Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýlega var lokið uppsetningu á pípu-
orgeli í handverkssafninu Tré og list
í Forsæti í Flóa. Hljóðfæri þetta var
upphaflega í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum og sett þar upp árið
1953. Í Eyjagosinu tuttugu árum síð-
ar smaug fíngerð aska inn um allt
fíngert gangvirki hljóðfærisins og
þótti viðgerð ekki borga sig. Fór því
svo nokkrum árum eftir gos að Ólaf-
ur Sigurjónsson í Forsæti, þekktur
þjóðhagasmiður og organisti, keypti
gripinn, tók ofan og setti upp á heim-
ili sínu. Og nú er orgelið komið á nýj-
an stað, orðið safngripur og verður
notað til tónleikahalds í framtíðinni.
„Hér í nýrri byggingu hygg ég að
orgelið hljómi aldrei betur,“ segir
Ólafur. Síðan á barnsaldri hefur tón-
listin verið rauður þráður í tilveru
hans, organleikur í kirkjum víða á
Suðurlandi, kórstjórn og fleira
skemmtilegt.
Listafólkið á Þjórsárbökkum
Svo vill til að á nokkrum bæjum á
Þjórsárbökkum býr einstakt hand-
verksfólk. Hefur þessi menning á
svæðinu haldist kynslóð fram af kyn-
slóð og er Ólafur meðal þjóðhaga
þessara. Safnið Tré og list, sem er í
gamalli fjósbyggingu, opnaði hann
árið 2007 ásamt Bergþóru Guð-
bergsdóttur og hefur nú stækkað
það með sérstakri tónlistardeild þar
sem orgelið góða er í aðalhlutverki.
Það er af gerðinni Starup; er sextán
raddir og mörgum hljómum gætt.
Forðum daga var Ólafur stundum
kallaður til Eyja sem organisti í af-
leysingum og þekkti því tónsvið þess
og hljóm. Lét því þau boð út ganga
þegar ákveðið var að kaupa nýtt org-
el í Landakirkju að hann skyldi
kaupa það gamla, eins og gekk eftir.
Það var svo haustið 1977 sem Ólaf-
ur við fjórða mann fór til Eyja og tók
hljóðfærið ofan, flutti það í kössum
heim í Flóann og setti upp í bíl-
skúrnum við heimili sitt. Kallaði það
reyndar á talsverðar tilfæringar;
meðal annars að hækka þurfti skúr-
þakið til þess að koma orgelinu fyrir,
það er mikið að ummáli og fjögurra
metra hátt.
Gabbfréttin var sönn
Á sínum tíma spunnust talsverðar
sögur af hljóðfærinu í Forsæti og
Ólafur hlær þegar hann rifjar þær
upp. „Ómar Ragnarsson kom hingað
og sagði frá orgelinu í fréttum Sjón-
varpsins þann 1. apríl 1978. Dagsetn-
ingin réð því að ýmsir töldu fréttina
vera gabb, og fannst grátt gaman að
fórna heilu pípuorgeli fyrir skrök-
sögu. Allt var þetta þó dagsatt,“ seg-
ir Ólafur. Bætir við að þegar frá leið
og trúnaður var lagður á fréttina hafi
þau Bergþóra búið við talsverða
ánauð gesta, sem vildu skoða orgelið
og fá einkakonserta.
„Hingað mættu stundum heilu
hóparnir og rúturnar af fólki sem var
áhugasamt um orgelið. Við reyndum
að sinna því eins og tök leyfðu. Ég
fór stundum frá vinnu minni hér á
verkstæðinu og spilaði fyrir fólkið.
Þetta var sérstakt en skemmtilegt.“
Organleikur og kirkjusmíði
Ólafur er fæddur árið 1945 og hef-
ur búið alla sína tíð í Forsæti. For-
eldrar hans voru Kristín Ketilsdóttir
og Sigurjón Kristjánsson, bóndi og
smiður, sem var þess utan ágætlega
músíkalskur. Saman fóru þeir feðgar
oft til kirkju. Þannig vaknaði áhugi
Ólafs á orgelleik og tónlistarnámi
sem hann sótti fyrst til Guðmundar
Gilssonar organista.
„Þegar ég var kannski 16-17 ára
vildi Guðmundur endilega að ég færi
í organistanám suður í Þýskalandi.
Ég var þó fljótur að velja og segja
nei. Þóttist vita að hámenntaður org-
anisti yrði fyrst og fremst kennari og
sinnti svo illa launaðri spilamennsku
í kirkjum um helgar. Ég valdi því án
nokkurs hiks hamarinn og sögina,
fór í iðnskólann á Selfossi og lærði
húsasmíði sem hefur verið aðalstarf
mitt,“ segir Ólafur. Svo mynduðu
þeir Albert bróðir hans tvíeyki og
hafa um áratugaskeið sinnt marg-
víslegri smíðavinnu ekki síst í sveit-
unum á Suðurlandi. Byggðu þeir
bræður meðal annars Kálfholts-
kirkju í Holtum í Rangárvallasýslu,
en þar hefur Ólafur oft setið við
hljóðfærið eins og í raunar flestum
guðshúsum á Suðurlandi.
Flautuhljómsveit
og voldugur bassi
Árið 2000 hætti Ólafur orgelleik
og kórstjórn opinberlega og þau
hjón snéru sér að því að koma lista-
safninu góða á laggirnar. Útsjónar-
semi og lagni þurfti til að breyta
gömlu útihúsi í listasafn, sem var
opnað árið 2007. Upphaflega hug-
myndin var síðan alltaf sú að koma
orgelinu fyrir í safninu og svo fór í
fyllingu tímans að slíkt varð aðkall-
andi. Því var safnhúsið stækkað um
65 fermetra og er sá hluti einskonar
tónlistardeild. Hún var opnuð form-
lega þann 6. apríl síðastliðinn og við
það tilefni komu og sungu í safninu
félagar í Karlakór Selfoss, sem Ólaf-
ur stýrði í heilan áratug. Við sama
tilefni heiðraði hann með vinar-
gjöfum sína gömlu kennara í tónlist-
inni, organistana Glúm Gylfason og
Hauk Guðlaugsson og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikara, menn sem
hann segist eiga mikið að þakka.
„Ég innréttaði viðbygginguna við
safnið með það í huga að hljómburð-
urinn yrði sem bestur og þegar
strákarnir í karlakórnum komu
hingað á dögunum höfðu þeir einmitt
á orði að svo væri. Oft er sagt að
pípuorgelið sé drottning allra hljóð-
færa sem ég get vel tekið undir. Í
pípum margra radda er gríðarleg
fjölbreytni; í tríósónötum Bach sem
ég spila stundum kemur orgelið með
heila flautuhljómsveit og voldugan
bassahljóm sem fyllir hér út í hvern
krók og kima. Að leika á hljóðfærið
og nema þá tónlist er mikil upp-
lifun,“ segir Ólafur Sigurjónsson.
Austan við Selfoss
Safnið Tré og list í Forsæti er opið
nú um páskana milli kl. 13-17 og svo
á sama tíma alla daga í sumartím-
ann. Forsæti er í gamla Villinga-
holtshreppnum, nú Flóahreppi, en
þegar þangað er farið er beygt til
hægri af Suðurlandsvegi um það bil
8 kílómetra fyrir austan Selfoss.
Þaðan er svo ekið áfram álíka langan
spotta, án þess að beygja nokkru
sinni, heim að Forsæti, þar sem eru
skilti og skýrar merkingar.
Sextán raddir og fjórir metrar
Sögufrægt orgel úr Landakirkju á handverkssafni í Forsæti í Flóa Skemmdist í Eyjagosinu en
hljómar aldrei betur en nú Þjóðhagasmiðurinn Ólafur Sigurjónsson organisti leikur á hljóðfærið
Ljósmynd/Þórbergur Hrafn
Kórstjórn Við formlega opnun tónlistardeildarinnar í Tré og list söng
Karlakór Selfoss þar sem Ólafur rifjaði upp gamla takta sem stjórnandi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hljóðfæri Ólafur Sigurjónsson við pípuorgelið úr Landakirkju í Eyjum sem
hljómmikið og svo stórt að byggja þurfti sérstakt hús utan um það.
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Blár vinur í stofunni,
yndislegur litur sem nýtur
sín vel í flestum rýmum.
Skoðaðu litaúrvalið
okkar á slippfelagid.is
Notalegur