Morgunblaðið - 02.02.2019, Qupperneq 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Í dag kveðjum
við Rannsý sem nú
er fallin frá eftir
löng og erfið veik-
indi. Rannsý var sjálfstæð kona,
skemmtileg viðræðu og vel að
sér um mörg málefni. Hún rak
eigin læknastofu og fór af henni
afskaplega gott orð. Hún þótti
sem læknir bæði hafa næma til-
finningu fyrir fólki og yfir-
gripsmikla þekkingu og dóm-
greind í fagi sínu.
Rannsý var sannkallaður
Skandinavi, íslenskur Skandin-
avi. Hún bjó bæði í Danmörku
og Svíþjóð þar sem hún var lengi
við nám. Árin í Skandinavíu
settu mark sitt á hana og mót-
uðu hennar stíl. Hún talaði bæði
dönsku og sænsku reiprennandi
og gat átt innihaldsríkar sam-
ræður um málefni Skandinavíu,
hvort sem talið barst að kónga-
fólkinu, bókmenntum eða pólitík.
Þegar við ólumst upp var hún
boðberi skandinavískrar menn-
ingar í fjölskyldunni í mat, tón-
list og bókmenntum. Nokkuð
sem við og seinna líka börnin
okkar hafa notið góðs af.
En það var ekki einungis við
hið skandinavíska menningar-
uppeldi sem Rannsý lagði sitt af
mörkum. Hún bauð reglulega á
tónleika og í leikhús. Það voru
ómetanlegar og skemmtilegar
samverustundir sem gerðu ann-
ars framandi menningu aðgengi-
lega.
Rannsý var höfðingi heim að
sækja og það hefur verið fastur
liður í Íslandsdvöl okkar að
renna í Garðabæinn, sporðrenna
nokkrum kleinum, gefa fuglun-
um og skoða dótið í gamla dóta-
bekknum sem Rannsý hafði sjálf
fengið sem barn. Árlegt ára-
mótaboð Rannsýjar var einnig
lengi fastur liður í nýársgleði
fjölskyldunnar. Þegar klukkan
sló tólf á miðnætti tóku fjöl-
skyldumeðlimir að streyma til
Rannveig
Pálsdóttir
✝ Rannveig Páls-dóttir fæddist
16. mars 1952. Hún
lést 16. janúar
2019.
Útför Rann-
veigar fór fram 1.
febrúar 2019.
Rannsýjar til að
skála, skjóta upp
fyrir gamla árinu og
því nýja. Þá var bú-
ið að dekka drekk-
hlaðið borð með æv-
inýralegum
kræsingum, svo
sem ostum og pyls-
um, sultum og
hringlaga hrökk-
brauði. Þá voru
sungnir áramóta-
söngvar og dansaður víkivaki
með ungum sem öldnum og nýju
ári fagnað. Upplifunin var svolít-
ið eins og í sögu eftir Astrid
Lindgren um Emil í Kattholti.
Rannsý var einstaklega gjaf-
mild og rausnarleg, hvort sem
um var að ræða gjafir, læknis-
ráð, tíma sinn eða fallega handa-
vinnu. Hún var handverkskona
mikil og geta dætur okkar státað
af því að eiga ein merkilegustu
og fallegustu söfn af dúkkufötum
á byggðu bóli og þótt víðar væri
leitað. Teppi hennar og dúkkuföt
bárust eins og hlý faðmlög til
barna okkar yfir Atlantshafið.
Það sama átti við um jólapúslið
en þau eru ófá börnin sem árlega
fengu dagatalspúsl frá Rannsý í
desember sem sett voru saman,
nokkur púsl daglega, allan jóla-
mánuðinn. Þessi skemmtilegi
siður er löngu orðinn fastur liður
í jólaundirbúningnum á mörgum
heimilum.
Rannsý var sterk kona og
styrk sínum beitti hún fram á
síðasta dag. Hún tókst á við
langt og erfitt sjúkdómsferli af
einstöku æðruleysi og skynsemi,
sem gaf henni færi á að lifa fjöl-
breyttu og innihaldsríku lífi þótt
líkaminn væri að gefa sig.
Það stendur nú upp á okkur
sem fengum að upplifa styrk
hennar og liðveislu í lifanda lífi
að bera arfinn hennar áfram.
Með þessum fáu orðum langar
okkur að kveðja Rannsý. Að
henni er mikil eftirsjá og sökn-
uður.
Héðinn Björnsson og Vaka
Antonsdóttir.
Þegar landsmenn fögnuðu
hækkandi sól hallaði skyndilega
undan fæti og Rannveigu var
fremur óvænt kastað í sína
hinstu baráttu við meinið, sem
hún var búin að glíma við síðast-
liðin tíu ár. Baráttuviljinn var
enn til staðar, en allan tímann
sýndi hún æðruleysi gagnvart
veikindum sínum og óendanlega
seiglu.
Rannveig var búin að vera
samferðafélagi okkar og vinur í
áratugi. Hún var alltaf til staðar
og einstaklega bóngóð ef við
þurftum ráð, sem heyrðu undir
hennar svið. Hún var áhugasöm
um hagi okkar, eins og annarra
vina og vandamanna, en ekki síst
fylgdist hún vel með börnunum í
kringum sig. Það er mikils virði
að eiga góða frænku og það áttu
börnin okkar í henni. Hún sýndi
væntumþykju sína og hlýhug
með notalegu og traustu viðmóti,
en hún færði okkur líka ósjaldan
listilega gert handverk, prjónað
eða heklað. Það var ekki á færi
allra að prjóna dúkkuföt eins og
Rannveig gerði og færði meðal
annars leikstofu barnadeildar
Landspítala að gjöf.
Hún var virk í starfi og tóm-
stundum allt fram í desember sl.
en hvort tveggja var henni mik-
ils virði.
Rannveig átti farsælan starfs-
feril. Hún hafði einlægan áhuga
á fólki, var laus við fordóma og
hispurslaus í tjáningu. Hún gaf
sjúklingum sínum góðan tíma
þegar þess þurfti. Hún hafði ein-
lægan áhuga á tónlist, sótti söng-
tíma, söng í kórum og var tíður
gestur á tónleikum. Hún var
þakklát fyrir að geta tekið þátt í
flutningi Mozart Requiem á dán-
ardegi tónskáldsins 6. desember.
Rannveig var mikilvæg í lífi
fjölskyldu okkar og það á líka við
um fjölskyldur vina og skóla-
systra úr HÍ.
Minningin um traustan og ein-
lægan vin lifir með okkur. Sam-
úð okkar er hjá móður hennar og
fjölskyldu allri.
Takk fyrir allt.
Valgerður og Lárus.
Enn er hoggið skarð í stúd-
entahópinn sem útskrifaðist frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1972.
Í dag kveðjum við Rannveigu
Pálsdóttur, bekkjarsystur og
vinkonu úr 4-R. Í bekkjakerfinu
sem þá var í MH náðum við að
tengjast sterkum böndum sem
halda enn í dag. Hefur bekkur-
inn okkar hist áfram, m.a. í
kringum „reunion“-hátíðir ár-
gangsins og þá er eins og tíminn
hafi staðið í stað. Gamlir og góðir
atburðir rifjaðir upp og gefin
fyrirheit um að hittast oftar. Því
miður náði Rannveig ekki að
vera með okkur síðast þegar
bekkurinn hittist vegna veikinda.
Þrátt fyrir að leiðir skilji
gjarnan eftir stúdentspróf hefur
starfsvettvangur Rannveigar og
margra okkar úr 4-R legið sam-
an þar sem nánast helmingur
bekkjarins fór í læknanám og
nokkrir aðrir í heilbrigðistengt
nám. Hún var samferða okkur í
læknadeildinni fyrstu árin og
þótt hún hafi lokið náminu í
Kaupmannahöfn litum við á hana
sem hluta af útskriftarhópnum
úr læknadeild HÍ 1979.
Leiðir okkar Rannveigar lágu
á ný saman í sérnámi í Örebro í
Svíþjóð þar sem nokkrar íslensk-
ar læknafjölskyldur tengdust af-
ar sterkum böndum. Á ég marg-
ar ljúfar og góðar minningar frá
þeim tíma.
Eitt af því sem einkenndi
Rannveigu var hvað henni var
annt um börn og fóru börn okkar
vinkvennanna ekki varhluta af
gæsku hennar og gjafmildi. Þótt
börnin yxu úr grasi sýndi hún
þeim áfram áhuga og spurði
ávallt um gengi þeirra þegar við
hittumst.
Rannveig var mikil hannyrða-
kona og eru ófá plöggin sem
liggja eftir hana. Barnaföt,
barnateppi, útprjónaðir vettl-
ingar, dúkkuföt og margt fleira
sem hún gaf vinum og vanda-
mönnum af einlægum hug.
Söngur og kórastarf var henn-
ar líf og yndi. Hún var í Hamra-
hlíðarkórnum á menntaskólaár-
unum og seinna í ýmsum kórum,
nú síðast í Óperukórnum þar
sem hún náði að taka þátt í flutn-
ingi á sálumessu Mozarts 6. des-
ember sl., meira af vilja en
mætti.
Rannveig átti farsælan feril í
sínu læknisstarfi og sinnti starf-
inu af alúð og samviskusemi.
Hún var mjög greiðvikin og var
alltaf gott að leita til hennar.
Þrátt fyrir erfið veikindi náði
Rannveig að sinna starfinu fram
undir það síðasta. Hún tókst á
við veikindi sín af miklu æðru-
leysi og hélt reisn sinni alla tíð.
Við minnumst góðrar vinkonu
með hlýju og þakklæti fyrir sam-
fylgdina. Sendum Soffíu móður
Rannveigar, systkinum hennar
og fjölskyldum innilegar samúð-
arkveðjur. Hvíl í friði.
Fyrir hönd bekkjarsystkina
úr 4-R,
Katrín Davíðsdóttir.
Það verður ætíð tilefni sam-
blands kvíða og tilhlökkunar að
hitta nýja skólafélaga. Mennta-
skóli í mótun, nýir kennarar og
nýir nemendur. Þannig var það
haustið 1968 þegar bylting var
yfirvofandi og óvissa við hvert
fótmál. Þetta var haustið sem
þéringar lögðust af í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð.
Flestir minna bekkjarfélaga
voru „nýir“ fyrir mér. Mjög mis-
munandi hæverskir!
Þannig varð Rannveig Páls-
dóttir bekkjarsystir mín. Hæv-
ersk, ljúf og kurteis! Þá sjaldan
sem í henni heyrðist mátti
greina að þar var ekki meðal-
manneskja.
Við áttum oft sameiginlega
gönguleið að skóla loknum þar
sem „heimili“ Rannveigar hjá
frænku hennar var sem næsta
hús, þó um krók væri að fara.
Áttum við oft djúp og spekileg
samtöl.
Seinna leitaði ég til hennar
vegna húðvandamála hjá fjöl-
skyldunni. Enn mætti ég hæv-
ersku, kurteisi og hinum ljúfa
lækni.
Ég votta móður Rannveigar
og systkinum samúð mína. Og
Rannveigu virðingu.
Megi minningin um Rann-
veigu Pálsdóttur heiðrast í vit-
und þinni. Verði hún Guði falin.
Vilhjálmur Bjarnason.
Kær vinkona og samstarfs-
félagi, Rannveig Pálsdóttir, er
fallin frá langt fyrir aldur fram.
Það er sárt að kveðja og á
slíkum tímamótum verður manni
orða vant.
Með Rannveigu er genginn
góður læknir, mikill mannvinur
og kona sem var góður vinur
vina sinna.
Hún var hafsjór af fróðleik
um fræðin, tónlist og menn og
málefni. Svo ótrúlega mannglögg
og ættfróð að maður gat bara
dáðst að þessum hæfileika henn-
ar.
Hún var dugnaðarforkur og
stóð keik sína plikt í starfi þrátt
fyrir veikindin. Sífellt eitthvað
að bardúsa, mæta á kóræfingar,
fara á tónlistarviðburði og undi
sér við lestur góðra bóka.
Handavinna var henni sérstak-
lega kærkomin, þannig sat hún
venjulega prjónandi á fundum og
hafði mikið yndi af. Hún prjónaði
í frístundum sínum og við sam-
starfsfólk og vinir fengum óspart
að njóta þessa fallega handverks
sem hún gaukaði ósjaldan að
okkur. Og það var venjan að
flestir fengu eitthvert handverk í
jólagjöf, vettlingarnir, sokkarnir,
teppin og dúkkufötin, allt bar
þess merki að vera gert af mikilli
alúð og gefið af innileika og hlý-
hug. Við fæðingu lítils frænda
eða frænku var strax kominn
pakki frá Rannveigu.
Henni var augljóslega mjög
annt um fjölskyldu sína, stóra
sem smáa, unga sem aldna og
fylgdist vel með framgangi og
hugðarefnum alls þessa fólks.
Hún lagði greinilega sitt af
mörkum til að styrkja tengsl og
rækta frændgarðinn.
Hún sýndi skjólstæðingum
sínum líka mikla umhyggju og
nærgætni og fylgdi þeim vel
eftir.
Rannveig var söngelsk, söng í
kórum og mikill tónlistarunn-
andi. Hún sótti mikið af tónlist-
arviðburðum sem í boði voru og
hafði greinilega mikla unun af og
naut þess að fylgjast með ungu
tónlistarfólki stíga sín fyrstu
skref á listabrautinni, svo við hin
fengum góðar upplýsingar um
það helsta sem var á döfinni
hverju sinni.
Margt hefur verið rætt og
skrafað á kaffistofunni undanfar-
in ár, og aldrei komið að tómum
kofunum hjá Rannveigu, en nú
er skarð fyrir skildi og kaffitíma-
rnir verða ekki samir eftir fráfall
hennar.
Með þakklæti fyrir ómetan-
lega vináttu til margra ára og
virðingu í huga kveð ég Rann-
veigu og veit að minningar um
hana munu ylja okkur um ókom-
in ár.
Ég sendi móður hennar,
systkinum og fjölskyldunni allri
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Hanna Jóhannesdóttir.
Í dag kveðjum við kæra sam-
starfskonu, Rannveigu Pálsdótt-
ur, húð- og kynsjúkdómalækni.
Ég kynntist Rannveigu fyrst
þegar ég var deildarlæknir á
húð- og kynsjúkdómadeild Land-
spítalans fyrir hartnær 20 árum.
Eitt af því minnisstæðasta við
þessi fyrstu kynni var að Rann-
veig hafði á þessum tíma dregið
úr vinnu til þess að geta sinnt
söngnámi. Ég heillaðist mikið af
þessari ákvörðun hennar sem
gat talist mjög óvenjuleg á þeim
tíma. Því næst lágu leiðir okkar
saman rúmum áratug síðar í
stjórn húðlæknafélagsins og átt-
um við þar marga góða fundi á
heimili hennar í Nóatúni. Enn
síðar unnum við saman á göngu-
deild húð- og kynsjúkdóma á
Landspítalanum þar sem Rann-
veig starfaði af brennandi áhuga
og umhyggju fyrir skjólstæðing-
um sínum.
Í starfi sínu á göngudeildinni
beitti Rannveig sér fyrir marg-
víslegum umbótum á starfi kyn-
sjúkdómadeildarinnar og hefur
sú vinna leitt af sér mikilvæga
þróun í starfsemi hennar.
Fyrir hönd starfsfólks húð- og
kynsjúkdómadeildarinnar vil ég
að leiðarlokum þakka Rannveigu
fyrir samfylgdina og votta að-
standendum hennar innilega
samúð. Megi minningin um góða
konu og góðan lækni lifa.
Elísabet Reykdal
Jóhannesdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVANDÍSAR SALÓMONSDÓTTUR
frá Ketilsstöðum í Mýrdal.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
dvalarheimilisins Hjallatúns fyrir hlýhug og góða umönnun.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til vina og vandamanna fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
SIGNÝJAR GUNNARSDÓTTUR
dagmömmu,
Hörðalandi 16.
Sérstakar þakkir færðar hjúkrunarfólki HERA og líknardeildar
Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð.
Svanhildur Ragnarsdóttir Ragnar Páll Aðalsteinsson
Gunnar Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Við þökkum ykkur, kæru vinir og fjölskylda,
fyrir hlýjar kveðjur, hugulsemi og auðsýnda
samúð vegna fráfalls og útfarar okkar
ástkæra
JÓNS SIGURÐSSONAR
svæfingalæknis,
sem lést laugardaginn 29. desember.
Ásdís Magnúsdóttir
Sigurður Örn Jónsson Sigríður Oddný Guðjónsdóttir
Þorbjörg Jónsdóttir Sæþór Ólafsson
Hermann Páll Jónsson Éva Tóth
Ólafur Sigurðsson Helga Kjaran
afabörn og langafabarn
Elskuleg móðir mín, amma, tengdaamma
og langamma,
GUÐRÚN J. STRAUMFJÖRÐ,
fædd 24. maí 1911,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtu-
daginn 17. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Innilegar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir frábæra
ummönnun og hlýtt viðmót, sem og öllum þeim sem reyndust
henni vel.
Þökkum auðsýnda samúð, guð blessi ykkur öll.
Jón Þórður Ólafsson
Ólafur Örn Jónsson Guðrún Arna Björnsdóttir
Jóhanna Brynja Ólafsdóttir
Kjartan Ingi Jónsson
Nanna Líf Kjartansdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar