Morgunblaðið - 06.04.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 06.04.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019 GÓÐIR FUNDIR OGENNBETRI FUNDARHLÉ Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar, námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé. Superior herbergi 157 HERBERGI 7 FUNDARSALIR VEITINGASTAÐUR SUNDLAUGOG HEITIR POTTAR Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ólíkar farleiðir óðinshana eftir varp- svæðum í Norður-Evrópu hafa vakið athygli, en fuglinn fer um langan veg til vetrardvalar. Fuglar merktir með dægurritum í Aðaldal og Flóanum flugu um tíu þúsund kílómetra leið til vetrardvalar í Kyrrahafinu nálægt miðbaug. Frændur þeirra í norðan- verðri Skandinavíu höfðu hins vegar vetrardvöl við Arabíuskagann. Yann Kolbeinsson, fuglafræðingur á Nátt- úrustofu Norðausturlands, segir það einsdæmi að fuglastofn í Evrópu fari vestur til Kyrrahafsins. Nokkrir íslenskir vísindamenn tóku þátt í fjölþjóðlegum rannsóknum á fari óðinshana, en nýlega var greint frá niðurstöðunum. Þær sýna að íslenskir fuglar, ásamt þeim sem verpa á öðrum eyjum í norðaustanverðu Atlantshafi, fara til vetrarstöðva umhverfis mið- baug í austanverðu Kyrrahafi, m.a. undan ströndum Perú og Ekvador. Ólíkar farleiðir Fuglar frá norðanverðri Skandinav- íu og Rússlandi fara aftur á móti í suð- austur til vetrarstöðva í Indlandshafi og umhverfis Arabíuskaga. Þessar tvær farleiðir eru mjög ólíkar þar sem vesturleiðin liggur yfir haf en aust- urleiðin að mestu yfir meginland. Yann var meðal íslenskra þátttak- enda í rannsókninni og segir að fyrir sjö árum hafi óðinshanar verið merktir á Hjaltlandseyjum. Ári síðar end- urheimtist einn þessara fugla. Með upplýsingum úr dægurrita hans hafi fengist fyrsta sönnun þess að fugl frá Evrópu færi í suðvestur og til Kyrra- hafsins. Mönnum hafi fundist líklegt að íslenskir og grænlenskir fuglar færu einnig þessa leið og það hafi nú fengist staðfest með fyrrnefndri rannsókn. „Eyjafuglarnir fara á sömu vetrar- stöðvar við Kyrrahafið og sá ameríski, að minnsta kosti þeir fuglar sem verpa í austanverðri Norður-Ameríku,“ segir Yann. „Í útliti virðist enginn munur vera á óðinshana hvort sem hann er á Íslandi eða í Skandinavíu. Hins vegar komumst við að því að fuglar sem verpa á eyjunum eru að jafnaði með lengri vængi heldur en Skandinav- íufuglarnir. Það bendir til þess að einhver mun- ur sé á fuglunum og hugsanlega er um að ræða þróun eða aðlögun af því að þeir þurfa að fljúga mun lengra á vetr- arstöðvarnar eða tæplega tíu þúsund kílómetra á móti um sex þúsund kíló- metrum.“ Aðspurður hvort genarannsóknir hafi verið gerðar til að bera saman stofna í Evrópu og Ameríku segir Yann það ekki hafa verið gert enn þá. Niðurstöðurnar um aðskilnað þessara varpstofna, sem endurspeglist m.a. í ólíkum vetrarstöðvum og stærð vængja, séu hins vegar talsverð tíðindi. Nokkurt afrek Óðinshani kemur meðal síðustu farfugla til landsins og sést fyrst að meðaltali 8. maí. Hann er smávaxinn vaðfugl og vegur ekki nema 25-40 grömm og hið langa ferðalag hans hlýtur að teljast nokkurt afrek. Óð- inshani, einnig kallaður skrifari, flýg- ur hratt og flöktir mikið. Oftast sést hann á sundi, þar sem hann hring- snýst og þyrlar upp fæðu. Hann er vel aðlagaður sjó og vatni með litlar blöðkur á fótunum. Óðinshanar hafa síðustu sumur ver- ið merktir hér á landi með dægurritum og endurheimtust fjórir fuglar sumrin 2015 og 2018, 1-2 árum eftir merkingu, tveir í Aðaldal og tveir í Flóanum. Dægurritar eru festir á bakpoka sem liggur utan um fætur fuglanna og í þeim er ljósflaga og innbyggð klukka. Þegar merkin eru endurheimt er hægt að lesa ýmsar upplýsingar úr þeim gögnum sem dægurritinn hefur safn- að. Yann segir að það sjáist býsna vel hvenær fuglinn er á fari og hvenær hann staldrar við til að hvíla sig og nærast. Nákvæmnin sé upp á 180 kíló- metra sem sé ásættanlegt miðað við langflug fuglanna. Þegar fuglarnir fara frá Íslandi taka þeir stefnuna í suðvestur og margir þeirra, ef ekki allir, hvíla sig í Fundy-flóa í Kanada. Þeir fylgja austurströnd N-Ameríku og stoppa þar á nokkrum stöðum. Flestir fari síðan án þess að stoppa suður yfir Mexíkóflóa, yfir Mið-Ameríku og til Kyrrahafsins. Frændur þeirra frá Skandinavíu fara yfir meginland Evr- ópu á leið til Arabíuskagans og eru síðan stóran hluta ársins á Indlands- hafi, að sögn Yanns. Nálgast má greinina í tímaritinu Frontiers of Ecology and Evolution á vefslóðinni: https://www.frontiers- in.org/articles/10.3389/ fevo.2019.00086/full Ólíkar vetrarstöðvar óðinshana  Frá Íslandi í langferð yfir sjó í átt að Kyrrahafi  Einsdæmi hjá evrópskum fuglastofni  Fuglar í norðanverðri Skandinavíu taka stefnu á Arabíuskaga  Vængir íslensku fuglanna að jafnaði lengri Ljósmynd/Yann Kolbeinsson Ferðin kortlögð Óðinshani merktur með á Sandi í Aðaldal 2014. „Bakpoki“ með dægurrita sést vel, en í honum eru ljósflaga og innbyggð klukka. Hjaltlands- eyjar Grænland Varpstöðvar Vetrar- stöðvar við Arabíu- skaga Vetrar- stöðvar við vestur- strönd Mið- og Suður- Ameríku Ísland Ferðalag óðinshana milli varp- og vetrarstöðva Vetrarstöðvar Leið til varpstöðva Millilendingar að vori Varpstöðvar Leið til vetrarstöðva Millilendingar að hausti Sumarbúningur Vetrarbúningur Atlantshaf Heimild/Frontiers of Ecology and Evolution Farfuglarnir koma hver af öðrum til landsins þessa dagana. Nokkrir eru komnir en síðastir verða væntanlega sundhanar, óðinshani um 8. maí og þórshani tveimur vikum síðar. Farfuglarnir fara um langan veg og lengst allra flýgur krían, en hún hefur vetrarstöðvar í Suður-Atlantshafi. Meginhópurinn fer suður fyrir Suður- Afríku og jafnvel alla leið til Suðurskautslandsins. Meðalkomutími hennar er um 22 apríl og sést hún gjarnan fyrst á Suðausturlandi. Að meðaltali ferðast krían alls rúma 70 þúsund kílómetra frá varpstað á Íslandi, suður á bóginn til vetrardvalar og „aftur heim“ vorið eftir. Samkvæmt rannsókn tók norðurflugið að vori að meðaltali 40 daga, en suðurflugið um 90 daga. Fleiri fljúga langa leið og kjóar fara sumir hverjir alla leið til Suður-Afríku og Argentínu. Skrofan fer einnig héðan til Argentínu, samkvæmt upplýs- ingum Yanns. Heiðlóa hefur einkum vetursetu á Bretlandseyjum og Vestur-Evrópu. Hún hefur að meðaltali komið 23. mars síðustu 20 ár og hefur verið nokkuð stundvís. Núna kom hún 28. mars, sem er óvenjuseint og frá 1998 hefur hún aðeins tvívegis komið síðar. Spói dvelur að vetri í V-Afríku og er væntanlegur 18. apríl samkvæmt meðaltali. Hrossagaukur fer til V-Evrópu á vetrum, einkum til Írlands, og kemur árvisst um 1. apríl. Jaðrakan hefur vetursetu frá Bretlandseyjum suður til Marokkó. Hann kom til landsins 29. mars í ár. Krían flýgur fugla lengst FARFUGLARNIR KOMA HVER AF ÖÐRUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.