Morgunblaðið - 12.02.2019, Side 25
ar en ekki í Slippfélaginu og það
urðu alltaf fagnaðarfundir. Ég
vil votta Svövu, fjölskyldu og
vinum Þóris mína dýpstu sam-
úð.
Snorri Ásmundsson
myndlistarmaður.
Með þessum orðum vil ég
minnast Þóris Magnússonar,
æskuvinar míns, lífsins sem þá
var og við upplifðum saman.
Um jólaleytið 1962 fluttum við
fjölskyldan mín frá Sauðárkróki
til Akureyrar, í Grænumýrina á
Norðurbrekkunni. Þá var ég sex
ára. Við Þórir í húsi nr. 11
kynntumst mjög fljótt enda ég
eini jafnaldri hans í götunni. Og
það var nóg að bralla þarna fyrir
fjöruga krakka. Fyrir utan skól-
ann á veturna, snjóboltakast, að
teika bíla, fara á skíði, tefla og
spila, leika „músík“ á potta og
þvottaprik, moka snjó fyrir
mömmurnar og lóna í kringum
jafnöldrur okkar. Á sumrin var
það fótbolti, sund, hjólaferðir,
byssuleikir, hverfaslagir, hest-
areiðnámskeið, að fara í yfir og
sumarbúðir. Og svo Sanaferð-
irnar. Þórir bjó við þann lúxus
að pabbi hans, Magnús Þórisson,
var verkstjóri í gosverksmiðj-
unni Sana, langt niðri á Eyri. Og
hún var mikið undur fyrir okkur
pollana, færibönd um allt, þvott-
ur, fylling, töppun, merking og
pökkun á glerflöskum. Þar
svolgruðum við gosdrykkina,
Mix, Valash, Jolly Cola og
Cream soda og á heimleiðinni
var komið við hjá sælgætis-
gerðinni Lindu í leit að lindu-
buffs-klístri til að hafa orku í að
hjóla heim.
Svo urðu börn götunnar okk-
ar táningar. Nú fór annað að
skipta máli og við meðvitaðri um
fötin, klippinguna, bólurnar og
hitt kynið. Ég fór í sveit og á sjó
á sumrin með pabba mínum á
þessum árum. En Þórir fór aldr-
ei langt, var nánast alltaf heima.
Fjölskylda hans flutti síðan í
Hamragerði, ofan Grænumýrar.
Þórir kom þó áfram mikið við í
Grænumýrinni. Og svo breytt-
ust táningarnir í kærustur og
kærasta, iðn- og menntaskóla-
nema, verkamenn og sjómenn.
Bílprófið og aðgangur að bíl til
að fara á rúntinn gaf yfirburða-
stöðu í lífi táningsins. Þóri
fannst gaman á bæjarrúntinum
en mér ekki og hann gafst því
fljótlega upp á að flauta fyrir ut-
an nr. 6.
Þórir var ekkert að flækja líf-
ið. Það kom t.a.m. aldrei neitt
annað til greina en að eiga alltaf
heima á Akureyri.
Þar varð hann að húsamálara,
eiginmanni, föður og góðum fé-
laga síns fólks og þaðan fer hann
í sína hinstu ferð. Ég fór aftur á
móti alfarinn frá Akureyri að
mestu eftir stúdentsprófið og
kynntist því lítið hans eigin fjöl-
skyldu.
Þórir var duglegur og sam-
viskusamur, vann of oft of mikið
og hugsaði ekki nógu vel um
heilsuna. Hann og Svava, eig-
inkona hans, eignuðust þrjú
efnileg börn.
Það er mín von að þeim farn-
ist með tímanum að breyta sorg-
inni í ásetning um að uppfylla
óskir pabba síns fyrir þeirra
hönd og þau nái þannig að lifa
tilgangsríkara lífi með harmin-
um af föðurmissinum.
Við Þórir ætluðum alltaf að
hittast. En það varð aldrei. Mín
skömm, því ég átti oft leið um
Akureyri.
Við sem lifum Þóri ættum að
láta hans skyndilega brottkall
verða okkur áminningu um það
að lífið er núna, ekki seinna, og
að ekkert er meira gefandi en
núvera með góðum vinum og þá
þarf ekki alltaf að vera að tala,
bara vera, því þögul samvera er
merki traustrar og einlægrar
vináttu.
Hvíldu í friði minn sanni
æskuvinur.
Finnbogi
Alfreðsson.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019 25
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Grjótbækur Kjarvals, 3 stk. ib.,
Old Nordisk Ordbog 1863, Eiríkur
Jónsson, Hlín ib., Svarfdælingar
1-2, Laxamýrarætt, Skútustaða-
ætt, Síðasti Musterisriddarinn,
Parsival, 1-2, Ættir Austfirðinga
1-9, Skýrslur um landshagi á
Íslandi 1-5, Skaftáreldar 1783-4,
Aldarfar og örnefni í Önundar-
firði, Ódáðahraun 1-3, Súg-
firðingabók, Strandamenn, Guð-
spjallanna samhljómur, Hólar
1749, Þorsteinsætt í Staðarsveit
1-2, Ættir Austur-Húnvetninga 1-
4, Tröllatunguætt 1-4, The Sec-
ond World War 1-6, Churchill,
Sýslumannaævir 1-5, Kvosin.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Bátavélar-Bílalyftur-Rafstöðvar
TD Marine bátavélar 37 og 58 hp
með gír og mælaborði.
Rafstöðvar og Bílalyftur Heimasíða
www.holt1.is
Holt Vélasala S. 895 6662
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
Alzheimersamtakanna, verður gestur á
hádegisfundi SES, miðvikudaginn 13.
febrúar kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á
súpu gegn vægu
gjaldi, 1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Kirkjubraut 32, Njarðvík, fnr. 209-3818, þingl. eig. Helga Valgeirsdóttir
og Bergur Reynisson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn
19. febrúar nk. kl. 09:00.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
11. febrúar 2019
Tilkynningar
Auglýsing vegna
úthlutunar byggðakvóta
á fiskveiðiárinu 2018/2019
sbr. reglugerð um úthlutun byggða-
kvóta til fiskiskipa nr. 685, 5. júlí 2018
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir:
Vopnafjörð
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra
úthlutunarreglna í neðanskráðum byggða-
lögum sbr. auglýsingu nr.141/2019 í Stjórnar-
tíðindum
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur,
Hauganes)
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Tálknafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður (Sauðár-
krókur, Hofsós)
ATH.: Umsóknum skal skila í gegnum
rafræna umsóknargátt en vinnslusam-
ningum er skilað í tölvupósti á
byggðakvoti@fiskistofa.is á
eyðublöðum sem er að finna á heima-
síðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), þar
eru ofangreindar reglur einnig
aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til
og með 25. febrúar 2019
Fiskistofa, 11.02.2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stóla jóga kl. 9.30.
Gönguhópur kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Bíó í
miðrými kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu kl. 11. Brids kl.
13. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar kl.
20. Allir velkomnir, Safnaðarfélag kirkjunnar.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bústaðakirkja Miðvikudaginn 13. febrúar er félagsstarfi Bústaða-
kirkju boðið í heimsókn í Grensáskirkju. Mæting er þar kl. 14, þar sem
séra María Ágústsdóttir tekur á móti okkar fólki. Hólmfríður djákni í
Bústaðakirkju verður einnig á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur sem
flest í Grensáskirkju. Ekkert starf verður í safnaðarsal Bústaðakirkju
þennan dag.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stund-
ina á vægu verði. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson segir frá ferð til
Ísrael. Hefðbundið starf að öðru leyti. Verið velkomin.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverkstofa kl. 13. Landið
skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar kl.14.30. Velkomin!
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Tréskurður/smíði í Smiðju kl. 9/13. FEBG er
með ferðakynningu í Jónshúsi kl. 15.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl.
9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps
kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara er í Grafarvogskirkju
kl. 13 til 16 alla þriðjudaga. Fyrir opna húsið er helgi- og fyrirbæna-
stund kl. 12 þar sem öllum er frjálst að mæta og er súpa og brauð í
boði fyrir vægt gjald þar á eftir. Hér er fjölbreytt dagskrá þar sem allir
ættu að geta fundið eitthvað við hæfi.
Grensaskirkja Kyrrðarstund kl. 12. Verið velkomin.
Gullsmári Myndlistar hópur kl. 9. Botsía kl. 9.30, málm- og silfur-
smíði / kanasta / tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr. mánuðurinn, allir
velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11.
Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl 13, nota-
leg og skemmtileg samvera þar sem allir eru velkomnir að vera með.
Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Kl. 9 dansleikfimi, kl. 10 qi-gong, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13 og eftir-
miðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, Myndlistanámskeið
Margrétar Zóphaniasd. kl. 9-12, thai chi kl. 9-10, Leikfimi kl. 10-10.45,
Spekingar og spaugarar kl. 10.45-11-45, hádegismatur kl. 11.30, Kríur
myndlistarhópur kl. 13, brids kl. 13-16, tölvuleiðbeiningar kl. 13, Síð-
degiskaffi kl. 14.30, U3A kl. 16.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari
upplýsingar í síma 411-2790,
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum, botsía kl. 10 og 16 í Borgum,
helgistund kl. 10.30, leikfimishópur kl. 11 undir stjórn Ársælls í Egils-
höll, sundleikfimi kl. 13.30, heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið úr blöðum kl. 9.45,
trésmiðja kl. 9-12, upplestur kl. 11-11:30, opin listasmiðja kl. 9-12 og
13-16, kaffihúsaferð kl. 14, botsía, spil og leikir kl. 16, tölvu- og snjall-
tækjakennsla kl. 17.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.
11.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Helgistund á Skólabraut kl. 13.30.
Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30–15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur Skák kl. 13, allir velkomnir
Félagslíf
EDDA 6019021219 I
Nú þú það sem
þú eia að
FINNA.is