Morgunblaðið - 02.02.2019, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
ÚTSALA
20-70% afsláttur
Opið virka daga kl. 10-18
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Meirihluti öldungadeildar Banda-
ríkjaþings hefur snuprað Donald
Trump forseta með því að sam-
þykkja að hefja umræðu um tillögu
þar sem lagst er gegn þeirri ákvörð-
un hans að kalla bandaríska her-
menn í Sýrlandi og Afganistan heim.
Mitch McConnell, leiðtogi repú-
blikana í deildinni, lagði tillöguna
fram og hún var samþykkt með 68 at-
kvæðum. Aðeins 23 þingmenn
greiddu atkvæði gegn henni – þrír
repúblikanar og 20 demókratar.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
er til marks um vaxandi óánægju
meðal þingmanna repúblikana með
stefnu Trumps í utanríkismálum, að
sögn The Wall Street Journal. Blaðið
segir að þingmenn repúblikana hafi
áður snuprað Trump í atkvæða-
greiðslum um refsiaðgerðir gegn
rússneskum fyrirtækjum og um
ályktunartillögu þess efnis að Banda-
ríkin hættu að styðja hernað Sádi-
Arabíu og fleiri arabaríkja í Jemen.
Trump tilkynnti í desember að
hann hefði ákveðið að kalla banda-
ríska herliðið í Sýrlandi heim vegna
þess að sigur hefði unnist á íslömsku
hryðjuverkasamtökunum Ríki ísl-
ams (stundum nefnd ISIS á ensku).
McConnell kvaðst hins vegar telja að
enn stafaði hætta af íslamistum í
Sýrlandi og Afganistan og enn væri
þörf á bandarískum hermönnum í
löndunum til að tryggja öryggi
Bandaríkjanna. „Samtökin ISIS og
al-Qaeda hafa ekki verið sigruð,“
sagði hann.
Embættismenn bandaríska
varnarmálaráðuneytisins hafa varað
við því að þótt liðsmenn Ríkis íslams
missi yfirráð yfir landsvæðum, þar
sem þeir lýstu yfir stofnun kalífa-
dæmis, sé líklegt að þeir haldi áfram
að berjast með hryðjuverkum í Mið-
Austurlöndum og víðar í heiminum.
Leyniþjónustan rengir Trump
Fyrr í vikunni komu yfirmenn
leyniþjónustu Bandaríkjanna fyrir
nefnd öldungadeildarinnar og
rengdu fullyrðingar Trumps um
hættuna sem stafar af kjarnavopnum
Norður-Kóreumanna og kjarnorku-
áformum klerkastjórnarinnar í Íran.
Trump fullyrti eftir fund með leið-
toga einræðisstjórnar Norður-Kóreu
á liðnu ári að engin hætta stafaði
lengur af kjarnavopnum hennar og
hann sagði á miðvikudag að hann
teldi „þokkalegar líkur“ á að Norður-
Kóreustjórn eyddi vopnum sínum.
Yfirmenn leyniþjónustunnar sögðu
hins vegar að „ólíklegt“ væri að ein-
ræðisstjórnin léti öll vopn sín af
hendi þar sem hún liti enn svo á að
þau væru nauðsynleg til að tryggja
að henni yrði ekki steypt af stóli.
Trump hefur sagt að Bandaríkj-
unum stafi hætta af kjarnorkuáform-
um Írana en yfirmenn leyniþjónust-
unnar sögðu að hún teldi ekki að
klerkastjórnin væri að reyna að
framleiða kjarnavopn.
5 km
Samtökin
Ríki íslams
Kúrdar og banda-
menn þeirra
Stjórnarherinn
og bandamenn
Yfirráðasvæði
Þjarmað að Ríki íslams í Sýrlandi
ÍRAK
ÍRAK40 km
Mayadeen
Albu Kamal
Raqa
Hasakeh
Deir Ezzor
DEIR EZZOR-
HÉRAÐ
Efrat
ÍRAK
JÓRDANÍA
TYRKLAND
LÍ
B.
50 km
DAMASKUS
SÝR-
LAND
Deir Ezzor
Hajin
Núna
Íslamistarnir
hafa hörfað á
4 km2 svæði
Repúblikanar
snupra Trump
Andvígir heimkvaðningu hermanna
Janúar var hlýjasti mánuður í sögu
Ástralíu frá því að mælingar hófust
og meðalhitinn var þá meira en 30
gráður á Celsíus í fyrsta skipti. Að
minnsta kosti fimm dagar í janúar
voru á meðal tíu hlýjustu daga í
sögu landsins. Úrkoma var einnig
undir meðallagi í flestum lands-
hlutum og miklir þurrkar voru í
Nýju Suður-Wales.
Síðasta ár var það þriðja hlýjasta
í sögu Ástralíu og árið 2017 það
fjórða. Hitinn mældist mestur í
Sydney 47,3 gráður og var það hlýj-
asti dagur í borginni frá árinu 1939.
AFP
Methiti
í Ástralíu
Steikjandi sumarhiti Börn kæla sig í gosbrunni í Melbourne í Ástralíu.
Katalónar á mótmælafundi í Barce-
lona í gær til stuðnings tólf leiðtog-
um sjálfstæðissinna sem hafa verið
fangelsaðir og ákærðir vegna sjálf-
stæðisyfirlýsingar Katalóníu í októ-
ber 2017. Níu þeirra hafa verið
ákærðir fyrir uppreisn og eiga yfir
höfði sér allt að 25 ára fangelsis-
dóm. Hinir þrír hafa verið ákærðir
fyrir að misnota opinbert fé.
Réttarhöldin eiga að hefjast í
Madríd 12. febrúar.
AFP
Katalónar mótmæla saksókn