda á Suður- og
Vesturlandi. Meðan þessi boð um út-
spil ríkisstjórnar liggja í loftinu og
enginn veit hvað þau innihalda er
engin von til að gengið verði frá kjara-
samningum,“ segir þar.
,,SA, sem eru okkar viðsemjandi,
eru mjög upptekin af viðræðunum í
Karphúsinu og það litar allar aðrar
viðræður. Auðvitað vilja menn kom-
ast hjá því að fara í verkföll,“ segir
Friðbert. Tveir formlegir samninga-
fundir hafa farið fram milli samninga-
nefnda SSF og SA auk óformlegra
samtala. Í kjarakröfum sínum leggja
SSF áherslu á launahækkanir, stytt-
ingu vinnutíma og að settur verði
skýr rammi fyrir fastlaunasamninga.
Friðbert segir fastlaunasamninga
stórt mál. ,,Margir hópar innan okkar
raða fara ekki vel út úr þessum fast-
launasamningum. Það er allt of mikill
vinnutími á bak við þá og jafnvel
þannig að fólk er kallað til vinnu um
kvöld og helgar sem á allt að vera
innifalið í fastlaunasamningum. Það
er skelfileg þróun, sér í lagi þegar
verið er að tala um styttri vinnuviku.“
Hægagangur í viðræðum og óvissa
SSF segja litla von um samninga á meðan enginn viti hvað loforð ríkisstjórnarinnar innihalda
Friðbert
Traustason