Morgunblaðið - 06.04.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Njóttu þess að hlakka til
Krít – 10 nætur
frá 137.900 kr.
á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn
í íbúð með morgunverði.
Oscar Suites & Village
Sumarhvellur
★★★★
GILDIR Í
VALDAR BROTTFARIR
Í JÚNÍ, JÚLÍ OG ÁGÚST
Frábær verð í sumar og sól
Veður víða um heim 5.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 heiðskírt
Hólar í Dýrafirði 4 skýjað
Akureyri 4 alskýjað
Egilsstaðir 5 léttskýjað
Vatnsskarðshólar 6 skýjað
Nuuk 6 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 13 heiðskírt
Stokkhólmur 5 skúrir
Helsinki 9 heiðskírt
Lúxemborg 9 skýjað
Brussel 12 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 11 léttskýjað
London 11 skýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 11 rigning
Moskva 5 heiðskírt
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 6 skúrir
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 15 rigning
Róm 13 léttskýjað
Aþena 14 léttskýjað
Winnipeg 0 alskýjað
Montreal 1 skýjað
New York 4 rigning
Chicago 7 þoka
6. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:29 20:33
ÍSAFJÖRÐUR 6:28 20:44
SIGLUFJÖRÐUR 6:10 20:27
DJÚPIVOGUR 5:57 20:04
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag og mánudag Austan 3-8 m/s, en 8-13
við suðurströndina. Skýjað og stöku skúrir eða él
suðaustanlands, en víða léttskýjað norðan heiða.
Hiti yfirleitt 2 til 7 stig að deginum.
Austan 3-13 m/s, hvassast syðst. Skýjað og úrkomulítið austanlands, annars bjart með köflum.
Hiti 2 til 8 stig víða á landinu.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, segir boðaðar
aðgerðir í húsnæðismálum geta vegið
gegn sveiflum á markaði. Meðal ann-
ars sé horft til þess að ríkið leggi fé til
húsnæðiskaupa.
Ráðherrann skipaði starfshóp sem
falið var að meta leiðir til að lækka
þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn
á húsnæðismarkaðinn.
Tillögurnar eru í 14 liðum og eru
listaðar upp hér til hliðar.
Ásmundur Einar segir aðspurður
að unnið verði að útfærslu tveggja
þeirra. Hinar verði til umræðu.
Annars vegar verður hafinn undir-
búningur að svonefndum eiginfjár-
lánum. Með þeim veitir ríkið eigin-
fjárlán sem geta numið 15-30% af
kaupverði og eru án afborgana.
Með því á að koma til móts við þá
sem skortir eigin fé fyrir útborgun.
Skv. tillögunum endurgreiðist lánið
við sölu íbúðar eða eftir 25 ár.
Hins vegar verður unnið að út-
færslu á ráðstöfun 3,5% lífeyris-
iðgjalds skattfrjálst til húsnæðis-
sparnaðar. Útvíkka á heimild til
ráðstöfunar á allt að 6% séreignar-
sparnaðar skattfrjálst til fyrstu
kaupa svo einnig verði heimilt að nýta
þessi 3,5%, eða alls 9,5%.
Fyrstu frumvörp í þessu efni geti
litið dagsins ljós á haustþingi.
Séreignin mögulega útvíkkuð
Hópurinn lagði til fleiri tillögur
sem varða séreignarsparnað.
Ásmundur Einar segir aðspurður
að tillögurnar verði skoðaðar frekar í
samtali við aðila vinnumarkaðarins.
Til greina komi að útvíkka frekar ráð-
stöfun séreignarsparnaðar og þá
jafnvel til allra hópa. Rætt var um að-
gerðirnar í samhengi lífskjarasamn-
inganna sem bíða samþykkis.
Spurður um kostnað ríkisins af
þessum tillögum segir Ásmundur
Einar að heildarkostnaðurinn hafi
ekki verið metinn. Hins vegar verði
kostnaður af ýmsum breytingum, svo
sem afslætti af stimpilgjaldi, óveru-
legur fyrir ríkissjóð. Jafnframt feli
úttekt lífeyrissparnaðar í sér að ríkið
verði af skatttekjum í framtíðinni en
ekki við úttektina. Þá séu eigin-
fjárlánin tilfærsla fjármuna.
„Ef við færum okkur úr því að
vaxtabæturnar miði aðeins að
ákveðnum, þröngum skilgreindum
hóp sem er í mjög slæmri stöðu og
færum fjármagnið að einhverju leyti
yfir í eiginfjárlán er það ekki eigin-
legur kostnaður fyrir ríkið nema til
skamms tíma … Þegar einstakling-
urinn selur eiginina losnar um það
aftur,“ segir Ásmundur Einar.
Hann segir aðspurður eftir að út-
færa hvaða stofnun mun halda utan
um eiginfjárframlagið. Íbúðalána-
sjóður muni fá það hlutverk að fylgja
tillögunum eftir.
Hugmyndir séu um að sameina
hluta sjóðsins við Mannvirkjastofnun
í húsnæðisstofnun. Sú stofnun eigi að
bera aukna ábyrgð á gerð húsnæð-
isáætlana í samstarfi við sveitarfélög-
in. Með slíkum áætlunum eigi að
stuðla að betra jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar og sporna gegn
sveiflum á markaði.
Markaðurinn hafi brugðist
Spurður um það sjónarmið að best
sé að eftirláta markaðnum að meta
framboðið segir Ásmundur Einar að
sjá megi „hvernig það hafi gengið á
undanförnum árum“. Það hafi orðið
augljós markaðsbrestur. „Algjörlega
óbeislaður markaður“ muni enda
„skilja lægstu tekjuhópana eftir“,
eins og reynslan sé til vitnis um.
Ráðherrann bendir á að síðustu 10
ár hafi um 1.500 manns á ári farið á
leigumarkaðinn. Með aðgerðunum sé
sennilegt að hlutfall fólks í eigin hús-
næði hækki á nýjan leik.
Telur hann aðspurður að hægri
menn sem styðja séreignarstefnuna á
kostnað leigumarkaðar hljóti að vilja
gera fólki kleift að eignast húsnæði.
Ásamt þessum aðgerðum muni rík-
ið meðal annars leggja til stofnfram-
lag til uppbyggingar íbúða, svo sem á
vegum Bjargs íbúðafélags. Stutt
verði við óhagnaðardrifin leigufélög.
Tillögur starfshópsins séu framhald
af tillögum átakshóps um aðgerðir í
húsnæðismálum sem kynntar voru
22. janúar sl. Næsta skref sé að kort-
leggja félagslega stöðu fólks á hús-
næðismarkaði sem fór illa út úr efna-
hagshruninu.
Frosti Sigurjónsson, rekstrarhag-
fræðingur, leiddi vinnu starfshópsins.
Hann benti í ræðu sinni á að á tíma-
bilinu 2003-2018 hefði ríkið varið 170
milljörðum til vaxtabóta sem voru út-
gjöld fyrir ríkissjóð. Hefði ríkið hins
vegar varið sömu fjárhæð í eiginfjár-
lán myndi það eiga þá fjármuni í dag
og mörgum hefði verið hjálpað að
eignast húsnæði. Reynsla Breta af
eiginfjárlánum bendi til að þau hafi
lítil áhrif á verðþróun. Það sé ekki
tæknilega flókið að útfæra lánin.
Íbúðalánasjóður ráði t.d. vel við verk-
efnið. Slík lán geri fólki með lítið eigið
fé kleift að kaupa húsnæði. Bankar
láni fyrir stærstum hluta kaupverðs-
ins en ríkið komi á móti.
Svigrúm til hagstæðari lána
Með því að lækka lánshlutfall hjá
banka skapist tækifæri til að taka
hagstæðari lán, þar með talið óverð-
tryggð. Eiginfjárlán eru endurgreidd
við sölu íbúðar, eða að 25 árum liðn-
um en þá sé lántakinn líklega búinn
að greiða niður önnur lán að miklu
leyti og með svigrúm til að borga eig-
infjárlánið til baka.
„Eiginfjárlánið verður þá greitt
upp samkvæmt matsvirði sem er
sanngjarnt fyrir báða aðila.“
Þá auðveldi skattfrjáls ráðstöfun
3.5% tilgreindrar séreignar til íbúða-
kaupa tekjulágum að eignast hús-
næði.
Markaðsbrestur leiðréttur
Félagsmálaráðherra kynnir leiðir til að styðja við íbúðakaup tekjulágra Eiginfjárlán til skoðunar
Formaður starfshóps um tillögurnar segir eiginfjárlán geta hraðað eignamyndun tekjulágs fólks
Aðgerðir fyrir tekju- og eignalága
30.000 kr. lækkun 25.000 kr. lækkun 38.000 kr. lækkun
50%
40%
30%
20%
10%
0%
225
200
175
150
125
100
Leiga Kaup með eiginfjárláni
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 20192004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
167
137
186
161
210
172
Framlag ríkis gerir fyrstu kaup viðráðanlegri
Samanburður á kostnaði við að leigja og kaupa með eiginfjárláni
Þús. kr. á mánuði
Forsendur: Kaupverð og leiguverð á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt verðsjá Þjóðskrár, 4. ársfjórðungur 2018. Lánakjör á grunnlánum
miðast við blandað lán (verðtryggt og óverðtryggt) og almenn kjör á markaði. Rekstrarkostnaður eigin íbúðar áætlaður 1,5% af fast-
eignamati á ári. Gert er ráð fyrir 40-70 fm íbúð fyrir einstakling, 60-90 fm íbúð fyrir par og 70-100 fm íbúð fyrir par með barn.
Fasteignaverð hækkar umfram laun
Þróun íbúðaverðs, leiguverðs og launa 2011-2019
Tillögur starfshópsins
Lækkandi hlutfall fólks í eigin húsnæði
Hlutfall einstaklinga á leigumarkaði, eftir tekjuhópum 2004-2016
Lægsta tekjubil, 1-20%
Annað tekjubil, 21-40%
Þriðja tekjubil, 41-60%
Fjórða tekjubil, 61-80%
Efsta tekjubil, 81-100%
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu
Laun
Janúar 2011 = 100
Einstaklingur Par Par með barn
Heimild: Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands Heimild: Þjóðskrá Íslands og Hagstofa Íslands
1 Start-lán
■ Ríkið veiti viðbótarlán á hagstæðum vöxtum
til afmarkaðra hópa
2 Eigin-fjárlán
■ Ríkið veiti eiginfjárlán sem geta numið 15-30%
af kaupverði
3
Sér-
eign
■ Tekjulágir geti fullnýtt skattfrjálsan húsnæðissparnað
4 ■ Ráðstafa megi einnig 3,5% lífeyrisiðgjalds skattfrjálst til húsnæðissparnaðar
5 ■ Árleg hámarkaðsráðstöfun verði uppreiknað og fylgi þróun á verði
6 ■ Skilyrði um fyrstu kaup verði rýmkuð
7 ■ Skilyrði um samfellda nýtingu verði afl étt
8 ■ Kynning á úrræðum með yngri aldurshópa verði efl d
9 ■ Vaxtabótum verði beint að tekjulægri hópum
10 ■ Hvatar verði til að draga úr notkun verðtryggðra íbúðalána
11 ■ Frestun afborgana af námslánum LÍN um fi mm ár
12 ■ Afsláttur af stimpilgjaldi við fyrstu kaup verði 200 þúsund
13 ■ Stuðningur við þá sem kjósa að byggja sjálfi r
14 ■ Valkostir á mörkum eignar og leigu verði efl dir
Heimild: Skýrsla starfshóps ráðherra
Frosti
Sigurjónsson
Ásmundur Einar
Daðason