Morgunblaðið - 02.02.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Félagsheimilið Árnes
Í Félagsheimilinu Árnesi er glæsileg aðstaða fyrir
ættarmótið, afmælið eða aðra viðburði
Fallegt fjölskyldutjaldsvæði með rafmagni er handan
við húshornið ásamt sundlaug og heitum potti.
Góð aðstaða er fyrir útiíþróttir og leiktæki fyrir börn.
Verslun á svæðinu. Stutt í fallegar náttúruperlur s.s.
Þjórsárdal, Hjálparfoss, Stöng og Gjána.
Skeiða- og
Gnúpverjahreppur
Félagsheimilið Árnes hentar sérlega vel fyrir allskyns veislur og
viðburði. Það er staðsett í fallegu umhverfi í um 100 km fjarlægð frá
höfuðborgarsvæðinu og 40 km frá Selfossi.
Húsið rúmar með góðu móti 360 manns í þremur sölum sem hægt er
að aðskilja. Öflugt hljóðkerfi og skjávarpar eru í húsinu og stórt leiksvið
sem gefur mikla möguleika. Glæsilegt veislueldhús er til staðar með
góðum útbúnaði. Sólpallur og skjólsæll garður er til suðurs við húsið.
Nánari upplýsingar gefa:
Kristjana í síma 486 6100 netfang kidda@skeidgnup.is
Ari í síma 893 4426 netfang ari@skeidgnup.is
Einstaklingur
sem hugðist
hnupla ilm-
vatnsglasi úr
verslun í um-
dæmi lögregl-
unnar á Suður-
nesjum sl.
fimmtudag tók
sprettinn út úr
versluninni þegar lögreglumaður
mætti á staðinn. Sá síðarnefndi
hljóp hnuplarann uppi og var
hann látinn borga fyrir ilmvatnið,
að því er fram kemur í dagbók
lögreglunnar.
Fyrr í vikunni hafði annar
fingralangur einstaklingur reynt
að stela fótakremi með því að
taka það úr kassanum og skilja
umbúðirnar eftir. Viðkomandi
var einnig látinn borga kremið
sem kostaði nærri sex þúsund
krónur.
Hljóp uppi þjóf sem
stal ilmvatnsglasi
Nokkrir ökumenn hafa verið
kærðir fyrir of hraðan akstur í
umdæmi lögreglunnar á Suð-
urnesjum það sem af er vikunni.
Sá sem hraðast ók mældist á yfir
140 km hraða á Reykjanesbraut
þar sem hámarkshraði er 90 km á
klukkustund.
Þá voru fáeinir teknir úr umferð
vegna gruns um vímuefnaakstur.
Nokkuð var um umferðaróhöpp
en engin alvarleg slys á fólki í
þeim, segir í dagbók lögreglunnar.
Hraðakstur á
Reykjanesbrautinni
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Súkkulaðikaffihús Fríðu Bjarkar
Gylfadóttur að Túngötu 40a á
Siglufirði er orðið þekkt kennileiti í
bænum, þótt ekki séu nema rúm
tvö ár síðan það var opnað, eða nán-
ar tiltekið 25. júní 2016. Þar hafa
frá upphafi verið á boðstólum hand-
gerðir konfektmolar úr úrvals-
súkkulaði, belgísku, auk margs
annars. Og heimafólk og ferða-
menn, innlendir sem erlendir, hafa
streymt þangað, auk þess sem
hægt hefur verið að panta sigl-
firska dýrindið í gegnum vefsíðuna
frida.is.
Vöfflur kölluðu á meira pláss
Súkkulaðikaffihúsið sló svo ræki-
lega í gegn að ráðist var í að stækka
húsakynnin í byrjun árs 2017. Og
enn þurfti að endurskipuleggja síð-
asta haust.
„Já, til að geta boðið upp á vöffl-
ur þurfti ég meira pláss og þess
vegna fór ég í þessa viðbót núna,“
segir Fríða, en þar á hún við nýtt
þjónustuborð að austanverðu í að-
alsalnum, sem auðveldar mjög alla
afgreiðslu á téðri vöru. Fram-
kvæmdir stóðu að mestu yfir í nóv-
ember en verkið kláraðist fyrir
skemmstu. Auk þess var bætt við
nýjum kæli. „Reyndar er þetta ekki
alveg tilbúið, því til að viðhalda
þemanu á eftir að setja hnakka á
stólana framan við nýju viðbótina,
en þeir verða komnir áður en langt
um líður,“ segir Fríða. Til skýr-
ingar skal þess getið að hún er mik-
il hestakona og þar að auki lista-
maður eins og glöggt má sjá ef litið
er í kring á súkkulaðikaffihúsinu,
þar sem m.a. prýða veggi málverk
hennar af hestum auk þess sem
hnakkur er í viðbótinni sem tekin
var í notkun fyrir páskana 2017.
Fríða var kjörin bæjarlistamaður
Fjallabyggðar árið 2015.
Molar til heiðurs Mjallhvíti
Súkkulaðikaffihúsið var lokað í
janúar en opnað að nýju í gær, 1.
febrúar. Fyrir utan súkkulaði geta
viðskiptavinir nú fengið keypt ýms-
an annan varning, s.s. innkaupa-
poka, póstkort og stuttermaboli
með einni hestamynd listakonunnar
að ógleymdum nýjum kaffibollum,
Corkcicle, sem halda köldu í 9 tíma
og heitu í 3 tíma; hún flytur þá inn
sjálf. Ýmsir drykkir eru í boði líka,
áfengir sem óáfengir. Þar á meðal
er ný tegund af freyðivíni sem og
alvöru kampavín. Að ógleymdu því,
að nú er Fríða að hanna súkku-
laðimola til heiðurs Mjallhvíti, sem
eins og flestir vita á uppruna að
rekja til Siglufjarðar.
Nú vantar bara hnakka á stólana
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kaffihús Fríða Björk milli afgreiðsluborðs og kælis, sem eru nýjungar. Hnakkar koma von bráðar á stólana fjóra.
Kaffi Ilmandi kaffi og kakó er jafnan á könnunni. Og Mogginn sem veggfóður.Munir Póstkort, pokar og bolir með hestamynd eftir Fríðu. List Á veggjum eru hestar áberandi.
Súkkulaðikaffi-
hús Fríðu á Siglu-
firði stækkað