Morgunblaðið - 06.04.2019, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vígamenn sem hliðhollir eru rík-
isstjórn Líbýu náðu að hrinda stór-
sókn stríðsherrans Khalifa Haftar í
gær, en sveitir á hans vegum voru
þá komnar um 30 kílómetrum frá
höfuðborginni Trípólí. Haftar
fundaði síðar um daginn með Ant-
onio Guterres, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna í borginni
Benghasí.
„Ég yfirgef Líbýu með þungar
áhyggjur og sorg í hjarta. Ég vona
enn að það verði hægt að koma í
veg fyrir blóðug átök í og við Trí-
pólí,“ sagði Guterres í yfirlýsingu
eftir fundinn.
Guterres var staddur í Trípólí í
fyrrinótt þegar hersveitir Haftars
hófu sókn sína að höfuðborginni, en
þar fundaði hann með Fayez al-
Sarraj, forsætisráðherra hinnar
formlegu ríkisstjórnar landsins.
Sarraj fordæmdi aðgerðir Haftars
og skipaði öllu tiltæku liði sínu til
varnar höfuðborginni.
Hvatt til stillingar
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði um ástandið í Líbýu á bak
við luktar dyr í gærkvöldi. Banda-
ríkjamenn, Frakkar, Ítalir og Bret-
ar hvöttu í gær stríðandi fylkingar
til þess að bera klæði á vopnin.
Sameinuðu arabísku furstadæmin,
sem hafa stutt við bakið á Haftar,
tóku undir þá yfirlýsingu.
Dímitrí Peskov, talsmaður Vla-
dimírs Pútíns Rússlandsforseta,
sagði að Rússar vonuðust til þess
að ástandið myndi ekki leysast upp
í blóðbað. Tók Peskov sérstaklega
fram að Haftar nyti ekki stuðnings
Rússa, en þeir kölluðu eftir því að
báðar fylkingar myndu koma sér
saman um pólitíska lausn á deilum
sínum.
Líbýa hefur verið í upplausn frá
árinu 2011 þegar einræðisherran-
um Múammar Gaddafí var steypt
af stóli. Hefur vesturhluta landsins
lengst af á þeim tíma verið stjórnað
frá höfuðborginni Trípólí, og hefur
sú stjórn notið alþjóðlegrar viður-
kenningar. Í austurhluta landsins
hafa hins vegar öfl sem kenna sig
við borgina Tóbrúk ráðið ríkjum,
en þau segjast vera fulltrúar neðri
deildar líbýska þingsins, sem og
Þjóðarhers Líbýu, sem Haftar veit-
ir forstöðu. Báðar fylkingar treysta
einnig á hópa vígamanna sem
sprottið hafa upp víðs vegar um
landið og hefur hollusta þeirra oft-
ar en ekki farið eftir stundarhags-
munum þeirra sem þá skipa.
Haftar og stuðningsmenn hans
hafa hins vegar jafnt og þétt fikrað
sig nær Trípólí. Náðu sveitir hans
að leggja undir sig helstu olíulindir
landsins fyrr á árinu, en þær eru í
suðri. Hin formlega ríkisstjórn hef-
ur frá þeim tíma einkum ráðið yfir
landræmu sem nær yfir Trípólí og
borgina Misrata, sem er þriðja
stærsta borg landsins.
Sameinuðu þjóðirnar hafa hins
vegar reynt að stilla til friðar, með-
al annars með því að boða á ný til
þingkosninga, en þær áttu að fara
fram á síðasta ári. Það náðist hins
vegar ekki samkomulag á milli
deiluaðila til þess að þær gætu far-
ið fram. Var Guterres meðal ann-
ars í Líbýu í gær til þess að und-
irbúa ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um kosningarnar, sem
átti að fara fram síðar í þessum
mánuði.
Hóf stórsókn til Trípólí
Sveitir Haftars stöðvaðar um 30 kílómetrum frá höfuðborginni Guterres lýsir
yfir þungum áhyggjum af ástandinu Öryggisráðið fundaði bak við luktar dyr
AFP
Borgarastríð Þessir pallbílar féllu í hendur stjórnarliða þegar sókn Haftars var hrundið.
Borgarastríðið í Líbýu
» Átökin nú hófust árið 2014,
en fyrri átök árið 2011 snerust
um að steypa einræðisherr-
anum Gaddafí af stóli.
» Landið hefur skipst í austur-
og vesturhluta og hefur ríkis-
stjórn vesturhlutans, sem
kennd er við Trípólí, notið al-
þjóðlegrar viðurkenningar.
» Sveitir hliðhollar stjórnvöld-
um í Tóbrúk hafa þó náð undir-
tökunum í borgarastríðinu.
Emmanuel Mac-
ron Frakklands-
forseti tilkynnti í
gær að hann
hefði skipað
nefnd sérfræð-
inga, sem á að
fara ofan í saum-
ana á því hver
þáttur Frakka
hafi verið í þjóð-
armorðunum í
Rúanda 1994. Þess verður minnst
um helgina að á sunnudag verða 25
ár liðin frá upphafi ódæðisverkanna,
en áætlað hefur verið að um 800.000
manns hafi látið lífið í þjóðarmorð-
unum.
Nefndin verður skipuð átta
manns, sagnfræðingum og öðrum
sérfræðingum, sem munu kanna öll
þau skjöl sem franska ríkið hefur
um morðin og aðdraganda þeirra. Á
nefndin að skila niðurstöðum sínum
eftir tvö ár.
Ríkisstjórn Rúanda hefur sakað
Frakka um að hafa stutt við bakið á
þeim vígamönnum úr þjóðflokki
Hútúa, sem ákvað að fremja þjóð-
armorðið á þjóðflokki Tútsa. Þá
hafa Frakkar verið sakaðir um að
hafa hjálpað sumum af forsprökk-
um morðanna við að sleppa undan
réttvísinni. Frakkar hafa hins vegar
ítrekað hafnað þeim ásökunum.
Marcel Kabanda, forseti samtak-
anna Ibuka France, sem styður við
fórnarlömb þjóðarmorðanna sem
búa í Frakklandi, fagnaði stofnun
nefndarinnar og sagði hana vera
mikinn virðingarvott af hálfu Mac-
rons. Kabanda varaði hins vegar
einnig við of mikilli bjartsýni. „Við
höfum oft orðið fyrir vonbrigðum,
við höfum oft verið svikin,“ sagði
hann og vísaði þar meðal annars til
þess að Francois Hollande, fyrir-
rennari Macrons, hefði lofað 2015
að opna öll þau skjöl sem til væru í
Frakklandi um morðin, en sú opnun
reyndist heldur smá í sniðum þegar
til kastanna kom.
Ábyrgð
Frakka
rannsökuð
25 ár frá þjóðar-
morðinu í Rúanda
Emmanuel
Macron
Mikill mannfjöldi kom saman á göt-
um Algeirsborgar í gær og mót-
mælti sitjandi stjórnvöldum, þrátt
fyrir að Abdelaziz Bouteflika, frá-
farandi forseti landsins, hefði gefið
til kynna að hann ætlaði sér að
hætta öllum afskiptum af stjórn-
málum.
Mótmælaalda hefur skekið landið
síðan Bouteflika ákvað fyrr á árinu
að gefa kost á sér í forsetaembættið
í fimmta sinn. Var talið að afsögn
hans myndi slá á kröfur mótmæl-
enda, en þeir kölluðu nú eftir því að
helstu bandamenn forsetans ald-
urhnigna fylgdu fordæmi hans.
Beindust kröfurnar einkum að
þremur mönnum, sem kallaðir eru
„Béin þrjú“, þeim Abdelakder
Bensalah, forseta öldungadeildar
þingsins, Tayeb Belaiz, formanni
stjórnlagaráðs landsins og Nou-
reddine Bedoui, forsætisráðherra,
en þeim þremur hefur verið falin
yfirumsjón með komandi kosn-
ingum sem eiga að skera úr um eft-
irmann Bouteflika. Andstæðingar
þeirra segja þá hins vegar vanhæfa.
Mótmæla þrátt fyr-
ir afsögn Bouteflika
AFP
Mótmæli Mikill mannfjöldi kom saman í Algeirsborg í gær.
Flott og vönduð ferðataska frá
Herschel. Taskan er einstaklega
létt og er búin 4 tvöföldum hjólum
sem snúast í 360 gráður, TSA lási og
skilrúmi.
Verð frá 26.995
4 stærðir
5 litir
Ert þú á leið í
fermingar- eða
útskriftarveislu?