Morgunblaðið - 12.02.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.02.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019 ✝ Ásta Hallvarðs-dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 25. júní 1939. Hún lést á Öldrunar- heimilinu Lög- mannshlíð 31. jan- úar 2019. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sig- ríður Guðjóns- dóttir, f. 26.7. 1910, d. 7.2. 1995, frá Raufarfelli undir Eyjafjöllum, og Hallvarður Sigurðsson, f. 14.5. 1902, d. 5.8. 1966, frá Seyðisfirði. Þau hófu búskap í Vest- mannaeyjum og bjuggu í Péturs- borg frá 1945, þar sem þau ólu upp börn sín. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru Guðbjörg, f. 4.5. 1935, d. 11.11. 2014, Ingi- björg, f. 15.4. 1936, Sigurður, f. 9.5. 1937, 5.11. 2006, Ásta, f. 25.6. 1939, og Hrefna, f. 2.6. 1952. Ásta giftist 19.9. 1957 Jóni Stefánssyni frá Akureyri, f. 7.6. 1937, d. 30.1. 2009. Foreldrar hans voru hjónin Ragnheiður Jónsdóttir, f. 24.4. 1899, d. 19.7. og Kári Hermannssynir; og Jón Elvar Gunnarsbörn, maki Helga Rún Jóhannsdóttir, dætur þeirra eru Ragnheiður Katla og Sigur- borg Hekla Jónsdætur. 3) Sonja Rut, f. 11.1. 1966, maki Kjartan Smári Stefánsson, dætur þeirra eru Ásta Margrét Rögnvalds- dóttir, maki Jóhann Ágúst Sig- mundsson, börn þeirra Vilborg Halla, Hallveig Birna og Valtýr Smári Jóhannsbörn; Andrea Dögg og Ásdís Elva Kjartans- dætur, maki Guðbjartur Magn- ússon. 4) Stefán Einar, f. 22.10. 1969, maki Steinunn Jóna Sæ- valdsdóttir, börn þeirra eru Lena Ósk, maki Óðinn Arn- grímsson, sonur þeirra Björgvin Páll Óðinsson; Einar Bjarki og Eva Lind Stefánsbörn. 5) Jóna Brynja, f. 17.10. 1976, maki Tóm- as Veigar Sigurðarson, börn þeirra Díana Rós, maki Árni Er- lendsson; Tómas Smári Tómasarbörn og Emilía Ásta Tómasardóttir, f. 23.1. 2004, d. 18.2. 2004. Ásta ólst upp í Vestmanna- eyjum en flutti þaðan ásamt fjöl- skyldu sinni til Akureyrar í kjöl- far eldgossins og bjó þar fram til síðasta dags að undanskildum nokkrum árum sem hún bjó á Svalbarðseyri. Útför Ástu fer fram frá Glerárkirkju í dag, 12. febrúar 2019, og hefst athöfnin kl. 10.30. 1980, og Stefán Árnason, f. 19.9. 1897, d. 23.5. 1977. Börn Ástu og Jóns eru: 1) Sigríður Halla, f. 30.12. 1956, maki Klæmint Klein, börn hennar eru Kristín Bald- vinsdóttir, maki Rókur Tummasar- son, börn þeirra eru Halla, Páll og Ast- rid Tummasarson; Jón Þór Bald- vinsson, maki Jacoba Torgunn Winther, dætur þeirra eru Ása Winther og Karolina Halla Jóns- dóttir; og Linda Sif Baldvins- dóttir, maki Heri Rein, synir þeirra Kristin Tór Henningsson og Óðin Tór Herason. 2) Ragn- heiður, f. 16.4. 1958, maki Gunn- ar Magnússon, börn hennar eru Hulda Magnadóttir, dóttir henn- ar Heiðrún Eva; Guðlaug Ásta, maki Kristján Baldur Valdimars- son, synir þeirra eru Valdimar Adam, Egill Berg og Jökull Fannar Kristjánssynir; Hermann Ingi, maki Ingibjörg Leifsdóttir, synir þeirra eru Þórarinn Karl Elsku mamma. Um leið og sorgin nístir hjartað á þessari kveðjustund rifjast upp margar yndislegar minningar. Við áttum svo margar góðar stundir saman og vorum mjög góðar vinkonur. Ég man hvað þú rifjaðir oft upp þjóðhátíðina fyrir gos, þegar við löbbuðum tvær inn í dal og ég sagði við þig að nú ætluðum við tvær sko að fara að skemmta okkur. Þessi minning fær mig alltaf til að brosa. Ég var ung þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn og veit ekki hvernig ég hefði farið að ef þú hefðir ekki verið mér við hlið. Þú varst alltaf boðin og búin að aðstoða og alltaf tilbúin að hlusta. Ómetanlegt. Þér fannst gaman að ferðast og þegar Ásta Margrét var að- eins sex mánaða gömul fórum við fjölskyldan í okkar fyrstu utan- landsferð til Danmerkur og Sví- þjóðar til að hitta Röggu og fjöl- skyldu. Þetta var skemmtileg ferð sem gaf okkur fullt af góðum minningum. Þegar ég síðar fór að búa, giftist og fjölskyldan stækkaði fluttum við frá Akur- eyri. Þið pabbi voruð alltaf dug- leg að renna austur að heim- sækja okkur. Í seinni tíð komst þú síðan oft ein í heimsókn í sveitasæluna, þar sem þér leið svo vel. Við héldum oft jól og ára- mót saman sem er mér svo mikils virði. Þú lést ekki þitt eftir liggja þegar þú komst, ef einhvers stað- ar lá þvottur varstu búin að brjóta hann saman á svipstundu. Alltaf svo hjálpsöm og dugleg. Þess á milli greipstu upp handavinnuna og prjónaðir á barnabörnin og barnabarnabörn- in, enda mikil handverkskona al- veg fram á síðasta dag. Á kvöldin gripum við svo gjarnan í spilin og klukkustundirnar flugu hjá. Okk- ur fannst líka gott að sitja saman úti á pallinum, horfa á sólarlagið með pínu rautt í glasi og rifja upp einhverjar skemmtilegar sögur. Þú hafðir einnig mikinn áhuga á því sem stelpurnar tóku sér fyrir hendur, hvort sem um var að ræða fótbolta, mótorkross eða tónleika, alltaf mættir þú með okkur ef þú gast. Síðastliðið vor fórum við einn- ig í dásamlega sumarbústaðaferð á Illugastaði þar sem við skemmtum okkur með stelpun- um og langömmubörnunum, spil- uðum, fórum í pottinn og rifjuð- um upp öll sumrin sem við fjölskyldan fórum í bústað þarna. Spánarferðin sem við Kjartan fórum með þér í ásamt Höllu og Klæmint var líka dásamleg. Þar hittum við Lailu og Erlu og þið Erla hreinlega smulluð saman. Yndisleg ferð sem við rifjuðum svo oft upp og kallaði alltaf fram bros og hlátur hjá okkur. Þú varst svo traust og gott að leita til þín, en veikindin voru erfið og drógu úr þér allan mátt. Þú lést þó lítið á því bera og alltaf ef maður spurði þig hvernig þú hefðir það var svarið: „Þetta er allt í lagi, það lagast,“ en maður sá á andlitinu að þér leið ekki vel. Þú varst mín fyrirmynd og ég held að ég líkist þér alltaf meira og meira. Að minnsta kosti segja dætur mínar ósjaldan: „Þú ert alveg eins og amma,“ og það er ekki leiðum að líkjast. Elsku mamma, við fjölskyld- an söknum þín og geymum minninguna um þig í hjarta okk- ar. Minningin, lífið og allar dásamlegu stundirnar með þér eiga eftir að ylja mér um ókomna tíð. Hvíldu í friði, elsku mamma. Elska þig. Þín dóttir, Sonja Rut. Elsku amma Ásta mín. Þá er komið að hinstu kveðjustund. Þrátt fyrir erfiðar stundir, sáran söknuð og sorg er mér á þessari stundu þakklæti efst í huga. Ég er þér svo óendanlega þakklát fyrir allt. Svo þakklát fyrir að reynast mér alltaf svo vel, sýna mér svo mikla hlýju, væntum- þykju og ást. Þakklát fyrir allar fallegu minningarnar sem ég á um þig og góðu stundirnar okk- ar saman. Þú varst alltaf til í að spila við mig þegar ég var barn og vörðum við oft löngum tíma saman við spil. Uppáhaldið okk- ar var auðvitað kleppari og það sem við hlógum oft í galsagang- inum sem gjarnan fylgdi því spili. Þú þreyttist heldur aldrei á að segja mér sögurnar af börn- unum þínum sem mér þóttu svo skemmtilegar og fékk aldrei leið á. Sérstaklega hafði ég gaman af sögunni þegar mamma gekk í svefni og hræddi Höllu systur sína með drungalegu fasi. Þá sprakk ég alltaf úr hlátri. Þú varst líka algjör snillingur í boltaleiknum þar sem þú bættir alltaf við boltum þar til ég hrein- lega missti töluna. Ég komst aldrei með tærnar þar sem þú hafðir hælana í þessu, stóð bara og starði á með aðdáun. Þegar ég svo kúrði hjá þér uppi í sófa á kvöldin laumaði ég gjarnan fót- eða handlegg í fangið á þér og fékk þá alltaf hlýjar strokur sem ég elskaði. Ég man líka hvað við barnabörnin höfðum gaman af því að leika með stytturnar þínar og þú hafðir aldrei áhyggj- ur af því hvort þær kæmu heilar út úr því. Þegar ég spurði þig síð- ar út í þetta sagðir þú einfald- lega: „Þetta eru bara dauðir hlutir“ og brostir. Ég man líka hvað þú varst mikið jólabarn amma, skreyttir með fallega jólaskrautinu þínu sem við barnabörnin dáðumst að og bakaðir fjöldann allan af smá- kökum. Mér fannst loftkökurnar alltaf bestar, enda sykursætar og ljúffengar. Þú varst einnig mikil handavinnukona og að sjálfsögðu kenndir þú mér af mikilli þolin- mæði að prjóna og þótt ég hafi hingað til ekki gert mikið af því er aldrei að vita nema ég nýti mér það síðar. Ég man að minnsta kosti að ég naut þess að eiga þessar stundir með þér og var afar stolt af ungbarna- skónum sem þú hjálpaðir mér að prjóna á Andreu systur. Þegar ég síðar óx úr grasi og eignaðist sjálf börn tókstu þeim alltaf fagnandi og lést ekkert á þig fá þótt lætin og hávaðinn væru oft ærandi, heldur tókst þeim opnum örmum, brostir út að eyrum og naust samverunnar. Börnin mín voru svo hrifin af þér, hlupu jafnan í fangið á þér og fengu dásamlegt knús frá ömmu löngu sinni. Ég man að Vestmannaeyjar áttu alltaf stóran sess í hjarta þínu, þú rifjaðir oft upp sögur úr Eyjum og Eyjalögin voru í miklu uppáhaldi. Mér þykir því vel við hæfi að kveðja þig með broti úr einu af þínum uppáhalds Eyja- lögum „Ég veit þú kemur“ sem hljóðar svo: Og seinna þegar tunglið hefur tölt um langan veg, þá tölum við um drauminn sem við elskum þú og ég. (Ási í Bæ) Mikið sem ég á eftir að sakna þín elsku amma. Það verður svo skrýtið að hafa þig ekki lengur hér hjá okkur, en það veit ég að þú fylgist með okkur og verður ávallt með okkur í anda. Hvíldu í friði elsku amma Ásta. Elska þig. Þín ömmustelpa, Ásta Margrét. Amma Ásta. Æðruleysi er einn af þeim kostum sem ég tel mig hafa erft frá ömmu. Hjá ömmu voru nefni- lega aldrei vandamál heldur voru bara til lausnir. Ég man ekki eftir að hafa heyrt ömmu kvarta yfir nokkrum sköpuðum hlut, hún gat alltaf hlegið að hlutun- um. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu Ástu, við frændsystkinin brölluðum margt hjá ömmu og afa á Ströndinni. Amma var aldrei að stressa sig yfir því þegar við krakkarnir vor- um ekki endilega komin inn í mat á réttum tíma, en þegar við svo loks komum inn var alltaf tekið hlýlega á móti okkur með ein- hverju matarkyns. Amma var sérlega nýtin og þegar hún vann í bakaríinu í Sunnuhlíð fannst henni mjög blóðugt að henda öllu þessu brauði í lok dags og var alltaf að færa okkur börnunum sæta- brauð þegar við kíktum í heim- sókn til hennar og afa Jóns. Eftir að ég komst á unglings- árin fórum við amma að ræða mikið um pólitík og oftar en ekki vorum við ekki sammála en gát- um alltaf tekist á í mesta bróð- erni um málefnin og pólitíkus- ana. Fyrir rúmu ári fékk ég að eyða góðum tíma með ömmu þó að- stæðurnar væru nú kannski ekki góðar. En við lentum á sama tíma inni á sjúkrahúsi þar sem við lágum á sömu deild. Þar hafði ég tíma til að rabba við ömmu um heimsmálin og snúast aðeins í kringum hana, færa henni kaffi og brauð. Fyrir þann tíma er ég mjög þakklátur því ég hef ekki verið nógu duglegur að deila tíma mínum með henni undan- farin ár. Í einu af síðustu skiptunum sem við spjölluðum saman vildir þú að það yrði haldið ættarmót afkomenda ykkur afa enda hefur ættin farið ört stækkandi. Þér fannst alltaf gaman þegar stór- fjölskyldan hittist og vona ég að við getum látið það rætast fyrir þig sem fyrst. Þín verður sárt saknað af okk- ur öllum, en ég veit að nú eruð þið afi sameinuð á ný og veit ég líka að þið fylgist með okkur að ofan og passið upp á alla eins og þið gerðuð alla tíð. Með þökk fyrir allt. Hermann Ingi. Kæra Ásta. Þá er komið að kveðjustund. Þegar ég sest niður til að þakka þér allar góðar stundir sem við áttum saman fallast mér hendur. Það er svo margt sem fer í gegnum hugann. Barátta þín við illvígan sjúkdóm var stutt en erfið, en ekki kvart- aðir þú heldur tókst öllu með æðruleysi. Ásta var hlý og góð kona og alltaf var vel tekið á móti öllum sem til hennar komu. Við sem fengum að kynnast henni mun- um ávallt minnast hennar með hlýju. Elsku Halla, Ragga, Sonja, Stefán og Jóna Brynja, missir ykkar er mikill, en huggun harmi gegn að nú er þessari baráttu lokið og hvíldin kærkomin. Kæra mágkona, með þessum fátæklegu orðum viljum við systkinin og makar þakka þér samfylgdina í gegnum árin. Börnum, tengdabörnum og af- komendum þeirra sendum við innilegar samúðarkveðjur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Stefánsdóttir.) Fyrir hönd okkar systkina og maka okkar, þín mágkona Auður Stefánsdóttir. Ásta Hallvarðsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma langa. Ég elska ömmu mína, en nú er hún dáin. Hún var mjög góð í að prjóna og ég vildi að hún gæti lifað lengur, bara fyrir mig. Takk fyrir allt, elsku amma. Þín Vilborg Halla. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, INGVAR ÞORSTEINSSON húsgagnasmíðameistari, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudaginn 15. febrúar klukkan 13. Steinunn Guðrún Geirsdóttir (Lillý) Bergljót Erla Ingvarsdóttir Þorsteinn Ingvarsson Ragna Gústafsdóttir Geir Örn Ingvarsson Hallveig Ragnarsdóttir Einar Ágúst Kristinsson barnabörn, langafabörn og langalangafabarn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, TÓMASAR JENS PÁLSSONAR frá Litlu-Heiði. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Steinunn Þorbergsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU MAGNEU JÓNATANSDÓTTUR, Vallargötu 6, Súðavík, Halla Valdís Friðbertsdóttir Árni Marinósson Hinrik Halldór Friðbertsson Guðmunda Norðfjörð Ingibjörg Jóna Friðbertsd. Árni Zophoníasson Ægir Páll Friðbertsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÓA JÓNA BJARNADÓTTIR frá Suðureyri við Tálknafjörð, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ sunnudaginn 27. janúar. Jarðarförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 15. febrúar klukkan 13. Bjarni Eiríkur Haraldsson Þórdís Jónasdóttir Karen Haraldsdóttir Markús Már Árnason Katharína Markúsdóttir Steinn Gunnarsson Árni Már Markússon Ívar Már Markússon Erla Huld F. Hattesen Jakob Faaborg Hattesen Jónas Þór Bjarnason Harrý Þór Bjarnason Madeleine Hagen Holdal og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KARÓLÍNA LÁRUSDÓTTIR myndlistarkona, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 7. febrúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 15. febrúar klukkan 13. Stephen Lárus Stephen Louise Harris Samantha Percival Christophe Riera Boyd, Elís, Ida, Abigail, Owen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.