Morgunblaðið - 02.02.2019, Blaðsíða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2019
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudagur 3.2. kl. 14. Barnaleiðsögn
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal
Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal
Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur
úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON
OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
- HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
Hinn kunni kanadíski fornfræð-
ingur, rithöfundur og ljóðskáld
Anne Carson kemur fram í menn-
ingarhúsinu Mengi við Óðinsgötu á
sunnudagskvöld kl. 21. Þar mun
hún í samstarfi við eiginmann sinn
Robert Currie, James Merry og
dansarana Aðalheiði Halldórs-
dóttur, Ásgeir Helga Magnússon og
Höllu Þórðardóttur flytja verkið
Possessive Used As Drink (Me) – A
Lecture On Pronouns in the Form
of 15 Sonnets.
Einnig flytja skáldin Ragnar
Helgi Ólafsson og Ásta Fanney Sig-
urðardóttir ljóðagjörninga.
Anne Carson er eitt virtasta
skáld Norður-Ameríku og marg-
verðlaunuð fyrir verk sín. Hún er
einnig höfundur prósaverka og
rómaðra ritgerðasafna, prófessor í
klassískum bókmenntum og virtur
þýðandi klassískra verka, til dæmis
eftir Saffó og Evripídes. Hún er
þekkt fyrir athyglisverðar tilraunir
með formin og framsetningu.
Anne Carson ásamt
félögum í Mengi
Flytja verk Carson og gjörninga
Morgunblaðið/Einar Falur
Listakonan Carson í Reykjavík fyrir áratug, er hún vann í Vatnasafni.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Einkasýningar tveggja myndlistar-
manna verða opnaðar í Kling &
Bang í Marshall-húsinu í dag, laug-
ardag, klukkan 17. Endurendurreisn
kallar Sigurður Ámundason sýningu
sína en sýning Geirþrúðar Finn-
bogadóttur Hjörvar nefnist upp á
ensku Desargues’s Theorem Lect-
ure and Three New Sculptures.
Við opnunina frumflytur Sigurður
nýjan gjörning. Þegar gengið er inn í
salina með verkum hans má sjá stór-
ar teikningar í litum, sem hann hefur
getið sér gott orð fyrir, en þar er líka
innsetning og skjáir með mynd-
bandsverkum af gjörningum hans,
og á nokkrum stöðum eru skúlptúrar
úr svörtum ruslapokum og límbandi;
það er eins og lík séu í þeim.
„Ég hef aðallega unnið með gjörn-
inga og teikningar en mér finnst allir
miðlar jafnir og ég fæ hugmyndir að
verkum í ýmsa miðla,“ segir Sig-
urður. „Ég vil nýta tækifærið sem
þessi sýning gefur mér til að koma
sem mestu frá mér.“
Sigurður útskrifaðist frá mynd-
listardeild LHÍ árið 2012. Hann hef-
ur tekið þátt í fjölda samsýninga, hér
heima og erlendis, en þetta er hans
níunda einkasýning og sú viðamesta.
„Já, þetta eru bara lík,“ svarar
hann glottandi þegar spurt er út í
pokaskúlptúrana. „Þetta er dauðinn,
endir alls. Ætli það sé ekki bara ég
sem er þarna í. Dauðinn er sterkt
tákn. Annars fjallar sýningin um
manninn og mannlega hegðun. Í
verkunum er ég líka að fást við mína
innri púka. Ég þekki ekki persónu-
lega blóðug stríðsátök en kýs að
fjalla um persónulegar orrustur sem
við heyjum öll við okkur sjálf og við
fólkið í kringum okkur. Gjörning-
arnir mínir fjalla gjarnan um átök
um vald og hvernig fólk fer hvert
með annað og ráðkast með aðra,
jafnvel þótt það sé með augnaráðinu
einu.“
Myndmál teikninga Sigurðar
byggist mikið á ævintýrum og goð-
sögnum. „Ég nota þessi frægu tákn
til að fjalla um baráttu einstaklinga
og stundum innra með mér sjálfum,“
segir hann.
Að sannfæra áhorfandann
Geirþrúður Finnbogadóttir
Hjörvar nam við LHÍ og Konst-
högskolan í Malmö og hefur hún
unnið að margvíslegum verkefnum
og haldið sýningar víðs vegar um
lönd. Þegar gengið er inn í sýning-
arsali Kling & Bang taka á móti
gestum skúlptúrar hennar sem
byggðir eru á þríhyrningsformum
og þar er líka 25 mínútna athyglis-
vert myndbandsverk um formin þar
sem listakonan flytur athyglisverða
tölu og ríkulega myndskreytta, í
anda TED-fyrirlestra, um svokall-
aða „þeorem-kenningu“ 17. aldar
stærðfræðingsins Desargues en hún
fjallar um þríhyrningshlutföll og
sjónarhorn.
Geirþrúður viðurkennir brosandi
að við gerð myndbandsverksins hafi
hún haft form TED-fyrirlestra í
huga. „Í samtímanum er ákveðin
menning þar sem fólk reynir að
sannfæra hvert annað um gildi ein-
hverrar skoðunar og það má oft sjá í
TED-fyrirlestrum þar sem reynt er
að „selja“ manni hugmynd. Hér
reyni ég að sannfæra áhorfandann
um mína sýn á geómetríu. Ég hef
líka áhuga á að finna myndlíkingu
hugmyndarinnar og tala í því sam-
bandi um loftsteina og fleira.“
Og hún tengir talið við mynd-
listina.
„Já, meðal annars. Og við dæmi-
söguna sem slíka. Allt sem við segj-
um er táknmynd fyrir eitthvað ann-
að, maður getur sagt eitt en meint
annað.“ Og Geirþrúði finnst áhuga-
vert í því sambandi þegar hlutir og
fyrirbæri taka að breyta um merk-
ingu. Í verkum listamanns séu svo
margar leiðir og hún sýnir fram á
það í þrívíðri úrvinnslu skúlptúranna
á sýningunni, út frá kenningunni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Átök „Í verkunum er ég líka að fást við mína innri
púka,“ segir Sigurður Ámundason um viðfangsefnin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fyrirlestur Að baki Geirþrúði Finnbogadóttur Hjörvar
er myndbandsverk þar sem hún fjallar m.a. um fjarvídd.
Mannleg hegðun og
kenningar um hlutföll
Tvær einkasýningar opnaðar í dag í Kling & Bang
Á dagskrá Tíbrártónleikaraðarinnar í Salnum kl. 20 á
sunnudagskvöld eru tveir sönglagaflokkar sem sjaldan fá
að hljóma í heild sinni á Íslandi. Flokkarnir eru fyrir
blandaðan kvartett og píanó. Annars vegar Ástarljóða-
valsar Johannesar Brahms sem eru létt og leikandi söng-
lög fyrir kvartett og fjórhent píanó og fjalla um yndi og ör-
væntingu ástarinnar. Hins vegar Spanisches Liederspiel
eða Spænskur ljóðaleikur eftir Robert Schumann þar sem
raddirnar njóta sín í spænskri sveiflu í dúettum, kvart-
ettum og einsöng.
Flytjendur eru Fjölnir Ólafsson, barítonsöngvari og
klassískur gítarleikari, Hanna Dóra Sturludóttir mezzó-
sópran, Hrafnhildur Árnadóttir sópran, Hrönn Þráins-
dóttir píanóleikari, Matthildur Anna Gísladóttir, píanóleik-
ari og óperuþjálfi, og Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór.
Schumann samdi Spænska ljóðaleikinn árið 1849, en
flestir textarnir eru þýðingar á spænskum ljóðum eftir
óþekkta höfunda. Úr verður eins konar „ljóðasöngleikur“,
sem ýmist er sungin sem sóló, dúett eða kvartett. Lýrík
Schumanns fær að njóta sín í lögunum en þar gætir einnig
áhrifa spænskrar tónlistar.
Ástarljóðavalsar Brahms frá árinu 1868 eru átján stutt
lög fyrir fjórar raddir og fjórhent píanó. Lögin eru í svo-
kölluðum Ländler-stíl, sem er þjóðdans í þrískiptum takti
frá Sviss, Austurríki og Þýskalandi. Ljóðin eru ýmist ást-
arljóð eða þjóðlög.
Ástarvalsar og spænsk sveifla
Fjölnir
Ólafsson
Hrafnhildur
Árnadóttir
Hanna Dóra
Sturludóttir
Hrönn
Þráinsdóttir
Matthildur Anna
Gísladóttir
Þorsteinn Freyr
Sigurðsson
Sönglagaflokkar fyrir blandaðan kvartett og píanó í Salnum