Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 10

Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. 799 kr.pk. Grænn aspas, búnt Páskaveisluna Allt fyrir 889 kr.pk. Mini marengs, 6 stk. 3990 kr.kg Frosin nautalund, þýsk 669 kr.pk. Parma skinka Ódýrt SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Mjög hefur verið fjallað að undan- förnu um þau áform Reykjavíkur- borgar að gera Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur að varanlegri göngu- götu. Morgunblaðið setti sig í sam- band við nokkra af þeim verslunar- mönnum sem finna má við Lauga- veg, sumir þeirra með áratuga reynslu af verslunarrekstri í mið- bænum, og voru þeir allir á sömu skoðun: varanleg göngugata mun stórskaða rekstur og ýta undir hnignun. „Á þessum stað hef ég verið í 39 ár en í miðbænum í 51 ár, eða allt frá því að ég byrjaði að læra. Laugaveg- urinn er verslunargata og þar hefur alltaf verið bílaumferð. Sú staða sem við kaupmenn horfum nú fram á í miðbænum – mér líst ekkert á hana,“ segir Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmið- ur og bætir við að Íslendingar vilji geta sótt verslanir á einkabílnum. Framtíðardraumsýn meirihlutans í Reykjavík um göngugötur árið um kring sé einungis til þess fallin að koma í veg fyrir að Íslendingar sæki miðbæinn heim. „Að breyta Laugaveginum í göngugötu, ég veit ekki hvar þetta fólk heldur eiginlega að við séum. Við búum á Íslandi, ekki Spáni,“ segir Gilbert og heldur áfram: „Ég sá nýverið mynd þar sem ver- ið var að auglýsa þessa breytingu og þar mátti sjá fólk á stuttermabol og í stuttbuxum í fótabaði á Laugaveg- inum. Hvað getur maður eiginlega sagt við svona hugmyndum? Hvar er viðkomandi staddur sem teiknar þetta – komdu aftur til Íslands.“ Aðspurður segist Gilbert ekki vera á förum frá Laugaveginum í bráð, er- lendir viðskiptavinir tryggja að óbreyttu reksturinn. „Það er hins vegar mikill flótti frá Laugaveginum og margir að hætta rekstri. Auð verslunarpláss á Laugavegi eru að ég held 16 í dag. Og fleiri eru á för- um. Ég myndi kalla þessa þróun hryðjuverk, það er ekkert hlustað á okkur hjá borginni,“ segir hann. Borgin sýnir af sér dónaskap Jón Sigurjónsson gullsmíðameist- ari hefur rekið verslun við Laugaveg í 48 ár. „Við þekkjum svæðið út og inn. Öll vinnubrögð og framganga borgarinnar er með hreinum ólík- indum og einkennist af skrípaleik og blekkingum. Að borgarstjóri skuli ekki hlusta á hátt í 250 undirskriftir rekstrar- og hagsmunaaðila sem leggjast allir gegn þessari lokun er ekkert annað en dónaskapur,“ segir Jón og heldur áfram: „Ef viðskipta- vinir okkar geta ekki nálgast versl- unina fyrir þrengingum og lokunum þá höfum við ekkert með verslun á þessum stað að gera.“ Auk þess að reka verslun við Laugaveg eru verslanir Jóns og Óskars í Kringlunni og Smáralind. Aðspurður segir Jón viðskiptavini sína kjósa fremur að versla í versl- unarmiðstöðvunum eftir tilkomu göngugatna í miðbæ Reykjavíkur. „Allt frá þeim tíma sem göngu- götur byrjuðu hóf verslun okkar við Laugaveg að dala á sama tíma og salan jókst í verslunarmiðstöðv- unum. Ef við hefðum ekki verslanir þar þá værum við í slæmum málum. Við Jón og Óskar höfum alltaf verið miðbæjarmenn og veðjuðum á sínum tíma á miðbæinn, en það er ekki hægt að gera það lengur,“ segir hann og bætir við að þeir félagar hafi leitt hugann að því að loka versl- uninni við Laugaveg. „Margir okkar hafa barist fyrir miðborginni áratugum saman. Við stóðum þétt saman þegar Kringlan og Smáralind voru opnaðar á sínum tíma og lifðum það flestir af. En núna virðist rothöggið loks vera að koma og þá er það sjálfur borgar- stjórinn sem veitir það. Það er jú ekkert annað en rothögg þegar verið er að fæla viðskiptavini okkar í burtu,“ segir hann. Orðlaus yfir þróuninni Vigdís Guðmundsdóttir verslunar- maður hefur búið við Laugaveg í 27 ár og rekið þar verslun frá ágúst sl. Hún segir þróun Laugavegar mjög sorglega og undrast hvers vegna borgaryfirvöld hlusta ekki á þá sem reynslu hafa af rekstri. „Íslendingar eru hættir að mæta hingað og að mínu mati hefur Laugavegur nú þegar fjarað út. Íbú- ar hér í nágrenninu eru flestallir að tala um það sama, fólk er orðlaust yfir þróuninni. Þetta er rosalega sorglegt allt saman,“ segir hún. Bára Atladóttir fatahönnuður er einn þeirra verslunareigenda sem eru að yfirgefa Laugaveginn. Hún segir kúnnahóp sinn ekki leita þang- að lengur. „Minn kúnnahópur eru Ís- lendingar og ég er því að forða mér og færa reksturinn annað,“ segir hún, en Bára mun á næstu vikum opna nýja verslun í Mörkinni. „Eftir að ég tilkynnti um flutning- inn hef ég fengið skilaboð frá fólki sem var í netverslun hjá mér og hafði ekki komið í búðina við Lauga- veg þar sem það segist ætla að koma í nýju verslunina, enda er nóg af bílastæðum þar,“ segir hún. Sigurður G. Steinþórsson gull- smíðameistari hefur rekið verslun við Laugaveg í 48 ár. Hann segir borgina á góðri leið með að drepa verslunargötuna. „Við sem erum í rekstri höfum allt aðra skoðun en borgarstjórn. Þetta ástand er alveg skelfilegt,“ segir hann og bætir við að hann hafi nú þegar sett versl- unarhúsnæði sitt á sölu. „Það hreyf- ist hins vegar ekki því fólk sér ekki framtíð í verslun á svæðinu.“ Gunnar Guðjónsson sjónfræð- ingur hefur rekið versun við Lauga- veg í 47 ár. Hann segir þrjár ástæð- ur fyrir því að Laugavegur eigi ekki að vera göngugata: skortur á mann- fjölda, slæmar almenningssam- göngur og erfitt veðurfar. „Þetta gerir Reykjavík að bílaborg.“ „Mikill flótti frá Laugaveginum“  Verslunarmenn við Laugaveg gagnrýna framgöngu Reykjavíkurborgar og segja ekki hlustað á sig  Ég myndi kalla þessa þróun hryðjuverk, segir einn þeirra  Borgarstjóri sagður veita rothöggið Morgunblaðið/Eggert Verslunarmaður Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmiður er einn þeirra sem vilja ekki að Laugavegur verði gerður að göngugötu árið um kring. Að sögn hans er mikill flótti frá Laugavegi vegna erfiðra aðstæðna þar. Ósátt Vigdís Guðmundsdóttir segir þróun Laugavegar sorglega og undrast afstöðu borgaryfirvalda í málinu. Sjónfræðingur Gunnar Guðjónsson segir nauðsynleg skilyrði göngugötu ekki eiga við um Laugaveg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.