Morgunblaðið - 12.02.2019, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Íslensk hönnun og framleiðsla
/solohusgogn
Ásgeir Einarsson
hönnuður Sindrastólsins
(1927 – 2001)
SINDRASTÓLLINN
Sindrastóll
185.000,-
Sófaborð
79.700,-
(hægt að fá í nokkrum
viðartegundum).
Stendur algerlega með Hallgerði
Hún hefur stúderað skapferli persóna í Njálssögu, enda var hún í tvö ár að teikna og tala við persónur úr Njálu fyrir Njálurefilinn langa.
Það voru hæg heimatökin að taka þátt í sýningu sem er innlit í Brennu-Njálssögu. Kristín Ragna er heilluð af norrænum goðsögum.
Morgunblaðið/Eggert
Kristín Ragna Norrænar goðsagnir finnst henni mergjaðar, þar sem persónur eru breyskar og margbrotnar.
Getum við sett okkur í spor
Njáls, Gunnars, Hallgerðar og
Bergþóru? Er almenningsálitið
að drepa okkur eða er það
kannski það eina sem heldur í
okkur lífi? Áður fyrr var orðstír
þinn byggður á skoðunum fólks
og orðum þess. Verður orðstír
þinn í framtíðinni ákvarðaður af
tilviljunarkenndum algóritmum
snjallsamfélagsins? Svo segir í
tilkynningu frá Borgarbókasafn-
inu um innsetningu Gagaríns á
sýningunni Ertu alveg viss?
Stutt innlit í Brennu-Njálssögu,
sem verður í Grófinni. Þar verð-
ur notuð myndgreiningartækni
til að greina svipbrigði og
tengja þannig við tilfinningar
fólks við lestur Brennu-Njáls
sögu. Sýningin verður opnuð 14.
febrúar og þá mun Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur
halda erindi um sæmd og
skömm í Brennu-Njáls sögu.
Sýningin fer síðan til Noregs og
Danmerkur.
Ertu alveg
viss?
STUTT INNLIT Í
BRENNU-NJÁLS SÖGU
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta er tvíþætt sýning, ann-ars vegar mín túlkun áNjálssögu í formi tólfmynda og hinsvegar
spennandi innsetning sem Gagarín
vinnur, þar sem gestir taka þátt í
gagnvirku listaverki en það kemur
inn á skapferli og ákvarðanatöku hjá
fólki. Lundarfar nokkurra þeirra
meginpersóna Njálu sem ég dreg
fram, hafði einmitt miklar afleiðingar
í för með sér og mikil áhrif á fram-
vindu þeirrar sögu,“ segir Kristín
Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur og
teiknari, en tólf myndir eftir hana
eru hluti af sýningu sem er innlit í
Brennu-Njáls sögu, og opnuð verður
á Borgarbókasafninu síðar í vikunni.
„Myndirnar mínar eru af nokkr-
um atburðum úr Njálssögu sem
höfðu keðjuverkandi áhrif, þar sem
eitt leiddi af öðru og átti upptök sín í
skapgerð fólks. Til dæmis samskipti
Gunnhildar drottningar og Hrúts, en
hún var seiðkona sem sætti sig ekki
við svik hans í ástum þegar hann yf-
irgaf hana og lagði á hann þau álög
að hann gæti ekki gagnast konu sinni
Unni Marðardóttur heima á Íslandi.
Sem varð til þess að hjónaband
þeirra fór út um þúfur og það leiddi
af sér enn aðra örlagaríka atburði.
Ég er líka með mynd af því þegar
Hallgerður neitar að láta Gunnar
hafa hárlokk í bogann sinn og mynd
af Njáli og Bergþóru. En þegar Hall-
gerður og Bergþóra mæta á sviðið
fer blóðið að renna. Skapharka
þeirra skiptir sköpum.“
Gaf konum Njálu svigrúm
Þau eru hæg heimatökin hjá
Kristínu Rögnu að sækja myndefni í
þann brunn sem Njála er, því hún
teiknaði á sínum tíma upp allar
myndir hins margfræga Njálurefils,
en hann geymir myndir af atburðum
úr Njálssögu sem saumaðar hafa
verið út í hann undanfarin sex ár og
er verkið langt komið.
„Ég hef vissulega stúderað
skapferli allra þessara per-
sóna sem koma fyrir í
Njálssögu, enda var ég
næstum tvö ár í því að
teikna og tala við per-
sónur úr Njálu. Þar sem
refillinn er 90 metra
langur þá get ég rak-
ið söguna þar í
smáatriði.
Þar legg ég
mig fram
um að gefa
konunum í
verkinu
svigrúm,
þar er til
dæmis rak-
inn aðdrag-
andi hjónabanda Hallgerðar áður en
hún giftist Gunnari, því það sem
gerðist í þeim hefur áhrif á hvernig
hún bregst við kinnhesti Gunnars,
sem reynist þriðji kinnhesturinn.
Hinir mennirnir tveir höfðu einnig
löðrungað hana. Hún verður því fyrir
ítrekuðu heimilisofbeldi, sem hún
ekki sættir sig við. Ég stend því al-
gerlega með Hallgerði,“ segir Krist-
ín Ragna og vekur athygli á annarri
konu í Njálu sem henni finnst mjög
áhugaverð, en það er Hildigunnur
Starkaðardóttir.
„Hún giftist Höskuldi sem verð-
ur Hvítanesgoði, en þegar hann er
drepinn þá tekur hún skikkju hans
blóðuga og varpar henni yfir Flosa
frænda sinn og krefst þess að hann
hefni. Og út frá því verður brennan.
Þessar tvær konur, Hildigunnur og
Hallgerður, hafa afgerandi áhrif á
gang mála, án þeirra væri engin
Njálssaga. Fyrir vikið finnst mér
þessar konur alveg magnaðar sögu-
persónur.“
Drögum fjársjóðinn fram
Norrænar goðsagnir hafa lengi
verið Kristínu Rögnu hugleiknar,
þangað sækir hún efnivið bæði í bæk-
ur sem hún skrifar fyrir börn sem og
þær sem hún myndskreytir fyrir
aðra.
„Þessar sögur geyma mergjað
efni, persónusköpunin er virkilega
spennandi, persónurnar eru breysk-
ar og margbrotnar. En þar fyrir utan
er þessi arfur allt í kringum okkur,
við sjáum hann í götunöfnum og það
er sífellt verið að vitna í þetta. Mér
finnst skipta miklu máli að bera
þennan efnivið fram á lifandi hátt aft-
ur og aftur, að þetta sé hluti af okkar
menningarumhverfi og að við leikum
okkur með þetta. Við eigum að draga
þennan fjársjóð sem oftast fram og
tala um þetta og speglum okkur í
þessu. Það er
áríðandi að
opna þennan
heim fyrir
krökkum og fá
þau til að vera
þátttakendur,“
segir Kristín
Ragna sem hefur
lagt sitt af mörkum
þar, því hún hefur
m.a. skrifað þrjár
bækur um Úlf og
Eddu, þar sem hún
dregur nútímabörn inn
í goðsögur. Og nú seg-
ist hún vera að skrifa
alveg nýja barnabók
sem hafi skírskotun
yfir í goðheima, en
gerist þó í nútíman-
um.
Heimilisofbeldi
Gunnar rekur Hall-
gerði löðrung. Þrír
armar á lofti, tveir
úr fyrri hjónabönd-
um. Hún fékk nóg.
Svik Gunnhildur drottning
leggur álög á Hrút þegar
hann yfirgefur hana.