Morgunblaðið - 12.02.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.02.2019, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019 ✝ Pétur Péturs-son fæddist 30. desember 1943 í Reykjavík. Hann lést á Gran Canaria 16. janúar 2019. Foreldrar hans voru Guðfinna Ár- mannsdóttir, f. 11. september 1910, húsmóðir í Reykja- vík, og Pétur Finn- bogi Runólfsson, f. í Winnipeg í Kanada 19. júní 1908, fulltrúi tollstjóra. Pétur var yngstur af sjö börnum þeirra hjóna. Systkini Pétursson,f. 1.12. 1935, d. 22.10. 1983, var kvæntur Rut Sörensen, þeirra börn eru Garðar, Kristín og Ásdís. Ár- mann Pétursson, f. 11.1. 1939, kvæntur J. Kristínu Dagbjarts- dóttur, þeirra börn eru Hildur Katrín, Guðfinna og Pétur Geir. Helga Sigríður Péturs- dóttir, f. 15.3. 1940, gift Krist- jáni A. Jónssyni, þeirra börn eru Guðfinna Ósk og Ólöf Björg. Pétur var ókvæntur og barnlaus. Hann var til heimilis í Hátúni 12. Bálför var 25. janúar á Gran Canaria. Útför Péturs fer fram frá Áskirkju í dag, 12. febrúar 2019, klukkan 13. Péturs í aldurs- röð: Ásgeir Pét- ursson, f. 23.2. 1932, d. 12.12. 2010. Hann bjó í Danmörku, kvæntur Solvejg Ívarsen, þeirra börn eru Thor- mod, Thorstein og Bjarni. Ólöf Pét- ursdóttir, f. 24.8. 1933, d. 23.9. 1997, var gift Bjarna Árnasyni, hún var barnlaus. Runólfur Finnbogi Pétursson, f. 1934, d. 1935. Dó á fyrsta ári. Runólfur Að hittast og kveðjast er lífs- ins saga en alltaf viljum við hafa okkar nánustu sem lengst hjá okkur. Hann kvaddi okkur hann Pétur mágur minn óvænt. Hann var hjá okkur á jólunum og hann var spurður hvernig heilsan væri, hann bar sig vel eins og venjulega og gerði lítið úr veik- indum. Hann var að fara í sína ár- legu ferð í janúar og hlakkaði til. Pétur ólst upp á Sólvallagötu, gekk í Melaskóla, síðar í Laugar- nesskólann og lauk sínu skyldu- námi þar, síðan lá leið Péturs í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann stundaði nám í bifreiða- smíði. Pétur tók bílpróf um leið og aldur leyfði og síðan meirabíl- próf. Pétur vann hjá ýmsum fyr- irtækjum sem bifreiðastjóri og lagermaður meðan heilsan leyfði. Tveir gamlir vinir Péturs höfðu samband við fjölskylduna, þeir Pétur Joensen og Benedikt R. Jóhannesson, þeir urðu vinir Pét- urs á hans yngri árum, bæði í Farfuglum og sunddeild KR, einnig unnu þeir saman hjá Blikksmiðju JBP (Jóns Bjarna Péturssonar) þar sem Pétur vann við útkeyrslu, var mjög ánægjulegt að rifja upp með þeim, skemmtilegar minningar. Pétur var mikill áhugamaður um íþróttir og gerðist snemma áhugasamur um sundíþróttir og var virkur um árabil í sunddeild KR. Pétur var virkur félagi í Far- fugladeild Reykjavíkur, með þeim ferðaðist hann um landið. Um tíma var hann umsjónar- maður Farfuglaheimilisins á Laufásvegi. Í eitt skiptið sem oft- ar var Pétur ásamt vini sínum í Farfuglum á leið inn í Þórsmörk gangandi frá þjóðvegi að vetrar- lagi, veðrið versnaði og var orðið varasamt að halda áfram, þá var ekki annað í boði en koma sér í svefnpoka fyrir nóttina. Þeir fóru í pokana öfugt, þ.e. með höfuðið þar sem fæturnir eru venjulega, þeir voru lúnir eftir gönguna, sofnuðu fljótt og sváfu vel eins og heima í rúmi. Um morguninn héldu þeir áfram, veðrið hafði lagast og þegar þeir komu í skál- ann var þeim sagt að um nóttina hefði verið 12 stiga frost og þetta þótti fréttnæmt og birtist mynd í Vísi af þeim félögum með svefn- pokana góðu. Þeir höfðu brugðist hárrétt við aðstæðum og varð ekki meint af. Aðaláhugamál Péturs voru fjallaferðir og ferðalög um Ís- land. Mikill útivistarmaður og átti ekki langt að sækja áhugann, faðir hans var mikill útivistar- maður og var fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands um árabil, faðir hans keypti sér litla rútu til að allir kæmust með og ferðaðist með fjölskylduna um landið. Eftir að móðir Péturs lést bjó hann einn áfram í íbúðinni í Nóa- túni. Hann átti alltaf athvarf hjá Ólöfu systur sinni sem reyndist honum eins og besta móðir. Það var honum mikill missir þegar hún féll frá. Þegar Pétur var þrítugur urðu straumhvörf í lífi hans, þessi ungi orkubolti veiktist alvarlega og beið hann þess ekki bætur, afleið- ingararnar fylgdu honum til ævi- loka. Pétur vildi taka þátt í lífinu, hann vann um tíma sem baðvörð- ur í Vogaskóla. Hann lét ekki fötl- un sína aftra sér frá því að ferðast, ekki bara innanlands með vinum sínum Lárusi heitn- um og sonum hans hjá Snæland Grímssyni sem buðu honum með í ferðir, heldur líka einn vítt og breitt um heiminn. Meðal annars fór Pétur nokkrum sinnum til Danmerkur í heimsókn til Ás- geirs bróður síns og fjölskyldu, einnig í lengri ferðir m.a. til Kenía, Singapúr og Taílands. Við í fjölskyldunni vorum oft undr- andi á dugnaði hans og ákveðni að gera það sem honum fannst skemmtilegast, að ferðast, sjá nýja staði og menningu. Hann ferðaðist alltaf einn, en í skipu- lögðum ferðum, aðdáunarvert þar sem Pétur talaði aðeins ís- lensku og var ekki alltaf skýr- mæltur. Síðustu árin var Pétur á Gran Canaria alltaf á sama tíma og á sama hóteli, þar undi hann sér vel og fór um á skutlu, hann lést þar 16. janúar síðastliðinn. Nú er Pétur mágur minn far- inn í sína hinstu ferð. Góða ferð, kæri vinur. Kristín Dagbjartsdóttir. Minningar okkar ná mislangt aftur einfaldlega vegna aldurs- munar okkar frænknanna en all- ar eigum við það sameiginlegt að minnast Péturs frænda sem mik- ils áhugamanns um ferðalög og ættfræði. Pétur veiktist alvarlega um þrítugt og varð aldrei samur eftir það. Hann átti erfitt með gang og tal. Lengi vel gekk hann þó víða en svo kom að því að skutlan var það sem hann treysti á. Pétur hafði áhuga á og gaman af því að ræða um ferðalög, sér- staklega innanlands. Hann hafði ferðast víða um landið áður en hann veiktist og þekkti það vel. Pétur átti erfitt með tal en það hamlaði ekki því að við ættum okkar samræður, það þurfti bara að tala saman á annan hátt en þeir gera, sem ekki eiga erfitt með tal. Hann var með meirapróf og keyrði rútur, þegar hann gat það ekki lengur þá fékk hann að njóta þess að sitja í með öðrum rútubíl- stjórum á ferðalögum um landið, langar okkur að nefna að Lárus heitinn hjá Snæland Grímssyni var honum alla tíð mjög velvilj- aður, sem og aðrir sem þar starfa. Pétur frændi var líka mikill áhugamaður um ættfræði. Hann var búinn að grúska mikið og gat frætt okkur um frændgarð okk- ar. Þetta var mikill fróðleikur sem vonandi nær til næstu kyn- slóðar. Það eru óteljandi minningar sem við systkinabörnin eigum frá góðum stundum í Skerjafirðinum hjá Ólöfu og Bjarna manninum hennar, en þar komu systkinin og fjölskyldur þeirra oftast saman. Ólöf passaði alltaf sérstaklega vel upp á yngsta bróður sinn, hún féll frá eftir stutt veikindi haustið 1997. Það var okkur öllum mikið reiðarslag og ekki síst Pétri, held að við getum sagt að missir hans var hvað mestur. Eftir því sem árin liðu og við systkinabörnin stofnuðum okkar eigin fjölskyldur, þá hélst samt sá fasti liður að bjóða Pétri frænda í öll samsæti. Pétri þótti gaman að hitta fjölskylduna, systkini sín og af- komendur þeirra. Hann fylgdist vel með okkur og þótti vænt um að vera boðið með þegar eitthvað var um að vera. Ferðalög voru líf hans og yndi en svo færðist aldurinn yfir og Pétur átti erfiðara með að ferðast heimsálfanna á milli. Hann hélt samt áfram að ferðast, fór bara í öðruvísi ferðir. Nú í seinni tíð valdi Pétur að ferðast til Gran Canaria, hann fór alltaf á sama tíma ársins í janúar og dvaldi þar í einn mánuð. Hann hlakkaði alltaf mikið til og naut þess að vera þar, í sól og hita. Síðastliðin jól sagði Pétur okk- ur frá sinni árlegu Kanaríferð sem hann færi í 3. janúar. Sama hótel og skutlan biði fyrir utan þegar hann kæmi. Við sjáum hann fyrir okkur farandi um á skutlunni, stoppa á næsta bar og fá sér eitthvað meira en vatn í glas og einn vindil með. Við kveðjum í dag ástkæran frænda okkar sem nú er farinn í sína síðustu ferð, minning um góðan frænda og víðförla ferða- langinn geymist hjá okkur. Vertu sæll að sinni. Þínar frænkur, Guðfinna og Hildur Ár- mannsdætur, Guðfinna Ósk og Ólöf Björg Helgu- og Kristjánsdætur. Pétur Pétursson ✝ Helga Stef-ánsdóttir fædd- ist á Akureyri 26. september 1955. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 29. janúar 2019. Foreldrar henn- ar eru Annalísa H. Sigurðardóttir, f. 4. september 1934, d. 5. maí 2000, og Stefán Sigurðsson, f. 16. október 1919. Systur Helgu eru: 1) Lilja Stefánsdóttir, f. 26.9. 1955, maki Karl J. Guðmundsson, f. 9.10. 1948. Börn þeirra eru: a) Svana Karlsdóttir, f. 4.4. 1979, sambýlismaður Stefán Dag- bjartsson, f. 1.3. 1963, þau slitu samvistum 2009, börn þeirra eru Sóley Lilja, f. 10.7. 1999, Einar Logi, f. 18.1. 2002, og Dagur Karl, f. 7.7. 2006, b) Stefán Karlsson, f. 9.9. 1981. 2) Sóldís Stefánsdóttir, f. 11.4. 1960, sam- býlismaður Aðal- steinn S. Sigfús- son, f. 10.3. 1960, þau slitu samvistum 2004. Börn þeirra eru: a) Katla, f. 1.2. 1986, b) Sigurður Ormur, f. 8.5. 1996, c) Atli Sigfús, f. 17.7. 2003. Útförin fór fram frá Akureyrarkirkju 11. febrúar 2019. Til þín Helga. Samferða um lífið, aldrei langt undan. Leiddumst dorruna. Ég í humáttina, þú stóra systir, vissir svo margt. Út og vestur um haf, hin mörgu bréf. Framandi gjafir og tilhlökkun við heimkomu. Gleðistundir. Gæskan, kátínan og hlýjan, frá þér systir mín, eins og sólríkur sumardagur, eins og andvari á kinn. Virðingarvert æðruleysi, styrkur og þol, í gegnum allar þrautirnar sem biðu þín. Stundum er gott að vita ekkert. Góða ferð, elsku hjartans vina, þín Sóldís. Helga Stefánsdóttir Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur minnar og fósturdóttur, AÐALHEIÐAR HALLDÓRU ARNÞÓRSDÓTTUR, Kjalarsíðu 1b, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk í Kjalarsíðu 1b fyrir hlýhug og góða umönnun. Ásdís Sigurpálsdóttir Árni Þorsteinsson Ástkær móðir mín, stjúpmóðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALGERÐUR JÓHANNSDÓTTIR, Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili, áður Lerkigrund 6, Akranesi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, miðvikudaginn 6. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 14. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Höfða og Krabbameins- félagið á Akranesi. Þórdís Óladóttir Skafti Baldursson Guðný J. Ólafsdóttir Guðjón Guðmundsson Daðey Þ. Ólafsdóttir Erla Ólafsdóttir Fjölnir Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURHELGA STEFÁNSDÓTTIR, Helga, Siglufirði, sem lést fimmtudaginn 31. janúar, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 15. febrúar klukkan 14. Kristín Bogadóttir Kristján Björnsson Sigurbjörn Bogason Kristrún Snjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur minn, bróðir, mágur og frændi, STEFÁN BJARNASON, Bleiksárhlíð 29, Eskifirði, lést föstudaginn 8. febrúar, í hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði. Útförin verður auglýst síðar. Bjarni Stefánsson Hafsteinn Bjarnason Ingibjörg M. Guðmundsdóttir Guðmundur Valgeir Hafsteinsson Bjarni Már Hafsteinsson Bára Ýr Hafsteinsdóttir Steinar Ingi Hafsteinsson Hafþór Máni Bjarnason Hafsteinn Bjarnason Alma Rós Bjarnadóttir Elskulegur föðurbróðir okkar, GUÐMUNDUR EBENESER PÁLSSON, áður Framnesvegi 26b, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 21. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Snorri Magnússon Bryndís Magnúsdóttir Jóhanna Magnúsdóttir Ástkær eiginmaður minn, ÁSTÞÓR RAGNARSSON, er látinn. Fyrir hönd ástvina, Elísabet Harpa Steinarsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkæra móðir okkar og dóttir, AÐALHEIÐUR HULDA JÓNSDÓTTIR, Staðarhrauni 2, Grindavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju, föstudaginn 15. febrúar klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á þjóðarátakið Ég á bara eitt líf. Súsanna Margrét Gunnarsdóttir Maríus Máni Karlsson Jón Emil Karlsson Jón Guðmundsson Súsanna Demusdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.