Morgunblaðið - 02.02.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
ÚTSÖLULOK
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
70%
companyskringlan
companys kringlunni
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
VERÐHRUN
60-80% afsláttur
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Útsalan
í fullum
gangi
Enn er hægt
að gera
frábær kaup
Str. 36-56
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
GERRY WEBER - BETTY BARCLAY
TAIFUN OG FL.
GÆÐAFATNAÐUR
50-70% afsláttur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fast-
eignasali og framkvæmdastjóri
Eignamiðlunar, telur þessar breyt-
ingar á margan hátt spennandi. Hins
vegar vakni margar spurningar ef
aukaíbúðir eru heimilaðar í sérbýli.
Í fyrsta lagi geti yfirbragð ein-
býlishúsagatna breyst. Göturnar séu
hannaðar fyrir tiltekinn fjölda íbúða
og þar með bílastæða. Jafnframt geti
aukin umferð breytt upplifun af
hverfum.
Í öðru lagi sé ekki sjálfgefið að
arkitektar samþykki útlitslegar
breytingar á húsnæði, til dæmis bíl-
skúrum, svo það henti betur undir
aukaíbúðir. Breytingarnar kalli á
samræmingu verkferla í borgarkerf-
inu. Ella geti leyfismálin orðið erfið.
Ekki endilega arðbært
Í þriðja lagi kosti uppsetning smá-
hýsa í görðum, þar sem slíkt verður
leyft, töluverða fjármuni. Ekki sé
sjálfgefið að slík hús verði arðbær.
Í fjórða lagi þurfi að athuga laga-
legar hliðar, á borð við lóðaleigu-
samninga og réttindi til húsa-
leigubóta. Í fimmta lagi sé fjöldi
bílskúra þegar í útleigu sem íbúðar-
aðstaða. Sama megi segja um neðri
hæðir í einbýli. Því kunni áætlaður
fjöldi mögulegra nýrra aukaíbúða að
vera eitthvað ofmetinn. Samandregið
telur Kjartan aðspurður ekki gefið
að sérbýli muni hækka í verði með
nýjum útleiguheimildum.
Gæti ýtt undir nágrannaerjur
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir allt-
af jákvætt þegar tillögur koma sem
miða að því að leysa húsnæðis-
vandann og horft sé fram á við.
„Það er á hinn bóginn ljóst að verði
þetta að veruleika á fjöldi álitamála
er snúa að nábýlisrétti, almennum
skipulagsmálum og lögum um fjöl-
eignarhús eftir að sýna sig. Þá er
mikill skortur á bílastæðum í flestum
hverfum en þetta mun örugglega
auka mjög á þann vanda, auk fjölda
annarra erfiðra vandamála sem
munu klárlega koma upp. Ég ítreka
að þetta eru um margt skemmtilegar
hugmyndir. Raunin er að þegar um
gríðarlegar breytingar er að ræða
varðandi nábýli eru oftar en ekki
miklar tilfinningar íbúa að baki. Það
hefur sýnt sig svo ekki verður um
villst að hinar minnstu breytingar er
snúa að málum er varða nábýli fólks
leiða ítrekað til ágreinings. Þannig er
hætt við að verði þessar miklu breyt-
ingar að veruleika eins og málin eru
kynnt geti það orðið uppspretta al-
varlegra deilna milli nágranna,“ seg-
ir Grétar Jónasson.
Morgunblaðið/Eggert
Heimili Bílskúrar hafa víða verið innréttaðir sem íbúðir. Heimildir verða veittar fyrir aukaíbúðum í bílskúrum.
Aukaíbúðir vekja spurningar
Framkvæmdastjóri Eignamiðlunar segir mörg álitamál fylgja nýjum reglum
Framkvæmdastjóri Félags fasteignasala segir hættu á nágrannaerjum
Fram kemur á vef Íbúðalánasjóðs að umsækjendur um húsnæðisbætur
þurfa að uppfylla nokkur skilyrði.
Í fyrsta lagi þurfi umsækjandi og heimilismenn að vera búsettir í
íbúðarhúsnæðinu og eiga þar lögheimili.
Í öðru lagi þurfi umsækjandi að hafa náð 18 ára aldri en aðrir heim-
ilismenn þurfa ekki að hafa náð þeim aldri.
Í þriðja lagi þarf íbúðarhúsnæðið að hafa eitt svefnherbergi, séreldun-
araðstöðu, sérsnyrtingu og baðaðstöðu. Veittar eru undanþágur frá
þessum skilyrðum ef um er að ræða sambýli námsmanna á heimavistum
eða námsgörðum, sambýli fatlaðs fólks í húsnæðisúrræðum og sambýli
einstaklinga á áfangaheimilum.
Í fjórða lagi þarf umsækjandi að vera aðili að þinglýstum leigusamn-
ingi til að minnsta kosti þriggja mánaða. Þó eru veittar undanþágur frá
þessu.
Loks þurfa umsækjandi og heimilismenn og aðrir heimilismenn eldri
en 18 ára að veita samþykki sitt til upplýsingaöflunar.
Tekið er fram að húsnæðisbætur séu ekki greiddar í ýmsum tilvikum.
Skilyrði fyrir húsnæðisbótum
HÚSNÆÐI ÞARF AÐ UPPFYLLA VISSAR KRÖFUR
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is