Morgunblaðið - 02.02.2019, Qupperneq 52
laugardaga frá kl. 11 til 17
sunnudaga frá 13 til 17
Sími 568 9512
Opið virka daga frá kl. 11 til 18
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
afsláttur af
öllum vörum
Rým
ing
Lokadagar
80%
Guðrún Ösp Sævarsdóttir messó-
sópran og Helga Kvam píanóleikari
flytja afrísk-ameríska vinnusöngva
frá tímum þrælahalds á tónleik-
unum Þrælar kl. 20 í kvöld í Hann-
esarholti. Vinnusöngvarnir eru við
útsetningar tónskáldsins og klass-
íska söngvarans Harry T. Burleigh
(1866-1949), sem var þekktur fyrir
sína fögru barítónrödd.
Afrísk-amerískir
vinnusöngvar þræla
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.108 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Það er enginn heilagur sannleikur í
markmannsþjálfun, hvernig á að
gera hlutina. Það eru allir með mis-
munandi styrkleika og veikleika og
það á að vinna með það sem maður
hefur. De Gea notar sína styrkleika,“
segir Gunnleifur Gunnleifsson knatt-
spyrnumarkvörður um David de Gea,
markvörð Manchester United, og
óvenjulega tækni hans. » 1
Það á að vinna með
það sem maður hefur
Leikritin Tölvuvírusinn eftir Iðunni
Ólöfu Berndsen, 11 ára, og Frið-
þjófur á geimflakki eftir Sunnu
Stellu Stefánsdóttur, 7 ára, verða
sýnd saman kl. 13 á Litla sviði Borg-
arleikhússins um helgina, 2. og 3.
febrúar. Iðunn Ólöf og Sunna Stella
unnu leikritasamkeppnina Krakkar
skrifa sem Borgarleikhúsið stóð að
í samstarfi við RÚV og KrakkaRÚV.
Alls bárust hátt í 50 leikrit frá 6-12
ára börnum.
Leikarar eru þau Edda
Björg Eyjólfsdóttir,
Davíð Þór Katr-
ínarson, Halldór
Gylfason, Haraldur
Ari Stefánsson og
Jóhann Sigurð-
arson. Halldór
Gylfason leikstýrir.
Tölvuvírus og geim-
flakk á Litla sviðinu
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fannhvít jörð er þessa dagana á
landinu öllu og í frostinu er fallegt
vetrarveður. Það skapar tækifæri og
víða hafa á snjóbreiðunum verið út-
búnar brautir fyrir skíðagöngufólk,
svo sem austur á Þingvöllum.
„Nei, við höfum aldrei gert neitt
þessu líkt áður, en núna vildum við
koma til móts við sístækkandi hóp
fólks sem stundar þetta sport. Að-
stæðurnar sem bjóðast eru sennilega
hvergi betri en hér,“ segir Guðjóna
Björk Sigurðardóttir, rekstrarstjóri
Þjóðgarðsins á Þingvöllum, í samtali
við Morgunblaðið.
Skemmtilegt sport
Skíðagöngubrautir á Þingvöllum
eru tvær. Sagt er best að leggja bíln-
um við Vallakrók rétt neðan við Öx-
arárfoss. Þaðan liggur leiðin til aust-
urs í átt að Skógarkoti; hvaðan fara
má í Vallakrók, Skógarkot, Hraun-
tún og þaðan til baka en þessi krókur
er um 10 kílómetra langur. Einnig er
hægt að fara ámóta langan spotta til
austurs í átt að svonefndum Tjörn-
um, þaðan vestur eftir vegi 361 að
Peningagjá, fara þar yfir brúna og
fylgja svo veginum norður aftur að
Vallarkróki.
„Hér hefur snjóað talsvert að und-
anförnu og brunagaddur dag eftir
dag; gjarnan í kringum tíu stig. Með
þessu hafa myndast góðar aðstæður
til að vera á gönguskíðum sem er
náttúrlega mjög skemmtilegt sport,“
segir Guðjóna. „Við fengum að láni
spora til að marka brautir með og
Kolbeinn Sveinbjörnsson á Heiðarási
í Þingvallasveit, sem sinnir marg-
víslegri verktakavinnu hér í þjóð-
garðinum, fór með verkfærið góða í
eftirdragi á vélsleðanum sínum og
myndaði þannig göngubrautirnar.
Núna er bara að vona að snjórinn
haldist eitthvað, svo þessara gæða
njóti við sem lengst því gönguskíði
eru mjög þægilegur ferðamáti um
skógi vaxin hraunin hér.“
Lokkar Íslendinga
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir,
verkefnisstjóri á Þingvöllum, segist
vænta þess að aðstaða til skíðagöngu
lokki Íslendinga austur næstu daga.
Raunar vegur landinn ekki mikið í
heildarfjölda gesta þjóðgarðsins, þar
eru ferðamenn af fjarlægri slóð alls-
ráðandi. „Núna er nýárið að renna
upp í Kína og skólafrí að hefjast í
Bretlandi og þá koma margir til Ís-
lands. Það er oft mikil aðsókn hér í
febrúar,“ segir Jóna.
Skíðaganga Vetrarsólin er falleg þessa dagana og útivera í snjónum bætir, hressir og kætir eins og þar stendur.
Fannhvítar brautir
Skíðaganga á Þingvöllum við allra bestu aðstæður
Troðnar slóðir langar leiðir Brunagaddur dag eftir dag
Gestgjafi Mikil aðsókn í febrúar, segir
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir.