Morgunblaðið - 06.04.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
GÓÐIR
FUNDIR
OGENNBETRI
FUNDARHLÉ
Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is
Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar,
námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af
mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað
og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé.
Superior herbergi
157
HERBERGI
7
FUNDARSALIR
VEITINGASTAÐUR
SUNDLAUGOG
HEITIR POTTAR
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ólíkar farleiðir óðinshana eftir varp-
svæðum í Norður-Evrópu hafa vakið
athygli, en fuglinn fer um langan veg
til vetrardvalar. Fuglar merktir með
dægurritum í Aðaldal og Flóanum
flugu um tíu þúsund kílómetra leið til
vetrardvalar í Kyrrahafinu nálægt
miðbaug. Frændur þeirra í norðan-
verðri Skandinavíu höfðu hins vegar
vetrardvöl við Arabíuskagann. Yann
Kolbeinsson, fuglafræðingur á Nátt-
úrustofu Norðausturlands, segir það
einsdæmi að fuglastofn í Evrópu fari
vestur til Kyrrahafsins.
Nokkrir íslenskir vísindamenn tóku
þátt í fjölþjóðlegum rannsóknum á fari
óðinshana, en nýlega var greint frá
niðurstöðunum. Þær sýna að íslenskir
fuglar, ásamt þeim sem verpa á öðrum
eyjum í norðaustanverðu Atlantshafi,
fara til vetrarstöðva umhverfis mið-
baug í austanverðu Kyrrahafi, m.a.
undan ströndum Perú og Ekvador.
Ólíkar farleiðir
Fuglar frá norðanverðri Skandinav-
íu og Rússlandi fara aftur á móti í suð-
austur til vetrarstöðva í Indlandshafi
og umhverfis Arabíuskaga. Þessar
tvær farleiðir eru mjög ólíkar þar sem
vesturleiðin liggur yfir haf en aust-
urleiðin að mestu yfir meginland.
Yann var meðal íslenskra þátttak-
enda í rannsókninni og segir að fyrir
sjö árum hafi óðinshanar verið merktir
á Hjaltlandseyjum. Ári síðar end-
urheimtist einn þessara fugla. Með
upplýsingum úr dægurrita hans hafi
fengist fyrsta sönnun þess að fugl frá
Evrópu færi í suðvestur og til Kyrra-
hafsins. Mönnum hafi fundist líklegt að
íslenskir og grænlenskir fuglar færu
einnig þessa leið og það hafi nú fengist
staðfest með fyrrnefndri rannsókn.
„Eyjafuglarnir fara á sömu vetrar-
stöðvar við Kyrrahafið og sá ameríski,
að minnsta kosti þeir fuglar sem verpa
í austanverðri Norður-Ameríku,“ segir
Yann. „Í útliti virðist enginn munur
vera á óðinshana hvort sem hann er á
Íslandi eða í Skandinavíu. Hins vegar
komumst við að því að fuglar sem
verpa á eyjunum eru að jafnaði með
lengri vængi heldur en Skandinav-
íufuglarnir.
Það bendir til þess að einhver mun-
ur sé á fuglunum og hugsanlega er um
að ræða þróun eða aðlögun af því að
þeir þurfa að fljúga mun lengra á vetr-
arstöðvarnar eða tæplega tíu þúsund
kílómetra á móti um sex þúsund kíló-
metrum.“
Aðspurður hvort genarannsóknir
hafi verið gerðar til að bera saman
stofna í Evrópu og Ameríku segir
Yann það ekki hafa verið gert enn þá.
Niðurstöðurnar um aðskilnað þessara
varpstofna, sem endurspeglist m.a. í
ólíkum vetrarstöðvum og stærð
vængja, séu hins vegar talsverð tíðindi.
Nokkurt afrek
Óðinshani kemur meðal síðustu
farfugla til landsins og sést fyrst að
meðaltali 8. maí. Hann er smávaxinn
vaðfugl og vegur ekki nema 25-40
grömm og hið langa ferðalag hans
hlýtur að teljast nokkurt afrek. Óð-
inshani, einnig kallaður skrifari, flýg-
ur hratt og flöktir mikið. Oftast sést
hann á sundi, þar sem hann hring-
snýst og þyrlar upp fæðu. Hann er
vel aðlagaður sjó og vatni með litlar
blöðkur á fótunum.
Óðinshanar hafa síðustu sumur ver-
ið merktir hér á landi með dægurritum
og endurheimtust fjórir fuglar sumrin
2015 og 2018, 1-2 árum eftir merkingu,
tveir í Aðaldal og tveir í Flóanum.
Dægurritar eru festir á bakpoka sem
liggur utan um fætur fuglanna og í
þeim er ljósflaga og innbyggð klukka.
Þegar merkin eru endurheimt er hægt
að lesa ýmsar upplýsingar úr þeim
gögnum sem dægurritinn hefur safn-
að. Yann segir að það sjáist býsna vel
hvenær fuglinn er á fari og hvenær
hann staldrar við til að hvíla sig og
nærast. Nákvæmnin sé upp á 180 kíló-
metra sem sé ásættanlegt miðað við
langflug fuglanna.
Þegar fuglarnir fara frá Íslandi
taka þeir stefnuna í suðvestur og
margir þeirra, ef ekki allir, hvíla sig í
Fundy-flóa í Kanada. Þeir fylgja
austurströnd N-Ameríku og stoppa
þar á nokkrum stöðum. Flestir fari
síðan án þess að stoppa suður yfir
Mexíkóflóa, yfir Mið-Ameríku og til
Kyrrahafsins. Frændur þeirra frá
Skandinavíu fara yfir meginland Evr-
ópu á leið til Arabíuskagans og eru
síðan stóran hluta ársins á Indlands-
hafi, að sögn Yanns.
Nálgast má greinina í tímaritinu
Frontiers of Ecology and Evolution á
vefslóðinni: https://www.frontiers-
in.org/articles/10.3389/
fevo.2019.00086/full
Ólíkar vetrarstöðvar óðinshana
Frá Íslandi í langferð yfir sjó í átt að Kyrrahafi Einsdæmi hjá evrópskum fuglastofni Fuglar í
norðanverðri Skandinavíu taka stefnu á Arabíuskaga Vængir íslensku fuglanna að jafnaði lengri
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Ferðin kortlögð Óðinshani merktur með á Sandi í Aðaldal 2014. „Bakpoki“
með dægurrita sést vel, en í honum eru ljósflaga og innbyggð klukka.
Hjaltlands-
eyjar
Grænland
Varpstöðvar
Vetrar-
stöðvar
við Arabíu-
skaga
Vetrar-
stöðvar
við vestur-
strönd Mið-
og Suður-
Ameríku
Ísland
Ferðalag óðinshana
milli varp- og
vetrarstöðva
Vetrarstöðvar
Leið til varpstöðva
Millilendingar að vori
Varpstöðvar
Leið til vetrarstöðva
Millilendingar að hausti
Sumarbúningur
Vetrarbúningur
Atlantshaf
Heimild/Frontiers of Ecology and Evolution
Farfuglarnir koma hver af öðrum til landsins þessa dagana. Nokkrir eru
komnir en síðastir verða væntanlega sundhanar, óðinshani um 8. maí og
þórshani tveimur vikum síðar.
Farfuglarnir fara um langan veg og lengst allra flýgur krían, en hún hefur
vetrarstöðvar í Suður-Atlantshafi. Meginhópurinn fer suður fyrir Suður-
Afríku og jafnvel alla leið til Suðurskautslandsins. Meðalkomutími hennar
er um 22 apríl og sést hún gjarnan fyrst á Suðausturlandi. Að meðaltali
ferðast krían alls rúma 70 þúsund kílómetra frá varpstað á Íslandi, suður á
bóginn til vetrardvalar og „aftur heim“ vorið eftir. Samkvæmt rannsókn tók
norðurflugið að vori að meðaltali 40 daga, en suðurflugið um 90 daga.
Fleiri fljúga langa leið og kjóar fara sumir hverjir alla leið til Suður-Afríku
og Argentínu. Skrofan fer einnig héðan til Argentínu, samkvæmt upplýs-
ingum Yanns.
Heiðlóa hefur einkum vetursetu á Bretlandseyjum og Vestur-Evrópu.
Hún hefur að meðaltali komið 23. mars síðustu 20 ár og hefur verið nokkuð
stundvís. Núna kom hún 28. mars, sem er óvenjuseint og frá 1998 hefur
hún aðeins tvívegis komið síðar.
Spói dvelur að vetri í V-Afríku og er væntanlegur 18. apríl samkvæmt
meðaltali. Hrossagaukur fer til V-Evrópu á vetrum, einkum til Írlands, og
kemur árvisst um 1. apríl. Jaðrakan hefur vetursetu frá Bretlandseyjum
suður til Marokkó. Hann kom til landsins 29. mars í ár.
Krían flýgur fugla lengst
FARFUGLARNIR KOMA HVER AF ÖÐRUM