Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir ökuskírteinið, passann, ferilskrána o.fl. Góð passamynd skiptir máli Engar tímapantanir Skjót og hröð þjónusta Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is KonukvöldHúðfegruna r Við bjóðumþér á Í boði verða léttar veiti og frábært tilboð fyrir þig. Í DAG 17. apríl kl:18-20 hjá Húðfegrun, Vegmúla 2 Elínrós Líndal elinros@mbl.is Það er eitthvað svo hressilegt að lenda á samtali við Sigurð. Hann er ráðgjafi af lífi og sál og lifir líf- inu öðrum til eftirbreytni. Hann segir páskana einstaka fyrir margar sakir. Hefðin sé að borða mikið af páskaeggjum um hátíðina. „Páskarnir fyrir mér þýða gleði, vorkomu og tíminn þegar lífið kviknar,“ segir hann og staldrar við en heldur síðan áfram: „Já og auðvitað mikið af páskaeggjum, meðal annars frá Kólus.“ Hvernig heldur þú þér í formi? ,,Ég á hund sem þarf mikla hreyfingu en síðan reyni ég að borða skynsamlega. Ég hef reynd- ar prófað alla megrunarkúra sem til eru. Þeir skila mér vanalega sama árangri sem er mikill strax en síðan þyngist ég um tvö kíló eft- ir hvern þeirra, segir Sigurður og brosir. Aðspurður um hvernig hann fari að því að líta svona vel út segir hann aðalmálið vera að finna ham- ingjuna innra með sér og að raða í kringum sig rétta fólkinu. Hvernig gerir maður það? ,,Þú velur þér ekki fjölskyldu en þú velur þér vini. Maður verður sjálfur að finna hamingjuna það er ekki á ábyrgð maka eða annars að- ila. Þegar kemur að vinum er gott að skoða, hverjir gefa og geta þeg- ið og þroska mann í anda og hverj- ir eru einungis í sambandi þegar eitthvað bjátar á. Þeir sem eru með manni í gleði og sorg og leyfa manni að taka þátt í lífinu sínu er fólkið sem ég vil hafa í kringum mig.“ Hver og einn er einstakur Sigurður starfar í umhverfi þar sem mörg kraftaverk gerast dag- lega. Hann er ráðgjafi í Hlaðgerð- arkoti og þykir sterkur á mörgum sviðum, sér í lagi þegar kemur að verkefnum til að efla sjálfsvirðingu og sjálfsástin. ,,Ég ráðlegg fólki að horfa í spegil og segja sjálfum sér að það sé frábært og einstakt. Það er mjög mikilvægt að fólk þori að taka pláss í þessu lífi og viti að það sé nóg. Þegar kemur að mér sjálf- um finnst mér mikilvægt að gera þetta og svo eru verkefni daglega sem auka á sjálfsvirðinguna sem er m.a. að klæða sig fallega og líta vel út.“ Sigurður segir að hver mann- eskja sé einstök og þess vegna þurfi allir að muna að fara vel með sig. „Við þurfum að átta okkur á hversu dýrmæt við í raun og veru erum og hvað lífið er mikil gjöf. Það eru litlu fallegu hlutinir sem við oft ekki sjáum fyrir vanda- málum sem taka mikið pláss.“ Sama ár og Jesús er fæddur? Sigurður hefur reynslu af því að vinna með fólki út úr aðstæðum sem sumir hefðu haldið að væri ómögulegt að vinna sig úr. Hann þykir einnig fær að leiðbeina fjöl- skyldum að ná saman í sátt. ,,Ég held það sé ótrúlega dýrmætt fyrir börnin okkar að sjá okkur gera skynsamlega hluti en ekki einvörð- „Þú átt skilið að elska án skilyrða“ Sigurður Karlsson starfar sem ráðgjafi og hefur hjálpað fjölmörgum aðilum og aðstandendum þeirra að komast í bata. Hann segir mikilvægt að rækta ástina um páskana og ráðleggur foreldrum sem vilja ná vel til barnananna sinna um hátíðina að vera til staðar sem vinur þeirra í raun. Mikilvægt Sigurður Karlsson er dugleg- ur að minna sig og aðra á að það má elska án skilyrða. Ljósmynd/Thinkstockphotos Ábyrgð Sigurður segir það á ábyrgð hvers og eins að finna hamingjuna innra með sér.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.