Morgunblaðið - 16.03.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MARS 2019
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
GIL BRET
Verð 33.980
Þrír litir, st. 34-48
Hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi
landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari
skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.
Lýsing
Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað
er að standa að mótun stefnunnar liggur frammi til
kynningar frá 16. mars til 8. apríl 2019. Lýsingin
er aðgengileg á landsskipulag.is. Nálgast má prentað
eintak hjá Skipulagsstofnun. Allir eru hvattir til að
kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum
umnálgun og efnistök til Skipulagsstofnunar. Frestur
til að koma á framfæri ábendingum er til 8. apríl
2019. Ábendingar þurfa að vera skriflegar og geta
borist bréfleiðis, með tölvupósti á
landsskipulag@skipulag.is, eða á athugasemdagátt á
landsskipulag.is.
Kynningar- og samráðsfundir
Öllum sem áhuga hafa er jafnframt boðið til
kynningar- og samráðsfunda á eftirtöldum tímum.
Þar gefst tækifæri til að kynna sér hvernig fyrirhugað
er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka
þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í
landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag
og lýðheilsu.
Borgarnesi
Ísafirði
Selfossi
Reykjavík
Akureyri
Egilsstöðum
Blönduósi
18. mars
19. mars
20. mars
21. mars
25. mars
27. mars
2. apríl
kl 15-17
kl 14-16
kl 15-17
kl 15-17.30
kl 15-17
kl 15-17
kl 15-17
Hjálmakletti
Hótel Ísafirði
Tryggvaskála
Nauthóli
Hofi
Hótel Héraði
Hótel Blöndu
Hús opnar 15 mín. fyrir upphaf fundar á hverjum stað
Fundinum í Reykjavík verður streymt á
Facebook-síðu Skipulagsstofnunar
Nánari upplýsingar á landsskipulag.is
Allir velkomnir
Lýsing er kynnt samkvæmt 11. gr. skipulagslaga og 16. gr.
reglugerðar um landsskipulagsstefnu.
SKIPULAG UM LOFTSLAG,
LANDSLAG OG LÝÐHEILSU
Skipulagsstofnun - Borgartúni 7b - 105 Reykjavík
Hægt að snúa við – er þá einlit
Skoðið LAXDAL.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
FLOTTAR
STUTTKÁPUR
Atvinna
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Lífeyrissjóðurinn Gildi skilaði 2,4%
raunávöxtun af fjárfestingarstarf-
semi sinni í fyrra. Þannig jukust
eignir sjóðsins um 43,9 milljarða
króna milli ára og stóðu í 561,2
milljörðum króna um áramótin.
Langstærstur hluti eigna sjóðsins
eru annars vegar eignarhlutir í fé-
lögum og sjóðum, eða 273,7 millj-
arðar króna og hins vegar skulda-
bréf sem standa undir 272
milljörðum af fjárfestingarsafni
sjóðsins.
Erlend hlutabréf eru 25,2% af
eignasafninu, ríkistryggð skulda-
bréf 24,9%, innlend hlutabréf 18,3%
og önnur innlend skuldabréf eru
15,1% af eignasafninu.
Rekstrarkostnaður sjóðsins nam
873 milljónum króna í fyrra og
jókst um 67 milljónir milli ára.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Gildis, segir í til-
kynningu að miðað við aðstæður sé
ávöxtun sjóðsins ásættanleg.
„Afkoman er að mínu mati ásætt-
anleg en aðstæður á markaði voru
að mörgu leyti erfiðar á árinu 2018.
Lífeyrissjóðir eru hins vegar lang-
tímafjárfestar og í því sambandi má
benda á að hrein raunávöxtun síð-
ustu 10 árin er 3,9% og síðustu 20
árin 3,7%.“
Alls greiddu 6.090 launagreiðend-
ur iðgjöld til sjóðsins á nýliðnu ári
fyrir rúmlega 56.000 sjóðfélaga, en
alls eiga tæplega 235 þúsund ein-
staklingar réttindi hjá sjóðnum. Á
árinu greiddi sjóðurinn 23.397 sjóð-
félögum lífeyri og námu lífeyris-
greiðslur 16,5 milljörðum króna,
samanborið við 15,4 milljarða í
fyrra.
Sjóðfélagalánin vaxa mjög
Í tilkynningunni frá sjóðnum seg-
ir að beinar lánveitingar til sjóð-
félaga skipi sífellt stærri sess í
starfsemi sjóðsins. Í fyrra veitti
sjóðurinn alls 1.359 sjóðfélagalán að
fjárhæð 22 milljarðar króna. Ári
fyrr voru lánin 878 talsins og láns-
fjárhæðin 12,8 milljarðar í heildina.
Gildi skilaði 2,4% raunávöxtun
Ávöxtunin borin uppi af innlendum skuldabréfum Eignirnar 561 milljarður
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
SMARTLAND