Morgunblaðið - 02.02.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef haft áhuga áhandavinnu frá því ég varlítil stelpa. Ég hef heklaðog prjónað frá því ég var
sjö eða átta ára og ég handsaumaði
barbífötin á dúkkurnar mínar. Ég
man hvað ég vandaði mig mikið, bjó
til útsaumsspor og hvaðeina. Þar
fyrir utan hef ég verið með blæti fyr-
ir öllu gömlu frá því ég var að alast
upp á Akureyri. Ég vissi fátt
skemmtilegra en að komast á
byggðasöfn og skoða gamla hluti,
hvort sem það var Minjasafnið,
Nonnahús eða Laufás. Þegar ég var
í sveit á Rauðá, bæ þar sem systir
pabba bjó, þá var þar gamall maður,
Villi, sem smíðaði kistla og rokka og
gerði upp gömul húsgögn. Systir
hans málaði kistlana og ég dróst að
þessu, ég var alveg heilluð. Hann
kenndi mér að smíða og ég man ekki
eftir vélarhljóðum í smiðjunni hans,
allt var gert í höndunum. Þar leið
mér vel,“ segir Lára Magnea Jóns-
dóttir textíllistamaður en hún vinnur
í sínum verkum með gamla kross-
sauminn og útfærir íslensk gömul
munstur.
„Útsaumsáhuginn kviknaði fyr-
ir alvöru hjá mér þegar ég byrjaði að
vinna hjá Íslenskum heimilisiðnaði
strax að lokinni útskrift minni úr
textíldeildinni í Myndlista- og hand-
íðaskólanum fyrir þrjátíu árum. Þar
voru þessi gömlu íslensku munstur
frá Þjóðminjasafninu sem Elsa Guð-
jónsson hafði teiknað upp, stóra
riddarateppið og fleiri gersemar. Þá
fór ég að grúska og kafa ofan í
þetta,“ segir Lára Magnea sem tók
sér tíu ára hlé í listinni þegar barn-
eignir og önnur krefjandi verkefni
komu upp í hennar lífi. Dóttir henn-
ar fór í gegnum krabbameins-
meðferð svo Lára Magnea sinnti lítt
sínum útsaumi og verkefnum honum
tengdum.
„En ég var aðeins að kenna list-
greinar á þessum tíma og alltaf eitt-
hvað að gæla við þessi gömlu
munstur. Svo fór þetta allt
af stað aftur þegar vinkonur
mínar plötuðu mig til að taka
við formennsku í Heimilis-
iðnaðarfélaginu. Ég hef
lengi verið að safna þessum
gömlu munstrum og draum-
urinn er að búa til eitthvert
fyrirtæki úr þessu,“ segir
Lára Magnea sem á sum-
arbústað fyrir austan fjall
þar sem hana langar að vera
með sinn eigin rekstur, opna
vinnustofu og listasmiðju,
halda námskeið og fá til sín
ferðamenn í heimsókn og
fleira í þeim dúr. Allt tengt
útsaumi.
Reynir á þolinmæðina
„Nú er ég að einbeita
mér að því að búa til vand-
aða útsaumspúða eins og ég
sýndi á Hönnunarmars í
fyrra. Ég vinn með eitt og
sama útsaumsmunstrið,
mynd sem ég fór fyrst að
leika mér með þegar menn-
ingarhúsið Hof var opnað á
Akureyri, en þá gafst fólki
tækifæri til að skila listaverki af
ákveðinni stærð, og þau voru svo öll
á sýningu á opnuninni, líkt og mósa-
ík. Myndin sem ég sendi var mynd
sem ég saumaði út, en munstrið sótti
ég til Þjóðminjasafnsins, úr bekk úr
riddarateppinu. En ég breytti, bæði
litum og braut upp munstrið og
gerði þetta þannig að mínu verki, þó
að það sé í grunninn úr þessari
átjándu aldar rúmábreiðu. Þegar ég
útfæri svona íslensk gömul munstur
teikna ég þau upp í tölvu og útfæri í
öðrum litum, sterkum litum eða
brúntóna, svo pakka ég þessu og fólk
getur valið sér hvað því hentar þeg-
ar það kaupir þetta í pakka, þar sem
allt efnið er tilbúið. Þetta er allt í
vinnslu og nú er verið að búa til sölu-
síðu, saumakassinn.is.“
Lára Magnea segir að munur-
inn á gamla krosssaumnum og þeim
nýja sé sá að aftur sé farið yfir spor-
ið í þeim gamla og hann þeki því bet-
ur. En það getur verið mikið vanda-
verk að teikna upp munstur eftir
myndum. „Maður þarf að
kunna að telja og hafa þolin-
mæði, því þetta gamla er oft
illa farið. Eitt af fyrstu
stykkjunum sem ég teiknaði
munstrið upp eftir, gerði ég
eftir póstkorti með mynd af
gömlum útsaumi af söðul-
áklæði. Það tók tímann sinn,
ég þurfti að nota stækkunar-
gler og það reyndi á þolin-
mæðina,“ segir Lára Magnea
og bætir við að því miður
virðist fólk ekki tilbúið að
borga jafn mikið fyrir út-
saum og olíumálverk.
„Að baki stórum púða
hjá mér liggja fjörutíu vinnu-
stundir, þetta er vikuvinna
og mikið vandaverk, ég verð-
legg mig eins og iðn-
aðarmaður,“ segir Lára
Magnea sem langaði að fara í
háskólann og læra þjóðfræði
og grafa dýpra.
„Ég hef ekki enn fundið
tíma til þess, ég er með fullt
hús af börnum og sinni aldr-
aðri móður og er í hálfu starfi
hjá handavinnuhúsinu
Ömmu mús. Ég kenni líka
gamla útsauminn og uppsetningu
púða hjá Heimilisiðnaðarfélaginu,“
segir Lára Magnea sem segist eiga
heilan haug af alls konar gömlum út-
saumi.
„Ég gerði mikið af því hér áður
fyrr að endurvinna útsaum, bjó til
eitthvað nýtt úr því, púða eða töskur
og aðallega til gjafa meðal fjölskyldu
og vina. En nú er ég hætt að kaupa
slíkt í Góða hirðinum, ég nýti lag-
erinn sem ég á ef ég þarf að búa til
gjafir.“
Listaverk Brot af nokkrum verkum Láru Magneu.
Morgunblaðið/Hari
Flott Púðinn t.v. er með munstrinu sem hún vinnur með núna. Útsaum Fallegir litir og munstur sem Lára hefur gert.
Fellur fyrir öllu sem gamalt er
Lára Magnea textíllista-
maður vinnur með gamla
krosssauminn og útfærir
íslensk gömul munstur og
gerir þau að sínum.
Morgunblaðið/Hari
Verk í vinnslu Lára Magnea grípur hér í útsaumsverk sem verða mun ílangur púði þegar fram líða stundir. Nokkur af verkum hennar í kringum hana.
Gamli krosssaumurinn Hann þekur betur en sá nýi.
Ljósmynd/Lára Magnea Ljósmynd/Lára Magnea
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár
á Íslandi
Snjóblásarar í
öllum stærðum
og gerðum
Hágæða snjóblásarar frá
Stiga
ST5266 PB