Morgunblaðið - 06.04.2019, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 2019
✝ Bergleif GanntJoensen fædd-
ist 6. apríl 1942 í
Fuglafirði í Fær-
eyjum. Hann varð
bráðkvaddur á
Kanaríeyjum 14.
mars 2019.
Hann var sonur
Jonhild Elíasen, f.
Joensen, f. 1918, d.
2007, og var Berg-
leif elsta barn henn-
ar. Bergleif kynntist aldrei föður
sínum en hann var skoskur her-
maður sem lést í seinni heims-
styrjöldinni.
Bergleif ólst upp fyrstu níu ár-
in hjá Matthildi móðursystur
sinni og Pétri manni hennar í
Klakksvík. Jonhild giftist síðar
Johanni Eliasen og flutti Bergleif
Ásta Rut og Viktor Freyr; Jó-
hann Joensen, f. 1967, börn hans
eru Hjálmar, Anita, Sóley og
Sylvia. Hjálmar sonur Jóhanns á
tvíburana Elías og Adrian.
Eftirlifandi eiginkona Berg-
leifs er Jóhanna Reynisdóttir, f.
5.11. 1959. Þau eignuðust þrjú
börn, þau eru Reynir Gannt Jo-
ensen, f. 1981, sem býr með
Emelin Bouichou; Bjarki Gannt
Joensen, f. 1982, sem býr með
Ólöfu Sif Halldórsdóttur, börn
þeirra eru Sebastian Gannt og
Óðinn Gannt. Thelma Kristín
Gannt Joensen, f. 1986, er yngst
barnanna en hún býr með Þóri
Arnari Jónssyni. Börn Thelmu
eru Sara Gannt, dóttir Kristófers
Hansen (sem er látinn). Tanya og
Isabel eru dætur Thelmu og Þór-
is.
Bergleif kom til Íslands 1960
og starfaði lengi sem kokkur á
sjó og síðar sem veitingamaður
með eigin rekstur.
Útför hans fer fram frá Graf-
arvogskirkju í dag, 6. apríl 2019,
klukkan 11.
til þeirra í Fugla-
fjörð þegar hann
var níu ára og ólst
þar upp.
Bergleif eign-
aðist sjö systkini,
þau eru Katrín
Hammer, f. 1951,
Björg Fuglefjörd, f.
1953, Mainhard
Elíasen, f. 1954,
Lilly Hjerrhild, f.
1955, d. 2017, Jo-
hannus Leo Elíasen, f. 1956,
Finnur Elíasen, f. 1958, og Eilef
Elíasen, f. 1960.
Fyrri eiginkona Bergleifs var
Guðrún Einarsdóttir, f. 1947.
Eignuðust þau þrjá syni, þá Þor-
stein Joensen, f. 1965, sonur hans
er Alexander Hurra; Bergleif Jo-
ensen, f. 1970. Börn hans eru
Að kveðja eiginmann er þyngra
en tárum taki. Þegar ég hugsa til
þess að ég sá fyrir mér að við yrð-
um alltaf saman, þá er svo ótrú-
lega erfitt að sjá á eftir Begga.
Hann var svo góður maður og
hafði svo margt að gefa mér og
börnunum. Án hans er heimurinn
afar tómur.
Ef ég ætti þess kost að hitta
manninn minn í hinsta sinn vissi
ég ekki hvernig ég ætti að byrja
að þakka fyrir allt. Ég hef svo
margt að þakka honum Begga
mínum og minningarnar eru svo
óteljandi margar.
Núna, þegar ástin í lífi mínu er
dáin, get ég bara starað í loga
minninganna, full þakklætis, á
meðan tárin renna niður kinn-
arnar.
Er þér til heiðurs kveiki ég á kerti
með kærleika ég man hin liðnu ár
og finn að oft þinn hugur hjartað
snerti,
þá hrynja niður kinnar gleðitár.
Ég stari inn í ljóssins blíða loga,
sem lýsir mína sál og hjarta mitt
þar sé ég mynd af þér í björtum boga
og brosið færist yfir andlit þitt.
Ég skynja yl og mátt frá mínum stjaka
því myndin þín í kertaljósi er.
Á meðan einhver von hér fær að vaka
þá verður ekki hægt að gleyma þér.
(Kristján Hreinsson)
Hvíldu í friði, elsku Beggi
minn.
Þín eiginkona,
Jóhanna Reynisdóttir.
Elsku pabbi, ég sem hélt að þú
værir ódauðlegur. Það er ótrúlegt
hversu oft þú hefur staðið aftur
upp og haldið áfram, en það kem-
ur að því að öll níu lífin klárist. Það
má alveg segja að ég hafi erft
margt frá þér. Allir þínir helstu
gallar skína skært í gegnum mig,
má þar telja fyrst og fremst
óþolinmæði, léleg hné, óþolin-
mæði, lélegar axlir, óþolinmæði
og óþolinmæði. Í hvert skipti sem
ég kem til með að vera óþolin-
móður, fá verki í hné og axlir eða
þurfa að fara í aðgerð vegna
þeirra að þá mun ég líta á það sem
minningu um þig. Þetta er partur
af mér sem ég hef frá þér og er
mér núna farið að finnast vænt
um þá. En ég ætla ekki að skrifa
bara galla um þig, elsku pabbi
minn. Vinnusemi, vinnusemin var
mikil. Þú vannst allan sólarhring-
inn ár eftir ár og þetta fékk ég líka
frá þér. Vinnan hefur verið númer
eitt, tvö og þrjú hjá mér í mörg ár
og oft hefur mig vantað fleiri tíma í
sólarhringinn.
Þú varst með lítið hjarta og
máttir ekkert aumt sjá, stutt var í
tárin yfir bíómyndum (ég virðist
ekki hafa erft það, hóst) þú hélst
alltaf með litla liðinu og svo elsk-
aðir þú allt og alla. Sömuleiðis
elskuðu þig allir og þú skilur eftir
þig ótrúlega stóran og góðan vina-
hóp og stóra fjölskyldu sem elskar
þig enn.
Mér þótti ótrúlega vænt um það
þegar við Thelma flugum til Kan-
arí til mömmu að fá öll þessi knús
og kossa frá fólki sem ég ýmist hef
þekkt stóran part af minni ævi eða
aldrei séð áður. Það sýnir mér
hversu miklum metum þú varst í
hjá öllum sem í kringum þig voru,
hrókur alls fagnaðar og sögumað-
ur mikill. Sögurnar voru ófáar og
alltaf varst þú aðalsögupersónan í
einu og öllu og það var ekkert mál
að trúa þessu öllu því þú sagðir svo
vel frá. Allir elska Beggasögurnar
og eflaust verða nokkrar rifjaðar
upp í erfidrykkjunni.
Þegar ég var að byrja að búa
vantaði mig reglulega hjálp í eld-
húsinu. Hringi eitt skiptið í þig og
spyr um uppskrift að jafningi. Þú
svaraðir fljótt „2 kg af hveiti á
móti 2 kg af smjöri“ ég var þá
snöggur að grípa fram í fyrir þér
og sagði að ég væri nú bara að elda
fyrir tvo. Þú hafðir ekki hugmynd
hvernig átti að elda í svona litlu
magni, enda vanur öðru, og réttir
mömmu þá símann.
Elsku pabbi, innilega til ham-
ingju með afmælið í dag og góða
ferð inn í draumalandið. Ég veit að
það er fullt af góðu fólki sem tekur
á móti þér og hugsar vel um þig,
loksins getur þú farið að hlaupa
aftur og farið með Gordon og
Heklu í göngutúra og svo heldur
Dimma músunum úti. Ég er svo
sannarlega ánægður með að það
var kominn góður endir á okkar
erjur, en erjur eru bara af hinu
góða og styrkja mann í framtíð-
inni. Ég mun passa upp á mömmu
og veita henni alla þá ást sem ég
get en ég vil halda henni sem
lengst frá þér í bili, „no hard feel-
ings“. Sebastían og Óðinn hafa
mikið verið að ræða afa sinn und-
anfarið og segja sögur, sem flestar
tengjast fótbolta og einhverra
hluta vegna sætabrauði en ást þín
á þessu tvennu fór vart fram hjá
neinum. Ætla ég að viðhalda þér í
minningum þeirra. Ég mun alltaf
elska þig og bera miklu virðingu
fyrir þér.
Bjarki, Sebastían og Óðinn.
Elsku pabbi minn, hér sit ég og
ekki enn búin að átta mig á því að
þú sért farinn og ég muni aldrei
aftur sjá þig. Trúi ekki að ég geti
ekki hringt í þig og spurt hvernig
ég á að elda hitt og þetta eða segja
þér að ég hafi gert nýja geggjaða
sósu. Við systkinin höfum þessa
matreiðsluánægju frá þér, þú
gerðir alltaf svo góðan mat.
Ég man þegar þú varst með fé-
lagsheimilið Árnes og varst oft
með veislur og gerðir sósurnar í
risapotti og ég fékk mér alltaf
sósu í bolla og drakk eins og súpu.
Sósurnar þínar voru það góðar.
Ég er ótrúlega þakklát fyrir
allar góðu minngarnar sem við
höfðum skapað okkur saman öll
mín ár.
Takk fyrir allt elsku pabbi
minn. Minning þín er ljós í lífi okk-
ar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég elska þig að eilífu.
Þín dóttir,
Thelma Gannt Joensen.
Elsku Beggi, tengdapabbi og
afi drengjanna minna. Ég á marg-
ar góðar og skemmtilegar minn-
ingar um þig, sérstaklega úr Ár-
nesinu þar sem við fjölskyldan
elskuðum að verja heilu helgunum
hvað eftir annað. Þið Hanna voruð
ávallt yndislegir gestgjafar þar
sem þið lögðuð ykkur fram við að
dekra okkur með matseld og kósí-
heitum. En Beggi minn, eitt átt-
um við sameiginlegt og það var
ást á kökum. Mætti segja að þú
hafir borið kökuást til mín, því þú
varst alltaf að hrósa bakstrinum
mínum. Þú sagðir mér eitt sinn að
þegar þú áttir von á okkur í Ár-
nesið kæra hefðirðu alltaf verið
viss um að ég kæmi með eitthvað
sem ég hefði bakað og þegar það
barst varstu ávallt fyrstur að
borðinu að gæða þér á góssinu.
Þú varst alltaf að huga að heils-
unni, því þú gerðir þér grein fyrir
að líkaminn væri orðinn veikur á
marga kanta. Sagðir mér reglu-
lega frá detox sem þér fannst gott
að gera og göngutúrunum með
Heklu og fleiru. Eitt sinn varstu
nýbúinn að segja mér að þú værir
hættur að borða bakkelsi því það
væri svo fitandi og óhollt. Þegar
þú laukst við orðin fórstu út til
Gunnars kaupmanns til þess að ná
í blaðið. Þegar þú komst til baka
spurði ég þig hvað þú værir með í
munnvikinu. Þá sagðir þú: „Það
átti enginn að vita þetta!“ Þá var
hann með smjörkrem í munnvik-
inu úr sérbökuðu vínarbrauði sem
hann gat ekki látið fram hjá sér
fara enda var það hans uppáhalds.
Þegar þetta kom upp skelltum við
fjölskyldan öll upp úr því megr-
unin hans stóð nú ekki lengi yfir,
enda vissum við öll hversu mikill
sælkeri hann væri.
Ég á margar minningar um þig
en þetta eru þær sem stóðu upp
úr.
Takk fyrir að vera yndislegur
afi drengjanna minna, þú veittir
þeim mikla ástúð og athygli. Þér
fannst gaman að spjalla við þá og
fara með þá í göngutúra og dekra
við þá.
Elsku Beggi, takk fyrir að hafa
verið í lífi mínu seinustu 13 árin,
þú gerðir það litríkara.
Kær kveðja til Sumarlandsins.
Ólöf (Lóa) tengdadóttir.
Góður vinur, Bergleif Gannt
Joensen matreiðslumeistari, hót-
elstjóri, veitingamaður o.fl. er fall-
inn frá. Ég ætla ekki að rekja ætt-
ir hans, það munu eflaust aðrir
mér fróðari gera en langar samt
til að minnast hans nokkrum orð-
um. Bergleif, eða Beggi eins og
hann var alltaf kallaður, Beggi í
Árnesi, Beggi Færeyingur enda
af færeyskum ættum. Það fer ekki
hjá því að manni finnist andlát
Begga óraunverulegt. Við Hanna
urðum samferða honum og konu
hans Jóhönnu Reynisdóttur og
fleiri sameiginlegum vinum í flugi
frá Keflavík 6. mars síðastliðinn til
Kanaríeyja sem við höfum heim-
sótt árlega í áratugi. Og enn vor-
um við komin þangað. Aðeins átta
dögum síðar var stundin komin.
Beggi lést skyndilega 14. mars í
íbúð sinni. Við í vinahópi þeirra
hjóna – Kanarí-vinahópsins – vor-
um fjölmörg í fríi þarna ásamt
þeim hjónum. Þarf ekki að tíunda
það hvers kyns reiðarslag það var
fyrir okkur þegar fréttin barst. –
Skelfilegt – Vinahópur þessi var
nefndur Landsliðið, nafngift frá
Begga og Sveini Sævari að ég
held.
Begga kynntumst við á Kanarí
fyrir um 20 árum. Eftir að Berg-
leif og Jóhanna urðu rekstrar-
aðilar að Árnesi í Gnúpverja-
hreppi, urðum við árlegir gestir
þar. Kanarí-flakkarar stóðu fyrir
sumarskemmtunum og sáu þau
hjón um þá hátíð hvað varðaði
veitingar og maturinn hjá Begga
algjör veisla. Þurftum við að
panta gistingu með góðum fyrir-
vara, gistingu í Nónsteini sem var
hús sem leigt var út. Að stærstum
hluta gisti þar árlega fólk úr
Landsliðinu. Einnig vorum við í
afmælum og öðrum uppákomum
er tilheyrðu þessum vinahópi.
Þessi elskulegi vinur okkar var
með eindæmum skemmtilegur
maður. Mesti húmoristi sem við
höfum kynnst og lágu margir oft í
hláturkrampa þegar hann sagði
skrítlur og sögur. Alveg ótrúlegur
maður. Seinni árin áttum við
Beggi við sameiginlegt vandamál
að stríða. Ónýt hné. Fyrir ca.
þremur árum spurði Beggi mig
hvernig gengi með hnjáspraut-
urnar sem hann vissi að ég var í
hjá lækni. Sagði ég honum að þær
héldu mér gangandi. Spurði hann
mig svo hvort ég gæti komið sér í
samband við lækninn. Lofaði ég
að kanna það og læknirinn lofaði
að kíkja á karlinn sem hann og
gerði. Bergleif var síðan hjá þess-
um lækni í sprautum fram að hné-
skiptum sem voru framkvæmd í
byrjun maí 2018. Ég hafði farið í
sams konar aðgerð viku á undan
Bergleif Gannt
Joensen
HINSTA KVEÐJA
Í huganum hljómar um stund
minning um hlátur og glaðværa
lund.
Nú er hláturinn burtu og allt er
svo hljótt
eins og einhver hafi komið og
gleðina sótt.
Í bæn okkar faðir biðjum við þig
blessaðu hann og fjölskyldu sem
stóð honum við hlið.
Gef þeim styrk þinn og kær-
leikans mátt
Þakklæti minningar, ljós þitt og
sátt.
Takk fyrir vináttuna
sem gleymist aldrei.
Aðalheiður og Valur.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR HELGASON,
lést miðvikudaginn 3. apríl á
Dvalarheimilinu í Stykkishólmi.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 12. apríl kl. 13.
Emil Einarsson Sigríður Ólöf Sigurðardóttir
Ísak Einarsson
og barnabörn
✝
Ástkærir foreldrar okkar, tengdaforeldrar, afi og amma,
JÓN RUNÓLFSSON
og
INGIBJÖRG ÁGÚSTA BJÖRNSDÓTTIR
áður til heimilis í Espigerði 4,
Reykjavík,
létust á Hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík fimmtudaginn
28. mars og sunnudaginn 31. mars
Útför þeirra fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 12. apríl
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Bragi Jónsson
Unnur Jónsdóttir
Inga Jónsdóttir Friðfinnur Finnbogason
Jón Ágúst Jónsson Margrét Jónsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR FINNBOGASON,
Fannafold 165, Reykjavík,
varð bráðkvaddur í Þýskalandi mánudaginn
4. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Roswitha Kreye Finnbogason
Úlfar Guðmundsson
Bryndís Guðmundsdóttir Jón Aðalsteinn Kristinsson
María E. Guðmundsdóttir, sem nú er látin
Sigrún L. Guðmundsdóttir Jón Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÞORGEIR HJÖRLEIFSSON
frá Hnífsdal,
sem lést á Grund fimmtudaginn 28. mars,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn
8. apríl klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Grundar.
Elísabet Þorgeirsdóttir
Halldór Þorgeirsson Sjöfn Heiða Steinsson
Arnaldur Máni Finnsson Karna Sigurðardóttir
Berglind Halldórsdóttir Adib Birkland
Hákon Atli Halldórsson Bára Hlín Kristjánsdóttir
og langafabörn