Morgunblaðið - 12.02.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
✝ Þórir Magnús-son fæddist á
Akureyri 25. febr-
úar 1956. Hann varð
bráðkvaddur 30.
janúar 2019.
Hann var sonur
hjónanna Magnúsar
Þórissonar, f. 9.
febrúar 1932, d. 20.
mars 2004, og Árdís-
ar Svanbergsdóttur,
f. 1. janúar 1932.
Bræður Þóris eru Ragnar
Magnússon, f. 1954, Einar Svan-
berg Magnússon, f. 1959, og Ottó
Magnússon, f. 1964. Eftirlifandi
eiginkona Þóris er Svava Svav-
arsdóttir, f. 26. júlí 1958. Svava
er dóttir Svavars Konráðssonar,
f. 1930, og Önnu Friðriku Frið-
riksdóttur, f. 1935. Þórir og
Svava gengu í hjónaband 21.
ágúst 1983. Börn Þóris og Svövu
eru Magnús, f. 1983, Anna Kar-
en, f. 1986, og Þórey Sif, f. 1991.
Systkini Svövu eru Anna Soffía
Svavarsdóttir, f. 1959, Konráð
Svavarsson, f. 1962,
og Sigurður Örn
Svavarsson, f. 1966.
Þórir bjó á Akur-
eyri alla tíð. Fyrstu
árin bjó fjölskyldan
í Grænumýri, en
fluttist í Hamra-
gerði árið 1968 og
þar bjó Þórir þang-
að til hann flutti í
sína eigin íbúð.
Þórir útskrifaðist
sem málari frá Iðnskólanum á
Akureyri, fékk meistararéttindi
árið 1984 og vann alla tíð við sitt
fag. Þórir rak fyrirtæki undir
sínu nafni, Þórir Magnússon hf.,
þar til hann stofnaði fyrirtækið
Litblæ árið 2000 ásamt eigin-
konu sinni og starfaði þar til
dauðadags. Hann var virkur í
starfi Oddfellow-reglunnar á Ak-
ureyri frá árinu 2006.
Útför Þóris fer fram frá Akur-
eyrarkirkju í dag, 12. febrúar
2019, og hefst athöfnin klukkan
13.30.
Elsku hjartans Þórir minn.
Mig skortir orð en langar að
kveðja þig með þessu fallega
ljóði:
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kölluð á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo gestrisin, einlæg og hlý.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Takk fyrir allt, elsku Þórir
minn, ég elska þig af öllu mínu
hjarta.
Þín
Svava.
Mér finnst mjög erfitt að sitja
hérna og skrifa minningargrein
um þig, en veit að ef ég geri það
ekki, þá mun ég sjá eftir því
seinna.
Mér finnst þetta allt saman
svo óraunverulegt og eins
heimskulega og það hljómar, þá
finnst mér bara eins og þú hafir
rétt skroppið í burtu og komir
svo aftur.
Þegar ég svo átta mig á því að
svo sé ekki, þá verð ég alveg
frosinn og stari eitthvað útí loft-
ið í heillangan tíma þangað til ég
byrja að titra.
Verð svo stundum ógeðslega
reiður og langar að rústa öllu í
kringum mig og öskra eitthvað
eins og brjálæðingur.
Síðustu daga hef ég verið að
skoða gamlar myndir og þó svo
að það sé ótrúlega erfitt, þá er
það líka gott.
Allar minningarnar um allar
góðu stundirnar sem við áttum
eru það eina sem getur fengið
mann til að brosa núna, annars
er allt ömurlegt þessa dagana og
ég get bara ekki sætt mig við
þetta og mun aldrei gera það.
Ég hef alltaf litið svo upp til
þín og ég man þegar ég var lítill
hvað mér þótti alltaf gaman að
fá að kíkja aðeins með þér í vinn-
una og t.d. að fá að fara með þér
í Skemmuna á föstudagskvöld-
um þegar þú varst í fótbolta og
fara svo á Litlu kaffistofuna eftir
tímann.
Það var alveg sama hversu
mikið var að gera hjá þér, þú
gafst þér alltaf tíma fyrir mig.
Hvort sem það var að kíkja með
mér í Möppudýrið að kaupa fót-
boltamyndir eða fara til Sigga
Gumm að kaupa eitthvert dót
eða hvað sem það nú var, þá
fannstu alltaf tíma fyrir mig. Þú
hefur alltaf stutt mig í öllu því
sem ég hef gert og ég hef aldrei í
svo mikið sem sekúndubrot efast
um að þér þætti vænt um mig.
Okkar samband hefur alltaf
verið gott en mér finnst það orð-
ið enn betra eftir að ég flutti
heim frá Danmörku í sumar.
Mér finnst eins og þú hafir
róast örlítið, vitandi það að ég
myndi taka við hjá þér þegar þú
myndir hætta.
Reyndar reiknaði ég nú ekki
með að þú myndir hætta á
næstu 15 árum en þú hefðir
kannski getað minnkað við þig
og hefðir eflaust gert það hefð-
irðu fengið að vera hérna lengur.
Núna hringsnýst ég bara eitt-
hvað og er algjörlega týndur og
virkilega þarfnast þín og ég er
ennþá eiginlega ekki búinn að
fatta að þú komir bara ekkert
aftur og ég get bara ekki höndl-
að það.
Það er svo margt sem ég á
eftir að ræða við þig og planið
var alltaf að komast hægt og ró-
lega inn í hlutina svo núna veit
ég bara ekkert hvað ég á að gera
og ég sakna þín svo mikið að ég
funkera ekkert þessa dagana.
En ég er þrjóskur og ég mun
halda áfram og aldrei gefast
upp.
Hvíldu í friði, elsku pabbi. Ég
elska þig. Þinn
Maggi,
Magnús Þórisson.
Elsku elsku pabbi minn. Ég
trúi ekki að ég sé að skrifa svona
til þín, mér finnst þetta enn svo
óraunverulegt.
Það er svo ótal margs að
minnast þegar ég horfi til baka,
en allar minningarnar sem ég á
eiga það sameiginlegt að vera
góðar og glaðlegar og þær munu
veita mér hlýju um ókomin ár.
Þú varst alltaf brosandi, hress
og glaður og gæddur þeim góða
eiginleika að geta slegið hlutum
upp í gott grín.
Þú varst svo hjartahlýr og
máttir ekkert aumt sjá, þá
varstu alltaf fyrstur manna til að
bjóða fram aðstoð.
Ég gæti endalaust talið upp
hversu yndislegur þú varst;
traustur, umhyggjusamur,
hjálpsamur, einstaklega hraust-
ur og duglegur.
Ég á þér og mömmu svo
margt að þakka fyrir að hafa
alltaf verið til staðar fyrir mig,
stutt við bakið á mér og hvatt
mig áfram.
Ég er svo stolt að vera dóttir
þín!
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elska þig alltaf.
Þín Jobba,
Þórey Sif Þórisdóttir.
Elsku pabbi, það er óskiljan-
legt og ólýsanlega sárt að ég
sitji og skrifi minningargrein um
þig, að þú hafir verið tekinn frá
okkur svona snemma og svona
fljótt, maður í blóma lífsins.
Ég á erfitt með að skilja þetta
og hver stjórnar þessu öllu. Þú
varst besti maður í heimi og
snertir svo marga.
Þegar ég hugsa til baka koma
upp í hugann ótal minningar, all-
ar stundir með þér voru góðar,
þú hafðir svo góða nærveru,
hlýtt faðmlag og fallega brosið
þitt, já þú varst alltaf brosandi
og einstaklega góður í því að slá
á létta strengi, húmorinn var
aldrei langt undan.
Ég get ekki annað en brosað
þegar ég hugsa til baka og rifja
upp allar góðu stundirnar okkar
sem ég vildi heitast óska að
hefðu verið fleiri.
Pabbi var mjög duglegur,
hjálpsamur og ósérhlífinn maður
sem vildi alltaf allt fyrir alla
gera, fyrsti maðurinn á staðinn
þegar einhvern vantar hjálp.
Hann dekraði mig mikið, gerði
allt fyrir mig, sama hvað, það
þurfti bara eitt símtal og mál-
unum var reddað.
Pabbi var glaðvær, brosmild-
ur og hafði smitandi hlátur,
hann var trygglyndur og mesti
öðlingur sem ég hef kynnst.
Pabbi var hrókur alls fagnaðar
hvert sem hann fór, það var allt-
af gaman í kringum hann.
Eftir að ég flutti til Reykja-
víkur hef ég verið dugleg að
koma norður og eiga gæða-
stundir með fjölskyldunni, við
pabbi fórum oft á Greifann í há-
deginu og ísrúnt um kvöldið,
kúrðum saman yfir sjónvarpinu,
þóttumst vera að horfa en sváf-
um sennilega bæði meira yfir því
en við horfðum.
Pabbi var líka mjög duglegur
að hringja í mig, og ég í hann.
Við töluðum oft saman í hádeg-
inu.
Hann spurði alltaf út í veðrið,
hvernig gengi í vinnunni og
hvernig ég hefði það, svo gátum
við talað um allt og ekkert, mikið
sem mér þótti vænt um það.
Pabbi sýndi öllu sem ég hef
tekið mér fyrir hendur mikinn
áhuga, var alltaf hvetjandi,
stoltur af mér og sýndi mér
ótakmarkaða ást og hlýju, við
áttum einstakt samband og ég
er svo stolt af því að vera dóttir
þín.
Elsku pabbi, ég ætla að halda
áfram að tileinka mér það sem
þú hefur kennt mér, halda minn-
ingu þinni á lofti og halda áfram
að gera þig stoltan af mér, ég
veit þú vakir yfir mér og fylgist
með mér, hvert sem ég fer. Ég á
þér svo mikið að þakka, þið
mamma hafið gert mig að þeim
einstaklingi sem ég er í dag, fyr-
ir það er ég þakklát.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherj-
ardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Takk fyrir allt elsku pabbi, ég
elska þig meira en orð fá lýst,
þín
Anna Karen
Þórisdóttir.
Elsku hjartans sonur minn.
Aldrei hefði mig grunað að þetta
færi svona. Þú sem varst svo
duglegur og lífsglaður maður,
tókst alltaf á móti manni með
fallega brosinu þínu og hlýjum
faðmi.
Þú varst alltaf svo góður við
mig elsku sonur, gerðir allt fyrir
mig og fyrir það vil ég þakka.
Elsku Þórir, þú varst mér svo
kær, ég elska þig af öllu hjarta
og sakna þín svo sárt.
Mig langar að kveðja þig með
þessu fallega ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín mamma,
Árdís
Svanbergsdóttir.
Síminn hringir og veröldin
umturnast á augabragði – eng-
inn fyrirvari, ekkert. Allt í einu
stendur maður frammi fyrir því
að Þórir bróðir er ekki lengur á
meðal okkar. Ég er enn að átta
mig á þessu og á mjög erfitt
með að koma einhverju á blað,
þetta er eitthvað svo óraunveru-
legt. Þórir var næstelstur af
okkur bræðrum og sá sem við
leituðum oft til þegar koma
þurfti einhverju í verk. Þórir
hékk ekkert yfir hlutunum þeg-
ar hann á annað borð hófst
handa. Hann var ótrúlega dug-
legur, vandvirkur, ósérhlífinn
og greiðvikinn. Í dag hefði hann
sennilega verið greindur ofvirk-
ur, en hann sat sjaldnast að-
gerðarlaus. Ef hann var ekki að
vinna, þá var hann í einhverju
stússi, úti í bili að laga til, þrífa
bíla fjölskyldunnar, aðstoða ætt-
ingja og vini eða að snyrta og
snurfusa heima hjá sér svo fátt
eitt sé talið.
Á sínum yngri árum tók hann
nokkurn tíma til að hlaupa af sér
hornin, og þá var reyndar ekki
alltaf Jolly Cola í glasinu. Þegar
hann kynntist Svövu sinni fór
hann nú smám saman að róast
og ég man ennþá vel eftir því
þegar hann var nýbúinn að
kynnast Svövu og bauðst til að
keyra mig. Ég hreifst strax af
Svövu og það fór ekki á milli
mála að hann var heppinn að
krækja í hana. Svava gerði Þóri
að enn betri manni og saman
hafa þau gengið í gegnum súrt
og sætt.
Ég man nú ekki alveg hvort
Þórir var byrjaður að læra til
málara, en atvikið sem rifjaðist
upp fyrir mér var þegar hann
tók upp á því að nota bílasvamp
og stimpla vegginn í herberginu
sínu í sterkum appelsínugulum
lit. Það fannst mér flott sem
litlum polla. Samband okkar
Þóris var náið þó svo að við vær-
um nú ekki í stöðugu sambandi
eftir að ég flutti suður. Ósjaldan
hringdi ég í hann ef ég þurfti að
leita ráða þegar ég var að mála
íbúðina með alla mína tíu þumal-
putta. Þegar fyrsta íbúðin var
keypt þurfti ekkert að biðja
hann um eitt eða neitt, hann
mætti bara á staðinn þegar hann
vissi hvenær íbúðin yrði afhent.
Hið sama gerðist þegar við flutt-
um í Kópavoginn. Maður rétt
sneri sér við, og þá var hann bú-
inn að mála íbúðina, svona eins
og í Ajax-auglýsingunni þegar
stormsveipurinn var á auga-
bragði búinn að gera allt hreint
og fínt.
Þórir var einn af þeim sem
ætluðui sér að finna tíma fyrir
sjálfan sig, seinna, svona þegar
rólegra væri að gera. Hann lifði
fyrir vinnuna og að sjálfsögðu
fjölskylduna, en þær eru ekki
margar stundirnar sem hann
nýtti til þess að slappa af. Brott-
hvarf hans minnir mann á að það
er ekki sjálfgefið að sú stund
gefist.
Elsku bróðir, kærar þakkir
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig og fjölskylduna. Ég skal
gera mitt allra besta til að styðja
þá sem þig syrgja. Í dag hefði
Steinþór föðurbróðir okkar orð-
ið 100 ára þannig að þú ert
ábyggilega í veislunni með þeim
systkinum. Fáðu þér eina Jolly
Cola af því tilefni – svona fyrir
mig.
Ottó.
Elskulegur tengdasonur okk-
ar og kær vinur, Þórir Magn-
ússon, er fallinn frá langt um
aldur fram.
Allt frá því að Þórir kom inn í
líf okkar hefur hann verið okkur
sem besti sonur. Hjörtu okkar
eru full af sorg og söknuði, en
einnig óendanlegu þakklæti fyr-
ir þann tíma sem við áttum sam-
an.
Hjálpsemi hans og væntum-
þykja var alltumlykjandi og við
erum sannarlega heppin og stolt
að hafa fengið að kalla hann
tengdason okkar.
Um leið og við kveðjum góðan
dreng vottum við elsku Svövu
dóttur okkar og börnum þeirra
Þóris, þeim Magnúsi, Önnu Kar-
en og Þóreyju Sif, dýpstu sam-
úð.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa)
Hvíl í friði, elsku Þórir okkar.
Þínir tengdaforeldrar,
Anna og
Svavar.
Síðast sá ég hann við að mála
þak á húsi í Lystigarðinum á
Akureyri. Það var á fögrum
sumardegi.
Hann var brosandi við vinnu
sína en gaf sér þó tíma til að
spjalla við mig. Góði vinur minn
sem alltaf var glaður og hress og
sagði svo oft: Við reddum þessu.
Það var ekki til nei í hans munni
væri hann beðinn um greiða eða
að sinna einhverju verkefni. Það
er sárt og mikill missir fyrir fjöl-
skylduna og líka alla góðu vini
hans og raunar þjóðina alla að
missa svona mannkostamann
ótímabært yfir móðuna miklu.
Bara óskiljanlegt.
Okkar kynni voru löng og góð.
Ég dáðist að þreki hans og
dugnaði.
Hann vann sína fagvinnu með
ótrúlega miklu úthaldi. Hann
var svo ósérhlífinn og vann helg-
ar, nætur og daga ef mikið lá við.
Viðmótið var alltaf það sama,
ljúft og brosandi.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst honum og verið vinur
hans. Stundum áttar maður sig á
málshættinum: Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur.
Eitt er þó víst að það er skarð
fyrir skildi þar sem Þórir var.
Hans verður sárt saknað.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Við Þórey sendum Svövu og
fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur.
Kristján Baldursson.
Þórir Magnússon málara-
meistari var frábær náungi og
ein af uppáhaldspersónum mín-
umí bæjarlífinu á Akureyri og
aldrei leiðinlegt að vera í kring-
um hann. Þórir var nefnilega
óvenju glaðlyndur, hlýr og
skemmtilegur.
Ég naut þeirra forréttinda að
fá að starfa hjá honum í nokkur
ár með hléum á uppvaxtarárum
mínum og það er alltaf skemmti-
legt að rifja þann tíma upp því
það var oftast glatt á hjalla, en
hann sýndi mér mikinn skilning
og umburðarlyndi, en ég átti við
mikið áfengisvandamál að stríða
á þeim árum. Orðið nei var ekki
til í orðaforða Þóris og það hefur
eflaust kostað hann mikla
pressu þótt það væri stundum
spaugilegt.
Þórir hlýtur að hafa verið
hraðvirkasti málari Íslandssög-
unar og þar er ég ekki að grín-
ast. Það var gaman að horfa á
hann vinna því hann var röskur
með eindæmum og ég lærði heil-
mikið af honum.
Ég svara því stundum þegar
ég er spurður hvaða myndlist-
armenntun ég hafi að ég hafi
lært hjá Þóri Magnússyni, mál-
arameistara á Akureyri. Þórir
var auk þess fjölskylduvinur, en
feður okkar voru vinir og við-
skiptafélagar og ef það þurfti að
láta mála var aldrei leitað annað
en til hans.
Það fylgdi honum alltaf gleði,
hlátur og góð nærvera og hann
var í miklu uppáhaldi hjá fjöl-
skyldu minni og flestum sem til
hans þekktu.
Síðustu ár rakst ég á Þóri oft-
Þórir Magnússon
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát