Morgunblaðið - 12.02.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
12. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.01 120.59 120.3
Sterlingspund 155.57 156.33 155.95
Kanadadalur 90.11 90.63 90.37
Dönsk króna 18.222 18.328 18.275
Norsk króna 13.92 14.002 13.961
Sænsk króna 12.937 13.013 12.975
Svissn. franki 119.77 120.43 120.1
Japanskt jen 1.092 1.0984 1.0952
SDR 166.91 167.91 167.41
Evra 136.02 136.78 136.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.1366
Hrávöruverð
Gull 1311.1 ($/únsa)
Ál 1864.5 ($/tonn) LME
Hráolía 61.66 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Gengi hlutabréfa
Icelandair lækkaði
mest allra bréfa í
Kauphöll Íslands í
gær, eða um
5,19%, og bættist
það við tæplega
16% lækkun á
genginu síðasta
föstudag, en félag-
ið skilaði uppgjöri
sl. fimmtudag.
Samtals hefur gengi félagsins þá lækk-
að um rúm 20% á aðeins tveimur við-
skiptadögum í Kauphöllinni.
Næst mesta lækkunin í gær varð á
bréfum Eimskipa, eða 1,22% auk þess
sem bréf tryggingafélagsins VÍS lækk-
uðu um 1,19%.
Mesta hækkunin í Kauphöllinni í gær
varð á bréfum Marels, en bréf félags-
ins hækkuðu um 1,25%. Þá hækkaði
gengi fasteignafélaganna Reita og Eik-
ar, en Reitir hækkuðu um 0,28% og Eik
um 0,24%. tobj@mbl.is
Icelandair hélt áfram að
lækka í Kauphöllinni
Flug Icelandair
lækkað um 20%:
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Bílasala fer afar hægt af stað það
sem af er ári. Samkvæmt tölum frá
Bílgreinasambandinu er salan á
nýjum bifreiðum 50% minni í janúar
í ár en hún var í fyrra.
Kjaraviðræður hægja á
Að sögn Jóns Trausta Ólafssonar,
formanns Bílgreinasambandsins,
var janúarmánuður árið 2018 þó
óvenjugóður en það útskýrir ekki að
fullu leyti þessa miklu sveiflu niður
á við. Segir hann yfirstandandi
kjaraviðræður á vinnumarkaði vera
eina ástæðu fyrir minni sölu og þá
hafi bílaleigur haldið að sér höndum
í upphafi árs.
„Árið hefur byrjað frekar hægt
en við finnum að það eru margir í
startholunum og eru að huga að
bílakaupum. En það er klárt mál að
yfirstandandi kjaraviðræður hafa
mjög frestandi áhrif á bílasölu,“
segir Jón Trausti en alls seldust
846 nýir bílar í janúar miðað við
1.623 í fyrra, sem er minnkun um
48%.
„En það ber að hafa í huga að
janúar árið 2018 var eini mánuður-
inn sem var betri en sambærilegur
mánuður árið 2017. Janúar 2018 var
því frekar stór,“ segir Jón Trausti
við Morgunblaðið.
Hann segir ástæðulaust að hafa
áhyggjur enda sé meðalaldur bíla
hér á landi um 12 ár. „Bílafloti
landsmanna er orðinn talsvert gam-
all og við teljum mikla undirliggj-
andi endurnýjunarþörf framundan,“
segir Jón Trausti.
„Það er meira framboð af rafbíl-
um og tengiltvinnbílum og spar-
neytnum bensín- og dísilvélum.
Þess vegna held ég að það verði
talsverð endurnýjun framundan þó
salan sé hæg í augnablikinu,“ segir
Jón Trausti en ný könnun MMR
sýnir m.a. fram á meiri áhuga fólks
á kaupum á rafbílum.
„Við teljum að jákvæð niðurstaða
um hóflega kjarasamninga muni
hleypa þessu af stað aftur. Fram að
því verður þetta eflaust frekar
hægt,“ segir Jón Trausti og nefnir
aðra áhrifaþætti. Bílverð sé tiltölu-
lega hagstætt, krónan nokkuð sterk
og undirliggjandi endurnýjunarþörf
á þessu ári og því næsta sé talsverð.
Sala á nýjum bifreiðum
dregst saman um 50%
Bílasala Janúarmánuður var óvenjugóður í fyrra, að sögn Jóns Trausta. Þá voru seldir 1.632 bílar en aðeins 846 í sama mánuði í ár.
Bílasala
» Bílasala hefur dregist saman
um tæplega 50% í janúar miðað
við sama mánuð í fyrra.
» 1.632 nýir bílar seldust í fyrra í
janúar en 846 seldust í ár.
» Jón Trausti Ólafsson, formað-
ur Bílgreinasambandsins, segir
yfirstandandi kjaraviðræður
spila inn í dræma sölu.
» Bílaleigur draga saman seglin.
Yfirstandandi kjaraviðræður hafa frestandi áhrif Bílaflotinn gamall
Jón Trausti segir að bílaleigurnar
hafi verið að halda að sér höndum í
upphafi árs og hefur áhyggjur af
stöðu mála í greininni.
„Ég hef aðeins áhyggjur af stöð-
unni í þeirri grein og tel að stjórn-
völd gætu gert betur í því að styðja
við þeirra rekstrarumhverfi. Bíla-
leigubílar eru mikilvægur liður í
því að dreifa ferðamönnum um Ís-
land,“ segir Jón Trausti.
Að sögn Sigfúsar Bjarna Sigfús-
sonar, forstjóra Hertz á Íslandi,
mun fyrirtækið líklega kaupa um
20% færri bíla í ár en í fyrra. Að
sögn Steingríms Birgissonar hjá
Bílaleigu Akureyrar nemur hlut-
fallið 25% hið minnsta hjá þeim of-
an á 30% minnkun í fyrra.
Sigfús segir Hertz fara hægar af
stað en venjulega í upphafi árs í
ljósi ýmissa óvissuþátta í ferðaþjón-
ustu og nefnir einnig að niðurfell-
ing á vörugjöldum, sem fyrir
nokkrum árum síðan nam allt að
einni milljón, sé ekki lengur fyrir
hendi.
„Við erum núna einu aðilarnir í
atvinnurekstri sem bera full vöru-
gjöld. Þetta skapar mikla óvissu í
okkar rekstri og er mjög slæmt,“
segir Sigfús.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Umsvifaminni Bílaleigur fara varlega í sakirnar við kaup á bílum í upphafi
árs. Sigfús segir Hertz gera ráð fyrir að kaupa 20% færri bíla í ár en í fyrra.
Áhyggjur af bílaleigum
sem draga saman seglin