Morgunblaðið - 02.02.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Borgaryfirvöld hafa um árabilfylgt þeirri stefnu að allir
skuli búa í 101 eða að minnsta
kosti í næsta nágrenni. Þessi
stefna um að „þétta byggð“ og
byggja helst alls ekki á nýjum
svæðum hefur orðið til þess að
miðborgin er
full af rándýr-
um íbúðum sem
fáir vilja kaupa
eða geta keypt.
Ari Skúlason,hagfræð-
ingur hjá
Landsbankanum, talaði í samtali
við Ríkisútvarpið um offramboð á
íbúðum á þessu svæði og benti á
að ekki væri gott að „byggja mjög
mikið af einhvers konar íbúðar-
tegundum sem fáir vilja“.
Spurður að því hvers vegnaíbúðir í miðborginni væru dýr-
ar svaraði Ari: „Það eru nátt-
úrlega margar skýringar á því.
Dýrt að byggja og það er nátt-
úrlega mikil umræða um lóðarverð
og flækjustig. Það er ekki mikið
um það hér á höfuðborgarsvæðinu
að það sé verið að byggja á túni
langt fyrir utan bæinn sem er ein-
falt og þægilegt. Þetta er oft inni í
hverfum, þrengsli og svo fram-
vegis.“
Þéttingarstefna borgarinnarveldur sem sagt háu íbúða-
verði, sem endurspeglast svo í því
að húsnæðismál eru allt í einu orð-
in helsta átakamálið í yfirstand-
andi kjaraviðræðum. Þetta gjald-
þrot þéttingarstefnunnar birtist
svo í því að nú kynna borgaryfir-
völd áform um að auðvelda fólki
að breyta bílskúrum í íbúðir fyrir
þá sem ekki ráða við uppsprengda
þéttingarverðið.
Er það boðleg stefna í hús-næðis- og skipulagsmálum?
Gjaldþrot
þéttingarstefnu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Landsréttur hefur staðfest úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur um að
hafna skuli kröfum rekstrarfélags
verslunarkeðjunnar Euro Market
um að haldlagningu lögreglu á alls
14,6 milljónum króna í eigu fyrirtæk-
isins verði aflétt.
Um er að ræða rúmar tíu milljónir
í bankainnistæðum fyrirtækisins og
allt að 4,5 milljónir í reiðufé, sem lög-
regla lagði hald á í verslunum Euro
Market. Úrskurður héraðsdóms var
kveðinn upp 22. janúar og staðfestur
í Landsrétti 30. janúar. Rannsókn
þessa máls er ein sú viðamesta sem
lögreglan hefur ráðist í viðvíkjandi
skipulagðri brotastarfsemi.
Fram kom í kröfugerð fyrirtæk-
isins að engin ástæða væri fyrir hald-
lagningu rekstrarfjár þess, þar sem
lögregla hefði ekki lengur til rann-
sóknar peningaþvætti í gegnum ótil-
greinda greiðslugátt, sem fyrirtækið
var í viðskiptum við.
Þá hefði rannsókn málsins dregist
mikið og rekstrarféð sem væri í
vörslu lögreglu væri nauðsynlegt
fyrir reksturinn, meðal annars þar
sem fjármögnun hefði gengið erfið-
lega vegna fjölmiðlaumfjöllunar um
málið.
Í greinargerð frá embætti lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
sagði hins vegar að forsvarsmenn
fyrirtækisins væru á meðal þeirra
sem væru með réttarstöðu grunaðra,
að eigandi fyrirtækisins hefði verið
kærður í öðru landi fyrir stórfellt
fíkniefnalagabrot og að talið væri að
hann hefði hagnast um hundruð
milljóna króna á þess konar við-
skiptaháttum.
Framsalsbeiðni hans er til með-
ferðar hjá yfirvöldum hérlendis, en
maðurinn er einnig í farbanni. Í
greinargerð lögreglu kemur fram að
rannsókn málsins ljúki væntanlega á
næstunni.
Euro Market fær ekki haldlagt fé
Lögregla segir að rannsókn málsins muni væntanlega ljúka á næstunni
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
Bændasamtök Íslands, Neytenda-
samtökin, Samtök verslunar og
þjónustu og Samtök iðnaðarins und-
irrituðu í gær samkomulag. Undir-
ritunin fór fram í Melabúðinni í
Reykjavík.
„Við erum að taka höndum saman
um að merkja matvæli betur en gert
hefur verið. Við getum alltaf gert
betur,“ sagði Kristján Þór í samtali
við Morgunblaðið
Gera á gangskör að því að bæta
merkingar á matvælum og tryggja
þannig betur rétt neytenda til upp-
lýsinga um uppruna, framleiðslu-
hætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif
þeirra, að því er segir í frétt atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytisins. Skipa
á samráðshóp með fulltrúum neyt-
enda, bænda og verslunar. Hlutverk
hans verður að ráðast í átaksverk-
efni um merkingar og hvernig megi
betur upplýsa neytendur og fyrir-
tæki um réttindi og skyldur. Verk-
efnið er tímabundið í eitt ár en þá
verður staðan metin.
Gera átak í að merkja
matvælin betur
Skrifuðu undir í Melabúðinni í gær
Morgunblaðið/Hari
Melabúð Kristján ráðherra og Friðrik Guðmundsson kaupmaður heilsast.