Morgunblaðið - 02.02.2019, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er allt að falla í ljúfa löð í fjöl-
skyldunni eftir óróleika síðustu vikur. Ekki
láta stoltið ráða för þegar þú ræðir málin
því aðgát skal höfð í nærveru sálar.
20. apríl - 20. maí
Naut Breytingar eru í sjónmáli, en þú ert
ekki alveg viss um að þú viljir þær. Brennt
barn forðast eldinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er fullkomlega rétti tíminn til
þess að gera breytingar í starfi. Ræddu
málin við félaga þína og drífðu svo í hlut-
unum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allir gera mistök og þau sem þú
gerir verða til vegna gæsku þíns stóra, von-
góða og saklausa hjarta. Einhver treystir á
þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einbeittu þér að því að vinna gegn til-
finningunni um að þú sért ekki nógu góð/
ur. Ef þú ert foreldri, hafðu þá í huga að
uppeldið hefst strax.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinur gæti fært þér óvæntar fréttir
eða þú gætir hitt kostulega manneskju, sem
mun ekki láta þér leiðast. Einhver sem þú
þekkir gerir ekki eins og þú vilt og það sær-
ir þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fólk hefur mikla þörf fyrir að telja aðra
á sitt band í dag þar sem allir telja sig hafa
á réttu að standa. Þú ættir að láta lækni
hlusta þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er engin ástæða til að láta
minniháttar deilur komast upp á milli vina.
Þér hættir til að sjá bara vandamál, ekki
lausnir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert til í að íhuga samband
sem virtist vond hugmynd í gær. Hressileg
skoðanaskipti við makann eru bara af hinu
góða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú stekkur fram á við fjárhags-
lega með því að gera það sem þér finnst
skemmtilegt. Farðu varlega í umferðinni.
Einhver sendir þér vinabeiðni sem þér líst
ekkert á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dragðu það fram eftir degi að
ganga frá hvers konar kaupum eða samn-
ingum. Ekki leika píslarvott, þú ert það ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Reyndu að taka á vandamálum sem
tengjast bílnum þínum. Láttu þau ekki fara í
taugarnar á þér þar sem þetta er aðeins
tímabundið ástand. Skemmtilegt afmæli er
framundan.
Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson:
Veiðisvæði á Faxaflóa.
Fræðigrein það kalla má.
Fáum af þeim fylli nóga.
Fjölum þess er leikið á
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Ýmsir sækja út á Svið.
Ótal svið í fræðum.
Af sviðum fylli fáum við.
Fjalir sviðs við ræðum.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Þorsk á Sviði Solla dró
í sekk frá Raunvísindasviði.
Í sviðakjamma hjó og hló
að hugsun um leiksviðsatriði.
Helgi R. Einarsson er kominn
heim frá Grænhöfðaeyjum og byrjar
á að því að leysa gátuna, – auðvitað!
Ef með stórum staf, þá mið.
Starfsvettvangur fyrir lið.
Á þorranum fara þau í kvið.
Á því má leika. Kallast svið.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Svið er mið á Faxaflóa.
Fræðasvið hér nefnum við.
Af sviðum fæ ég fylli nóga.
Flutt á sviði er leikritið.
Þá er limra:
Kattfim hún kleif alla tinda
með kameru til þess að mynda
hið torfarna svið
að túrhesta sið
tindabikkjan hún Linda.
Og síðan er ný gáta:
Ögn mér líður alltaf skár,
ef ég fæ mér viskítár
myglaður að morgni dags
og má þá gátu semja strax.
Vont umtal hér varast ber.
Víst það handan fjallsins er.
Að aftanverðu á þér sést.
Upp á klárinn hefur sest.
Indriði á Skjaldfönn skrifaði í fés-
bókina á þriðjudag að þessi vísa,
höfð eftir Sigmundi Davíð, hefði
borist sér í hendur rétt í þessu:
Bergþór kappinn, bregst ei mínum
vonum.
Bráðum fer að hækka Klaustursólin.
Einn af flokksins allra bestu sonum.
Algerlega rígbundinn við stólinn.
Ármann Þorgrímsson bætti við:
„Lætur sér ekki bregða við smá-
muni.
Verður áfram formaður umhverf-
is- og samgöngunefndar“:
Bergþóri enginn bregða sá
blæs á svona hrellingar.
Ekkert lætur á sig fá
þó eitthvað tuði kellingar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er margt sviðið
Í klípu
„veriÐ RÓLEG. ÞETTA ER EKKI FALL –
ÞETTA ER LEIÐRÉTTING.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„þú hefur bætt á þig eftir aÐ þú
hættir aÐ reykja!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... eitthvað sem ekki er
hægt að baktryggja.
OG HEFURÐU
GRENNST?
ÞÚ LÍTUR
VIRKILEGA
VEL ÚT LÍSA
FLÝJA-LAND-
OG-TAKA-UPP-
NÝTT-AUÐKENNI
VONDUM MÁLUM
JÓN HLÝTUR AÐ
VERA Í VONDUM
MÁLUM
ER ÞETTA
NÝ HÁR-
GREIÐSLA?
Ó, AFAR
VONDUM MÁLUM
Í HVERJU SÉRHÆFIRÐU
ÞIG?
AÐ GRAFA GÖNG!
HRÓLFUR, ÞESSI GAUR HEFUR FARIÐ
INN OG ÚT ÚR FANGELSUM Í GEGNUM
TÍÐINA OG HANN VILL GANGA TIL
LIÐS VIÐ OKKUR!
Reiðufé ratar æ sjaldnar í hendurVíkverja. Það er helst í útlönd-
um að hann gerir sér far um að vera
með reiðufé í vösunum, en heima fyr-
ir eru beinharðir peningar eiginlega
orðnir óþarfir. Eins og flestir lands-
menn veifar Víkverji greiðslukorti
þegar hann þarf að borga og stutt
mun vera í að síminn taki við af plast-
inu. Þá mun duga að vera með sím-
ann í námunda við kassann til að
borga. Víkverji vonar bara að hann
borgi ekki fyrir alla aðra í búðinni í
leiðinni.
x x x
Fátt mælir orðið með því að gangaum með reiðufé. Einhvern tím-
ann var það þannig að kaupmenn
buðu afslátt ef borgað var með
reiðufé, en sú tíð er liðin. Kostn-
aðinum af kortunum, færslugjöldum
og þvíumlíku, er velt yfir á alla við-
skiptavini, sama hvernig þeir borga.
Fyrirtækið VISA í Bretlandi hefur
meira að segja þrýst á fyrirtæki að
láta af notkun reiðufjár og nota þess í
stað rafræna greiðslumiðla. Þótt
notkun rafrænna greiðslumiðla fær-
ist í vöxt hefur einnig verið talað um
að meira sé í umferð í heiminum af
dollurum, pundum og evrum en áður.
Reiðufé er hvergi í heiminum notað
jafn lítið og á Norðurlöndunum.
Hlutfall reiðufjár í umferð var lengi
vel 1% af vergri landsframleiðslu, en
fór í 2% eftir hrun bankanna og hefur
verið svipað síðan. Í því sambandi er
hins vegar rétt að hafa í huga að er-
lendir ferðamenn hér á landi notast
mikið við reiðufé og skýrir það aukn-
inguna í það minnsta að hluta.
x x x
Yfirleitt breytir það engu fyrir Vík-verja þótt hann sé bara með
greiðslukort. Nýlega kom það sér þó
vel að hann skyldi vera með seðla í
vasanum. Víkverji stóð aftast í langri
biðröð eftir miðum á íþróttakappleik,
sem var í þann mund að hefjast, og
posarnir voru ekki sérlega hrað-
virkir. Þá var spurt hvort einhver
væri með handbært reiðufé. Víkverji
var akkúrat með fyrir miðanum og
var kominn með miða í hendur um
leið. Þegar hann gekk inn í salinn var
flautað til leiks. Fyrir aftan hann var
biðröðin og færðist hægt.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Allir vegir Drottins eru elska og trú-
festi fyrir þá sem halda sáttmála hans
og boð.
(Sálm: 25.10)