Morgunblaðið - 02.02.2019, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
2. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.32 119.88 119.6
Sterlingspund 156.7 157.46 157.08
Kanadadalur 90.74 91.28 91.01
Dönsk króna 18.322 18.43 18.376
Norsk króna 14.16 14.244 14.202
Sænsk króna 13.198 13.276 13.237
Svissn. franki 120.04 120.72 120.38
Japanskt jen 1.0977 1.1041 1.1009
SDR 166.96 167.96 167.46
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.509
Hrávöruverð
Gull 1322.5 ($/únsa)
Ál 1870.5 ($/tonn) LME
Hráolía 61.97 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Motormax ehf.
hefur fest kaup á
þrotabúi Bíla-
nausts ehf.
Í tilkynningu frá
fyrirtækinu segir
að Motormax muni
fljótlega hefja
rekstur Bílanausts
á ný eftir að endur-
skipulagi rekstrar fyrirtækisins verði
lokið og gengið hafi verið frá ráðningu
starfsfólks.
Í tilkynningunni segir einnig að nýir
eigendur vilji tryggja að Bílanaust geti
áfram boðið breitt úrval af varahlutum
og rekstrarvörum fyrir bíla og veitt við-
skiptavinum góða þjónustu.
Þá kemur fram í sömu tilkynningu að
áformað sé að reka verslanir Bílanausts
í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ
og á Selfossi áfram og stefnt sé að opn-
un verslananna á Akureyri og Egils-
stöðum síðar.
tobj@mbl.is
Motormax kaupir
þrotabú Bílanausts
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Um 80-100 hundrað tonn af íslensku
lambakjöti í heilum frosnum skrokkum
fara úr landi á næstunni en kjötið er
ætlað til sölu á komandi páskavertíð í
Þýskalandi. Útflutningurinn er hluti af
íslensk-þýsku samvinnuverkefni sem
hófst sl. haust, eftir tveggja ára und-
irbúning, og sagt var ítarlega frá í Við-
skiptaMogganum, þar sem lambakjöt-
ið er selt undir vörumerkinu Vikingyr.
Kjötskrokkarnir eru fyrst sendir til
kjötvinnslufyrirtækis í Frakklandi,
sem þíðir kjötið upp og sker skrokkana
niður í réttar bitastærðir. Bitunum er
svo pakkað og þeir sendir á dreifing-
armiðstöðvar stórverslanakeðjanna
EDEKA og Rewe um allt Þýskaland.
Þaðan er svo kjötinu dreift til einstakra
stórmarkaða, sem panta kjötið eftir
þörfum, en verslunum sem hafa kjötið
til sölu fer fjölgandi með hverjum mán-
uðinum, að sögn Hlyns Ársælssonar,
fulltrúa þýska heildsölufyrirtækisins
RW-Warenhandels á Íslandi, sem er
tengiliður við verkefnið hér á landi og
samræmir allar aðgerðir.
20-30% selst fyrir páska
Hlynur segir í samtali við
Morgunblaðið að 20-30% af allri
lambakjötssölu í Þýskalandi fari
fram dagana og vikurnar fyrir
páska. Þegar Morgunblaðið náði tali
af honum var hann nýkominn úr
heimsókn hjá frönsku sláturvinnsl-
unni. „Ég er nýkominn frá Frakk-
landi þar sem ég heimsótti fyrirtæk-
ið sem sér um að skera kjötið í réttar
bitastærðir. Við vildum tryggja að
næg afkastageta væri fyrir hendi hjá
þeim áður en stærri sendingar fara
út,“ segir Hlynur.
Hann bætir við að lambakjötssalan
í Þýskalandi um páskana sé þreföld til
fjórföld á við aðra tíma ársins. „Síð-
ustu þrjár vikurnar fyrir páska fer allt
á fullt, og verslanir halda kynningar á
vörunum.“
Tugir REWE-stórmarkaða hafa nú
þegar tekið kjötið í sölu, en 400 versl-
anir í keðjunni eiga möguleika á að
panta kjötið, að sögn Hlyns. Þá muni
fleiri EDEKA-stórmarkaðir bætast
við nú í vikunni.
„EDEKA Nord og EDEKA í Bæj-
aralandi, héraðsinnkaupamiðstöðvar
EDEKA í Norður- og Suður-Þýska-
landi, opna nú á pantanir hjá yfir 300
verslunum, en við vitum ekki hvað
margar munu taka inn kjötið, vonandi
um 100. Það mun taka tíma þar sem
það þarf að kynna kjötið hverri verslun
fyrir sig.“
Aðrir samstarfsaðilar í verkefninu
auk RW-Warenhandels á Íslandi hafa
verið Kjarnafæði, Icelandic Lamb ehf.
og þýska markaðsfyrirtækið Albert
Rauch GmbH, en samkvæmt upplýs-
ingum frá Andrési Vihjálmssyni, út-
flutningsstjóra Icelandic lamb, hafa
fleiri sláturleyfishafar nú bæst við sem
samstarfsaðilar. Segir Andrés í samtali
við Morgunblaðið að allir séu spenntir
fyrir þessu einstaka verkefni, sem njóti
engra útflutningsstyrkja. Horft sé til
langs tíma, og sígandi lukka sé best.
100 tonn af páskalambi
á Þýskalandsmarkað
Matvæli Kynningarbás fyrir íslenska Vikingyr lambakjötið í einum af stórmörkuðum REWE í Þýskalandi.
Útflutningur
»L ambakjötsmarkaðurinn í
Þýskalandi 75 þúsund tonn á ári.
» Þjóðverjar borða að meðaltali
50 kg af kjötmeti á ári.
» Þjóðverjar borða að meðaltali
um 900 g af lambakjöti á ári.
» Á Vikingyr.is er hægt að fylgj-
ast með verkefninu.
» RW-Warenhandels sér um út-
flutning og utanumhald birgða
og sölu á frystu kjöti.
Nokkrir nýir samstarfsaðilar hafa bæst við Selt undir vörumerkinu Vikingyr
Seðlabankar heimsins keyptu 651,5
tonn af gulli að andvirði 27 milljarðar
bandaríkjadala og hafa kaupin á
gulli ekki verið jafn mikil í hálfa öld.
Jukust þau um 74% frá árinu 2017. Í
frétt Financial Times segir að kaup-
in séu drifin áfram af kaupum seðla-
banka nývaxtarlanda sem vilja
minnka hlutdeild bandaríkjadals í
gjaldeyrisforða sínum vegna aukinn-
ar óvissu í milliríkjaviðskiptum. Hef-
ur hlutdeild bandaríkjadals í gjald-
eyrisforða seðlabanka heimsins ekki
verið jafn lítil í fimm ár samkvæmt
skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins segir Stefán Jóhann Stef-
ánsson, ritstjóri Seðlabankans, að
bankinn hafi ekki keypt gull í mörg
ár og að engin stefnubreyting hafi
átt sér stað hvað gulleign varðar.
Hann segir gullið leigt út samkvæmt
sérstökum samningum og fær bank-
inn fyrir það tiltekna ávöxtun í gulli.
Gullforði Seðlabankans, sem geymd-
ur er í Englandsbanka, er rúmlega
64 þúsund únsur, eða 159 gullstangir
sem vega tæp tvo tonn og nam verð-
mæti þeirra 9,6 milljörðum króna
um síðustu áramót. Sú upphæð nam
8,7 milljörðum í lok árs 2017 en
hækkunina má rekja til fyrrgreindr-
ar útleigu á gulli sem kemur inn í
reikninga bankans sem hækkun á
gulleign. Magn gulls í gjaldeyris-
forða Seðlabankans hefur verið nán-
ast óbreytt síðustu áratugi og fer
hlutfallslegt verðmæti þess af forð-
anum eftir heildarstærð hans en það
nam 1,3% í lok síðasta árs. Eftir fjár-
málaáfallið 2008 var forðinn stækk-
aður verulega og því hefur hlutur
gulls minnkað. peturhreins@mbl.is
AFP
Gull Seðlabanki Íslands á 159 gull-
stangir sem vegna tvö tonn.
Keyptu 651,5
tonn af gulli
Seðlabanki Ís-
lands jók ekki gull-
kaup í fyrra