Morgunblaðið - 12.02.2019, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Verslanir í mið-borginni
hugsa sér mjög til
hreyfings um þess-
ar mundir. Ástæð-
an er sú, eins og
fram kom á dögunum í opnu
bréfi fjölda þeirra til borg-
arinnar, að lokanir gatna hafa
dregið úr viðskiptum.
Á þessar afleiðingar öfga-
fullrar lokunarstefnu núver-
andi borgarmeirihluta hefur
ítrekað verið bent, en meiri-
hlutinn lætur sér ekki segjast.
Hann telur að miðborgin sé
einungis fyrir íbúa næsta ná-
grennis og erlenda ferðalanga.
Hinir eiga að halda sig fjarri,
nema þeir sem kjósa að koma á
reiðhjólum eða mögulega
strætisvagni, en fáir hafa
reynst vilja nýta
þessa ferðamáta til
að sækja verslanir í
miðborginni.
En hver ætli við-
brögð borgar-
stjórnarmeirihlutans séu? Sig-
urborg Ósk Haraldsdóttir,
formaður skipulags- og sam-
gönguráðs Reykjavíkurborgar,
segir að sér þyki eðlilegt að
fyrirtæki færi sig til í borginni,
en að hún hafi ekki sérstakar
forsendur til að meta hvernig
sú þróun sé.
Formaður skipulags- og sam-
gönguráðs hefði ef til vill for-
sendur til að leggja mat á þessa
þróun ef hún ræddi við versl-
unareigendur eða í það minnsta
læsi opið bréf sem þeir skrifuðu
henni og félögum hennar.
Borgaryfirvöld eru
lagin við að hlusta
ekki á borgarbúa}
Eðlilegur flótti úr miðborginni?
Stefnuræðurevrópskraforsætisráð-
herra eru orðnar
æði keimlíkar sein-
ustu árin og er ekki
víst að utanaðkom-
andi gætu fundið út
úr því með lestri
þeirra einum hvar höfundurinn
stæði í stjórnmálum. Á þessu
eru þó til undantekningar.
Ungverski forsætisráð-
herrann, Viktor Orban, fór að
minnsta kosti létt með það að
vera óvenjulegur þegar hann
flutti stefnuræðu sína á sunnu-
daginn. Hann hefur eins og aðr-
ir heyrt þýska stjórnmálamenn
réttlæta gáleysislega innflytj-
endastefnu sína með því að vísa
á það neyðarástand að heima-
þjóðin sé ekki lengur sjálfbær.
Eigi hennar atbeini einn að sjá
um framhald tilverunnar sé vá
fyrir dyrum. Þjóðverjar hafa
ekki lífeyrissjóði eins og Íslend-
ingar svo að dæmi sé nefnt. Þeir
byggja á gegnumstreymiskerfi.
Næsta kynslóð verður að halda
uppi þeim sem fóru á undan,
sem er ærið verkefni með sí-
hækkandi lífaldri.
Ungverski forsætisráð-
herrann viðurkenndi í stefnu-
ræðu sinni um stöðu og horfur
þjóðarbúsins að Ungverjar
sjálfir eiga fullt í fangi með
þennan þátt. En hann vill aðra
lausn en stjórnlaust aðstreymi
innflytjenda. Því með því sé
verið að skipta um þjóð þótt það
sé gert með agúrkuaðferðinni
sem ESB er svo nærtæk.
Orban vill að heimamenn, og
þá með ungverskar konur í að-
alhlutverki, grípi í taumana.
Hann býður þeim konum sem
eignast og ala upp fjögur börn
eða fleiri m.a. eftirfarandi
stuðning ungverska ríkisins:
Þær skulu vera undanþegnar
tekjuskatti til lífstíðar! Þær
skulu fá styrk sem
nemur einni milljón
króna (laun og
verðlag er miklum
mun lægra þar en
hér á landi) til að
kaupa sjö sæta bif-
reið fyrir fjölskyld-
una. Og sú kona
sem ekki er orðin fertug og
ákveður að gifta sig í fyrsta
skipti skal eiga kost á láni sem
svarar til fjögurra milljóna
króna frá ríkinu með sérlega
hagstæðum kjörum.
Viktor Orban sætir sífelldu
skensi og uppnefnum frá leið-
togum ESB og margvíslegum
hótunum í kaupbæti. Hann er
kallaður lýðskrumari af því að
hann vinnur sigra í kosningum.
Þeir hafa sett hann í þau mót
sem þeir hafa fyrir stjórn-
málamenn ESB og segja hann
rekast hvarvetna í skileríið, sem
öllum sönnum, hlýðnum og
litlum esb-stjórnmálamönnum
ber að halda sig innan, þótt eng-
inn þeirra hafi nokkru sinni ver-
ið spurður um það. Geri þeir
það fá þeir stoltir stjörnu í stíla-
bókina sína.
Það bætir að sjálfsögðu ekki
stöðu Orbans í Brussel að hann
hefur margoft farið með sigur í
kosningum. Hinir ókjörnu herr-
ar í Brussel hafa enn ekki orðað
það upphátt að rétt sé að banna
kosningar. En þeim þykir lítið
til þeirra koma og hafa náð að
knýja það fram hingað til að
þjóðaratkvæði, sem sýnir einatt
þjóðarvilja betur en allar aðrar
kosningar, séu jafnan end-
urtekin þar til hinum ókjörnu
hugnast niðurstaðan.
Þeim líst bölvanlega á þá
hugmynd ungverska forsætis-
ráðherrans að halda dauðahaldi
í þjóðina sem kýs hann í kosn-
ingum í stað þess að koma sér
upp nýrri þjóð þegar sú gamla
er að ganga úr sér.
Orban ungverski
kemur enn á óvart.
Í Brussel
ná menn ekki
upp í nefið á sér }
Orban fer enn
út af sporinu
Í
slensk stjórnvöld lýstu nýlega yfir
stuðningi við Juan Guaidó til bráða-
birgða, en Guaidó er lýðræðislega rétt-
kjörinn forseti valdalauss þjóðþings
Venesúela. Með því skipaði Ísland sér í
raðir vestrænna ríkja, sem er ánægjulegt. Í
framhaldinu er rétt að það fari fram kosningar í
landinu og til lengri tíma litið tekst Venesúela
vonandi að rífa sig upp úr þeirri eymd sem sósí-
alistar hafa valdið almenningi í landinu á und-
anförnum árum.
Um það er ekki deilt að efnahagur Venesúela
er í molum. Milljónir manna hafa flúið land, lyf
og matvæli fást ekki nema fyrir útvalda vini
stjórnvalda, skólar og heilsugæslur geta ekki
starfað, ungbarnadauði hefur aukist um 30% og
dauðsföllum sængurkvenna hefur fjölgað um
65%, innviðir á borð við dreifikerfi rafmagns eru
í molum, gjaldmiðill landsins er með öllu verð-
laus, réttarkerfið hefur verið svo gott sem afnumið, póli-
tískir andstæðingar stjórnvalda eru fangelsaðir og pynt-
aðir og þeir einu sem hafa það gott eru vinir og ættingjar
þeirra sem fara með völdin. Í landinu ríkir algjör upplausn.
Um miðja síðustu öld var Venesúela eitt ríkasta land
heims. Þrátt fyrir miklar náttúruauðlindir, s.s. olíu og frjó-
samt land fyrir matvælaframleiðslu, ríkir nú hungursneyð
í landinu – hungur í boði hugmyndafræði sem hefur alltaf
haft slæmar afleiðingar fyrir almenning. Það gefst ekki
rúm til að rekja alla söguna hér í þessum stutta pistli og
vissulega hafa utanaðkomandi aðstæður einnig haft áhrif á
efnahagsþróun í landinu, líka til hins verra.
Meginástæðuna fyrir þeim efnahagsvanda sem
hefur ríkt í landinu síðastliðin fimm ár má þó
nær eingöngu rekja til stefnu sósíalista. Önnur
olíuríki hafa einnig fundið fyrir lækkun olíu-
verðs án þess þó að efnahagur þeirra hafi
hrunið eins og spilaborg. Slæm efnahagsstjórn
og spilling eru þó ekki einu afrek sósíalista í
landinu á síðustu árum. Með því að beita bæði
her og glæpagengjum hafa stjórnvöld níðst á
almenningi í landinu með ofbeldi, kúgun og
niðurlægingu. Slík hegðun kom til löngu áður
en efnahagur landsins fór í vaskinn.
Á sama tíma og vestræn lýðræðisríki lýsa
yfir stuðningi við Juan Guaidó reyna margir,
sem allir eiga það sameiginlegt að styðja sósíal-
íska hugmyndafræði, að gera lítið úr afleið-
ingum sósíalískrar stefnu stjórnvalda í Vene-
súela og snúa umræðunni í einhvers konar
andúð á heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Það er engu lík-
ara en að þessir aðilar trúi því að eymd íbúa Venesúela sé
þess virði svo lengi sem Bandaríkjamenn skipti sér ekki af
málum.
Staðreyndin er sú að við erum í enn eitt skiptið að sjá
skipsbrot sósíalismans. Afleiðingar sósíalisma eru alltaf
þær sömu fyrir almenning; eymd, volæði og hungur.
aslaugs@althingi.is
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Í vörn fyrir sósíalismann
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar
og ritari Sjálfstæðisflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
„Símtöl vegna eitraðra plantna
aukast á sumrin t.d. þegar ferða-
menn rugla saman íslenskum
plöntum, sem ekki er óhætt að borða,
og plöntum frá sínu heimalandi. Það
sama má segja um sveppi sem líkjast
ætum sveppum t.d. í Austur-Evrópu
en eru eitraðir hér á landi,“ segir
Helena og bætir við að alltaf sé eitt-
hvað um fyrirspurnir og tilkynn-
ingar vegna eitraðra sveppa sem fólk
tínir í þeim tilgangi að komast í vímu.
Járn í vítamínum hættulegt
Helena segir að í 58% tilfella
snúi fyrirspurnir að eitrunum vegna
barna og unglinga undir 18 ára aldri.
Flestar fyrirspurnir berist á milli kl.
16 og 18 frá heimilum og flokkist sem
óhöpp. Algengt er að börn komist
t.d. í töskuna hjá ömmu sinni og finni
þar lyf sem þau taki eða kíki í nátt-
borðsskúffuna hjá afa og finni lyf
þar. Þau geti náð sér í vítamín sem
geymd eru á eldhúsborði en járn í
vítamínum getur verið sérlega
hættulegt börnum.
„Það kemur fyrir að foreldrar
gefi börnum sínum röng lyf eða ann-
an styrkleika en þau eiga að fá. Það
hefur komið fyrir að þegar foreldri
gefur barni mixtúru skilji það mixt-
úruna eftir á borðinu og snúi sér við
til að ná í eitthvað en barnið sturti í
sig úr flöskunni og fái of stóran
skammt,“ segir Helena sem ráð-
leggur fólki að geyma lyf í læstum
lyfjaskáp, skilja aldrei vítamín eftir
á borðum, loka uppþvottavélum,
kaupa ekki hreinsiefni nema með
barnalæsingum og hella aldrei
hreinsiefni úr upprunalegum um-
búðum yfir í plast- eða gos-
drykkjaflöskur því börn greini ekki
hvort litaður vökvi í plastflösku sé
gosdrykkur eða hættulegt hreinsi-
efni.
Munur á kynjunum
„Drengir eru í meirihluta þeirra
sem komast í tæri við eiturefni í öll-
um aldursflokkum til 12 ára aldurs,
en stúlkur og konur eru fleiri frá 13
ára aldri. Þetta hafa tölur sýnt bæði
hér á landi og í ársskýrslum er-
lendra eitrunarmiðstöðva. Þegar
kemur að unglingsárunum eru
drengir líklegri til að hringja eftir að
hafa misnotað ýmis efni en stúlkur
eru líklegar til að nota lyf í sjálfskað-
andi tilgangi,“ segir Helena og bend-
ir á að rannsóknir skorti á því hvers
vegna munur sé á kynjunum í þessu
sambandi.
Helena bendir á að á síðunni
forvarnarhusid.is, sem er heimasíða
Miðstöðvar slysavarna barna, séu
taldar upp þær hættur sem börnum
eru búnar á mismunandi aldurs-
skeiðum og ráð um það hvernig
hægt sé að gera umhverfi barna
öruggara.
58% tilfella vegna
barna og unglinga
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ráðgjöf Eitrunarmiðstöðin er á Bráðamóttöku Landspítala. Hægt er að fá
aðstoð allan sólarhringinn í síma 5432222, 5431000 og 112.
FRÉTTASKÝRING
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Við teljum að fjölgun símtalatil EitrunarmiðstöðvarLandspítalans, EM, frá2018 sé ekki endilega
vegna fleiri eitrunartilfella á Íslandi
heldur breyttum við verklagi og
skráningu símtala til EM og eru
skráningar í dag mun markvissari en
áður var, segir Helena Líndal, for-
stjóri Eitrunarmiðstöðvar og bendir
á að EM svari fyrirspurnum vegna
hugsanlegra eiturnartilfella, bæði frá
almenningi og heilbrigðisstarfs-
mönnum, allan sólarhringinn alla
daga ársins.
Helena segir að áður en verklagi
var breytt hafi EM ekki skráð símtöl
eins markvisst í gagnagrunn EM.
Fjöldi símtala hafi því verið mun
meiri en gögn gáfu til kynna ef miðað
er við fjölda samtala sem bárust í
gegnum skiptiborð Landspítalans.
„Það er erfitt að meta hversu
mikil aukning hefur orðið á símtölum
síðustu ár en einhver hefur hún orðið
eins og við var að búast með auknum
fjölda fólks á Íslandi og fleiri ferða-
mönnum. Auk þess hafa almennar
fyrirspurnir aukist með markvissum
aðgerðum til þess að kynna og gera
símanúmer EM sýnilegra, segir Hel-
ena. Að sögn hennar sýna tölur frá
EM ekki öll tilfelli eitrunar sem verða
á Íslandi. Margir hringi beint í neyð-
arlínuna, eins og eigi að gera ef til-
fellið er brátt eða snúi sér beint til
heilsugæslustöðva og bráðamótttöku.
Þau samskipti skila sér ekki til EM.
20% leita til bráðamóttöku
Fyrirspurnir vegna lyfjaeitrana
voru tæp 46% af öllum símtölum árið
2018 og vegna annarra eiturefna rúm
48% en almennar fyrirspurnir rúm
6% að sögn Helenu sem segir að al-
varleg tilfelli þar sem leita þurfi á
bráðamóttöku árið 2018 séu um 20%
allra tilfella og undir þau flokkist
óhöpp, sjálfsvígstilraunir, alvarleg
slys vegna eiturefna og vinnuslys.
42% fyrirspurna vegna eitrana
varði fullorðna. Eldra fólk hringi oft
til að fá ráðleggingar þegar það telur
að það hafi óvart tekið lyfin sín tvisv-
ar. Eldra fólki sem aðeins sé farið að
tapa minni sé þá ráðlagt að fá lyfja-
skömmtun og sleppa þannig við
áhyggjur af lyfjagjöfinni.