Morgunblaðið - 12.02.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
HÁGÆÐA BLÖNDUNARTÆKI
Þýska fyrirtækið Hansa hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 100 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Hansa.
„Rannsókn málsins leiddi í ljós að
ökumaðurinn var með verulega
skerta ökuhæfni sökum veikinda og
lyfjanotkunar vegna þeirra,“ segir í
skýrslu Rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa um banaslys sem varð á
Holtavörðuheiði 22. desember 2016.
Í slysinu lentu saman Suzuki-
bifreið og Toyota-bifreið, en fyrr-
greindur ökumaður, 55 ára gamall
karlmaður, ók Toyotunni. Hann lést
sökum fjöláverka sem hann hlaut í
slysinu, en mikil aflögun varð inni í
ökumannsrými bifreiðarinnar.
Ökumaður og farþegi Suzuki-bíls-
ins voru, líkt og hinn látni, báðir
með öryggisbelti og sprungu loft-
púðar út í stýri og fyrir framan far-
þega í framsæti. Ökumaður hlaut
mikla áverka í slysinu en áverkar
farþegans voru aftur á móti minni-
háttar.
Hafði áður keyrt út af
Ökumaður Toyota-bílsins átti við
verulegt heilsufarsvandamál að
stríða og hafði ítrekað verið ráðið
frá því að aka bifreið. „Við rann-
sókn kom í ljós að ökumaður hafði
misst bifreið sína út af veginum við
Grundartanga um tveimur klst. áð-
ur en slysið átti sér stað þennan
dag og þurfti þá að draga bifreið
hans aftur inn á veginn,“ segir í
skýrslu. Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknar er orsök slyssins sú að
ökumaður Toyota-bílsins fór yfir á
rangan vegarhelming í veg fyrir
Suzuki-bifreiðina og er það rakið til
slævandi lyfja ökumannsins.
„Reglulega koma upp mál hjá
nefndinni þar sem ökumenn sem
stríða við alvarleg veikindi eða eru
undir áhrifum slævandi lyfja valda
alvarlegum slysum,“ segir í skýrslu
og er þar einnig lögð áhersla á að
skýrar leiðbeiningar og boðleiðir
séu fyrir hendi þegar grunur er
uppi um að einstaklingur hafi misst
aksturshæfni tímabundið eða var-
anlega.
Banaslys rakið
til lyfjaaksturs
Var með verulega skerta ökuhæfni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bílslys Karlmaður, 55 ára, lést í
slysi á Holtavörðuheiði árið 2016.
Snæbjörn Brynjarsson, varaþing-
maður Pírata, hefur ákveðið að
segja af sér sem varaþingmaður í
Reykjavíkurkjördæmi suður og
hefur sagt sig frá öllum öðrum
ábyrgðarstörfum fyrir Pírata.
Ástæða afsagnar hans eru ummæli
sem hann lét falla í garð Ernu
Ýrar Öldudóttur, blaðamanns á
Viljanum og fv. formanns fram-
kvæmdaráðs Pírata, á Kaffi-
barnum um helgina.
Er Snæbjörn sagður hafa haft í
hótunum við Ernu Ýri en Frétta-
blaðið greindi frá atvikinu í gær.
Missti stjórn á skapi sínu
Snæbjörn birti í gærmorgun
yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni
þar sem hann tilkynnir afsögn, um
leið og hann biðst afsökunar á um-
mælunum. Segist hann segja af
sér „frekar en að láta þessa hegð-
un kasta rýrð á samstarfsfélaga
mína og Alþingi“.
Í kjölfarið sendi þingflokkur
Pírata frá sér yfirlýsingu þar sem
framkoma Snæbjörns er hörmuð.
Þar segir að kjörnir fulltrúar eigi
að sýna gott fordæmi. Snæbjörn
hafi axlað ábyrgð á gjörðum sínum
og tilkynnt þingflokki Pírata að
hann segði af sér varaþing-
mennsku.
Styður þingflokkur Pírata
ákvörðun Snæbjarnar og virðir þá
ábyrgð sem í henni felst.
Snæbjörn sagði í yfirlýsingu
sinni í gær að hann hefði misst
stjórn á skapi sínu og sagt ýmis-
legt við Ernu sem væri með öllu
óviðeigandi. Hegðun hans væri
ekki sæmandi kjörnum fulltrúa,
hann mundi axla ábyrgð og biður
alla hlutaðeigandi afsökunar.
Segir af sér sem
varaþingmaður
Píratar harma framkomu Snæbjörns
Snæbjörn
Brynjarsson
Erna Ýr
Öldudóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Hluta húsnæðis Flóaskóla í Flóa-
hreppi hefur verið lokað eftir að
grunur kom upp um myglu í starfs-
mannaaðstöðu og skólaseli. Gunn-
laug Hartmannsdóttir skólastjóri
segir að brugðist hafi verið við fyrir
jól þegar veikinda fór að gæta með-
al starfsfólks.
„Það hafa þrír starfsmenn veikst.
Tveir þeirra hafa áður verið í að-
stæðum þar sem mygla hefur komið
upp. Það þykir óvenju hátt hlutfall
meðal þrjátíu starfsmanna að þrír
veikist,“ segir Gunnlaug en tveir
starfsmannanna eru enn frá vinnu
vegna þessa. Engin veikindi hafa
komið upp meðal nemenda í skól-
anum.
Hún segir að sérfræðingar frá
Eflu verkfræðistofu hafi verið
fengnir til að taka út húsnæði skól-
ans sem var reistur árið 1947. „Til
að vera örugg létum við taka út allt
húsnæði skólans, sér í lagi til að
vera viss um að það húsnæði sem
við værum að flytja í væri í lagi. Við
höfum unnið þetta samkvæmt ráð-
gjöf sérfræðinga.“
Aðspurð segir hún að þeim hluta
húsnæðisins þar sem mygla fannst
hafi verið lokað meðan unnið sé að
því að finna lausn. „Við þrengdum
bara að okkur og komum allri starf-
semi fyrir innan þess rýmis sem við
höfum. Það eru allir sem einn að
vinna að því að leysa hlutina.“
Flóahreppur hefur þegar óskað
eftir tilboðum í gerð kostnaðaráætl-
unar vegna viðgerða á húsinu og tvö
tilboð hafa borist. Verkís hefur ver-
ið falið að gera umrædda kostnaðar-
áætlun. Þá hefur Vinnueftirliti og
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands verið
send beiðni um úttekt á núverandi
starfsaðstæðum nemenda og starfs-
manna, að því er fram kemur í
fundargerð sveitarstjórnar Flóa-
hrepps.
Á meðan heldur skólastarf áfram
í Flóaskóla og Gunnlaug kveðst
bjartsýn á framhaldið. „Þetta horfir
allt til betri vegar. Skólastarf er
með miklum blóma hér í Flóaskóla.“
Þrír starfsmenn veiktust vegna myglu
Sérfræðingar taka út húsnæði Flóaskóla í Flóahreppi Engin börn hafa veikst Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-ráðherra hefur falið Jóni Snædal
öldrunarlækni að móta drög að
stefnu í málefnum fólks með heila-
bilun. Í þeirri vinnu verði lögð
áhersla á þverfaglegt samstarf
þjónustuveitenda og á samráð við
sjúklingahópinn og aðstandendur
fólks með heilabilun, að sögn heil-
brigðisráðuneytisins.
Svandís segir aðkallandi að
draga upp skýra stefnu um heil-
brigðisþjónustu við fólk með heila-
bilun. Fyrir hendi sé mikil þekking,
en það þurfi að draga hana saman
og setja fram sem stefnu með heild-
arsýn til lengri tíma litið.
Stefna í málefnum
fólks með heilabilun