Morgunblaðið - 02.02.2019, Qupperneq 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Lífið er skemmtilegur sprettur,“ segir Sigmundur Stefánsson áSelfossi sem er 66 ára í dag. „Tæplega fimmtugur greindistég með afbrigði af sykursýki og fékk hjartaáfall. Þannig opn-
uðust augu mín fyrir mikilvægi hreyfingar og ég byrjaði að hlaupa.
Ætlaði fyrst rólega í
sakirnar en svo jókst
áhugi og þrek. Núna
er ég búinn með 23
maraþonhlaup og
þrjá járnkarla og
finnst orðið tímbært
að hægja sprettinn.“
Sigmundur er bor-
inn og barnfæddur
Selfossbúi; tvíbura-
bróðir hans er Gísli
sem er múrari á Eski-
firði. „Já, taugin milli
okkar bræðranna er
sterk þó svo hann hafi
búið á öðru lands-
horni í áratugi. Þegar
ég kem austur telja
sumir sem þar búa
mig vera Gísla og
sjálfsagt er það svip-
að ef hann sést
syðra,“ segir Sig-
mundur sem var for-
stöðumaður Sundhall-
ar Selfoss og seinna
allra íþróttamann-
virkja bæjarins í um
aldarfjórðung. Var
seinna umsjónarmaður félagslegra leiguíbúða í eigu Sveitarfélagsins
Árborgar.
„Síðustu árin hef ég starfað hjá Jötunn – vélum og er þar að setja
saman og gera við reiðhjól sem mér finnst áhugavert starf rétt eins
og hjólaferðir heilla. Þar get ég einnig tiltekið gönguferðir og kajak-
siglingar, til dæmis í Jökulfjörðum og inni á hálendinu. Svo höfum
við hjónin reglulega farið á skíði í austurrísku Ölpunum; fórum fyrst
1983 og höfum ekki misst mörg ár úr. Erum einmitt á leiðinni þang-
að eftir nokkra daga og tökum dótturdóttur okkar með, en svona
ferðalag með ömmu og afa er alltaf fermingargjöfin okkar,“ segir
Sigmundur sem er kvæntur Ingileifu Auðunsdóttur sjúkraliða. Eiga
þau tvö börn, sex barnabörn og eitt barnabarnabarn. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hlaup Finnst nú orðið tímbært að hægja
sprettinn, segir Sigmundur hér í viðtalinu.
23 maraþonhlaup
og þrír járnkarlar
Sigmundur Stefánsson er 66 ára í dag
S
igríður Anna Guðjóns-
dóttir fæddist í Reykjavík
2. febrúar 1959. Hún gekk
í Breiðagerðisskóla,
Kópavogsskóla og Víg-
hólaskóla og lauk landsprófi vorið
1975. Þá gekk hún í skóla í Fort
Dodge í Iowa þar sem hún dvaldi hjá
vinafólki í hálft ár. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1979, en á mennta-
skólaárunum kynntist hún eigin-
manni sínum, Ragnari Marteinssyni.
Að loknu stúdentsprófi starfaði
Sigríður Anna hjá Sýslumanninum í
Kópavogi þar til hún hóf nám við
Kennaraháskóla Íslands og útskrif-
aðist hún sem grunnskólakennari
vorið 1983. Eignuðust þau dæturnar
Margréti sumarið 1983 og Ragnheiði
haustið 1984. Þau bjuggu í Vestur-
bænum fyrst um sinn og kenndi hún í
Melaskóla í fimm ár. Árið 1989
byggðu þau hús í Garðabæ, en fluttu í
kjölfarið til Danmerkur, þar sem þau
bjuggu í tvö ár. Þar vann hún m.a. við
leikskóla og kennslu íslenskra barna í
Kaupmannahöfn. Árið 1992 fluttu
þau heim og eignuðust sitt þriðja
barn, Guðjón. Hún kenndi við
Æfingadeild KHÍ 1993 og byrjaði
síðan um haustið í Flataskóla í
Garðabæ til aldamóta. Þá kenndi hún
í Snælandsskóla í Kópavogi frá 2001-
2006. Árið 2003 hóf hún meistaranám
Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla – 60 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Ragnar, Guðjón, Sigríður Anna, Ragnheiður, Margrét og tengdasonurinn Garðar.
Ísaksskóli er lítill skóli
en með stórt hjarta
Hjónin Ragnar og Sigríður Anna á afmæli Ragnars í fyrra.
Dalvík Jakob Óttar
Ingvason fæddist 10.
maí 2018 kl. 9.53.
Hann vó 3.808 g og
var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Krist-
ín Heiða Garð-
arsdóttir og Ingvi
Hrafn Ingvason.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
SÉRBLAÐ
Tíska&
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 15. febrúar
Fjallað er um tískuna í förðun,
snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk
umhirðu húðarinnar, dekur o.fl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is