Morgunblaðið - 12.02.2019, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2019
Það sem við gerum í einrúminefnist nýtt íslenskt kvik-myndaleikhúsverk um ein-semdina sem SmartíLab
frumsýndi í Tjarnarbíói fyrr í mán-
uðinum. Verkið skrifuðu Heiðar
Sumarliðason og Sara Martí Guð-
mundsdóttir í sameiningu, en þau
hafa á umliðnum árum í sitt hvoru
lagi sett upp eftirtektarverðar sýn-
ingar um málefni sem brunnið hafa á
þeim. Skemmst er að minnast
(90)210 Garðabær eftir Heiðar í leik-
stjórn höfundar sem leikfélagið
Geirfugl frumsýndi 2015 þar sem
einelti var notað til að skoða ákveðna
þætti samfélagsstrúktúrsins. Undir
merkjum SmartíLab leikstýrði Sara
Martí fyrir tveimur árum samsköp-
unarsýningunni Fyrirlestur um eitt-
hvað fallegt sem lýst var sem
gamanverki um kvíða. Sama ár leik-
stýrði hún hjá Leikfélagi Akureyrar
Núnó og Júníu, sem hún skrifaði í
samvinnu við Sigrúnu Huld Skúla-
dóttur. Hvatann að því verki fundu
höfundar í þeim kröfum um útlit og
árangur sem gerðar eru til barna og
ungmenna í samtímanum með til-
heyrandi kvíða, einmanaleika og
þunglyndi.
Í kynningu á Það sem við gerum í
einrúmi er leikritinu lýst sem ein-
lægu, grátbroslegu og mannlegu
verki um einsemdina og þörf okkar
fyrir hvert annað. Verkið hverfist
um fjóra ólíka einstaklinga sem búa í
sömu blokkinni og eiga það sameig-
inlegt að vera einangraðir en af mis-
munandi ástæðum. Búningar og
leikmynd Sigríðar Sunnu Reynis-
dóttur endurspegla raunsæisanda
verksins vel. Sviðinu er skipt upp í
fjórar litlar íbúðir með jafnmörgum
inngöngum, en teppalagt rými af-
markar stigaganginn þar sem per-
sónur rekast stundum hver á aðra.
Kvikmyndatjald aftast á sviðinu er
notað með skemmtilegum hætti til
að sýna áhorfendum það sjónvarps-
og tölvuefni sem persónur eru að
horfa á hverju sinni. Á tjaldið er
einnig varpað fyrirfram uppteknum
kvikmyndasenum þar sem áhorf-
endum gefst kostur á að sjá persón-
urnar utan heimilisins, ýmist í sam-
skiptum við vinnufélaga eða á
djamminu. Samspil sviðs og kvik-
myndar virkaði býsna vel og þjónaði
raunsæisanda verksins ágætlega.
Líkt og í sýningunni Fyrirlestur
um eitthvað fallegt er húmorinn
greinilega notaður markvisst til að
létta stemninguna og á köflum er
gengið býsna langt í gamanleiknum
svo minnti jafnvel á farsa með öllum
sínum hurðaskellum og misskilningi.
Tempó sýningarinnar var samt ekki
í anda ærslafulla gamanleiksins, því
fram að hléi gerðist býsna lítið og
mjög langur tími fór í að kynna per-
sónur til leiks.
Aðstæður Valda eru svo sann-
arlega grátbroslegar og Albert
Halldórsson náði góðum tökum á
manni sem sokkinn er djúpt í bæði
skuldafen og lygar. Hann lýgur því
að móður sinni Drífu (Ragnheiður
Steindórsdóttir), sem býr í næstu
íbúð í stigaganginum, að hann sé far-
sæll fasteignasali og leggur ýmislegt
á sig til að halda þykjustuleiknum
uppi. Hans helsti draumur er að
eignast kærustu, mögulega til að
falla inn í vinahópinn þar sem aðeins
virðist í boði að hitta önnur pör.
Hann veit hins vegar ekkert hvernig
hann á að bera sig að og leitar ráða í
kennslumyndböndum á netinu með
vægast sagt afleitum árangri. Í ljós
kemur síðan að hann hefur allan tím-
ann leitað langt yfir skammt, því í
næstu íbúð býr svona líka ljómandi
skemmtileg stelpa.
Ragga (Sigríður Vala Jóhanns-
dóttir) vinnur í súkkulaðiverksmiðju
þar sem hún á lítil samskipti við
vinnufélagana að því er virðist vegna
heyrnarleysis hennar. En þegar í
ljós kemur, í samskiptum við Valda,
að hún getur hæglega notað símann
sinn til tjáskipta fer mann að gruna
að einangrunin stafi frekar af ólund
hennar en viljaleysi samstarfsfélag-
anna. Fyndnustu senur verksins
tengjast Röggu, annars vegar þegar
hún ákveður að skrifa meinlegar at-
hugasemdir sínar á málshættina
sem rata inn í súkkulaðieggin sem
hún sér um að fylla og hins vegar
samdráttur þeirra Valda sem var
dásamlega vandræðalegur. Sigríður
Vala hefur góða sviðsnærveru og
stóð sig með prýði í hlutverki Röggu.
Ragnheiður Steindórsdóttir gerir
Drífu fín skil í uppfærslunni og er
samspil hennar við soninn ólánsama
gott. Hún saknar barnabarna sinna
sem búa erlendis og setur af þeim
sökum pressu á Valda um barn-
eignir. Raunsæisanda verksins er
hins vegar vikið allhressilega til hlið-
ar þegar kemur að vinnustað Drífu,
enda ótrúverðugt að fyrirtæki á al-
mennum markaði afþakki vinnu-
framlag jafn hraustrar, duglegrar,
félagslyndrar og vel liðinnar konu
þrátt fyrir að hún sé komin á besta
aldur. Samtímis virkar það ótrúverð-
ugt að Drífa sé nánast á barmi
taugaáfalls í einsemd sinni fyrsta
daginn eftir að hún hættir loks að
vinna. Samskipti mæðginanna og
samdráttur unga fólksins hefði verið
nægur efniviður í sjálfu sér fyrir
prýðis gamanleikrit, ekki síst ef
framvindan hefði verið eimuð all-
hressilega og betur gætt að raun-
sæisrammanum sem höfundar virð-
ast vilja vinna innan.
Halldór (Árni Pétur Guðjónsson)
er fjórða aðalpersóna verksins sem
glímir við einsemd og reynir að ein-
angra sig í öruggu skjóli blokkar-
íbúðarinnar. Árni Pétur var trúverð-
ugur í mjög svo vandasömu
hlutverki. Eftir því sem verkinu
vindur fram fá áhorfendur skýringu
á því hvers vegna Halldór er jafn
taugaveiklaður og hræddur og raun
ber vitni. Um miðbikið er upplýst að
hann hafi verið dæmdur fyrir vörslu
barnakláms og þó að hann hafi ekki
verið dæmdur fyrir að misnota ein-
hvern þá benda ítrekaðar árásir
ungra pilta á hann í verkinu til ann-
ars. Sú ákvörðun höfunda að láta
eina af lykilpersónum verksins vera
mann sem mögulega er haldinn
barnagirnd án þess að verið sé að
vinna með það sem aðalefni sýning-
arinnar er sérkennileg svo ekki sé
meira sagt. Halldór verður fyrir vik-
ið bleiki fíllinn í stofunni sem yfir-
skyggir sérhverja rannsókn höfunda
á þörf fólks fyrir mannleg samskipti
og einsemd, einangrun og ótta við
höfnun sem sammannlegu fyrirbæri.
Eiga áhorfendur að hafa samúð með
Halldóri í einsemd hans eða fyllast
óhug þegar hann fer á netið til að
velja sér barn úti í heimi til að
styrkja til náms? Ber jafnvel að
túlka fjárhagsstuðning hans við
munaðarlausa barnið sem tilraun til
syndaaflausnar?
Það er ekkert nýtt í listum að
skoða barnagirnd. Má í því sam-
hengi nefna kvikmyndina The
Woodsman frá 2004 með Kevin
Bacon í aðalhlutverki og skáldsög-
una Lólítu eftir Vladimir Nabokov
sem út kom 1955. Alvarleika máls-
ins samkvæmt getur slíkt umfjöll-
unarefni hins vegar aldrei orðið
krydd í stærri frásögn eða hliðar-
saga án þess að yfirskyggja allt
annað. Af þeim sökum rennur Það
sem við gerum í einrúmi og allar til-
raunir höfunda til að skoða og
greina sammannlegt mein einsemd-
ar og samskiptaleysis út í sandinn,
sem er synd því það er mjög verð-
ugt umfjöllunarefni í samtímanum.
Hver er sinnar
gæfu smiður
Ljósmynd/Owen Fiene
Einangrun „Sviðinu er skipt upp í fjórar litlar íbúðir með jafnmörgum inngöngum, en teppalagt rými afmarkar
stigaganginn þar sem persónur rekast stundum hver á aðra,“ segir í rýni um Það sem við gerum í einrúmi.
Tjarnarbíó
Það sem við gerum í einrúmi
bbmnn
Eftir Heiðar Sumarliðason og Söru
Martí Guðmundsdóttur. Leikstjórn: Sara
Martí Guðmundsdóttir. Kvikmyndataka
og klipping: Pierre-Alain Giraud. Leik-
mynda- og búningahönnun fyrir svið og
bíó: Sigríður Sunna Reynisdóttir. Lýsing
og tæknisamsetning: Kjartan Darri
Kristjánsson. Tónsmíði og hljóðhönnun:
Stefán Örn Gunnlaugsson. Kvikmynda-
hljóðupptaka: Dagur Valgeir Sigurðsson
og Stefán Örn Gunnlaugsson Leikarar:
Albert Halldórsson, Árni Pétur Guðjóns-
son, Ragnheiður Steindórsdóttir og
Sigríður Vala Jóhannsdóttir. SmartíLab
frumsýndi í Tjarnarbíói 1. febrúar 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn
Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 18.sýn
Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 19.sýn
Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Lau 30/3 kl. 15:00 20.sýn
Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 21.sýn
Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Sun 31/3 kl. 17:00 22.sýn
Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums Fim 28/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 7.sýn
Velkomin heim (Kassinn)
Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 6.sýn Sun 17/2 kl. 19:30 7.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 14/2 kl. 19:30 Fim 21/2 kl. 19:30 Sun 24/2 kl. 21:00
Fös 15/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00
Fös 15/2 kl. 22:00 Fös 22/2 kl. 22:00 Fim 28/2 kl. 19:30
Lau 16/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 19:30
Lau 16/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 22:00
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Miðasalan er hafin!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 15/2 kl. 20:00 201. s Lau 23/2 kl. 20:00 204. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s
Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s
Fös 22/2 kl. 20:00 203. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s
Sýningum lýkur í mars.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s
Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s
Athugið, takmarkaður sýningafjöldi.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Fös 1/3 kl. 20:00 39. s
Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fös 15/2 kl. 20:00 10. s
Allra síðasta sýning!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!